5.2.03

Og núna get ég ekki beðið...

...já...netta panic attackið sem ég fékk um daginn fyrir Spánarferðinni breyttist í dag í þvílíka tilhlökkun og gleði yfir því að fara að losna frá þessu landi og öllu og öllum sem ég vil helst ekki lifa með...jibbí jibbí...það æxlaðist (djöfull er gaman að nota þetta orð...hámark hallærisleikans maður) þannig að ég og KataRína vorum eitthvað að tala um hádegismatinn sem var quesadillas og mmm gott...svo gott að ég fékk mér tvisvar...og þá fórum við að tala um mat og ég sló um mig með orðum og orðasamböndum eins og cebolla, pimientos og sin hielo við mikinn fögnuð aðstandenda...klapp klapp...og þá fór ég að hlakka alveg óstjórnlega mikið til og síðan þá hef ég verið að tala við sjálfa mig annað slagið á spænsku...ooooo...get ekki beðið eftir að fara þarna út...Me llamo Lilja...soy de Islandia...quiero marcharme y follar muchos hombres...ha ha ha...neeeei...það er ekki satt...ég er heiðvirð stúlka...og fyrir ykkur sem skiljið ekki spænsku...töff núggís...
Stay black
Og halló frændi...

...er það sem ég segi við annan hvern mann í vinnunni þessa dagana...hinn maðurinn er kona...og hana kalla ég frænku..því jú...núna er maður loksins búinn að fá aðgang í hina víðfrægu og sívinsælu Íslendingabók...dadara...ég er búnað reyna eins og ég get síðan í gær að finna einhvern sem er ekki skyldur mér en það gengur bara ekkert...samt búnað finna nokkra fimmmenninga í vinnunni hjá mér sem er voðalega sniðugt...núna bæti ég alltaf frænka eða frændi fyrir aftan nöfnin á fólki ef ég er að tala við það...voðalega gaman að vera svona úrkynjuð þjóð að í fyrndinni sváfu allir hjá systkinum sínum...jú tja eða foreldrum...gerir mann svo stoltan af því að búa á Íslandi...lifi byltingin! Lifi Ísland!
Stay black
Og hvað er of mikið af því góða...

...Ókei ókei...uppáhaldsveðrið mitt er rigning og ég elska að fara út í snjókomu líka en meeeen...mix these two together og deeem það er nojandi...guð minn góður...skrýtið hvernig tveir svona rosalega góðir og skemmtilegir hlutir verða ömurlegt helvíti þegar þeim er blandað saman...magnað alveg hreint...og svo ef heppnin er með okkur kemur frost í nótt og þá harðnar allt slappið og þá er nú aldeilis fjör! Jeyj...rigning...snjór...og frost...and I wonder why I wanna leave this place...
Stay black
Og fla la la la...

...ég gerði þau mistök í gær að horfa á lögin sem keppa í undankeppninni í Júróvisjón á meðan ég var að bíða eftir henni Hjördísi...guð minn góður!! Hverjum heilvita manni dettur í hug að senda Rúnar Júl í Júróvisjón!? Jahérna...greyið maðurinn getur varla talað...hvað þá sungið...hann átti sína blómatíð og núna er hún liðin...núna er hann bara sad skemmdur maður með ljóta klippingu...og mér finnst ljótt að senda svona aðhlátursefni í þessi keppni...og ekki skánaði það með Birgittu Haukdal...eða hvað...ég þoli ekki Írafár en ég verð að játa að af þessum 3 lögum sem ég heyrði þá var hennar best...enda samdi hún það náttlega ekki...og enginn í Íraviðbjóðnum...heldur einhver hagfræðingur..mögnuð leið til að þjéna smá aukavasapening...senda inn lög í Júróvisjón..ha ha ha..
...en eins og ég sagði þá var ég að bíða eftir henni Hjördísi hans Dóra...hún kom svo og sótti mig og við skunduðum okkur á Vegamót...ætluðum fyrst á Sólon en þar var allt fullt og það var ekki sála á gamla góða Hverfisbarnum þannig að Vegamót urðu fyrir valinu...hef aldrei komið þarna á virkum degi og verð ég að segja að þetta er fínasta kaffihús...ekkert sveitt eða neitt...very good...ég og Hjördís sátum lengi og spjölluðum um ýmislegt en þó helst um Costadelsol-hitting sem við erum að plögga í nánustu framtíð...planið er að drekka fullt af víni og horfa á vídjóspólur frá Costa...það verður nú örugglega nettur fílíngur því við krakkarnir sem fórum erum jú öll svo rosalega skemmtileg...ha ha ha...við skemmtum okkur allavega vel úti og það er gott að halda aðeins hópinn og hittast svona af og til...öll saman í smá tómi....úfff...þaning að ég var ekki komin uppí rúm fyrr en eftir miðnætti og vaknaði hálf sjö eins og vanalega og drattaðist í Veggsport þó ég væri þreyttari en dauðinn og myglaðri en George Bush á Jóladag...en magnað var að ég hef sjaldan verið svona þreytt og í leiðinni hef ég aldrei hlaupið svona langt...bravó ég...sýnir bara að því þreyttari sem maður er...því þrjóskari er maður að hlaupa...
Stay black

4.2.03

Og mamma mía...

....eyddi smá af laununum mínum í gær...sem er náttlega bara skylda á útborgunardegi...keypti mér 2 friends-spólur og get með stolti sagt að nú á ég allar fokkíng seríurnar á spólu...aaaa...þannig að ef einhverjum langar að kíkja í friends eitthvert kveldið...endilega bara bjallið í mig ;)...kannski soldið sad að safna þessu á spólum þar sem allir eru á einhverju dvd-flippi...en ég stíg gegn dvd-byltingunni og kýs vídjó!! Mér finnst það bara meira kósí...ojæja...ég er náttlega skrýtin...eeeen svo keypti ég mér náttlega líka ný föt og fékk þess hefðbundnu skápurinneraðspringa-ræðu frá mömmu but who cares...fékk 2 peysur og pils á 4000 kaddl í Top Shop...sem er að hætta á Austurstræti...mér finnst það voðalega leiðinlegt því það er uppáhaldsbúðin mín...hún er miklu flottari en í Smáralind...buhuhu...en jæja..svona er etta...þar hitti ég samt Þóreyju sem var að vinna í Monsoon einu sinni...hún var rosa hress og er líklegast að koma aftur í Kringluna...weee...hún bústaði egóið mitt aðeins þessi elska þar sem hún þekkti mig ekki alveg strax því henni fannst ég hafa grennst og svo er ég náttlega komin með síðara hár...æjji hún er svo sæt...kiss kiss...hlakka til að sjá hana hressa og káta aftur í Kringlunni..en hvar er stóra spurningin...
Stay black

3.2.03

Og talandi um turn on...

...þá er best að slútta þessum ágætisdegi á mest sexí lagi í heimi að mínu mati..margar obboslega góðar minningar við þetta lag og ekki ein einasta slæm...mmm...makes me wanna shoop sko það er svooo sexí...Billy Idol ladies and germs...White Wedding...

Hey little sister what have you done
Hey little sister who's the only one
Hey little sister who's your superman
Hey little sister who's the one you want
Hey little sister shot gun!

It's a nice day to start again
It's a nice day for a white wedding
It's a nice day to start again.

Hey little sister what have you done
Hey little sister who's the only one
I've been away for so long (so long)
I've been away for so long (so long)
I let you go for so long

It's a nice day to start again (come on)
It's a nice day for a white wedding
It's a nice day to start again.

(Pick it up)

Take me back home
There is nothin' fair in this world
There is nothin' safe in this world
And there's nothin' sure in this world
And there's nothin' pure in this world
Look for something left in this world
Start again
Come on

It's a nice day for a white wedding
It's a nice day to start again.
It's a nice day for a white wedding
It's a nice day to start again

Stay black
Og turn off og ekki turn off...

...váááá...ég er búnað fatta hvað turnar á mér algerlega off í sambandi við kaddla...kalla þá kaddla því ég er ekkert hrifin af smástrákum..vill bara karlmenn...sem sagt stutt= kaddla...anyways...já...sko...mér finnst kannski ekkert útlitslega turn off við kaddla...nema kaddlar með ljóst hár kannski...og já svona geðveikt myndarlegir kaddlar með ljótt bros og skakkar tennur...það er soldið off...en annars er ekkert mikið...my ideal man er svona með dökkt hár...og kannski smá tveggja daga skegg...svona frekar dökkur yfirlitum..en ekki útlendingur samt...og svo er hann svona nokkuð mikið hærri en ég...vel hausnum hærri...og hann verður að vera með smá sæta bumbu...nammi namm..svo hann geti knúsað mig og ég bara næstum horfið inní ´ann...en ekki samt alveg...ég er ekkert að tala um einhvern hval-mann...en vá...það sem getur spillt þessu öllu er...og þá komum við að turn offinu...sko...í fyrsta lagi...kaddlar í svona ljósum steinþvegnum gallabuxum...hvað er það?! Og guð minn góður ef þær eru þröngar að neðan þá er hægt að bóka að þeir eru virgins!! Svo er það efri parturinn í öðru lagi...jiddúdda mía...það eru svona peysur sem strákar mættu fyrsta daginn í skólann í 7.bekk..svona sem mamma þeirra hafði keypt handa þeim...svona svartar eða drapplitaðar peysur með röndum yfir brjóstkassann...alveg mömmustrákapeysur og akkúrat ekkert flott við þær...og hana nú! Svolleis gaurar eru svona típískir counterstrike-spilarar...jú eða quake..
Stay black
Og hvernig er hægt að vera svona...

...utan við sig...meeen óóó meeen...fór í Veggsport áðan og lét bursta mig í squashi því ég var bara hreinlega ekki í stuði...var líka soldið bissí að glápa á sæta sæta squash strákinn með flottu handleggina...meeen hann er með flotta handleggi..don´t care about his face...just gimme those arms...ég er með svona thing fyrir flottum handleggjum og hans eru alveg perfect...en allavega...já..ég lét bursta mig...fór uppí tækjasal og lyfti og gerði smá maga og fór svo bara í ljós...steinsofnaði sem var næs...en vitleysingarnir í Hólmaseli eru búnað taka uppá því að skipta á karla- og konuklefunum þannig að ég var næstum farin inní karlaklefann...sem hefði verið ágætt ef einhver stud hefði verið þarna inni...svona light ódýr klámmynd...eeen ég skellti mér í kvennaklefann eftir mikla umhugsun...náði að dúndra hausnum í flísavegginn er ég var í sturtu og kom út svona hálfvönkuð aðeins til að sjá að ég hafði tekið einn minn skó og einn einhvern allt annan skó í Veggsport...og þeir eru á sama fótinn! ! Þannig að ég ákvað nú að fara og skila þeim og er ég er á leiðinni hringir hún mútta og minnir mig á að hún er besta mamma í heimi því hún bíður heima með kjúlla og franskar handa mér...og þá gat ég ekki keyrt alla leið uppí Grafarvog að skila einhverjum ljótum skó þannig að ég fór bara heim í besta mat í heimi og skila skónum á morgunn...og hananú! En vááá hvað kjúllinn hennar múttu er góður...ég sver að ég fengi að velja um kynlíf eða kjúllann hennar mömmu þá væri ég í smá vanda hvort ég ætti að velja...nema það væri náttlega kynlíf með einhverjum af toppmönnunum mínum...frægum eða ISO-mönnum...en þar sem enginn af þeim er búinn að bjóða mér neitt meira en góðan daginn af og til þá held ég mig bara í kjúllanum og káma mig alla út af ánægju...
Stay black
And to sum up....

...já í dag er kominn annar dýrðardagur drottins og byrjun á nýrri vinnuviku...praise the lord! En allavega...þar sem það er mánudagur þá er ekki úr vegi að líta yfir farinn veg og summa síðustu viku upp...svona ISO-lega séð...bara til að minna á að vottunin er enn í fullum gangi....en mér fannst síðasta vika bara nokkuð góð og kom margt á óvart...eins og kannski er kunnugt þá erum við Sigga Vala enn með aðskilinn topp 5 lista og verða þeir ekki sameinaðir fyrr en í Köben 2003...þannig að ég tala bara fyrir mig og verð ég að segja að fyrrverandi topp-sætið mitt átti góða syrpu í síðustu viku og get ég með sannleika sagt að hann er kominn aftur á toppinn...bravó Herra Ísland...hann spilaði síðustu viku meistaralega vel og tók stakkaskiptum algerlega...sýndi heilbrigði og hreysti sem og skopskyn og persónutöfra..steypti hann því toppsætinu niðrí annað sæti og gerði það meistaralega vel...en enn er nægur tími og því er aldrei að vita hvað annað sætið tekur til bragðs...da da ra...en eins og ég segi...góð vika í alla staði og allir höguðu sér mjög vel og mjög fáir náðu sér í mínusstig...bravó allir saman...
Stay black

2.2.03

Og hvað er málið...

..með gamlar tussukeddlingar í pelsum...eru þær leiðinlegar eða er það pelsin sem gerir þær tussulegar? Er þetta kannski bara þynnkupirringur í mér á miðjum götumarkaði í Kringlunni..please let me know a-s-a-p!!
Stay black
Og helgin var það heillin...

...og fínasta helgi var það...byrjum bara á byrjuninni shall we...
Föstudagur: Tja...vaknaði svo þreytt og mygluð að ég meikaði ekkert...fór í Veggsport og meikaði ekki að hlaupa heldur fór bara í smá squash við sjálfa mig sem var fínt...ekki búnað gera það lengi...sem er synd því þetta er fínasta æfing...svo skellti ég mér í vinnuna með fullt af gúmmulaði því Stína átti ammæli á föstudag...þrítug kellingin er orðin og svona...it´s better to be over the hill than buried under it..ha ha ha...allavega...héldum gúmmulaði ammælisveislu í morgunkaffinu og ég held ég sé ennþá södd...og áfram hélt myglan og ég skellti mér í squash með samstarfsfélaga mínum (hann vill ekki láta nafns síns getið greyið...enda líka soldið skrýtinn..)...og vegna skorts á sigurvilja og fullt af mistökum af minni hálfu þá náði hann að vinna mig...sem var svo sem við að búast...svo tókum við 3 stelpur í vinnunni þá snilldarákvörðun að skella okkur á einn öllara á Wall Street eftir vinnu...er við komum þangað þá voru fullt af vinnufólki þar (við vissum ekki af því) og einn gaurinn var grand á því og bauð okkur öllum í glas...måske sad tilraun til að næla sér í bónusstig...sem hefði svo sem virkað ef þessi einstaklingur væri ekki löngu búnað firra sig þeim munaði að get fengið plússtig í kladdann hjá okkur Siggu...svo skundaði ég mér heim á leið og tók mig til og ég og mamma pikkuðum upp Freyju og við skelltum okkur í hitting til Evu Óskar beibsu (og nei mamma kom ekki með...I may be single but I´m not a loser!)...svo komu Þórunn og Fríða til Evu og við sátum þar, drukkum og spjölluðum um nýja og gamla tíma...og auðvitað kynlíf, víbradora, fullnægingar, stráka, stráka, stráka og aftur kínkí kynlíf...svona eins og alltaf þegar við hittumst...svo þegar húsið var orðið fullt af strákum sem voru nú bara nokkuð sætir en allir á föstu þá kíktum við niðrí bæ og ætluðum inná Astro að hitta Óla en í staðinn kom hann út (Thank god!!) og við eyddum meiripartinum af kvöldinu inná Sólon..sem ég hef aldrei gert áður...og býst ekki við að gera mikið af því það er frekar sveitt stemming þar inni og fólkið svona hálfpartinn misheppnað...en það var náttlega gaman því ég var að djamma með skemmtilegu fólki...og þá meina ég náttlega Óla..ha ha ha..neinei...hinir voru skemmtilegir líka...bara hef ekki djammað með Óla svo lengi...svo kíktum við aðeins á Hverfis og þar var dauð stemming og þar sem Óli gerði mig að mesta fífli ever þá fórum við bara heim í taxa hjá leigubílstjóra dauðans sem er einhver Elton John fan frá helvíti...he wouldn´t shut up god damn it..ha ha ha Óli þurfti samt að þola hann lengur en ég ...tíhí...en fínasta kvöld allt í allt...
Laugardagur: Fór í vinnu eftir góða 4 tíma af svefni sem var helvíti á jörðu...því það eru náttlega útsölulok..og götumarkaður og læti...byrjaði daginn úti á götu (ganginum í Kringlunni) og eina sem bjargaði því var sæti sæti sæti strákurinn í Hanz...mmm hann er svo sætur...en jæja...svo bara fór ég heim...rotaðist og sveik Orm í vídjó...
Sunnudagur: Vinna...og eftir circa 20 mín er vídjó með Ormi so I bid you farewell....
Stay black

31.1.03

Og jæja...

...Íslendingar töpuðu í gær...eins og við mátti búast en auðvitað heldur maður alltaf í smá von...nú jæja...við komumst samt kannski á Ólympíuleikana sem er cool...en þetta var nú soldið bitursætt í gær...ég vissi ekki almennilega með hverjum ég átti að halda því jú ég fékk bréf í gær frá Spáni sem sagði mér að ég væri að fara í byrjun maí í eitthvað stöðupróf...that´s right! Lilja got in! Lilja is going to Spain...aaaa...núna er þetta eitthvað svo raunverulegt og það sem kom mér rosalega á óvart var að ég var svo glöð þegar ég fékk þetta bréf að ég hoppaði um allt og knúsaði og kyssti húffann minn...ég hélt kannski að ég myndi fara á einhvern bömmer þar sem ég er búin að fá svona smá panic attack útaf þessu en núna er þetta að gerast...ég er að fara...ég er ekki lengur bara að tala um að fara heldur er þetta raunverulegt...vááá þetta er skrýtin tilfinning...og það er svo stutt í þetta....bara 3 mánuðir...ég vona bara að ég finni eitthvað af því sem ég er að leita að þarna úti og ég vona líka að ég eigi eftir að kunna vel við mig þarna því þá get ég verið þarna lengur...weeeee....og auðvitað vona ég líka eftir góðum innfluttum Carlsberg...
Stay black

30.1.03

Og enginn getur staðist mig...

...fór á Esso áðan að taka bensín og viti menn...flirti-afgreiðslugæinn gaf mér rúðupiss þessi elska...ótrúlegt hvað ég er ómótstæðileg...true að ég held að allir hafi fengið svona ókeypis en ég held enn að ég sé svona special...Ormur fór sko rétt á eftir mér og fékk ekkert rúðupiss...ha ha ha ha
...talandi um Orm þá fór ég að heimsækja þessa nýju útvarpsstjörnu þegar ég var búin í vinnunni í dag því ég var búin svo óskaplega snemma...hann er nefnilega byrjaður á fimmtudagsmorgnum í þættinum hjá Hemma feita og Jóni Mýrdal...Rödd sannleikans...Ormur Karlsson...soldil mikil steypa en Ormur tekur sig vel útí útvarpinu...endilega hlustið á þessa video killed the radio star á Radio Reykjavík alla fimmtudagsmorgna klukkan hálf níu..handhafi fálkaorðunnar...
Stay black
And again and again...

...voðalega margar óstaðfestar fréttir er maður að fá þessa dagana...soldið skrýtið, gaman, leiðinlegt, dapurt, ánægjulegt og hlægilegt allt á sama tíma...samt er þetta akkúrta tíminn fyrir svolleis fréttir því mér er alveg sama...kannski út af því að ég þarf að einbeita mér að því sem ég er að gera en ekki því sem allir aðrir eru að gera...makes sense...en það er furðulegt að fá fréttir sem maður er búinn að búast við heillengi og svo loksins þegar það gerist þá verður mar eitthvað sár og læti...skrýtið hvernig mannshugurinn virkar...

...en on to happier things...ég er gaur í dag...íha..mér finnst svo gaman þegar ég er gaur...reyndar var búið að semja um það í vinnunni að ég myndi bara vera gaur á mánudögum en í dag er fimmtudagur og ég ákvað að vera gaur í víðu hermanna-gangstah-buxunum mínum, rauðu gangstah-diesel-skónum mínum, súperman-costadelsol-bolnum mínum og auðvitað með drapplituðu-gangstah-töskuna mína...kannski bara útaf því ég pissaði á mig í gær af spenningi yfir leiknum...neeee...so all in all...I´m a gangstah...íha...neee ég er náttlega ekki svona alvöru gangstah því ég er bara lítil íslensk stelpa...lítil íslenska stelpa sem í dag ákvað að vera gaur...
Stay black

29.1.03

And I just realized...

...að snooze-draumarnir eru miklu skemmtilegri en hinir venjulegu draumarnir...mig dreymir alltaf eitthvað voðalega spennó og solleis þegar ég er að snooze...ég nefnilega er snooze-óð og snooze-a í minnsta lagi hálftíma á hverjum morgni...pretty sick but I love it...eins og í morgunn dreymdi mig bókstaflega alla vini mína og kunningja í einhverri heavy sápuóperu...ég var ekki mikið í henni...meira svona by stander...en þetta var snilld...ógeðslega ruglað og fucked up...snooze-draumar eru sem sagt betri...og curse the one sem segir að snooze sé fyrir letingja...ég er sko enginn letingi...it´s been a business doing pleasure with you...
Stay black

28.1.03

Og maður er svo einföld, lítil sál...

...æjji hvað mér finnst gaman þegar maður kemur að tölvunni sinni í vinnunni eða heima og það er svona lítill msn-gluggi á skjánum sem segir að einhver@hotmail.com vilji tala við mig...æjji mér finnst það svo krúttaralegt...sérstaklega þar sem það er búið að gerast 3 sinnum á 2 dögum...það er auðvelt að gleðja einfalt hjarta...
Stay black
Og ég er enn hrædd um líf mitt...

...Squashleikirnir hjá mér og systu eru alltaf að verða meira brútal...dúndurboltar farnir að hitta aðra staði en veggina...misviðkvæma staði en staði samt sem þeir eiga ekki að lenda á...en í dag held ég að hámarkinu hafi verið náð þegar systa náði einhvern veginn að fella mig (ég hef örugglega átt einhverja sök í máli) og ég kastaðist eftir gólfinu og spaðinn á undan mér...er með sár á olnboganum og að drepast í hægra lærinu...en jæja...hvað gerir maður ekki fyrir íþróttina sem maður elskar...vonandi getur maður samt farið að hlaupa á morgunn og unnið vel valdan samstarfsfélaga í squashi...aftur...mouhahahah...fingers crossed

...en já...það kom póstur í dag á Alla Starfsmenn sem var eins og guðsgjöf til okkar Siggu Völu...ISO-gæðavottunarkvendanna....sem sagt listi yfir alla sem fara til Köben...OG maka! Sumir fá stóran plús fyrir að koma með maka og sumir...tja...sumir gætu fengið rosa plús en sumir eru búnað firra sig þeim munaði að fá nokkurn tímann plús og þurfa að sætta sig við að vera fastir í botnsætunum...en jú þið lesið rétt...Sigga Vala er komin aftur frá l´Italie og núna stendur ISO sem hæst ef við eigum einhvern tímann að komast að niðurstöðu...auðvitað er toppsætið svona nokkuð ljóst en allt veltur náttúrulega á aðalgæðapunktinum...Köben 2003.....en auðvitað má reyna að hala inn bónusstig þangað til og eins og fyrr segir eru rauðir bílar....jakkaföt og allar gjafir vel þegnar...
Stay black
Og tja...

...ég fór alltíeinu að hugsa um það í Veggsport í morgun hvaða 5 lög hafi breytt/bjargað mínu lífi svona eins og er oft spurt í Undirtónum og svona...ég held ég gæti ekki nefnt nein 5 lög en ég reyndi samt að finna 5 lög sem eru svona næst hjarta mínu....svona misjafnlega góð en jæja...

....Black með Pearl Jam...auðvitað...engin spurning að þetta lag er og verður alltaf í mínu fyrsta sæti...
....What´s this life for með Creed...sumarið '99....alltof margar minningar tengdar þessu lagi og flestar frekar slæmar en samt er þetta lag eitt af mínum favorites...
....I believe when I fall in love (this time) með Stevie Wonder...snilldarlag með snilldarmanni...
....Cut here með Cure...fjandinn...sumarið 2002 í hnotskurn...eins og lag númer 2...margar slæmar minningar en miklu fleiri góðar...þetta lag minnir mig alltaf á Costa del Sol en þar reyndi ég að blasta Cure eins mikið og ég gat á meðan Alla var ekki heima..ha ha ha...
....The ship song með Nick Cave and the Bad Seeds....uppáhaldslagið mitt með þessum snillingum...toppurinn á tilverunni þegar Cavearinn var klappaður upp 9.des og tók þetta lag...nammi

....og ég verð að koma einu enn að....svona bónuslag...

....Close to me með Cure...að mínu mati besta lag þeirra....kemur mér alltaf í gott skap og þess vegna er Hverfisbarinn uppáhaldsstaðurinn minn því þetta er alltaf spilað þar....
Stay black

27.1.03

Og hvað er málið...

...með að mig langar ekki eins mikið til Spánar og mig ætti að langa...meeeen...er búnað fá þessa tilfinningu oftar og oftar yfir síðustu daga...svona eins og eitthvað togi í mig hér...skil ekki hvað það ætti að vera...kannski hundurinn minn...veidiggi...kannski er það bara útaf því að það gengur allt svona frekar vel hér...nema boyfriend-statusinn er ennþá status kvó....en ég meina ég er í fínum vinnum...er að æfa squash á fullu (með nýja spaðann minn...sem er snilld!!) og á rosa góða vini sem eru alltaf til staðar....og það náttlega breytist allt þegar maður fer svona út...kannski missir maður samband við einhvern og svona...hver veit...en mér finnst samt eins og eitthvað sterkara sé að toga í mig...og mér finnst svo pirrandi að vita ekki hvað það er...

...en á léttari nótum....er ekki neins staðar hægt að fá almennilegar íþróttabuxur!? Guð minn góður...allar íþróttabuxur á konur eru svona hommalega eróbikk buxur sem eru heavy þröngar og asnalegar...og ég bara pulla það ekki alveg off...þannig að ég reyndi að fara í kaddlabuxur en þær gera ekki ráð fyrir mjöðmum og rassi...og þar sem ég hef nóg af því þá gekk það ekki heldur...baaa I´m going insane...held ég fái mér bara svona gangstah-white-men-can´t-jump-stuttbuxur from the hood....wöööörd
Stay black
Og HA HA HA HA HA....

...Mér finnst æðislegt að ég var að fá óstaðfestar fréttir um doldið sem hefðu fyrir nokkrum mánuðum gert mig óendanlega dapra og pist....en núna gæti mér ekki verið meira sama!! Ha ha ha ha...ég elska lífið og alla í því...mér finnst fólkið næst í kringum mig alveg æðislegt og fólkið aðeins lengra frá mér soldið magnað...tíhí...fyndið hvernig tilfinningar breytast...og það er svo æðisleg tilfinning þegar maður uppgötvar að sumt fólk hefur ekki sama hald á manni og það hafði...ég veit að þetta meikar ekki neitt sense...en so fucking what...it´s my brain...it´s my feelings so who cares if you get it or not...
Stay black...peace out...and keep fucking
And I´m shocked to my very core...

Deeem it...var svona light móðguð í gær þegar ég sá að gæðastjórinn hafði sagt að ég vissi örugglega ekki hver galdrakaddlinn er...auðvitað veit ég hver galdrakaddlinn er ...hann er bæði galdramaðurinn í strumpunum (sem gæðastjórinn á litla styttu af og hefur hana með sé hvert sem hann fer ...ha ha ha...geymir hana nálægt hjartanu...) og gamli dúdinn sem kemur í fyrirtæki og vottar þau...hva...halda sumir að ég sé bara blaut á milli eyrnanna...sumir fá nú ekki mörg bónusstig fyrir þetta...fussumsvei...
Stay black
Og a la la la la long....

Það er komin ný könnun á liljagnarr.blogspot.com...og jú þar er spurning um djúpu laugina og Lilluna...og Óli það er ekki útaf því ég er desperate eða langi í þennan misheppnaða þátt...langt því frá...heldur er það útaf því að vinnufólkið er að reyna að lokka mig í hann..sumir í alvöru en sumir ekki í svo mikilli alvöru...mig langaði bara að vita hvaða álit fólk hefur á mér...hvort það haldi að ég sé mest desperate gella í heimi eður ei...ef niðurstöðurnar úr þessari könnun hvetja mig til að fara í djúpu laugina þá skýt ég mig fyrst í hausinn og fer svo að gráta...
Stay black
Og baaaaa....

...keypti mér nýjan bol í monsoon í gær...finnst hann alveg ógeðslega flottur...eeeen...þetta er brjóstabolur!!! Ég meika það engan veginn og það passar ekki alveg að vera í bol innan undir...og hér sit ég við tölvuna mína í brjóstabolnum...ó nei ó nei ó nei! Væri kannski alltílæ ef mar hefði eitthvað til að sýna eeeen the farm ain´t crowing a lot of crop around these places...æjjj...en þessi bolur er svo flottur...og ég verð að not´ann því mér finnst hann svo flottur...ojæja...guess there´s only one thing to do...fara í sílíkon...
Stay black

26.1.03

Og óóó meeeen....

....er að skanna inn Costa del sol-dagbókina mína fyrir Guðjón og meeen mig langar í þennan tíma aftur...djöfull var ógeðslega gaman...og Guðjón...ef þú ert að lesa...sorrí að ég hef verið svona lengi að drulla mér í að skanna þetta...Lilla er bara bissí these days...en núna er ég að hespa þessu af...en þetta gerir mig svo dapra að lesa þessa bók því það var svo gaman þá og það er ekkert gaman núna því maður er bara á litla leiðinlega Íslandi...eeeen...not for long...aðeins rúmlega 4 mánuðir í brottför...peace out...
Stay black
Og hvað er gaman að rólyndis - og áfengislausum helgum...

...NOT! Djöfull langaði mig að detta í það um helgina...bæði í áfengi og á útsölum...en ég náði að hemja mig...á föstudaginn kíkti ég bara á netta kaffihúsastemmingu á hverfis með Beggu og við vorum komnar heim og undir sæng um eittleytið...mjög stilltar stelpur...náðum að catcha vel upp...við erum svona vinkonur sem hittumst ekkert voðalega oft en þegar við hittumst þá erum við samt alltaf jafngóðar vinkonur...þetta var svona eins og eitt stórt trúnó...voðalega gaman...ennþá skemmtilegra þar sem við erum að ganga í gegnum svona svipaða erfiðleika í lífinu þó ólíkar séum við mjööög...

...svo á laugardaginn kíktum við Jóhanna í bíó...á Jackass the movie...sem er hin hreinasta snilld...ég hló allan fucking tímann...djöfulsins vitleysingar...og meeen hvað Johnny Knoxville er sætur...slef slef slef...draumamaðurinn minn sko all wrapped up in one...mmmm...enníhú...svo tókum við nettan fílíng í bænum....og tókum regluna um 2 sleesy staði og tvo siðsamlega...reyndar breyttist það í 3 sleesy staðir og 2 siðsamlegir...byrjuðum á þeim siðsamlegu...Hverfis og Sólon...entumst lengur á Sólon þó mér finnist það nú vafasamlega sveittur staður...alveg misheppnaðir gaurar þar líka...vúússsj...kom mér samt á óvart hve mikla athygli maður fékk í bol uppí háls innan um allar píku-bimbóarnar þarna inni...en enníweis...þá var komið að sleesy stöðunum og auðvitað var byrjað á Nelly´s...the queen of sleesy places...meen ó meeen...hann verður alltaf verri og verri þessi staður...en jæja....þar samt hitti ég á gott fólk sem á ekki heima þarna inni..sorglegt...næsta stoppustöð var Viktor...og æj æj æj...það er sveitt stemming...mar labbar þar einu sinni í gegn og hver einasti maður afklæðir mann með augunum...og svo var endað á meistara sveittu stemmingarinnar...Glaumbar *klapp* *klapp*...en svo bara skunduðum við okkur heim á leið og sængin var vermd um fjögurleytið...og sofnað eftir svona tæplega einn friends-þátt eins og vanalega....góð helgi í alla staði og ég er ekki frá því að egóið hafi fengið mikið búst...svo ekki sé minnst á coolið mitt sem fer alltaf stighækkandi...
Stay black