28.8.05

...Og jæja...

...myndir af djamminu á fimmtudaginn og Rob Schneider á föstudaginn eru komnar á netið...

...kíkið hingað og enjoy...

...annars er ég bara að flytja til útlanda á morgun...ligga ligga lái...
Stay black - Salinto!

27.8.05

...Og í kvöld...

...hitti ég ROB SCHNEIDER...hann var hress og a nice man...

...einnig komst ég að því að ég er ekki alkóhólisti þar sem ég gat farið á bílnum niðrí bæ...djammað til að verða fjögur og ekki hleypt dropa af áfengi inn fyrir varir mínar...það er afrek eftir þetta suddalega sumar...

...ég var samt frekar fúl að er ég keyrði stelpurnar heim í nótt keyrði ég örugglega framhjá fimm löggubílum og ekki einn stoppaði mig og lét mig blása...og ég sem var edrú...bömmer...svona er kaldhæðni örlaganna...you can´t win no matter what you do...meeeen...

...en ekki á morgun og ekki hinn heldur hinn verð ég í Dinamarca...magnaður andskoti...

...þetta er búið að vera besta sumar í heimi...
Stay black - Salinto!

26.8.05

...Og ég...

...drap flugu af hreinskærri illsku áðan er ég var að skreyta afmæliskökuna hennar Evu...hún á afmæli í dag...hún á afmæli í dag...hún á afmæli hún Eva...hún á afmæli í dag...

...en aftur að flugunni...þá drap ég hana því ég þoli ekki flugur og er í raun skíthrædd við þær...en þessi fluga...venjuleg húsfluga...var búin að sveima í kringum mig og kökuna í dágóðan tíma...síðan settist hún á borðið og þá greip ég tækifærið og drap hana með blaði frá Toyota á Íslandi...

...ég horfði á flugulíkið smurt á borðið og var næstum því farin að gráta...mig langaði að lífga fluguna aftur við og biðjast fyrirgefningar...ég gat ekki nærri því strax tekið hana af borðinu með tissjú og hent henni heldur leyfði ég líkinu að kólna...og allan tímann sem það kólnaði þá þorði ég ekki að snúa baki í það því ég hélt án gríns að flugan myndi lifna við...þúsundfaldast í stærð og kremja mig með þessu sama Toyota bréfi...það hefði verið kaldhæðni í lagi...
Stay black - Salinto!

25.8.05

...Og núna eru...

...flutningarnir á næsta leiti...búið að senda dót með gám og pakka flest öllu í kassa...bara ferðataskan eftir og þá er maður klár...og flýgur til Baunalands kl. 7.30 á mánudagsmorguninn...ein fylleríishelgi eftir á Íslandi og margar bjórhelgar framundan í Denmark...gaman gaman...

...annars á ég eftir að sakna ótrúlegustu hluta hér á Íslandi...eins og til dæmis Friends spólanna minna...fyrir þá sem ekki vita það þá er ég fíkill og á allt heila klabbið plús eitthvað Best of dæmi á vídjóspólum...en hvað ákváðum við að flytja út...jú DVD spilarann...usss...

...annars er ég bara góð...
Stay black - Salinto!

22.8.05

...Og menningarnótt...

...já hvað get ég sagt...

...kvöldið byrjaði á því að ég og Íris Huggie fórum til Elínar æskuvinkonu í skemmtilegt partí...takk fyrir það Elín...

...til Elínar náði Íris að smala Fjólu nef, Björk kúkelskreiber og Svömpu Gumm án þess að biðja um leyfi...fyrirgefðu það Elín...

...fyrst við fengum náttúrulega ekki leigubíl þá gengum við niðrí bæ sem vat ágætt og tók ótrúlega stuttan tíma...maður verður endilega að gera þetta oftar...spara pening og svona...

...en leiðin lá náttúrulega á Óliver þar sem var röð dauðans enda mættum við ekki á svæðið fyrr en um eitt-leytið...eeeen þar sem við erum búnar að koma okkur afskaplega vel í mjúkinn við Óliver og Gunna...dyraverði á staðnum...þá komumst við eiginlega strax inn...VIP you see...Oliver...Oliver...Oliver...Oliver...Oliver...Oliver...viss manneskja var næstum því komin á undan okkur inn og héldum við að það væri vegna tengsla stúlkunnar við vissan landsliðsmann í fótbolta...því öskraði ég á dyravörðinn "Ég er búin að sofa hjá Eið Smára"...við komumst inn sama tíma...það er að segja við og stúlkan...ekki Eiður Smári...hann var hvergi sjáanlegur...

...fljótlega eftir að inn á Óliver var komið byrjaði tvífarakeppnin...við stelpurnar fundum meðal annars söngvara Keane...Ashley Cole...Bob Marley...Boris Becker og Drew Barrymore...ekki slæmt það...djömmuðum síðan með heimsþekktum stunt manni í Flags of our Fathers sem var ekki verra...

...rúmleg fimm vorum við stelpurnar mætta í bitabílinn...hámuðum í okkur hamborgara og stálum leigubíl af einhverjum enda nenntum við ekki að bíða eftir bíl...

...daginn eftir voru svo teknar tvær Barry Pepper myndir...shiiiiit...

...setning kvöldsins er svo sannarlega "What Happens on the Green Mile stays on the Green Mile"...

...myndir kvöldsins má finna hér...
Stay black - Salinto!
...Og í dag...

...var síðasti vinnudagurinn minn...

...vá hvað það var erfitt...eeeeen all good things must come to an end...ég vonandi fæ vinnu hér næsta sumar til að greiða niður öll lánin mín svo mamma og pabbi missi ekki húsið...

...en helgin var eiginlega of góð til að vera sönn hún var svo skemmtileg...150 prósent sko...komst að því að strákar eru eiginlega vitlausari en stelpur þegar kemur að gagnstæða kyninu og geta verið alveg jafn miklir mongó og við hin...það er gott að vita...segi betur frá helginni síðar og set inn myndir frá menningarnótt sem var snilld vægast sagt...
Stay black - Salinto!

20.8.05

...Og eftir mikla leit...

...þá fann ég slóðina á stjörnumyndirnar okkar Írisar Huggie...

...nú er klukkan 03.31...ég er að horfa á In The Name Of The Father vel hífuð enda búin að sötra ansi mörg hvítvíns-, freyðivíns- og rauðvínsglös í kvöld í kveðjupartíinu mínu heima hjá Steinunni ritstjóra...stelpurnar stjönuðu við mig og mér hefur aldrei liðið eins og annarri eins drottningu...svo misstu þær sig náttúrulega í dönsku krónunum...fallegu ljóðunum og fallegu ræðunum...oooo I Love Those Guys...

...magnað að alla vikuna hef ég mætt mygluð og löt í vinnuna og talið niður dagana...allt í einu í dag...þegar ég sat þunn við tölvuna mína hugsaði ég hve mikið ég á eftir að sakna stelpnanna í deildinna og hreinlega allra sem ég er að vinna með...en svona er þetta...
Stay black - Salinto!

19.8.05

...Og ég var að henda...

...inn myndum af fylleríi gærdagsins og sjálfri mér á síðuna mína...og þegar ég segi fyllerí gærdagsins þá meina ég sko FYLLERÍ...hætti að drekka klukkan fimm og mætti galvösk í vinnuna klukkan níu...vááá hvað var gott að leggja sig samt eftir vinnu...

...allavega...kíkið
hingað...
Stay black - Salinto!
...Og eruð þið ekki...

...að grínast með þessa ömurlegu Idol hljómsveit...heitar lummur eða hvað svo sem hún heitir...jiminn eini ég hef sjaldan séð neitt svona hræðilegt...

...krakkar mínir...don´t quit your day job...og sorglega er að þessir krakkar kunna allir að syngja og ættu því ekki að láta bjóða sér svona ömurlegheit...sérstaklega kalli bjarni sem var nú einu sinni eftirlæti þjóðarinnar í fyrra...

...og ef þið ætlið að mæma ekki gera það þá svona ótrúlega ýkt...guuuuuuð...ég kemst ekki yfir það hvað þetta er ömurlegt því miður...sorglegt...
Stay black - Salinto!
...Og hverjum hefði dottið í hug...

...að Jennifer Beals úr Flashdance og Quentin Tarantino væru bestu vinir...

...detta nú allar bla bla bla úr bla bla bla...
Stay black - Salinto!

17.8.05

...Og haldiði...

...að maður sé ekki bara á forsíðu Séð & Heyrt í dag í faðmi Barry Peppers...
Stay black - Salinto!

16.8.05

...Og ég setti...

...nokkrar myndir inn af Bananas upptökunni á sunnudaginn...

...kíkið hingað...
Stay black - Salinto!
...Og af hverju...

...er Serena í Neighbours svona mikill helvítis mongólíti?! Afsakið orðbragðið...

...hún er alveg ótrúlega pirrandi þessi gella...alltaf eins og fæðingarhálfviti á svipinn og svo smá að hún er örugglega dvergur...svo ekki sé minnst á þennan viðbjóð sem hún er að deita en vill ekki sofa hjá...guð hvað þau eiga hvort annað skilið...jisús...

...annars er ég svo sem ekkert skárri að vera enn að horfa á Neighbours...það er bara svo erfitt að skilja við eitthvað sem hefur fylgt manni alla ævina...
Stay black - Salinto!

15.8.05

...Og...

...hvað er mamma þín?

...hún er Þróttari!

...hvað er pabbi þinn?

...hann er Þróttari!

...djöfull var gaman á leiknum áðan...ég er sko alger Köttari...þó að FH viðbjóðurinn hafi unnið...
Stay black - Salinto!

14.8.05

...Og vá hvað var...

...skemmtilegt í gær...jesús...og maður var nett fullur og vitlaus...og ég talaði heillengi við Ryan Philipe áður en ég fattaði að þetta væri hann...þegar ég fattaði að þetta væri hann þá varð ég mongó og öskraði með stelpunum...því miður leyfði hann ekki myndatökur en við náðum mynd af okkur og Billy Elliot og Mister Pepper...

...myndirnar síðan í gær eru allnokkrar og verða komnar hingað áður en dagurinn er á enda runninn...

...en ég trúi eiginlega ekki hvað ég er þunn í dag...og við þurfum að taka upp þáttinn fyrir morgundaginn...ómægod...það verður forvitnilegt...
Stay black - Salinto!

13.8.05

...Og í dag var...

...myndatökumaðurinn okkar Írisar Huggie...hann Halli Flipper...alltof þreyttur til að taka upp með okkur þannig að við fórum bara heim til Svömpu Gumm og horfðum á enska boltann...hér eru nokkrar skemmtilegar myndir af því...

...by the way þá get ég tekið 150 myndir á nýju myndavélina þannig að núna mun ég taka myndir af nákvæmlega ÖLLU sem hendir mig...í kvöld verður sko klikkað...
Stay black - Salinto!
...Og eruð þið ekki...

...að grínast með þetta krútt...vá hvað er gaman að vera skyldur svona fallegu barni...
Stay black - Salinto!
...Og ég trúi ekki...

...að ég þurfi að halda upp á afmælið mitt EIN í Árósum 9. september...usss...það hefur aldrei gerst áður...

...því skora ég á alla þá sem muna eftir því að senda mér línu þann 9.9 til að kæta litlu Lilluna sem verður ein á ókunnugum slóðum...þeir alla hörðustu hringja náttúrulega en það er nú annað mál...
Stay black - Salinto!

12.8.05

...Og ég var...

...að kveðja fyrstu manneskjuna áðan..meeeen hvað það var skrýtið...

...það var hún Freyja sem varð þess heiðurs aðnjótandi að vera fyrsta manneskjan sem ég knúsa og óska alls hins besta í framtíðinni...sniðuga var að hún þurfti lika að kveðja þar sem hún er að fara til Akureyrar og ætlar að búa þar í allavega ár...

...en ég meika ekki allar þessar kveðjustundir...og það verður nóg af þeim á næstunni...maður er uppbókaður allar helgar og virk kvöld og eiginlega alveg ótrúlegt að þetta sé að gerast...

...nú er íbúðin komin út í Árósum en íbúðin okkar hérna er vægast sagt white trash...drasl út um allt...ísskápurinn inn í stofu og óuppsett IKEA innrétting á víð og dreif um húsið...eldhúsið er eins og steypuklumpur með gardínum og svefnherbergið fullt af kössum...ooo it´s soooo romantic...

...en þessu fer að ljúka...vildi samt að ég gæti hætt að vinna ekki seinna en í gær en ég þarf víst að vera eina viku enn á blaðinu og síðan viku á stöðinni...sem er svo sem stuð...eins gott að ég fíflist fyrir næstu nokkra mánuðina með Írisi Huggie svo ég fái ekki of mikil fráhvarfseinkenni...thank god for email...

...en er ég hjólaði heima frá Freyju í Vesturbænum þá velti ég því fyrir mér af hverju er ekki eðlilegt að pissa á sig...ég var gjörsamlega að míga á mig alla leiðina og vildi óska þess að ég hefði bara geta látið það gossa...eins og ekkert væri eðlilegra...vonandi er það þannig í Danmörku...ímyndið ykkur hvað við værum miklu hamingjusamari...og þvottaefnisframleiðendur miklu ríkari...
Stay black - Salinto!

11.8.05

...Og ég var að horfa á...

...kynningu fyrir E! True Hollywood Story á E! og ber þátturinn heitið Love Behind Bars...

...þar er meðal annars talað við konuna sem varð ástfangin af Ted Bundy og haft eftir henni þessi gullna setning: "He was everything I ever dreamed of"...

...já einmitt...ég skil samt alveg hvað hún er að meina...ég meina draumaprinsinn minn er líka vægðarlaus raðmorðingi...eeen maður fær ekki alltaf allt sem maður vill í lífinu...
Stay black - Salinto!

10.8.05

...Og frábær setning...

...sem feita konan lét út úr sér í Wife Swap áðan...

..."If you can´t microwave it, it ain´t worth eating."....

...you gotta love those Americanos...
Stay black - Salinto!
...Og getið...

...hver er kannski komin með íbúð í Árósum...úúú...it´s all coming together...
Stay black - Salinto!

9.8.05

...Og vá hvað ég...

...mikla hlutina fyrir mér þessa dagana...

...ég er ógeðslega þreytt á því að þurfa alltaf að skjótast út í hádeginu að redda hlutum fyrir Danmerkur ferðina...mig langar bara að vera í fríi...svo er ég líka þreytt á að þurfa að koma heim og pakka niður í kassa og taka til og undirbúa grenið fyrir Extreme Makeover -- Home Edition...en svona er víst lífið...ég efast ekki um að talsvert margir í heiminum hafi það mun verr en ég...mér bara líður eins og ég ein eigi bátt þessa dagana...en það gerist víst stundum...

...eeeen voðalega verður gaman að hætta vinna...ég er farin að telja dagana...rosalega verður gott að breyta til...eeeen því miður get ég ekki hætt að vinna alveg jafn snemma og ég hélt því síðustu vikuna mína verðum við Íris að vinna í Bananas eins mikið og við getum...

...það er ótrúlegt hvað fátt annað en Danmörk kemst inn í hausinn á mér þessa dagana...Danmörk og djammið næstu helgi sem ég held að verði rosalega skemmtilegt...

...annars var ég að vingast við flottasta köttinn í hverfinu áðan...ekki seinna vænna segi ég nú bara...það er eitthvað ótrúlega fallegt við það þegar köttur nuddar sér framan í andlitið á þér og tekur þig í sátt...það liggur við að hjartað á mér bráðni á meðan ég skyrpi og hnerra kattahárum...
Stay black - Salinto!

8.8.05

...Og váááá...

...hvað það verður erfitt að velja geisladiska til að taka með til Árósa...ég held að það verði mér um megn...

...eeeen í þessum töluðu orðum var ég að panta borð á Vegamótum fyrir mig og nokkra vel valda aðila næsta laugardag og verður það kveðjupartíið mitt...aaaa ég hlakka til...Eva litla er búin að vera svo væn að lána mér íbúðina sína fyrir fordrykkinn þar sem grenið mitt verður eins og eftir sprengjuárás ef allt gengur eftir...

...annars fannst mér mjög skemmtilegt að vakna í gærmorgun og skoða færsluna sem ég hafði skrifað á bloggið blindfull þegar ég kom heim á laugardagsnóttina...mundi ekki einu sinni eftir þessu...ég þarf að gera þetta oftar...vonandi hef ég ekki skrifað neina grunsamlega tölvupósta líka...
Stay black - Salinto!

7.8.05

...Og ég er ekki frá...

...því að það sé skemmtilegt að vera full...vúhú...en ég afsaka öll sms...svolítið aktív á talnaskífuna...

...annars hittum við Íris mjög skemmtilegan aukaleikara sem heitir Jói...ótrúlegt hvað við hittum mikið af fólkið í kvöld sem þekkir Bananas...og svo náttúrulega hann Jeremy sem er alveg eins og íslenskir strákar...skilur ekki þegar maður hefur ekki áhuga...uss...

...en langt síðan ég hef bloggað undir áhrifum áfengis...hlustið endilega á Say hello wave goodbye með David Gray...og líka Soft Cell...samt flottara með David Gray...fallegra...

...og downloadið líka Cut here með The Cure...það er ótrúlega skemmtilegt lag og hefur svo mikla meiningu fyrir mér...eiginlega of mikla meiningu...baaaa...

...svo er það barnaafmæli á morgun...

...og ég enda á link á heimasíðu á skemmtilegasta vinnustað sem ég hef hlustað á ...*hóst* *hóst*
Stay black - Salinto!