11.1.03

lick



Your Hidden Sexual Talent is Getting People to Lick You Everywhere!


Your lovers will lick you *anywhere*

Oh yes.... even there!

A little kiss, a little suck.

You'll be clean before you fuck.



What's *Your* Hidden Sexual Talent?

More Great Quizzes from Quiz Diva

10.1.03

og hér er fjör...

Njáll er hér...bjarni er hér...kristín er hér...og sigga er hér...allir eru hér...og það er svo gaman..og nördar eru að smíða quake borð...ojjj barasta...mínus hundarða þúsund milljón stig...og rebbi er ennþá heavy foxí!!! og bjarni er snillingur...í hófi...og í brjóstastærðaágiskunum...
Stay black
Og þetta er tvímælalaust lag dagsins...

Time is running out for
you baby
Hold my hands and let´s
make a plan
Love is oozing out for
you baby
I know you always did
understand
Tell me no secrets,
don´t want no hurting
Don´t make me cry,
give me no reasons.
Tell me, tell me, tell me,
come on Victor
Say you´re my lover
Come on Victor
Say you´re my lover

Don´t be very late today
baby
I feel awful cold without
your touch
Phone when you´ll be
home my sweet baby
Your tender loving arms
means so much

Stay black
Og sumir lýsa upp heiminn meira en aðrir...

Vá...var að fatta að jakkafataklæddir kaddlar eru ekkert smá getnó...hvað er það við þá? Skil það ekki..meira segja ófrýnilegustu menn verða soldið sexí þegar þeir eru komnir í jakkaföt...og þessir sem eru foxí fyrir...vúússj...þeir verða náttlega bara folar þegar þeir smella sér í jakkafatagallann...úfff...mar getur varla hamið sig hér í dag...jidúddamía...
Stay black
Og heimurinn glóir...

Já...þetta hlýtur að verða góður dagur í dag því hann byrjaði á því að ég fann pening...reyndar bara 150 kaddl...eeen samt...peningur...dugir fyrir bjór í Afganistan örugglega....eða á bjórkvöldum hugbúnaðarsviðs....en jæja...í Veggsport í morgunn varð ég mjög hissa....sem gerist nú mjög oft en í dag var ég extra hissa því í fyrsta lagi var stöðin troðfuddl á föstudagsmorgni..mjög óvenjulegt...og svo var stillt á Skjá 1...sem er líka mjög óvenjulegt...þá erum við að nálgast mesta hissinginn...ehehe...that´s not even a word..en allavega...farin að lengja mál mitt eins og Stína...anyways...þá kom myndband á Skjá 1...með fokkíng Roxette!! Ég hélt að þau væru dauð...grafin...búin að vera! Eða það vonaði ég allavega....en þetta var nú meiri helvítis viðbjóðurinn...fussumsvei...gerði hlaupið ekkert auðveldara...ætli Roxette fari að koma með comeback...þvílík grúppa...2 gay svíar...magnað
Stay black

9.1.03

Og heimurinn hringsnýst...og hvar er bjórinn...

Skrýtið hvernig mar gleymir sumum hlutum...til dæmis þegar fólk spyr mig hvað ég sé með í munninum þá gleymi ég að ég er með lokk í tungunni...eða nagla eins og sumir vilja kalla "þennan viðbjóð"...skrýtnara finnst mér samt þegar fólk spyr mig hvað ég sé með í tungunni og ákveður að kyssa mig og reyna að sjúga úr mér allan lífskraft...svo sem ekkert vont...en skrýtið...svo sem ekkert gott heldur...en skrýtið...allavega engin bónusstig fyrir það...en engin mínusstig heldur...*blikk* *blikk*
Stay black
Og snilldin hoppar og skoppar...og flissar um alla ganga....

Já...snilldin eina í dag er nýjasti diskurinn með Leoncie...ég kom með hann í vinnuna í dag...gaf kærasta systur minnar hann í ammælisgjöf sko...og ákvað að gleðja samstarfsfólk mitt aðeins...og það hefur svona líka virkað...textarnir slá náttlega allt út...lag dagsins er án efa Súlu dans-trans...lesiði bara textan...þvílíkur listamaður....

Því þetta er þitt og mitt
Það er mjög sérstakt elskan
Það er mitt og þitt
Það eru staðreyndir
Það hefur verið all svo langt
Þú skiptir öllu máli
Ástin þú og ég
Gátum verið saman villt
og frjáls
Oh, hvar er súlan hér
Svo ég get sveiflað mér
Út í salinn hér, þá get ég
unað mér
Það hefur verið allt svo langt
Þú skiptir öllu máli
Ástin þú og ég
Gátum verið saman villt
og frjáls
Taktu mig inn,
í klefann þinn
Sannaðu það, að þú
getir þrykkt honum
í réttan stað
Ég er eldheit nú, þú
ert alltaf graður.
Þú færð aldrei nóg.
Það eru staðreyndir

Stay black
Og dómsdagur nálgast...

Jæja...stór liður í gæðavottun Lisgo (Lilja og Sigga) lýtur dagsins ljós á morgun...annað kvöld...þegar haldið verður uppá nýja árið með pompi og prakt...nú þarf hver að passa sig og hvert smáatriði skiptir máli...við vorum að spá í að setja upp stigatöflu hérna í básnum eeeen svo ákváðum við að þeir sem hafa áhuga á að komast inná topp 5 verða bara að nota innsæið...keppnin er orðin rosaleg og drög að fyrstu 3 sætum eru nærri því í höfn...eeeen allt getur gerst og verður föstudagskveldið mjög mikilvægur þáttur í dómgæslu og niðurstöðum...
Stay black

8.1.03

Og meiri vitleysa...

Æjji...ef það er eitthvað sem mér finnst off svona við það þegar nýtt ár gengur í garð er þegar fólk er að gera svona endalausa best off lista yfir árið...meeen hvað mér finnst það pirrandi...veit ekki af hverju...maybe it´s a chemical thing...greinilega ekki fyrir mig en mar getur varla opnað moggann núna án þess að reka augun í allavega einn bestu-myndir-ársins-lista eða eitthvað álíka...eða svona nokkra lista frá mismunandi einstaklingum og þeir eru eiginlega allir eins! Ooo meeen...meika það ekki og fyllilega á móti þessu...wöööörrrrd...ha...mækrósoft wörd? Kallið á Árna...
Stay black
Og halló Hafnafjörður...

Meeen hvað ég var utan við mig í gær...fór á Select eftir vinnu...lagði bílnum og labbaði inní búðina...var eitthvað að skoða og reyna að muna hvað ég ætlaði að kaupa...then it hit me....ég ætlaði bara að fá bensín...eeeen þar sem er mest hadló að taka bílinn úr stæðinu og keyra 3 skref að dælunni þá fór ég bara niðrá Esso í Skógarseli...sem er núna uppáhaldsbensínstöðin mín...fólkið alveg híperalmennilegt...en mar verður soldið asnalegur þegar dúdinn sem er að dæla bensíni fyrir mann er geðveikt hress og skemmtilegur...það passar einhvern veginn ekki alveg...en kannski er bara svona rosalega gaman að vinna á Esso í Skógarseli...ég held ég sæki bara um safnkort...
Stay black

7.1.03

Og sumt fólk...

garg...var að lesa síðu áðan sem pirraði mig...ætla ekkert að gefa upp hvaða síða það er en það var svona þessi típíska bloggsíða sem var eitthvað að skíta út katrínu punktur is...djöfull er það pirrandi...eitthvað ööö ég skil ekki hvað hún er að segja og bla bla bla...og eitthvað ég skil ekki hver les hana og hún er búnað fá milljón gesti...ööö prump! Ég þoli ekki svona fólk....bbbaaaa...slepptu bara að lesa þessa síðu og stingdu tölvunni þinni uppí rassgatið á þér...nei ég meina...miklu skemmtilegra að lesa katrínu en þennan aula...hans síða var svona ööö vaknaði í morgunn og fór að læra...eeee...fer í próf á morgunn og svona eftir götunum...æjji...langaði að koma þessum pirring út því mér finnst þetta mest laime..
Stay black
Og ég vildi að þetta væri satt...


I'm Galadriel! Who are you?
by eikocarolchan


Vá...mér finnst þetta bara fallegasta kona í heimi..fyrir utan Michelle Pfeiffer auðvitað...ííí...if only this was true...
Stay black
Og í dag grætur lítill fugl í hjarta mínu...

...a buhuhuhu...Eva bestavinkona er í flugvél akkúrat núna á leiðinni til Denmark...buhu...við áttum samt góð jól saman og hittumst mikið þannig að það er nú allt gott og blessað...svo eigum við líka bókina okkar góðu...svona stílabók sem er eins og dagbók sem við sendum á milli...voðalega sniðugt allt saman...enda átti ég hugmyndina...ehehehe...segi svona....

...en lífið í Yrsufellinu er nú ekki mjög spennandi þessa dagana og ég get ekki sagt að nýja árið byrji neitt voðalega vel en ég veit að það á eftir að batna...samt leiðinlegt að vera komin aftur í þessa rútínu að vakna...fara að æfa...fara að vinna...fara aftur að æfa...fara kannski í ljós...koma heim...vera drulluþreytt...fá mér að borða og leggjast svo uppí rúm að sofa með snoop doggy dog...ehehehe...það er einmitt verið að bauna á mig að ég þurfi að fara að fá mér einhverja dúllu sem er ekki bíllinn minn og ekki hundurinn minn til að kúra hjá...tíhí...vildi að ég ætti svona fjölskyldu eins og Einar pabbi sem býðst bara til að kaupa konu handa honum..ussumbuss...og hann samþykkti það ekki...þvílíkt vanþakklæti ehehehe...eeeen þó að ónefndir aðilar séu að efast um kynhneigð mína og reyna að láta mig ganga út þá læt ég ekki bugast...ég held ótrauð áfram í leit minni að hamingju...frelsi...og næsta stað sem selur Carlsberg...
Stay black

6.1.03

Og maður reynir og reynir...

að vera soldið hipp og cool...keypti mér sjúklega hermannabuxur um helgina á útsölu...það eru nú skiptar skoðanir á þessum buxum en meirihlutinn virðist finnast þær nokkuð hipp og cool...en áðan fékk ég æðislegt comment frá samstarfskonu minni...henni fannst skrítið að sjá dömuna í svona ruddalegum buxum...ég vissi ekki að ég væri dama...mér fannst þetta æðislegt comment og er rosalega stolt af því...ég sagði henni að þetta væru mánudagsbuxurnar mínar...og hún sagði...já þegar maður opnar ekki augun þegar maður klæðir sig...hún er töffari sú...wooord
Stay black
Og þetta kalla ég karlmann...

Ah%2C%20Moody%20Aragorn.
What Lord of the Rings Male and Mood Do You Desire?

brought to you by Quizilla

Purrrrrrr
Stay black
Og núna verður maður að fara að gera eitthvað í málunum...

Og hó hó hó...er bara búnað vera nokkuð sátt með piparjónku-statusinn minn þessa dagana...enda farið að styttast í Spánarferðina og alger óþarfi að vera eitthvað að gera það erfiðara en það þarf að vera...en í gær breyttist nú hugarfar mitt til spinster-húdsins...held það sé orðið nóg þegar foreldrar vina þinna eru farnir að efast um kynhneigð þína...úfff...ég hélt ég yrði ekki eldri...I´m only twenty for crying out loud!! Þótt ég sé ekki gengin út þá þýðir það ekki að ég sé lesbía!! Ekki það að það sé neitt að því...en ég er það samt ekki...I like men...I think their sexy...úúfff...meeeen...núna er ég bara depressed sko...en jæja...mar verður nú samt að vinna þó mar sé depressed...
Stay black
Og dýrið gengur laust...

Já...þetta var sérdælis prýðileg helgi alveg hreint...byrjaði með bíóferð í lúxus með Evu og Gunna á Lord of the Rings - part II...tja...mér þykir leiðinlegt að segja það en ég varð fyrir smá vonbrigðum...mér fannst hún allavega ekki eins góð og sú fyrri...farið að sjást merki Hollywood aðeins meira í þessari og tekið oooof langan tíma í sum atriði og ekki nógan í önnur...en náttlega góð mynd þrátt fyrir það...en bara ekki eins góð og ég vonaðist eftir...þetta fær maður fyrir að fara svona seint á þessa blessuðu mynd...ojæja....svo var bara vinna vinna vinna á laugardaginn og svo kíkti ég til Elínar Aspar í smá teiti en hún er að fara til Frakklands eftir viku...snökt snökt...mar hittir hana þá ekkert meira á Hverfis því ég fer út í maí :( RIP....eftir það kíkti ég til Orms í vídjó og ég held að áætlun hans hafi verið að hræða mig til dauða því við horfðum á hræðilegustu mynd ever....The Ring..sem er ekki komin til Íslands en þið með tölvu...ég mæli með henni...reyndar vildi Ormur hafa einhvern með sér að horfa því hann þorði ekki að horfa á hana einn...sem ég skil mjöööög vel...hef sjaldan orðið svona hrædd...þurfti að keyra ein heim og allt um miðja nótt...læsti öllum hurðum og lét Nick Cave í botn...hrollur...svo bara vinna vinna vinna í gær og ég og Eva bestavinkona kíktum svo í ísbíltúr því hún er að fara aftur til Denmark á morgun...buhuhu...það eru allir að fara!! Mig langar að fara....snökt...

...En já...ammælisbarn helgarinnar er hún móðir mín sem átti ammæli á laugardaginn...orðin 52 ára gella og ekki sjést það á henni ehehehe...Til hamingu mamma! *knúsogkoss*
Stay black

3.1.03

Og hér kemur flottasta lagið á Nick Cave tónleikunum...

...eða næstum því flottasta...næstum því næstum því...Henry Lee átti þetta...en hér er West Country Girl

With a crooked smile and a heart-shaped face
Comes from the West country where the birds sing bass
She's got a house-big heart where we all live
And plead and council and forgive
Her widow's peak, her lips I've kissed
Her glove of bones at her wrist
That I have held in my hand
Her Spanish fly and her monkey gland
Her Godly body and its fourteen stations
That I have embraced, her palpitations
Her unborn baby crying, "Mummy"
Amongst the rubble of her body
Her lovely lidded eyes I've sipped
Her fingernails, all pink and chipped
Her accent which I'm told is "broad"
That I have heard and has been poured
Into my human heart and filled me
With love, up to the brim, and killed me
And rebuilt me back anew
With something to look forward to
Well, who could ask much more than that?
A West country girl with a big fat cat
That looks into her eyes of green
And meows, "He loves you", then meows again

Stay black
Og hve lifandi skelfingar ósköp er gaman að vera svolítið vænisjúkur...

Magnað hvað er hægt að gera á netinu...ég og Sigga Vala (ójá....you´re going down with me!)...erum búnað eyða smá tíma á þessari síðu í dag....alger hreinasta snilld verð ég að segja...ehehehe...mar má nú vera smá crazy stundum...en kaddlarnir sem við athuguðum fer þó ekkert lengra....nema einhver vilji borga piparjónkunum eitthvað...þá er náttlega alltaf hægt að komast að samkomulagi...endilega kíkið í kökur....Oracle fréttir...nýjar smákökur í horni Oracle þýðingarhópsins á þriðju hæðinni...rétt hjá tja...ætti maður eitthvað að vera að blaðra því ....
Stay black
Og þá er maður kominn aftur í geðveikina...

Meeeen það var erfitt að vakna í Veggsport í morgunn en ég gerði það nú samt...allt á þrjóskunni...ég bauð nefnilega Evu og Gunna í kökur og meðþí í gærkvöld og við leigðum lotr 1 fyrst við erum nú að fara á lotr 2 í kveld...aaa...í lúxussal...aaa...can´t wait...allavega...svo tók ég upp á því að horfa á temptation island þegar skötuhjúin voru farin og var því nettþreytt í morgun...eeeen...ákvað samt að byrja daginn á 20 mínútna hlaupinu...sem eru um 3 og hálfur keis...ég hélt að ég myndi gefast upp eftir svona 5 mínútur en allt kom fyrir ekki...ég hélt út 15 mínútur og þá fór sko sukkið að segja til sín og ég var við það að gefast upp...eeeen...þrjóskan ber mig alla leið og ég hélt út þessar blessuðu 20 mínútur...djöfull var það gott eftirá mar....vúúússsj...en mætt til vinnu er ég nú...og er ein á hæðinni...ég held ég mæti alltof snemma...aaa ó welll....
Stay black

2.1.03

Og þá byrjar það aftur...

...jæja...maður er mættur til vinnu og allir eru hressir...svo sem ágætt að mæta aftur eftir alla þessa leti...þó erfitt hafi verið að vakna í morgun...en jæja...gæðavottun okkar Siggu Völu heldur áfram...áætluð lok vottuninnar eru um 20. mars...eða eftir árshátíðina...hún er svona lokavendipunktur vottuninnar...þannig að það verða allir að haga sér vel þangað til...það eru nú nokkrir sem standa óneitanlega uppúr en ekkert verður ákveðið fyrr en 20. mars...og auðvitað er hægt að sækja um áfrýjun á niðurstöðum og ekki má gleyma hinum frægu frávikum og undantekningum...munið bara...we are watching you...
Stay black
Og nýja árið er komið...

Jæja...nýtt ár bara gengið í garð...eeeen skemmtilegt...og þetta ár verður miklu skemmtilegra heldur en síðasta ár...ég er viss um það...en ég var að spá í að byrja árið með kaddlalistanum mínum...svona 5 guys I´m allowed to sleep with...reyndar má ég sofa hjá hverjum sem er því ég er á lausu en ég gerði samt lista...og mér fannst sanngjarnt að ég mætti gera einn íslenskan lista og einn alþjóðlegan...svona til að play the odds...

Ísland:
Jón Gnarr
Ingvar E. Sigurðsson
Egill Ólafsson
Óli Palli
Erpur Blazroca Eyvindarson

Alþjóðlegt:

Sean Connery
David Gray
Eddie Vedder
John Corbett
Hugh Grant

Jæja...þetta þá kemur í staðinn fyrir áramótaheitið...ég reyndar setti smá áramótaheit...hefði getað sleppt því...alltaf þegar ég geri það þá brýt ég þau...en jæja...
Stay black

31.12.02

Og núna er tíminn....

...jæja...gamlársdagur að verða búinn bráðum...soldið fyndið að horfa á fréttir um hálf tvö og horfa á áramótin í Ástralíu...alger snilld...en jæja...ég kveð gamla árið og tek kærlega á móti því nýja því það getur ekki orðið verra en það gamla...allt er opið á nýju ári og fáum hurðum verður lokað...nýja árið er fullt af möguleikum og vonandi hittir maður fullt af nýju og skemmtilegu fólki...því það er svo ofboðslega gaman...ég ætla að kveðja ykkur og árið með lagi eftir meistarann sjálfan Nick Cave...það heitir Lucy og er af plötunni Good Son...ég gleymdi að minnast á nýjustu diskana mína...skipti jólagjöfinni frá Skýrr...sem voru einhver kort og dæmi og fékk innleggsnótu í Pennanum Eymundsson...fór svo í gær og ætlaði kannski að finna mér einhverja bók eða spil þegar ég rakst á cd-hilluna...og viti menn...fullt af Nick Cave...þannig að ég bætti Tender Prey, The firstborn is dead og tónlist úr myndinni I am Sam (hef ekki séð myndina en það fylgdi disknum síngull með Nick Cave :) í safnið...fór svo til Fancy og keypti mér cd-hulstur fyrir 128 diska...aðeins elítið kemst í það hulstur og hinir diskarnir verða því miður bara að rykfalla og vera hressir...so I´m happy og með Lucy þá bið ég ykkur vel að lifa á nýju ári og vonandi sé ég sem flest af ykkur í kveld og áfram á árinu sem er að ganga í garð...lifið heil...

Last night I lay trembling
The moon it was low
It was the end of love
Of misery and woe

Then suddenly above me
Her face buried in light
Came a vision of beauty
All covered in white

Now the bell-tower is ringing
And the night has stole past
O Lucy, can you hear me?
Wherever you rest

I'll love her forever
I'll love her for all time
I'll love her till the stars
Fall down from the sky
Now the bell-tower is ringing
And I shake on the floor
O Lucy, can you hear me?
When I call and call

Now the bell-tower is ringing
And the moon it is high
O Lucy, can you hear me
When I cry and cry and cry

Stay black

30.12.02

Og svo kemur gamlárs...

..og djöfull er gamlárskveld alltaf leiðinlegt...meen ooo meeen....leiðinlegasta djamm-kveld ársins...ég geri aldrei nein plön og fer aldrei niðrí bæ...því a) þá kostar það milljón og eina krónu og b) þá er það bara einfaldlega ekki gaman...en í ár hefur einn úr vinahópnum og meðlimur my boys hópsins ákveðið að halda partý...og það í göngufjarlægð frá matarboðinu hjá systu sem ég verð í..sem er alger hreinasta snilld...þannig að plan kvöldins á morgun er að borða góðan mat...borða þetta árlega snakk...sem er big deal því ég borða yfirleitt ekki mikið af snakki...kveikja á stjörnuljósum...horfa á skaupið og bíða svo með að dæma þangað til mar horfir á það daginn eftir...horfa á flugelda...skála í kampavín...hugsa um nýársheitið mitt...sem er ekki heimskulegt eins og ég ætla að léttast um svo og svo mörg kíló...fara í partý og hitta alla bestustu vini mína í heiminum og drekka Carlsberg...sounds like a good plan...svo bara ræðst framhaldið á morgun...nenni ekki að plana þetta kvöld því I don´t need to...ég hitti fólkið sem skiptir mig mestu máli í lífinu og það er það sem skipitir mestu máli...peace to you all
Stay black


Og þá er Survivor V búið...

Vúúússsj...eina sjónvarpsefnið sem ég hef lagt mig í líma við að horfa á fyrir utan Popppunkt...og viti menn...gaurinn sem ég hélt með vann...ótrúlegt...það sama gerðist í pppp...magnað...mar er aldeilis heppin í þessu þessa dagana....eeeen....ég verð samt að segja að ég er ekki completely satisfied með úrslit survivor núna...æjji...en af tvennu illu var samt gaurinn minn betri...og miklu sætari...hann var svona keppnismaður...og það er bara foxí...en hann var ekki hreinskilin og góður og það er ekki foxí...eeen þar sem draumar um hann tengjast bara einnar nætur gamani þá er hann bara nokkuð foxí...ehehehe...did that make any sense at all?!...enníhú...þá var þetta soldið bitur og reiður lokaþáttur...sem setur nú soldið fútt í etta eftir allt saman...en ég meina...ég skil alveg að fólkið hafi verið soldið bitur og reitt...ég meina hver vill sjá einhver bekk stebbíng svikara vinna milljón þegar þú hefðir getað unnið hana?! Milljón dali náttlega...milljón íslenskar er nú ekki það mikið ehehehe...en jæja...þetta er búið núna...þá er bara að bíða eftir loka lokaþættinum...og svo bara...Survivor VI ...íha...can´t wait...
Stay black