19.3.03

Og ég vil þakka....

..hlýhug til mín vegna bloggleysis...æjji ástæðan er bara sú að ég er með þá stefnu að ef maður getur ekki verið trúr sjálfum sér þá á maður bara að sleppa þessu öllu saman...og ég get ekki lengur verið trú sjálfri mér í mínu bloggi því það er alltof mikið sem mig langar rosalega að skrifa en get ekki því það myndi verða soldið haddló...efast um að einhver nenni að lesa tilfinningasteypuna sem kemur uppúr mér og svo ekki sé minnst á hvað það er svo vandræðalegt þegar maður hittir fólk sem les síðuna mína og veit nákvæmlega hvernig mér líður...ha ha ha....gotcha punks! Ætlaði aðeins að láta ykkur halda að ég væri eitthvað þunglynt basket case...mouhahaha...and it worked! En svona án gríns þá er ég að spá í að hætta að blogga en ég held ég geti það ekki...ég hef alltof mikið að segja enda tala ég alla mína vökutíma...stanslaust ha ha ha...þá við sjálfan mig ef enginn er nálægt..mér finnst bara magnað að fólki finnist gaman að lesa bloggið mitt því þetta er svo mikið eitthvað „fór að skokka í morgunn og fékk að horfa á popp tíví.." eða „squash tíminn í dag var helvíti lélegur..."...magnað að ykkur þarna úti finnist þetta gaman...I salute you ;)

....en squash tíminn í dag var helvíti lélegur...ha ha ha..ég er húmoristi í dag...en hann var í alvöru lélegur..en ég nenni ekki að tala um það...

....en eins og þið á msn hafið tekið eftir þá vantar mig síma...síminn minn bara mótmælti áfengisneyslu minni í gær þegar ég og Sigga Vala skelltum okkur á Jensen og dó...eeen mig vantar eiginlega ekki lengur síma því Sigga Vala ætlar að lána mér gamlan sinn svona meðan ég er á þessu litla landi...sem er nú ekki lengi!!
Stay black

18.3.03

Og ég er að spá í að...

...hætta að blogga...hvernig líst ykkur á það? Einhver hugdetta hjá mér í dag...kannski útaf því að dagurinn er ekki búinn að vera sá besti hver veit...kannski skipti ég um skoðun á morgun...kannski ekki...kannski verður ekkert blogg hér í fyrramálið...hver veit...life´s full of surprises..

...eeen ég er búin að eyða síðasta klukkutímanum eða svo að skanna inn myndir frá Köben og þær má nálgast hér ... skannaði ekki einu sinni helminginn af myndunum því mar vill nú ekki vera að þreyta fólk með useless myndum...reyni svona að velja þær skemmtilegustu úr...en djöfull er nú annars leiðinlegt að skanna inn ...meeen ó meeen...je je ég veit...fá sér digital...ég bara er ekki mikil tölvumanneskja og ég vil miklu frekar taka einhverjar useless myndir og borga fyrir þær og eiga allar heldur en að geta bara ýtt smá á delete og voila...öll heimskupör kvöldsins farin...ég vil endilega eiga mín heimskupör á mynd og geta dást að þeim seinna...svo á mar líka alltaf sjéns ef manni líkar ekki við einhvern á myndinni að rífa hana ha ha ha...þó ég hafi nú ekki lagt það í vana minn þá er það örugglega ágætisútrás...
Stay black
Og djöfulsins þrjóskuhlaup....

...var hlaupið í morgun...vúúússsj...ég var að drepast í maganum eftir allt þetta haribo þannig að ég er bara fegin að ég hélt því niðri...hefði ekki verið falleg sjón...en þar sem ég var alein í ræktinni í morgun þá kannski hefði það sloppið ha ha ha...gaman að vera ein á brettinu..þá fær mar að hafa popp tíví og svona...geðveikt nice...

...en vá hvað það er skrýtið að koma aftur í veruleikann...mar er voðalega fljótur að komast uppá lagið með að slæpast bara allan daginn og sötra bjór...og manni langar að halda því áfram...ekkert gaman að vera komin aftur í vinnuna og borða skyr og ávexti...buhuhu...

...en margir hafa kannski undrað sig á því að ég hafi ekki keypt neitt útí Köben...sem er náttúrulega fáránlegt þar sem þetta er nú ég...eeeen ég reyndi aðeins að stoppa mig af og keypti lítið annað en það sem ég var búnað plana að kaupa...keypti mér cd-player (með fjarstýringu...schnilld!), myndavél, ilmvatn, íþróttaföt, pils, bol, sokka og svo bara bjór, kahlua og vodka...hef aldrei keypt neitt vín í fríhöfninni þannig að mér fannst þetta alger snilldarferð...en það er rosalega erfitt að fara í svona ferð vitandi það að þú mátt ekki eyða neinu og því geri ég soleiðis aldrei aldrei aftur...tja..nema eftir einn og hálfan mánuð þegar ég fer til Spánar...íha!
Stay black

17.3.03

Og meeeen...

..hvað maður er þjakaður ekki aðeins af þreytu heldur áfengisskorti...fráhvarfseinkenni punktur is góðan daginn segi ég nú bara jiddúddamía...ég er að berjast við löngunina í bjór...reyndar er ég að berjast við löngunina í White Russian þannig að ég poppaði upp bjór áðan því mér fannst ívið of mikið alkóhólistamerki að fara að ná í shake-erinn og klaka og blanda sér Hvítan Rússa svona á mánudagseftirmiðdegi...hámaði svo í mig fullt fullt af Haribo Matador mixi sem er nú einu sinni my favorite þannig að núna er mér hálfbumbult...hálfbumbult en langar í bjór...awww...sounds like a poem sveimérþá...en þessi áfengisþörf er óþolandi þannig að ég er búin að setja mér takmark = ekkert áfengi fyrr en í fyrsta lagi næstu helgi....við sjáum bara til hvernig það allt saman gengur...
Stay black
Og helgin var...

...aaaaalveg frábær!!! Ef þetta er ekki ein skemmtilegasta ferð sem ég hef farið í þá veit ég ekki hvað...og ekki spillir nú fyrir að mar fékk etta frítt...kannski svartur punktur er að kreditkortinu mínu var lokað um miðjan laugardaginn...ekki vegna ofneyslu heldur vegna heimsku Dana að biðja um PIN númer þegar maður verslar í búð..hvað er það? Ég verð að opna það í dag...eða kannski sleppi ég því bara...neeee...held ekki...eeeen leiðinlegt var að það þurfti að halda mér uppi á laugardaginn og drakk ég þ.a.l. frítt allan daginn...og kveldið...og ég drakk sko ekkert lítið ha ha ha...en maður reynir nú að borga sem flestum sem ég man eftir...annars getið þið bara haft samband við mig ha ha ha...

....eeeen Köben var æði og ISO er nú loksins lokið...ennþá á eftir að merge-a listann..þ.e.a.s. okkar Siggu Völu og áhugasamir geta þá bara haft samband í lok vikunnar eða eftir næstu helgi...endaspretturinn var mjööög góður og staðfesti ennþá fremur þvílík glæsimenni vinna hér með okkur...

...eeen ég veit ekki hvað meira ég á að segja um þessa helgi...margt skemmtilegt gerðist og voðalega lítið leiðinlegt gerðist og ég þambaði White Russian eins og mér væri borgað fyrir það (enda keypti ég mér kahlua og vodka í fríhöfninni...verst þeir selja ekki rjóma þar)...ég fékk mér Cosmopolitan eins og í Sex and the City og Unagi eins og í Friends (don´t worry...ég tók mynd af því) þannig að ég gerði alveg obboslega margt sem mér hefur lengi langað til að gera en aldrei komið í verk..þannig að þetta var eins konar helgi hinna óloknu atburða...

...ég vil bara nota þetta tækifæri til að þakka öllum þeim frábæru manneskjum sem urðu til þess að helgin hjá mér varð svona meiriháttar...þið eruð öll yndisleg og hérna kemur eitt stórt knús og einn stór koss frá mér...samt ekkert of blautur *blikk* *blikk*...nenni ekki að þylja upp allt sem ég gerði...segi bara að þetta var ein skemmtilegasta ferð lífsins og ég vildi bara að ég hefði framlengt....buhuhu...en núna er maður mættur til vinnu og verður nú aðeins að slúðra smá...myndir koma svo þegar rennur af mér...
Stay black

13.3.03

Og núna er ég farin...

...heim að pakka og svo er það bara Köben snemma í fyrramálið...flýg klukkan átta og kem heim á sunnudagskveldið...og auðvitað er ykkur frjálst að öfunda mig...aaa...gaman að vinna hjá svona indælu fyrirtæki sem heldur manni uppi og býður manni í djammferð um heiminn...tja kannski ekki um heiminn...en allavega til Köben...vi ses mine venner og skemmtið ykkur på Island...
Stay black
And I feeeeel goood.....

...eða samt svona bæði og...soldið bitursætur dagur...bæði er þetta síðasti dagurinn fyrir Köben (vúhú!) en jafnframt fer ég í kistulagningu í dag sem er ekkert voðalega mikið vúhú...eiginlega bara ekkert vúhú...en svona getur lífið víst verið...bitursætt og seiðandi...

...eeeen síðasti dagur í leynivinaleiknum í dag og ég massaði hann eins og alla aðra daga...ha ha ha...en leynivinurinn minn er ekki að massa þetta því ég er ekkert búin að fá í dag...hehehehe...enda klukkan bara korter í átta...sem er fínt því ef þessi einstaklingur gefur mér ekki neitt þá læt ég bara Siggu Völu kenna mér body combat og ég tek smá kung fu á þetta í fordrykknum á laugardaginn...baaaa I can´t wait...djöfull verður ógeðslega gaman þaddna mar! Meeeen óóó meeeeen!

...en í gær átti að vera nörrakvöld í vinnunni en það var reschedulað eins og ég kann af stakri list og vil ég bara koma afsökunarbeiðni á framfæri til allra þeirra sem héngu í vinnunni í von um að aðalgellurnar yrðu hérna sveittar og seiðandi í tölvunni...og líka til þeirra sem biðu hér fyrir utan með myndavélar og diktafóna...við verðum að fara að halda þessum leynifundum okkar meira leyndum stelpur!

...eeeen í kvöld fer ég að spila fótbolta með stelpum sem voru að æfa með systrum mínum í Val...God help me...og ég sem kann akkúrat ekkert í fótbolta nema að skalla með nefinu og fá heimsins stærstu marbletti...þetta verður eitthvað interesting...eeeen gaman...talandi um gaman þá var ógeðslega gaman í squashi í gær...Reynir ofursquashari kom með okkur í tvöfaldan tíma og það var bara voðalega jafnt og skemmtilegt...svo er hún systa mín að fara að keppa í móti um helgina...endilega sendið henni baráttukveðjur...þá rafrænar...

...eeeen þar sem ekkert verður bloggað á morgun líklegast þá segi ég gleðilegan flöskudag og njótið vel...
Stay black

12.3.03

Og já...

...í gær lærði ég mjöööög mikilvæga lexíu....aldrei fá sér eggjaköku fyrir squash...nema þér finnist gaman að æla....
Stay black
Og síðustu dagar..

..hafa verið sérdælis prýðilegir....þrátt fyrir almennt svefnleysi og hungur ha ha ha...nei á mánudaginn fór ég í heimsókn til Beggu Beib að horfa á Sörvævör og svona...Rósa kom líka og ég endaði á þvílíku tjatti til miðnættis við hana Beggu mína...alger snillingur sú stelpa...svo í gær kíkti ég á kaffihús með henni Ásu Pjásu sem var með mér í grunnskóla og FB og við enduðum líka á tjatti til eitthvað miðnættis...og svo kem ég alltaf heim og verð að lesa smá í Grafarþögn...þannig að þegar ég vakna klukkan hálf 7 á morgnana þá er ég svona nett þreytt....og svo er tölvunörrakvöld í kvöld í vinnunni...uss...ég bíð ekki í það...en það er samt búnað vera gaman því Begga og Ása eru bæði svona vinkonur mínar sem ég hitti ekkert voðalega oft en maður getur alveg talað um allt við þær...ha ha ha...ég og Ása vorum nú bara að rifja upp gamla tíma úr Fellaskólanum okkar...djöfulsins snilld...hlutirnir sem maður komst upp með...jiddúdda mía...

...eeeen það er dagur 2 í leynivinaleiknum og ég tók hann í dag mar...ég er ánægð með það sem ég gaf í dag...aaaalger snilld...hahahaha...en ég er alveg búnað sjá það að sá sem er að gefa mér þekkir mig ekkert því hann gaf mér bjór í dag...sem er mjög gott...nema hvað að þetta er heineken....EKKI Carlsberg...eeeen maður getur ekki verið of heimtufrekur á þessum síðustu og verstu tímum og því er ég mjög ánægð...því það er alltaf gott að fá gefins bjór...þó það sé Hæní...

...ooooog í dag er næst síðasti vinnudagurinn fyrir Köben!!! Íha!! Ég verð að reyna að sofa eitthvað þessa síðustu daga...annars bara dey ég...vúúússsj...
Stay black

11.3.03

Og hvað svona....

...leynivinaleikur er helvíti fyrir jafn forvitna manneskju og mig...meeen óóó meeeen....gellurnar uppgötvuðu það í dag að rósin sem ég fékk er í Vals-glasi...sem er gott og blessað því Valur er jú mitt lið í þessi fáu skipti sem ég fylgist með íslenskum íþróttum...og núna er búið að ofur analæsa þetta blessaða glas og þessir fáu Valsarar á hæðinni liggja undir grun...persónulega held ég bara að einhver sé að villa á sér heimildum...örugglega einhver KR-ingur...og ég er komin með nokkra í sigtið...en viðkomandi fær samt stóran, feitan plús fyrir svona fallega fyrstu dags gjöf...svo gaf einstaklingurinn mér líka tvö vatnsglös í dag því það er voða húmor að ég drekk mikið vatn í vinnunni...svo samdi hann ljóð og hvaðeina...voðalega krúttlegt allt saman en forvitnin er svona nett að drepa mig og það verður gaman á laugardaginn að sjá loksins hver etta er....en ég er búin að massa þennan leik og fimmtudagurinn sem er síðasti dagurinn verður einhver smá snilld ef ég get platað vissan vin minn til að gera sig að smá fífli...alger snilld!
Stay black
Og hvað ég er fegin að....

...ég fór ekki í nýja dressinu mína á árshátíðina seinustu helgi...vúúússssj...ég hefði þokkalega skitið út pilsið því það er síðara en kjóllinn sem ég var í en einnig er ástæðan sú að Þór Jóseps snerti kjólinn minn!!! Ojjjj...hvað varð um að biðja fólk bara að færa sig í staðinn fyrir að taka um mittið á manni...strjúka það og færa mann svona nett í burtu...oj oj oj...hann er mesti viðbjóður sem ég veit...gleymi því aldrei þegar ég var á Kaffi Victor (don´t know why) og hann byrjaði svona að bömpa sér upp við sæta rassinn minn...I feel violated...and not in a good way...en ég er mjöööög fegin því núna get ég vígt dressið mitt eftir aðeins tja 5 vinnudaga!! Alright!

...eeeen í dag byrjar leynivinaleikur í vinnunni og djöfull massaði ég hann í morgun....kosturinn við að mæta svona snemma ha ha ha...var eitthvað að laumupokast á fuddlu og svona sem mér finnst voða gaman...en sá sem dró mig sem leynivin er líka alveg að gera sig því í morgun beið mín ein rauð rós....mmm...og hvað elskar Lillan...jú blóm! I luuuv it...núna verð ég í góðu skapi það sem eftir er af deginum...ég fæ nebblega svo sjaldan blóm...þannig að sú/sá sem gaf mér þessa yndislegu rós er í svo góðum málum að það hálfa væri nóg...ég er samt svo ógeðslega forvitin að það er ekki fyndið...baaa...en ég kemst að þessu næsta laugardag í fordrykknum...þá eiga nebblega allir að skrifa á miða leynivininn sinn og líma það á sig...voðalega sniðugt....ég verð víst bara að bíða...
Stay black

10.3.03

Og mér hefur aldrei verið eins illt í maganum...

...og í morgun þegar ég var að hlaupa...jiddúdda mía...var að spá í að beila á hlaupinu en í staðinn tók þrjóskan mín yfirhöndina og ég hljóp mína núna daglegu 5,2 kílómetra...mar er víst alltaf að bæta við sig ha ha ha...eeeen ég held að ein af ástæðunum að ég hafi hreinlega ekki gefist upp eftir fyrstu 2 mínúturnar í morgun var að Popp tíví vinur minn var á allan tímann...sem er alltaf plús og góður fílíngur...en ég var samt svo drulluþreytt í morgun að ég ætlaði ekki að meika það að fara framúr rúminu...átti nebblega í erfiðleikum með að sofna í gær þannig að ég ákvað að lesa en ég er að lesa svo spennandi bók að hún vakti mig eiginlega bara meira...en ég hélt samt áfram að reyna og lokaði bókinni og kúrði bara hjá voffa...en þegar það dugði ekki heldur þá kveikti ég á sjónvarpinu eins og hefði átt að gera til að byrja með og viti menn...ég sofnaði eins og skot...liggur við um leið og ég horfði á vídjóið þá fór ég að dotta...alger snilld...en það var ekki fyrr en voða seint...svona miðað við að ég náði góðum 2 tíma svefn síðustu nótt ha ha ha...alltaf klassískt að fara á hörkudjamm og langt síðan það hefur verið massað svona hrikalega...

...eeen í dag er kominn nýr dagur og vonandi verður hann sérdælis prýðilegur í alla staði...aðeins 4 vinnudagar í Köben þannig að mórallinn hér verðu örugglega góður í dag og hina 3 dagana....je beibí jeeeee
Stay black

9.3.03

Og jaaahá!





Þú ert Steingrímur J. Sigfússon:

Þú ert sannkallaður
vinstri-víkingur þó að þú tapir þér stundum í mótmælunum. Hjá þér skipta
hugsjónir mestu máli.

Taktu "Hvaða stjórnmálaleiðtogi ert þú?" prófið





Stay black
Og meeeen...

...ég held ég hafi aldrei verið svona mygluð...en það var kannski alveg vel þess virði því gærkveldið var rosalega vel heppnað...ég, Jóhanna og Sonja byrjuðum að djúsa aðeins hjá Sonju því mar fær víst ekkert í Perlunni undir fimm þúsund kaddlinum ha ha ha...svo keyrði Arnar Freyr handboltastjarna okkur í Perluna þessi elska og þar bauð Siggi upp á fordrykk...og auðvitað skellti Lillan sér í einn white russian sem er eini svona hristi drykkurinn sem mér finnst virkilega góður...þó það sé rjómi í honum...eeen barþjónninn blandaði hann kannski aðeins of sterkan...en það er nú líka í góðu lagi ha ha ha...svo fengum við alveg dýrindismat og skemmtinefnd stóð fyrir skemmtilegum skemmtiatriðum það sem gert var smá grín af your´s truly og Lillan fékk meira að segja medalíu fyrir stundvísi...fussumsvei...vissi nú ekki að það væri af hinu slæma...en ég er samt alveg of stundvís ha ha ha...en ég skorað punkta hjá Sigga og Sjöfn...svona rétt áður en ég hætti ha ha ha....svo bara skelltum við okkur niðrí bæ...Arnar Freyr kom og skutlaði okkur Sonju á NASA og fær hann stóran plús og voðalega stórt knús fyrir allt skutlið...en já...NASA var náttlega nett sveitt en djöfulsins athygli fékk maður í þessum prinsessu kjól með kórónuna...annar hver maður stoppaði mig og lét mig vita hvað ég væri glæsileg og spurði hvort ég hefði verið að gifta mig...og þar sem aldrei er gaman að segja sannleikann þegar maður er fuddlur þá laug ég bara að öllum að ég væri runaway bride...ha ha ha...eiginlega allar konurnar sögðu bara you go girl og læti en mér fannst sérstaklega eitt commentið gott...það var einhver stelpa sem sagði bara: "Hey gott hjá þér....en ættirru ekki að vera í strigaskóm?" ha ha ha...alger snilld...hún fær stórt knús...hitti alveg óendanlega marga í bænum...Keikólínu systu, Helenu, Grétu og Hönnu Stínu vinkonur hennar, Unni, Freyju, Guðna gamla Eddugæja ha ha, Guðjón, Togga, Óla, Lubbu Löven Brá, Corey Ester Lauder Make up artist og síðast en ekki síst litla Finnann minn...en það var þegar á Hverfisbarinn var komið...en hann var einmitt soldið drukkinn greyið en ég náði að vekja hann upp og við enduðum á góðu tjatti þangað til ljósin voru kveikt á litla Hverfisbarnum...þá var Óli bara stunginn af með 20 hjúkkum sem allar vilja sofa hjá honum þannig að ég bara endaði á að rölta með Finnanum áleiðis heim...já einmitt...áleiðis heim...Fancy skutlaði mér svo heim þessi elska þegar hann var búnað hvíla sig eftir vinnuna og við kíktum á Little Cesars í góðum fílíng...og ég fékk mér mjög feita góða pizzu þar sem ég leit út eins og skítur...ekki prinsessa lengur...

...en magnað er þegar maður er þunnur og ógeðslegur hvað endalaust margir geta komið í heimsókn...þegar ég kom heim með the pizza þá var fullt hús af fólki og ég labbaði inn eins og einhver svona sleasy bar útgáfa af öskubusku...þannig að ég lokaði mig inní herbergi og það er ekki búið að bregðast að þegar einn gestur hefur farið í dag...þá kemur bara annar í staðinn...magnað...yesss....ha ha ha...eeeeen svo bara vinna í dag...og 4 dagar í Köben!!!
Stay black

8.3.03

Og snilldarfréttirnar...

...eru þær að veitingastaðurinn ORO er farinn á hausinn...fengum að vita það á fimmtudaginn...þegar tveir dagar voru í árshátíð...þeir eru svo penir þarna á ORO...eeeen...góðu fréttirnar eru...the silver lining...að við förum í staðinn að borða í Perlunni!! Mér finnst það alger snilld því ég hef aldrei borðað það og það er geðveikt fancy...mér finnst það reyndar eitthvað of fancy þannig að maður þarf nú að haga sér vel og svona...en vá...þetta er frábært...og ég ætla að verða alger prinsessa í prinsessukjólnum mínum með kórónu...og reyna að stinga af af NASA sem fyrst ha ha ha...

...og og og...aðeins vika í Köben...íha!!! Ég og Lubba erum að mixa upp algera snilldarárshátíð sem á eftir að koma skemmtilega á óvart...vona ég...ef allt gengur eftir ha ha ha
Stay black

7.3.03

Og langt er síðan...

...ég hef haft texta dagsins...en þessi texti er með Cave-aranum...enjoy...nammi namm

Let me say this to you
I’ll be steadfast and true
And my love will never falter

The sea would crash about us
The waves would lash about us
I’ll be your Rock of Gibraltar

Sometimes it’s hard
And we’re both caught off guard
But there’s nothing I would ever alter

The wind could howl round our ears
For the next thousand years
I’d still be your Rock of Gibraltar

The best thing I done
Was to make you the one
Who I’d walk with down to the altar

You’d stand by me
And together we’d be
That great, steady Rock of Gibraltar

Under the big yellow moon
On our honeymoon
I took you on a trip to Malta

And all through the night
You held me so tight
Your great, steady Rock of Gibraltar

Could the powers that be
Ever foresee
That things could so utterly alter?

All the plans that we laid
Could soon be betrayed
Betrayed like the Rock of Gibraltar

Stay black
Og ég held að heimurinn sé sokkinn í meðalmennsku...

...úúúffff...var í skífunni í gær eins og ég geri alltaf þegar ég er á annað borð í Kringlunni og er ég var að brása í gegnum úrval tónlistar á Íslandi þá rakst ég á Greatest Hits disk...sem er svo sem allt í lagi...neeeema þetta var Greatest Hits með hljómsveit sem er bara búin að gefa út tvo diska....tvo mjög lélega diska may I add...og meeeen....og ekki bara var þetta Greatest Hits...heldur Greatest Hits - Volume 1...æj æj æj...bara öll lögin sem þeir hafa nokkur tímann gefið út og nokkur ný eða? En þetta er hin ágætisvibbahljómsveit Westlife...reyndar fíla ég eitt lag með þeim en það er nú bara útaf textanum...eeen svo kom ég heim í gær og uppgötvaði að ég á einn disk með þeim án gríns...eeen það er nú bara skrifaður diskur sem ég fékk í djókgjöf frá vinkonum mínum einu sinni...og það er einmitt hægt að gera endalaust grín að þessum guttum...algerir vitleysingar...þeir mega þó eiga það að þeir eru alltaf að verða myndarlegri og myndarlegri...en Greatest Hits?! Throw me a freakin´ bone here!

...eeeen helgin er framundan og stefnir í sérdælisprýðilega árshátíðarhelgi...weeeee...planið er að fara í eróbikk með Siggu Völu...svo í fordrykk hjá Sonju megaskvís klukkan sex og þaðan á ORO...síðan á NASA og vonandi enda kveldið á einhverjum minna sveittum stað...það kemur allt í ljós...

...eeeen....gleðilegan flöskudag...þetta par hafði ég aldrei séð áður...og ég hef aldrei séð það aftur...við urðum samt mjög náin þetta kveld ha ha ha....

6.3.03

Og í gær...

...fór ég í squash með tveim undurfögrum stúlkum....þeim Siggu Völu og Lubbu Sál1.....þetta var fyrsta skiptið þeirra í squashi og verð ég að segja að þeim gekk bara fjandi vel stúlkunum...náðu góðum tökum á spaðanum og halda mætti að þær væru ekki hreinar meyjur í squash-leiknum...eeeen svo er nú samt rauninn...en ekki lengur því í gær afmeyjaði ég þær...held ég hafi gert það nokkuð ljúft og hægt og vonandi hafa þær notið þess....því ég veit að ég naut þess....alveg í botn! Takk fyrir stelpur...þið eruð bestar....
Stay black
Og hvað er málið með...

...að keyra á 35 á háaleitisbrautinni?!?! Jeminn eini....sérstaklega klukkan korter í átta á morgnana þegar eru einmitt voðalega margir á ferli...jiddúdda mía...eeeen ég keypti mér mánaðarkort í Veggsport í gær en ég hlakka samt svo til þegar sá mánuður er búinn og ég get farið að hjóla í vinnuna...ég hlakka geðveikt til...sérstaklega ef veðrið verður alltaf splendid....

...en Fancy er kominn aftur frá London baby og það var einmitt splendid (mar verður að fara að nota þetta orð meira)...en Lúndunabúar eru ekki þeir sleipustu því Fancy fann akkúrat ekkert með mínum ástsæla Cave....buhuhu...en gott að hann er kominn aftur...þó að hann vinni á vöktum dauðans þannig að maður sér hann next to never...en gott að vita af honum hér á klakanum kaddlinum...

...eeeeeen í gærkveldið byrjaði ég að lesa Grafarþögn...mér fannst ég vera eini Íslendingurinn sem ekki var búinn að lesa bók eftir Arnald Indriðason þannig að ég byrjaði á henni í gær...og meeeen...ég var hooked frá fyrstu blaðsíðu...ég hefði klárað hana ef ég hefði ekki verið svona drulluþreytt...byrjaði nebblega svo seint að lesa hana þannig að ég náði bara að klára 4 eða 5 kafla....en hún er spennó smennó sko og ég hlakka til að klára hana og geta loksins tekið þátt í vinnustaðaumræðunum...heimilisumræðunum....squashumræðunum....oooog umræðunum við prumpukaddlana sem bíða alltaf eftir strætó útí búð heima...hahahaha....feddla-ghetto-barn ég er...fattaði það einmitt í fyrradag þegar ég var að leggja bílnum "mínum" og í næsta stæði var rafgeymir...ha ha ha...einhver hefur þotið af stað en gleymt honum...alger snilld...

...eeeen tvær vinnur í dag sem er ávísun á gleði og glens....og þess vegna ætla ég að kaupa mér bjór...
Stay black

5.3.03

Og ég hata...

...þegar fólk bætir sér inná msn listann minn og ég í fyrsta lagi veit ekki hver það er og í öðru lagi svarar það mér ekki þegar ég spyr hver það sé...buurrrr...þó ég elski msn eins og ég hef margoft sagt og finnist voðalega skemmtilegt þegar nýtt fólk bætir sér við hjá mér þá finnst mér soldið pirrandi þegar ég veit ekki hvaða nýja fólk þetta er...so stand up...be proud...say your name god damn it woman!...

...annars er ég líka orðin soldið pirruð á því hvað fólk getur endalaust talað um hvað ég drekki mikið af vatni!! Alveg magnað að ég er með könnu niðrí vinnu sem tekur ja góðan hálfan líter og það bregst ekki að fólk commenti á þessa risakönnu...það myndi enginn commenta ef ég væri bara með venjulega hálfs líters flösku...burrr...okei people...get over it...já ég drekk voöalega mikið vatn og já ég fer örugglega með góða 2 lítra bara fyrir hádegi og þannig er það nú bara...enda er ég alltaf á klósstinu for crying out loud...en það er nú líka útaf þessu eplaediki sem ég er að bryðja sem bætir meltinguna...en það er þó allavega skárra en að reykja eða drekka kaffi...eða BÆÐI!! Ég dáist samt að fólki sem hættir að reykja...ég hef nú reyndar einu sinni reykt...í fyrndinni einhvern tímann (common people...ég bý í feddlunum...throw me a freakin´ bone here)...og tja...mér tókst það að hætta og svonna...reyndar fannst mér það ekkert erfitt en ég er nú svo voðalega stabíl *hóst* *kaldhæðn* *hóst*...en já...mamma mín hætti nú að reykja einu sinni og ég virði hana ævilangt fyrir það...ég reyndar virði allt fólk sem hættir ósiðum sínum...alveg eins og ég virði mig fyrir að hætta að borða eins og svín...fara að hreyfa mig og hætta að líta út eins og svín...og alveg eins og ég virði manninn við hliðina á mér að hætta að prumpa þegar ég er að tala við hana...og svo framvegis og svo framvegis...þannig að þið útið sem eruð að reyna að hætta...R-E-C-R-E-P-T-A!
Stay black
Og Pocahontas Laukdal fer ekki...

...til Riga....úje!!! Hve mikil snilld er þetta ..... Leðjan til Lettlands!!
Stay black
Og jæja já....

...þá er maður búinn að fara tvisvar í permó á jafnmörgum vikum...ef hárið á mér fer ekki að deyja núna þá veit ég ekki hvað...það er reyndar rosa gaman að fara í permó því gellan þekkir fólk sem ég þekki og öfugt þannig að við höfuð sko nóg að slúðra um ha ha ha...en ég hélt hún væri nú reyndar að reyna að drepa mig í gær...hún var svo úber þrjósk því permóið mitt bara fór...sagði bæbæ...að hún úðaði einhverjum extra extra extra sterkum festi í mig...og tvöfalt af honum og það var bara eiturefnaeitrun góðan daginn hjá litlu Lillunni sem kom bara inn lítil saklaus stelpa í permó en kom út lítil saklaus stelpa með jafngildi heils hárspreysbrúsa í lungunum...og ef ekki smá í litlu tánni...allavega...hún gaf mér svona treatment fyrir hár sem tekur bara aaaallls ekki við...og það virkaði...er ekki frá því að ég sé meira krulluð en síðast og ég er rosa ánægð...en ég var náttlega ánægð síðast but look how that turned out...en ég er bjartsýn núna...enda árshátíð um helgina...lagði einmitt loka-touchið á kjólinn minn í gær...saumaði það sem eftir var af semalíu-steinunum á efri part kjólsins þannig að núna er þetta bara eins og glænýr kjóll...hlakka rosa til á laugardaginn..það verður brjálað stuð...ég og Sigga Vala ætlum að kíkja í risaeróbikk tíma í Sporthúsinu um daginn og síðan er það bara ORO og NASA á eftir því...sem ég er ekkert brjálaðislega ánægð með því mér finnst það vera nokkuð sveitt....en við fáum nú ókeypis inn...þannig að ef einhver sé mig á NASA á laugardaginn í þessum kjól...ekkert vera að pikka í mig því ef svo virðist að ég sé að skemmta mér vel þá er ég haugadrukkin og enda örugglega með því að löðrunga ykkur biatchez....ha ha ha

...en annars leikur lífið við mig...geðveikt gaman að vera á bíl sem er ekki skítkaldur á morgnana...og þar sem ég skíri alltaf bílana mína þá ætla ég að skíra "nýja" kaggann minn Gunnar eftir honum föður mínum...ha ha ha...þó að ég eigi bílinn tæknilega ekki...well...ekkert tæknilega..ég bara á hann ekki þá ætla ég samt að skíra hann...því hann hefur reynst mér vel...og hann er svona eins og míní-tívolítæki því alltaf þegar maður startar honum þá lyftist hann upp..ha ha ha ha....ég fæ alltaf jafnmikinn fiðring í magann....já..það þarf ekki mikið til að gleðja mig...
Stay black

4.3.03

Og þá er maður bara kominn á nýjan...

...kagga...tja..kannski ekki nýjan...skipti við pabba...ég fæ bílinn þennan mánuð og hann hjólar í vinnuna og svo í næsta mánuði fær hann bílinn en ég hjóla í vinnunni...sem hentar mér mjög vel því ég tími ekki að kaupa mér kort í Veggsport fyrir apríl-mánuð og svona fæ ég hreyfinguna...voðalega sniðugt og mig hlakkar bara soldið til að hjóla...sérstaklega þar sem það er komið svo gott veður á morgnana og byrjað að birta soldið....en já...ég hef varla keyrt gamla/nýja citroeninn hans pabba síðan ég var í æfingaakstri þannig að þegar ég krúsaði um götur bæjarins í gær var það eins og að stíga nokkur skref á götu minninganna...falleg stund það..

...eeeen squash tíminn í gær var nokkuð slappur...alveg glataður mánudagstími og sést það best með að ég vann 3-1...það gerist sko ekki á hverjum degi þannig af þessu má sjá að af tvennu illu sökkaði systa mín meira...eeeen fyrst að svitinn lét standa á sér í lélegum tíma þá ákvað ég að leggja bílnum heima og skokka útí sel í ljós og kaupa mér eitt stykki ljósakort...bara útaf því að árshátíðir eru að koma og svona..um næstu helgi er árshátíð hjá monsoon og ég verð í alveg skjannahvítum kjól þannig að mar þarf nú aðeins að brúnka sig...er líka orðin leið á að vera svona mikil næpa eins og ég er.....en talandi um fína kjólinn minn þá keypti ég semalíu steina í gær og var að dunda mér að sauma þá á...sem var svona nett pain eeeen fyrst ég byrjaði á því þá kláraði ég það bara...á svo nokkra afgangs þannig að ég á eftir að ákveða hvað ég geri við þá...íha...svo bara helgina eftir næstu helgina...Köben beibí!! Þar sem nýja dressið mitt verður vígt...aaaaa...can´t wait!
Stay black

3.3.03

Og jahérna...

....er Ísland ekki sokkið nógu langt í meðalmennsku?! Þá tónlistarlega séð...og ef ekki á fleiri sviðum....ég á ekki til orð...Skítamórall er að koma með come-back...ó mæ....ætli þeir fari ekki að gefa út best of plötu bráðum....er ekki nóg að maður þurfi að þoli allt það endalausa framboð af lélegum meðalmennsku-hljómsveitum heldur þurfa gamlar meðalmennsku-hljómsveitir að koma aftur á sviðið...vúúússssj...slökum alveg á því...samt ein björt hlið að þegar Eva kemur til landsins þá getum við aftur farið á ball með Skímó og gert grín að þeim eins og við gerðum forðum ha ha ha...það var nú reyndar gaman...eeeeen málið er bara að það eru nóg af öðrum hljómsveitum hérna sem hægt er að gera grín að...ég hélt að botninum hefði verið náð bæði þegar Sálin kom aftur og þegar Sól og Máni var sett upp (Lubba verður ekki ánægð með mig í dag) en það var ekki nærri því botninn...núna er maður kominn undir botninn og liggur í sínum eigin skít...að hlusta á Skímó!
Stay black

2.3.03

Og enn ein helgi er liðin...

...og ég fékk ekki að vera alveg eins mikil stelpa og ég vildi...Óli kom í heimsókn og við horfðum á There´s something about Mary og hámuðum í okkur heimabakaðar kökur (a la moi) þangað til við ældum næstum því á laugardagskveldið...ég fékk nú samt að vera meiri stelpa en ég hélt...því fyrst ætlaði Óli að koma með Gumma og við ætluðum að byrja á að hakka Bond-safnið mitt í okkur en Gummi bara nennti ekki baun...bara heima að ríða eða eitthvað..ha ha ha....gringóinn lætur ekki að sér hæða...en já...ég og Óli erum að hugsa um að fara að semja leikrit....og fundum titil og allt saman...ha ha ha..."Stelpa með strákabein en kvenmanns hörund"...nú eða "Salinto Caliente" ...bæði mjög góð nöfn...ha ha ha...það fyrra vísar beint í mig og seinna..tja...vísar í Óla? Hann er svo salinto caliente ha ha ha...

...svo var ég bara að vinna alla helgina voða fjör og núna áðan fékk ég smá ógeð á sjálfri mér og hvað ég væri búnað éta mikið þannig að ég skellti mér á línuskauta með snoop doggy dogg...prófað my thunder thighs og þau eru sko í góðu formi..íha! En það sem er ekki í góðu formi eru göngustígar í Breiðholtinu...jidúddamía...sandkassi punktur is góðan daginn gott fólk...fussumsvei...en ég lifði túrinn af og ætla að fara að borða meira...heimalagaður kjúlli hjá mömmu...sleeeevvv...could life be anymore sweeter?!?
Stay black