28.1.04

...Og það er búið að vera svo ótrúlega...

...gaman í vinnunni þessa dagana...fyrir utan visst bréf frá vissum hrokagikki (sem mér fannst einu sinni vera töffari)...eeeen maður lætur það ekki á sig fá...en við bara hættum ekki að hlægja þessa dagana ég og Íris...okkur finnst allt fyndið og finnum sjarmöra í hverju horni...jiddúddamía...nú heldur maður bara varla vatni yfir vinnufélögunum lengur...hrikalegt ástand sem verður að breytast...maður verður að komast yfir svona þráhyggjur...tja...eða komast undir fórnarlömbin...
Stay black- Salinto!
...Og ég og Íris...

...ætlum sko að borða á okkur gat í hádeginu maður...úfff...gellan ætlar að lána mér á hlaðborð á Pizza Hut...

...ekki búast við okkur aftur í vikunni...maður þarf sko langan blund ef svona ofurhádegi...
Stay black - Salinto!

27.1.04

...Og lag vikunnar er tvímælalaust...

...Groovy Kind of Love í flutningi meistara Phil Collins...maður á nú samt ekkert að hlusta á svona tónlist í þessu ástandi...
Stay black - Salinto!

26.1.04

...Og nau nau nau...

...Jón Ásgeir var að labba inn í hús...maaagnað...fæ svona stórjöfra-fiðring í magann...
Stay black - Salinto!
...Og ég skil ekki alveg þörf fólks...

...fyrir að tala við mann í líkamsrækt...þegar maður er allsnakinn og nýkominn úr sturtu...hvað er það?! Finnst fólki virkilegt þægilegt að horfa á viðmælanda sinn sem er alveg stark butt naked?! Tja...mér finnst það ekki...sérstaklega ekki þegar það er ókunnugt fólk og getur bara talað um eitthvað svona petty chit chat...eins og "Þvílíkt veður í dag..." eða "Þessi landbúnaðarráðherra er nú alveg met..."

...ég vil þá vinsamlegast biðja fólk sem er að æfa með mér í Veggsport að hætta að tala við mig í búningsklefanum...ég hef ekki áhuga á því og ég er ekki lesbía! Takk fyrir mig og góða nótt!
Stay black - Salinto!
...Og ég datt svo hrikalega...

...í það um helgina...vá mamma mía...langt síðan maður hefur verið svona fuddlur...en það var ógeðslega gaman hjá okkur þannig að það var í góðu lagi...þambaði White Russian og gin í fanta eins og mér væri borgað fyrir það...

...verður lífið eitthvað betra?
Stay black - Salinto!
...Og loksins loksins loksins...

...náðum við Gunni og Eva að ljúka trílógíunni og fórum að sjá LOTR: The Return of the King í lúxussalnum í Smárabíói...

...aaaa hvað er gott að þetta sé búið...mmm...olli mér sko ekki vonbrigðum þessi mynd...alveg að gera sig...eina sem spillti kannski var að ég var heeeeavy þreytt og byrjaði á því að dotta aðeins...svo tók ég mér tak...skellti ostasósu í augun á mér og sló mig aðeins utan undir og þá vorum við að tala saman...

...og ég held ég sé ástafangin af Viggo Mortensen...mmmm...come to mama!
Stay black - Salinto!

23.1.04

...Og ?g tr?i ekki a? ?g hafi misst af...

...g??asj?nvarps??ttinum Joe Millionaire ? g?r...deeem...hven?r er hann endurs?ndur?!
Stay black - Salinto!
...Og ég er orðin soldið skotin í...

...strák sem er alltaf með mér í strætó...í 112 á morgnana...mmmm...hann er dædur...

...og sorglega er að ég varð heavy fúl í morgun þegar hann mætti ekki bössinn...það er svona þegar maður á ekkert líf...þá þarf lítið til að gleðja mann...og til að hryggja mann...

...og ég ætla ekki einu sinni að reyna að tala um leikinn í gær á friðsamlegum nótum...
Stay black - Salinto!

22.1.04

...Og ég fór á kaffihús í gær...

...með Hebba sem er með mér í leiklist...við nebblega sökkuðum soldið feitt í æfingu í Dramasmiðjunni á þriðjudaginn og því þurftum við að æfa okkur...

...mér fannst sniðugt að velja einhvern hlutlausan stað til að æfa sig á þannig að ég valdi Kaffi Vín...því ég hélt líka að það væru ekkert voðalega margir þar á miðvikudagskvöldi...en viti menn...jujú...það var alveg stappað...

...hmmm...og ég held að fólk hafi haldið að við værum spastísk, treg og nautheimsk...þar sem æfingin fólst í sífelldum endurtekningum...ég til dæmis byrjaði á að segja "Þú ert með brúnt hár" og þá svaraði Hebbi "Ég er með brúnt hár" og þetta endurtókum við aftur og aftur án þess að breyta um hrynjanda eða tón í röddinni...ójá...þvílík gleði...og þetta þarfnast þvílíkrar einbeitingar skal ég segja ykkur...sérstaklega í kringum fullt af ókunnugu fólki sem starir á mann...eeeen eftir nokkur skipti þar sem við sprungum úr hlátri og urðum blá og bleik af skömm þá tókst okkur að halda svona út (með því að skipta um setningar nokkrum sinnum) í heillangan tíma...magnaður andskoti þegar manni tekst það...myndast einhver svona freaky tenging á milli manns og þess aðila sem maður gerir þetta með og manni líður soldið vel á eftir...eiginlega bara mjög stoltur...

...gaman að essu...
Stay black - Salinto!
...Og voðalega finnst mér fjölmiðlabannið...

...sem Idol-krakkarnir eru í skrýtið...if you´re gonna do something...do it well...
Stay black - Salinto!

21.1.04

...Og ég byrjaði í Dramasmiðjunni....

...í gær...sem var svolítið öðruvísi þar sem aðalleiðbeinandinn okkar er bandarískur leikari...sem heitir Darren Foreman...hann er víst svona micro-celeb...hefur leikið í West Wing og einhverju svolleis...

...eeeen ég held að í gær hafi ég misst allt sjálfstraust...mér leið eins og ég kynni akkúrat ekki neitt...og allir væru betri en ég...og ég myndi aldrei verða leikkona...það var nú reyndar ekki Darren að kenna þar sem hann er mjööög skemmtilegur og fyndinn...

...maður bara verður svo hræddur þegar maður lærir eitthvað nýtt...en það er nú búið að renna af mér...nú get ég hugsað til baka til gærkvöldsins og hugsað hvað það verður gaman að læra eitthvað nýtt og ferskt...og verða miklu betri manneskja...og leikari fyrir vikið...

...svoooo þegar ég var búin að jafna mig...þá kem ég í vinnuna í dag og þar bíður mín email frá ECU leiklistarskólanum í Perth, Ástralíu...þar sem mér er tjáð að ég sé of sein fyrir árið 2004 og ég geti bara sótt um skólavist fyrir árið 2005...veeeei...æðislegt...en eitt ár í einhverju sem kemur mér akkúrat ekkert nær draumnum mínum...jibby!
Stay black - Salinto!
...Og það virðist sem...

...allir séu að hætta saman...eða byrja saman...eða eitthvað svolleis...

...mig langar soldið að vera með í þessu actioni...þó mig langi hvorki að byrja saman né hætta saman...reyndar fer eftir því hver það er...

...ef Sean Connery væri á boðstólnum þá myndi ég pottþétt vilja byrja saman...

...en aftur á móti ef Gunnar Smári eða Marilyn Manson stæðu til boða þá held ég að ég myndi kjósa að hætta saman...

...mig langar allavega í eitthvað drama-emotional-action...svona for a change ehehe...
Stay black - Salinto!

20.1.04

...Og í kvöld...

...byrja ég aftur í Dramasmiðjunni í leiklist....úújeeee beibí...

...hlakka soldið til...ætlaði ekki að fara en sló svo til þar sem ég þarf að æfa mig í enskum framburði og solleis...ef ske kynni að maður færi nú eitthvað út...

...eeeen önnur ástæða var líka fyrir skráningu minni...hún var sú að ég meika ekki alveg að hafa ekkert fyrir stafni annað en að vinna, æfa squash og skokka...þá bara verður maður latur og sefur og sefur og sefur...sem er ekkert sniðugt...

...reyndar er nú ekkert sniðugt fyrir djammara eins og mig að vera á svona námskeiði...þar sem tímarnir eru á laugardögum kl. 10-14...úúúú vá...það var stundum frekar erfitt að mæta man ég...eeeen maður lætur sig hafa það...

...ég minnist þessa tíma þegar ég er orðin heimsfræg....mouahahha...og hlæ og bendi á alla sem gerðu grín að mér...hahaha...*bend*
Stay black - Salinto!

19.1.04

...Og þá er karókíkeppni...

...DV og Fréttablaðsins á næsta leiti...nánar tiltekið 6. febrúar næstkomandi...

...oooog ég fór í Smáralind í gær og fann hinn fullkomna kjól í Top Shop til að vera í...því auðvitað tekur maður þátt...maður stendur við sitt og tekur eitthvað eldheitt og seiðandi með henni Kylie...reyndar ekki alveg komið á hreint hvaða lag en líkurnar benda á Locomotion sem var fyrsti hittarinn hennar þegar hún var ennþá bara saklaus lítil Girl Next Door Neighbours leikkona....

...eeeen aftur að kjólnum...ég gæfi hægri hendina fyrir hann...eeeen þar sem ég er að safna þá á ég ekki fyrir honum...þaaannig að ég er búin að setja mér það markmið að kaupa hann um mánaðamótin...eeeen málið er að það er bara einn eftir í minni stærð...buhuhu...eeeen hann er svoooo flottur...

...þvílík krísa...hvar er nú riddarinn á hvíta hestinum til að sækja mig í vinnunna...tölta upp í Smáralind og kaupa kjólinn?! Gefðu þig fram hvar sem þú ert!
Stay black - Salinto!

18.1.04

...Og nú er ég á leiðinni...

...á Línu Langsokk í Borgarleikhúsinu eftir vel heppnaðan squash tíma og góða edrú-helgi...

...oooog Íslendingar eiga sína fyrstu Idol stjörnu...

...oooog ég tók skynsamlega ákvörðun í gær í fyrsta sinn í langan tíma...

...oooog ég veit loksins hvað ég vill gera...

...lífið verður ekki mikið yndislegra...
Stay black - Salinto!

16.1.04

...Og síðasta miðvikudag...

...fórum við stúlkurnar í Þjónustuverinu á forsýningu á stórmyndinni "The last Samurai" með stórleikaranum Tom Cruise...allt voðalega stórt og fínt eitthvað...

...ég mæli svo sem með henni ef þið eruð fyrir svona "gaur lifir 100 skotárásir af og verður ástfanginn í endann"-hetjumyndir...ég persónulega meika þær ekki alveg þannig að ég er kannski ekki dómbær á skemmtanagildi þessarar myndar...

...þó ber það vott um gæði að ég sofnaði ekki og ég fann ekki fyrir því hvað hún var löng því hún er vel gerð og mörg mjög góð bardagaatriði...

...ekki er þó hægt að hrópa húrra yfir Tom Cruise greyin sem virðist verða lélegri leikari með hverri ofurhasamyndinni sem hann leikur í...watch out Jacke Chan...

...eeeen snillingur miðvikudagsins (sem fær jafnfram knús ef hann vill) er hann Biggi sem bauð okkur stelpunum í bíó...takk Biggi minn...við elskum þig allar...
Stay black - Salinto!

14.1.04

...Og ég kem inn í strætó á morgnana...

...og þá er Miss American Psycho að keyra bössinn...jiiiidúddamía...hún gæti verið einhver svona sjálfsmorðs-rútubílstjóri...ég er yfirleitt ekki mjög bílhrædd...en þessi gella er eitthvað verri...hún bara svissar um akgrein eins og henni sé borgað fyrir það....

...og ekki batnar það þegar ég kem upp í Veggsport...þá er Mister American Psycho að æfa með mér...við erum að tala um að gaurinn brennir í svona einn og hálfan tíma á daginn...og hann er alltaf með trefil og í þykkri peysu þannig að hann er sveittari enn sveittasta svín...jeysús...og þetta er engin létt brennsla...hann er bara eitthvað geðveikur á brettinu...og svo var ég að komast að því að hann er frá Bandaríkjunum...should I be scared...
Stay black - Salinto!
...Og nýja árið hefur aldeilis gert mig ómótstæðilega...

...eða svo virðist mér allavega...

...í gær hringdi hingað herramaður í vinnuna til mín og bauð mér út að borða og í spjall...þá erum við að tala um annað deitið á aðeins 3 vikum...og þetta var sko ekki sami og síðast...magnaður andskoti...

...auðvitað þáði ég boðið og verð ég bara að segja eitt...á meðan fyrra deitið minnkaði trú mína á karlmönnum allsvakalega þá gerði þetta deit það að verkum að ég trúi aftur á karlpeninginn og það sem hann hefur fram að færa...

...kannski er það vegna þess að ég fór á þetta deit án væntinga og ég held að við bæði höfum verið á svipuðum nótum...þ.a.e.s. bara að fara á skemmtilegt vinaspjall...þá er þetta kannski ekki eiginlegt deit...júúúú...saaaamt...hann náttlega bauð mér út að borða...

...en við kíktum á Ban Thai...hef aldrei farið þangað áður en ég fer örugglega þangað aftur...æðislegur staður ehehe...og við áttum hann ein fyrir okkur...samt soldið magnað starfsfólk...örugglega merkilegasta dinner experience sem ég hef átt...gellan sem var að afgreiða var soldið óörugg í íslenskunni og virkaði þess vegna svolítið ógnandi á mann...sem var bara fyndið...maður hafði það eiginlega bara á tilfinningunni að maður myndi verða skotinn af færi ef maður myndi ekki klára matinn eheheh...magnað...

...eeeen tónlistin var góð...lyftutónlist svokölluð ehehe...tailensk lyftutónlist...gerist það betra?!

...allt í allt var þetta mjög skemmtilegt kvöld...virkilegt fullorðinsstefnumót...fílaþa...
Stay black - Salinto!
...Og talandi um Leoncie...

...þá er hún fokreið út í DV og gengur hér póstur frá henni um húsið við lukku og gleði flestra viðstaddra...hún er náttúrulega snillingur konan...

...ég var svona að spá í að birta þetta bréf í heild sinni en ég hætti ekki á það...vil ekki eiga það á hættu að lenda í meinyrða máli við sjálfa Icy Spicy Leoncie...

...en eitt get verð ég að birta :SKÓÐANIR ERU EINS OG RASSGÖT OG ALLIR HAFA ÞAU.
Stay black - Salinto!

13.1.04

...Og lífið er bara fullt af...

...óvæntum uppákomum...jeyyysús...

...veit ekki hvort maður á að blogga um svona lagað eða bara halda fólki í heljar greipum...held ég velji síðari kostinn...vil ekki jinxa neitt...
Stay black - Salinto!

12.1.04

...Og áskorun dagsins...

...er alveg æðisleg...

...hún Earlie systa mín gaf mér svo yndislega jólagjöf...forlátt Leoncie belti eins og hún bar í landsfrægum flutningi sínum á laginu Ást á pöbbnum...jólagjöfinni fylgdi áskorun og það var að bera beltið einn dag í vinnunni...

...eins og flestir vita þá gengst ég alltaf við öllum áskorunum...því miður...og hér getið þið því séð fífl dagsins...
Stay black - Salinto!

11.1.04

...Og ég skil ekki...

...karlmenn...
Stay black - Stay single - Salinto!
...Og áðan horfði ég í fyrsta skipti...

...á heilan þátt af Joe Millionaire...

...og ég er ekki frá því að ég fylgist með lokaþættinum sveimérþá...ekki út af því að þetta er skemmtilegt sjónvarpsefni heldur langar mig bara að sjá þegar hann segir gellunum að hann sé lygari hahahaha...vonandi drepa þær þennan hálfvita...

...og svo er svoooo augljóst að þær eru bara in it for the money...önnur er meira að segja búin að segja að hann sé ekki alveg hennar týpa en að það geti nú breyst með tímanum...hell no! Common...og hver getur líka orðið ástfanginn af þessum heiladauða hálfvita...deeeem...hann getur varla talað hann er svo heimskur...jesus...og þá verður hann sjálfkrafa ljótari en allt...

...æjjj ég skil ekki svona lagað...og eins og hann segir þá er hann hrifinn af þeim báðum...mundi maður virkilega vilja játast manni sem er búinn að segja í sjónvarpinu að hann sé hrifinn af annarri gellu líka?! Jeeeeysús eins og þeir segja í Hollandi...

...en niðurstaðan er samt: gott þynnku-sjónvarpsefni sem sýnir manni hvað maður hefur það gott að vera tiltölulega heill á geði og með báða fætur á jörðinni...
Stay black - Salinto!
...Og sjaldan hef ég verið...

...svona þunn eins og í dag...meeeen ó meeeeen...

...það var tekið vel á því gærkveldi og það var bara rosa stuð...kíkti til Gumma og Brynju með Nurse Óla...við kíktum svo á Felix í 1001-nætur partí þar sem allt var fljótandi í áfengi...síðan á Vegamót að hitta Evu skvísu og svo endaði ég ein á Ölstofunni í hrókasamræðum við leikari í Borgarleikhúsinu...ehehe...vorum mikið að tala um stöðu menningarmála í landinu og leiklist almennt...mjöööög gaman...

...tók nettan Ástþór Magnússon á þetta og tók einmitt einn undirskriftalista með mér í bæinn í gær og fékk nokkrar undirskriftir hjá fuddlu fólki...gaman að því...

...svo vaknaði ég eldsnemma og fór að spila squash við Atla...hefði nú alveg eins getað sleppt því þar sem ég var það ónýt að Atli þurfti að skipta yfir í hægri handar spil bara svo ég gæti verið með...ussss....

...svo er maður bara búnað sofa...og horfa á Best of 70 minutes...sem er nú ekki það spes spóla sko...en ágæt samt...

...planið í kvöld er að sofa meira svo maður komist nú í vinnuna á morgun...en ég þarf einmitt að standast áskorun á morgun í vinnunni...best að vera ekkert að tala meira um það fyrr en á morgun...en þetta verður svakalegt...úje beibí beibí...
Stay black - Salinto"