16.3.04

...Oooog það er svo gaman...

...að vera vinnustaðagrínari...

...svo gaman þegar manni dettur eitthvað sniðugt í hug og getur ekki hætt að tísta...

...ég og Ási ákváðum að fylla skrifstofu samstarfsfélaga okkar af Twix-i og kóki...ehehehe....alltof erfitt að vera svona sniðugur...
Stay black - Salinto!
...Og það var eins og...

...einhver hefði sogið úr mér alla lífs- og sálarorku í gær sveimérþá...tussulegri og myglaðri hef ég ekki verið í laaangan tíma...oooog það útskýrir bloggleti þar sem ég hafði akkúrat ekkert spennandi að segja...eða jú...ég hafði svo sem fullt spennandi að segja...bara hefði sagt svo leiðinlega frá því...svo ég ákvað að hlífa ykkur fáu hræðunum sem actually kíkið hérna inn á daginn...

...eeeen annars er það helgin sem er efst í huga...úfff...og ástæða tussuleikans (is that even a word?!) í gær...

...Liljan var það sniðug að fara á fyddlerí báða dagana...mjög óvænt reyndar á föstudag þar sem skyndiáfengissýki greip um sig í litla stóra mallanum og ekki skemmdi fyrir að leiklistartíminn var cancelaður á laugardagsmorguninn þannig að maður hafði færi á því að sofa út...eeeeen auðvitað nýtti ég mér það tækifæri ekki...heldur var vöknuð fyrir allar aldir og brunaði upp í Kringlu eins og fæðingarhálfvitinn sem ég er til að reyna að kaupa einhvern þynnkumat...og eftir mikið þan og alltof mikið nammi í Kringlunni endaði maður í Smáralind eins og fíbbl í röð á Burger King...og fékk því væga matareitrun...

...laugardagskvöldinu var svo beðið með eftirvæntingu...um 17-leytið dreif ég mig í sturtu og reynid að hressa upp á mitt annars þunna andlit og skundaði til Siggu Völu þar sem við töltum yfir í Laugardagshöll á eitthvað bítlashow sinfoníuhljómsveitarinnar...

...ég gæti talað um þetta show 2 tíma á dag alla daga þangað til ég dey en gæti samt ekki náð að útskýra hvað það var ömurlegt...jeeeesus bobby....

...showið byrjaði ágætlega...sinfó með einhverja svona instrumental Bítla-syrpu sem lofaði bara helvíti góðu...svoooo byrjaði slátrunin...byrjaði á einhverjum feitum kaddli með svipu í alltof litlum hommalegum búning sem baulaði eitthvað á ensku sem örugglega enginn skildi...svo byrjaði söngurinn...ja eða "söngurinn" öllu heldur...fyrst hélt ég að ég væri bara þunn og vitlaus...og kynni þar af leiðandi ekki að meta svona gæða-show...eeen þegar Sigga var farin að ókyrrast í sætinu og blána og froðufella af vitleysunni upp á sviði þá vissi ég að það var ekki allt með felldu...eeen ég gaf essu sjéns...ég meina...The Long and Winding Road er nú erfitt laga að syngja...sérstaklega þegar maður lítur út eins og karakter úr Sesame Street sem lætur mömmu sína sauma á sig fötu úr gömlum efnisbútum...eeeeen mér var nóg boðið í lokalaginu...sem er eitt af mínum uppáhaldslögum....Sjálf Penny Lane var tekið og nauðgað til óbóta og henni skyrpt út um óæðri endann...og það var ekki einungis illa sungið...heldur reyndu þessir fávitar að mynda einhverja svona sveitaballa-stemmningu...og fengu meira að segja sauðina í áhorfendasalnum til að syngja með og hvaðeina...ljós slökkt...hneig hneig hneig...og lömbin standa upp og klappa og klappa og klappa og klappa...ég hvísla að Siggu Völu...„eigum við ekki að fara út í hléi?"...og það er sko enginn vafi í hennar huga...á leiðinni út heyrir maður raddir dásama sýninguna...„Vááá hvað þetta er flott"...og þá hugsar maður hvort að listaskynið sé farið að gefa sig...eeen þegar maður mætir Pálma Gunnars í anddyrinu...þá gerir maður sér grein fyrir að maður er sá heilbrigði...

...svo var bara dottið í það um kvöldið...og öll heimsins vandamál rædd...og drukkið White Russian...og skellt sér á Ölstofuna...og drukkið aðeins meira...og étinn Subway með extra-súrum gúrkum...og vaknað næsta morgun....og skriðið fram í sófa með sæng...og sofið allan daginn...og farið í matarboð til systu...og farið heim að sofa...og vaknað tussulegur í vinnuna...

...þar hafiði það...gleðilega vinnuviku...
Stay black - Salinto!

12.3.04

...Og dagur dauðans...

...er á enda kominn...guði sé lof...

...góða helgi...

Stay black - Salinto!

11.3.04

...Og mér var gefinn...

...hálsbrjóstsykur áðan og hóstinn er bara hættur...samstarfsfólki mínu til mikillar ánægju...takk fyrir mig...
Stay black - Salinto!
...Og ooo...

...í dag byrjar blómamarkaður Blómavals í Sigtúni...mmmm...held ég fari þangað bara til að skoða og finna lyktina og láta mér líða vel...þar sem mér finnst greinilega skemmtilegra að drekka mig blindfuddla um helgar heldur en að fegra umhverfi mitt...ég verð þá bara að bíta í það súra epli...
Stay black - Salinto!
...Og ég fattaði í gær...

...að ég á 2 diska með White Stripes sem ég hef ekkert hlustað alltof mikið á...þannig að ég bætti þeim í geisladiskalagerinn í töskunni minni og botnað Seven Nation Army svona í morgungöngunni í strætóskýlið...

...komst að því að ég verð að fara að hlusta meira á þessa diska því nýjasta er allavega aaaalger snilld...góð strætótónlist...fílaþa...

...hvað er annars málið með 16 ára hóruna sem er að covera White Stripes...jesus bobby...
Stay black - Salinto!

10.3.04

...Og topp 5...

...heimskulegustu spurningar í Þjónustuveri FBL og DV eru...

Nr. 1 - „er Fréttablaðið alveg hætt að koma út?" - Hmmm...já...Gunnar Smári tók þá skyndiákvörðun í morgun að loka öllu og hætta útgáfu blaðsins...þess vegna sit ég hér eins og asni og svara í símann...

Nr. 2 - „var einhver hjá ykkur að reyna að hringja í mig?" - Hmmm...eflaust...en býstu við að ég finni manneskjuna í 130 manna fyrirtæki?

Nr. 3 - „heldurðu að hann verði lengi í símanum?" - Hmmm...tja...ég get reynt að nota mína yfirnáttúrulegu hæfileika og sent viðkomandi hugskeyti og spurt hann í gegnum hugarlestur hve lengi hann mun hugsanlega verða í símanum...en það er alltof einfalt er það ekki?

Nr. 4 - „Eruð þið hætt að bera út í Auðbrekkunni í Kópavogi? Ég heiti Ólafur og hef ekki fengið blaðið í lengri tíma!" - Hmmm...já sko...við erum hætt að bera út til allra Ólafa í Kópavoginum...því miður...það var bara of mikið vesen...

Nr. 5 - „Hvað kostar smáauglýsing?" - Æjjjji...settu bara inn auglýsingu og borgaðu hálfvitinn þinn...

Stay black - Salinto!
...Og ég var að tala við...

...Júliús Kemp í símann...held að hann sé geldur...
Stay black - Salinto!
...Og snillingar dagsins...

...eru tvímælalaust 2...

...Sigga Vala V fyrir skemmtilegar og hnyttnar póstssendingar...

...og hún Íris Dögg smáauglýsingaskvísa fyrir yndislega photoshop-takta...sítrónu-te sem hún gefur mér miskunnarlaust fyrir linnulausum hósta oooog fyrir langþráðar reykpásur...

...hneyksli dagsins er hins vegar nýjasta tölublað Séð og Heyrt þar sem lítil myndskreytt klausa prýðir síður þess um ekki ómerkari atburð en karókíkeppni Fréttablaðsins og DV...sem er allt gott og blessað...nema hvað að það er engin mynd af aðalskvísunum...andlitum fyrirtækisins...raunverulegu fegurðardísunum...og svo ekki sé minnst á mest kreeeeisí fólkinu hér innanhúss...

...en dagurinn byrjar vel...vonandi endar hann vel...
Stay black - Salinto!
...Og rétt í þessu...

...var ég að skella á viðskiptavin í smáauglýsingadeild...sem er svo sem ekki frá sögu færandi...

...nema hvað að þar sem ég er með þónokkuð mikið kvef og hálspirring þá þurfti ég í miðju samtali að afsaka mig, setja á mute og hósta úr mér líftóruna...og á meðan heyrði ég gaurinn stynja í símann : "Djöfull er hún með sexí rödd þessi!"...ég hélt ég myndi missa mig þegar ég tók svo af mute og útskýrði fyrir honum að ég væri með kvef og afsakaði mig enn og aftur...oooog þá sagði drengurinn eitthvað það óforskammaðasta en samt skemmtilegasta sem á örugglega eftir að vera sagt við mig í dag..."Þarft ekkert að afsaka þig...ertu með svona mikið kvef? Mér finnst þetta fara þér mjög vel, mjög sexí rödd"...ég náttlega fór alveg í kleinu og reyndi að æla einhverju sniðugu út úr mér...sem auðvitað gekk ekki...

...eeen ég er hamingjusöm...ótrúlegt en satt þá er nokkuð skemmtilegt að heyra svona...eeeen meeen hvað þessi gaur er samt óforskammaður...en það er líka skemmtilegasta fólkið...
Stay black - Salinto!

9.3.04

...Og ég þoli ekki...

...fólk sem sturtar ekki niður eftir sig...

...illa gefið fólk...

...að ég þurfi að labba upp í Skúlatún í þessum hvirfilbyl...
Stay black - Salinto!
...Og hvað er málið með gelluna...

...sem hleypur alltaf við hliðina á mér á hlaupabrettinu í Veggsport...ég held hún sé mongólíti eða eitthvað...eða bara virkilega getur ekki tekið hinti...eða blind, heyrnarlaus...jú eða bæði...

...hún byrjar alltaf að tala voða mikið við mig...sorrí leidí...æv got plentí of frends sko...en jæja...svo sem ágætt að hún reyni eitthvað aðeins að mingla við mann en umræðuefnin sem hún velur...meeeen ó meeen...

...í gær toppaði hún nú samt alveg sjálfa sig...kom myndband úr Chigaco á skjáinn og hún fór að tala um hvað þetta væri nú dýrt og bla bla bla...og þar sem ég hef mjöööög sterkar skoðanir á leikhúsi og sérstaklega þessum söngleik og hve asnalegt og commercial það er að eyða þessum litla pening sem leikhúsið fær öllum í þessa einu, glamúr sýningu og missti ég mig því alveg þarna á brettinu...kófsveitt og jömmí...

...ekki nóg með það heldur þurfti hún svo að fara að tala um dauðann...og krabbamein...og ættingja hennar sem hafa dáið í mánuðinum og bla bla bla...hvað er það?!

...ég held það endi þannig að ég kýli hana kalda...bróka hana upp fyrir haus og skyrpi í augun á henni...

...já ég er frekar pirruð í dag....
Stay black - Salinto!
...Og ég er nú ekki...

...létt manneskja en ég fauk næstum því í dag...

...ég fór á Eldsmiðjuna í gær og kláraði ekki einu sinni hálfa pizzu...

...ég sofnaði ekki yfir sjónvarpinu í gær...

...ég fékk Strokes lag á heilann í morgun...ég á engan disk með þeim...

...ég er ekki búin að borða ís í 3 daga...

...hvaða twilight zone-i er ég lent í?!
Stay black - Salinto!

8.3.04

...Og haldiði ekki...

...að Liljan hafi fengið gjöf um helgina...

...og einfeldingur ég hoppaði náttúrulega hæð mína af gleði því fátt finnst mér skemmtilegra en að fá gjafir...og ekki skemmdi fyrir að gjöfin var tónlistarlegs eðlis...diskurinn sem mig er búið að langa í síðan hann kom út um daginn..."Lost dogs" með Pearl Jam...svona B-hliðar og góóóóður skítur...

...takk fyrir mig...
Stay black - Salinto!
...Og djöfull var helgin...

...sweeeet...

...oooo....ákvað að nýta þetta 15.000 króna gjafabréf á Café Óperu á laugardaginn...og þó að maður hafi nú ennþá verið háflþunnur eftir föstudagskvöldið þá náði maður samt að haga sér skikkanlega og njóta lystisemda góða lífsins...

...og reikningurinn hljóðaði upp á 17.280 krónur...sem var nú vel sloppið þar sem bjór, Tía María og White Russian var sötrað og tvíréttur máltíð var málið...mmmm...

...ég skellti mér í Humar-Risotto í forrétt og piparsteik Café Óperu í aðalrétt...og deeeem maður verður að gera þetta oftar...sú hugmynd fæddist meira að segja að sleppa subbu-matnum undir 1000 krónunum í heilan mánuð og fara frekar einu sinni grand út að borða í mánuði...mér líst nú bara svona líka vel á það...næst á dagskrá : Austur Indíafjélagið...

...eeen eftir gómsæta máltíð var haldið á pöbbarölt og í partí og skot eftir skot eftir skot tekið og rústað...og áfengisvíman indæla sveif yfir mann og kæruleysið tók völdin...held maður lifi á rykmaurum það sem eftir er mánaðarins...

...annars skyggði soldið á kvöldið að ég tapaði veðmáli...mér finnst aldrei gaman að tapa...sérstaklega ekki þegar veðmálið snýst um tónlist og verðlaunin eru matur...tapaði heilu Nóa Siríus páskaeggi númer 6...eeen mér er alveg sama...ég ætla mér að stúta því hvort sem er...

...oooog dagurinn í gær var sko beyond letidagur...úfff...bara legið upp í rúmi og sofið og vakað til skiptis...hmmm....that didn´t make much sense...

...erfitt að ná sér eftir svona letidaga og þurfa actually að vinna eitthvað...

...í kvöld er stefnan tekin á Eldsmiðjuna með Írisi smáauglýsingaskvísu...úúúújeee...svo er það náttlega Sörvævör All star...og aldrei að vita nema maður sofni út frá Dirty Dancing eða einhverjum álíka klassa...
Stay black - Salinto!
...Og það er einhver...

...tussa í mér í dag...
Stay black - Salinto!

5.3.04

...Og í dag sannast sko aldeilis...

...það forkveðna...fyrsti viðskiptavinur dagsins er alltaf sá laaaangleiðinlegasti...
Stay black - Salinto!

4.3.04

...Oooog ég skellti mér barasta...

...í 6 km skokk í Veggsport í gær eftir vinnu...ójájá...það var hressandi...

...og út af því ég var svona dugleg þá ákvað ég að verðlauna mig aðeins...eins og sannri prinsessu sæmir...og skellti mér í Skífuna á Laugarvegi og fjárfesti í 2 geisladiskum með honum Tom mínum Waits...

...oooo ef maður gæti keypt geisladiska á hverjum degi....þá væri lífið fullkomið...
Stay black - Salinto!
...Og ég leigði...

...eina þá leiðinlegustu og langdregnustu mynd sögunnar í gær...The Bodyguard með hinni misheppnuðu "leikkonu" Whitney Houston og hinum asnalega og fremur brjóstumkennanlega Kevin Costner í aðalhlutverkum...

...oooog fólk spyr sig kannski af hverju mér datt þessi ósköp í hug...og jú...málið er ofureinfalt...eins og ég...ég er einfeldningur...og hef gaman að svona myndum...ég elska svona ömurlegar "spennumyndir" með rómantísku ívafi...þó sérstaklega ef ívafið er á milli tveggja einstaklinga sem mega sko aldeilis ekki vera saman...svona taboo....þau vilja hvort annað...geta ekki verið saman...en eiga saman eina lostafulla nótt...hún verður fúl...gerir hann abbó...hann byrjar að drekka...hún verður hrædd og gerir sér grein fyrir því að hún þarfnast hans...hann fórnar sér fyrir hana...hún öskrar "He´s my bodyguard" og á endanum kyssast þau einum fallegasta kossi kvikmyndasögunnar...þetta kalla ég sko alvörumynd!

...eeeen því miður er ég ekki fullkomin í dag þar sem ég steinrotaðist yfir þessari misheppnuðu mynd...oooo jájá...eins og alltaf þá næ ég ekki að vaka eina mynd...og þá spyr ég mig af hverju í ósköpunum ég tók 2 myndir...og af hverju ég byrjaði ekki á hinni...þeirri stórgóðu mynd 4 Weddings and a funeral...sem hefur að geyma fallegasta bíómyndakoss í heiminum...og Hugh Grant...what was I thinking?!

...held að gellan á vídjóleigunni haldi að ég sé geðveik...held ég fari með grímu að skila þeim...
Stay black - Salinto!

3.3.04

...Og hvað er málið með að....

...Sean Connery sé alltaf svona ógeeeeeðslega getnaðarlegur!? Djísus...það ætti að banna þessum manni að ganga lausum...hann fer alveg með mig...
Stay black - Salinto!
...Og ég datt nú ekki alveg jafn mikið í það...

...í Skífunni á mánudaginn eins og ég hefði viljað...ekki vegna skorts á góðri tónlist heldur vegna mjöööög þunns launaumslags...fusss...

...eeen ég náði samt að gleðja mitt litla tónlistarhjarta og keypti langþráða Cure-safndótið með ýmisskonar b-hliðum og fágætum lögum sem hafa aldrei komið út...4 diskar allt í allt og svona skemmtileg, lítil bók sem rekur sögu allra laganna og náttúrulega sögu Cure í leiðinni...hef reyndar ekki komist yfir að hlusta alveg á alla diskana en það sem er búið að renna í gegnum geislavirka spilarann lofar góðu...enda ekki við öðru að búast af þessum snillingum...ooo...svo náði ég að setjast niður í gær og lesa einn þriðja af litlu, sætu bókinni á meðan breski spennuþátturinn fyrir gráhærða fólkið og gerpin var að rúlla á RÚV....

...svo fjárfesti ég líka í smáskífu...sem ég geri nú ekki reglulega...eeen þar sem ég er Die Hard Nick Cave aðdáandi þá gat ég bara ekki sleppt því tækifæri að kaupa smáskífuna með Henry Lee þegar ég sá hana liggja saklausa í geisladiska-rekkanum innan um allar stóru, flottu breiðskífurnar...hálfvorkenndi litlu smáskífunni með 3 lögunum...þannig að ég keypti hana...á heilar 999 krónur...hvað er það?! Fyrir 3 fokkíng lög...eeeen það var þess virði...þar sem Nick Cave er náttúrulega bestur í heimi...og svo skemmdi ekki fyrir að Hreimur afgreiddi mig...

...slökum alveg á með það...
Stay black - Salinto!
...Og ég alveg steingleymdi að segja frá því...

...að ég eldaði á mánudagskvöldið...that´s right...ég...af öllum manneskjum...

...ég hef alltaf gefið mig út fyrir að kunna að baka en að elda hefur aldrei verið mitt fortei....fyrr en núna á mánudagskvöldið....ég eldaði þessa dýrindismáltíð...þó ég segi sjálf frá...

...ég hafði það alltaf í venju að baka fyrir vini mína þegar þeir ættu ammæli...held að fólk geti núna bara byrjað að velja hvort það vill...máltíð eða kruðerí...

...jiii það er erfitt að vera svona frábær og meiriháttar...og hógvær...
Stay black - Salinto!
...Og ég hugsaði í allan gærdag...

...hvað ég væri til í að vera rosalega orðheppin og sniðug...alltaf...

...ég fór að hugsa hvað það væri gaman að vera alltaf fyndinn og vita alltaf nákvæmlega hvað maður á að segja...og vera svona heavy spontant...þá væri maður nú töffari...ó já já...

...ég hugsaði þetta lengi lengi og er ég sveif á vit blundsins míns eftir vinnu þá dreymdi mig minn nýja persónuleika...sniðugu Lilju...skemmtilegu Lilju...fyndnu Lilju...

...er ég vaknaði af djúpum svefni þá fannst mér í stutta stund að ég væri í alvörunni svona...eeen þegar ég hröklaðist fram og lenti í samræðum við fjölskyldu mína þá rak ég mig fljótt á að svo var ekki...ég var ennþá sama, ósniðuga, seinheppna Lilja....

...í þessum djúpu þönkum mínum fór ég leiðar minnar í leiklistartíma...veðrið var vont og ég hafði enga trú á mér...ég sat sem fastast og horfði á fyrstu senu tímans sem ég viljandi bauð mig ekki fram að taka þátt í...eeen þegar kom að annarri og jafnframt seinustu senu tímans þá sá ég mig tilneydda til að reyna á það hvort maður hefði nú einhverja hæfileika og gæti gert eitthvað af viti í ljósi hugarástands dagsins...

...og viti menn...ég fékk uppreisn æru...alveg óundirbúin undir það sem koma skildi fór ég inn í atriðið með engan texta en einungis hugmynd um hvers konar manneskja ég vildi vera og náði einhvern veginn ásamt honum José kaddlinum að vekja upp skellihlátur hjá öllum viðstöddum...þó sérstaklega kennaranum sem hváði þetta vera eitt fyndnasta atriði sem hann hafði séð í langan tíma...

...ég yfirgaf tímann með bros á vör...og var glödd með vanilluís...sem skemmdi nú ekki fyrir...

...í dag er ég ánægð...í dag er ég fullviss um að ég sé bæði sniðug og skemmtileg...í dag er minn dagur...
Stay black - Salinto!

2.3.04

...Og djöfulsins fíbbbl eru þetta...

...þarna í Sörvævör! Djísus kræst...mig langar mest bara að hætta að horfa á þennan þátt...þeir eru búnir að kjósa alla skemmtilegu út...tja nema Big Tom...

...í síðustu viku var það fyndna gerpið hann Rob...sem var svo sem í lagi...fannst hann sniðugur en syrgdi hann ekkert obboslega...en núna síðast í gær var það Richard Hatch...sjálfur Richard Hatch! Konungur og hinn eini sanni Sörvævör! Mesti snillingur sem litið hefur dagsins ljós í þessum blessaða þætti...og þau kusu hann út! Slökum alveg á því! Djöfulsins fæðingarhálfvitar og hórur...

...mér er skapi næst að gefa út þá yfirlýsingu að ég muni aldrei horfa á þennan þátt aftur...en ég veit ég mun ekki standa við það...
Stay black - Salinto!
...Og blessunin hann...

...Maggi Próförk...eða Doctor Schnitzel eins og hann er kallaður í hinum stóra bloggheimi...varð eitthvað súr um daginn er ég fór fögrum orðum um hina margfrægu vinnubloggara hér í húsinu...

...það sem Schnitzelið (er ég að skrifa þetta rétt eða er ég eitthvað mongó?!) gerði sér ekki grein fyrir að ég var fyrir löngu síðan búin að uppgötva hans rithæfileika og renna mínum fögru augum yfir hans einstaklega velheppnuðu bloggfærslur á öldum ljósvakans...

...þar með bið ég Herra og Doctor Schnitzel formlega afsökunar á þessum fíflahætti mínum og vona að við getum haldið áfram okkar rafrænu vináttu í gegnum hinn undursamlega samskiptamáta sem bloggið er...

...það er svo gaman að vera nörd...
Stay black - Salinto!