20.2.05

....Og ég er að horfa á....

....einhvern þátt um Ocean´s 12 gengið...og fréttakonan sem er að taka viðtal við gengið lét út úr sér þessa setningu: "The American Peolple are very Intelligent"....aha...það hefur aldeilis sannað sig *hóst* *hóst*
Stay black - Salinto!

18.2.05

...Og já sko...

...þeir sem hafa verið í Lee Strasberg skólanum eru ekki bara Traci Lords heldur líka Angelina Jolie, Jane Fonda, Paul Newman, Marlon Brando, James Dean og Marilyn Monroe svo einhverjir séu nefndir...

...good times...
Stay black - Salinto!
....Og ég var að fá inngöngu...

...í The Lee Strasberg Theatre Institute...mjög virtan leiklistarskóla í New York...þetta er átján mánaða prógram og kostar rúma milljón sem mér finnst ekki svo mikið...margir mjög frægir leikarar hafa verið í honum...til dæmis Traci Lords...hehehe...kannski ekki mjög gott dæmi...veit samt ekki alveg hvað ég vil akkúrat núna...auðvitað væri frábært að fara til New York en ég fæ svo sem enga gráðu í þessu námi...but respect maybe...

...núna er ég alveg lost sko...skrifaði konunni sem sér um þetta til baka hve lengi ég gæti hugsað mig um...bíð bara eftir svari frá henni...mig langar nefnilega í inntökuprófið í Árhúsum í maí...svolítið heit fyrir þeim skóla og byrjuð að æfa mig á fullu...þetta er erfitt líf...leiklistarlífið...svo er maður náttúrulega kominn með svo góða vinnu...íbúð...mann...allt saman...svolítið erfiðara en þegar maður bjó í 15 fermetra herberginu heima hjá mömmu og pabba...þá hefði ég ekki verið lengi að hugsa mig um...

...eeen það er Danmörk eða New York...það er nokkuð ljóst...

...annars er það bústaður á eftir...jeyjj...nema búúúú ég missi af Idolinu...go Helga Vala! Ætli Lísa detti ekki út í kvöld...
Stay black - Salinto!

16.2.05

...Og ég lifi fyrir það eitt...

...þessa dagana að ég er að fara í sumarbústað um helgina...með ektamanninum og hele familien...minni þá...ekki hans...ég hlakka ekkert smá til að fara í árlegan rúnt á bak við Seljalandsfoss...að Gljúfrabúa og kannski að Paradísarhelli ef veðrið leyfir...lovely...ég ætla ekki að gera neitt nema sofa...slappa af...borða og labba út um allt...

...annars er ömurlegt veður í dag og mig langaði að vera heima í dag að horfa á sjónvarpið undir sæng...en það er ekki á allt kosið...en við fáum 24 seríu í dag inn á tölvuna...nokkuð ljóst hvað verður gert næstu kvöld þar sem við höfum hvorugt séð 24 nema nýjustu seríuna sem er að gera allt vitlaust á heimilinu...
Stay black - Salinto!

13.2.05

...Og loksins loksins...

...eru myndirnar mínar komnar á vefinn undir tenglar...

...njótið vel...
Stay black - Salinto!

11.2.05

...Og þeir sem misstu af...

...útvarpsstjörnunni mér geta stillt á fm 90,9 á miðnætti í kvöld og hlustað á íðilfagra rödd mína leika um öldur ljósvakans...aaaa...sooo smoooth...

...en ég er orðin ástfangin af henni Hildi Völu í Idolinu...vááá...þessi stelpa er ótrúleg...ótrúleg segi ég! Ef hún vinnur ekki þessa keppni þá er eitthvað mikið að...hún er svoooo sæt og sjarmerandi og þessi rödd er yndisleg...hún hittir ekki á falska nótu og ég fæ undantekningarlaust gæsahúð þegar ég hlusta á hana...

...ég hélt ég myndi aldrei gera þetta en ég ætla að kjósa hana í kvöld...
Stay black - Salinto!
...Og það er opinbert...

...ég er orðin útvarpsstjarna...
Stay black - Salinto!
...Og það er stór dagur...

...í húsinu í dag...nýja útvarpsstöðin Talstöðin fm 90,9 hefur hafið útsendingar...klapp klapp...

...tímaritið Birta verður með sinn eiginn þátt frá kl. 14 til kl. 15 á föstudögum...smá kvíðatitringur í maganum en ágætt stemming samt...þið getið heyrt Liljuna spreyta sig í útvarpinu þegar klukkan nálgast 15...það verður athyglisvert...
Stay black - Salinto!

10.2.05

...Og...

...þessi maður er jömmí...grrrr...
Stay black - Salinto!

7.2.05

...Og ég fór...

...að gefa blóð í dag...fékk þau fallegu skilaboð að blóð úr flokkinum mínum vantaði á stöðina...það fór um mig einhver skringileg sælutilfinning að það væri actually einhver þarna úti sem þyrfti á mér að halda...þannig að ég fór...úr vinnunni...til að ljúka ætlunarverkinu mínu hér á jörðu...að gefa öðrum blóð...er í B+ sem víst bara tólf eða fjórtán prósent þjóðarinnar eru í...það er ágætt að maður hefur einhverja sérstöðu...

...en ferð mín í Blóðbankann er svo sem ekki frá sögu færandi...það er það sem gerðist eftir ferðina sem mér fannst svolítið magnað...Óli Hjörtur vinur minn kom til mín upp á aðra hæð...ég fór að segja honum af ferð minni í Blóðabankann og þá kemur í ljós að hann má ekki gefa blóð því hann er samkynhneigður...hmmm...af hverju í ósköpunum...getur einhver útskýrt það fyrir mér af hverju samkynhneigðir karlar mega ekki gefa blóð? Nú mega lesbíur gefa blóð...

...þetta finnst mér hreint og klárt mannréttindarbrot...bara út af því að hann er samkynhneigður þá má hann ekki leggja sitt af mörkum og hjálpum fólkinu í kringum sig...er hann eitthvað verri manneskja þótt hann sé samkynhneigður? Ég velti lengi vel fyrir mér hvort þessi regla ætti við einhver rök að styðjast eða hvort þetta væri hommafóbía af gamla skólanum...hvorugt getur eiginlega passað finnst mér því nú er alþjóðlegt samband blóðbanka eða what it´s called frekar líbó og óeigingjörn samtök sem vilja hjálpa öðrum...sama hvernig sú manneskja er eða lítur út...það ætti þá sama að gilda um blóðgjafana myndi maður halda...svo fór ég að spá hvort að þetta væri eiðnitengt en samkvæmt rannsóknum er ég í meiri áhættu en hann til að fá eyðni þó að ég sé gagnkynhneigð kona...er ég það ekki annars?

...ég vil endilega fá svör við þessum spurningum því ég tók þetta mjög inn á mig að greyið litli Óli Hjörtur...þetta yndi sem hann er....fái ekki að leggja sitt af mörkum...mig langaði næstum því að fá blóðið mitt til baka úr Blóðbankanum sökum þess að ég er með gleraugu og yfir kjörþyngd...
Stay black - Salinto!

5.2.05

...Og ég er að horfa á...

...The E! True Hollywood Stories um Marilyn Monroe...í þynnkunni...gaman að því...

...en svo virðist vera að Marilyn hafi ekki trúað mikið á sjálfa sig þrátt fyrir mikla hæfileika...hún svaf hjá öllum sem hún vann hjá til þess að komast áfram...hmmm...mér finnst það ekki alveg málið...og svo fór hún í lýtaaðgerð til að líta út eins og hún leit út þegar hún meikaði það...greyið...henni vantaði mikla ást og umhyggju og leitaði huggunnar í fíkniefni og áfengi...og ómögulega karlmenn...

...leiðinlegt hvernig fer fyrir svona miklum talent...og fegurð...því hún var miklu fegurri áður en hún lét breyta útliti sínu...falleg, curvy kona...í stærð númer fjórtán...svona eiga konur að vera...

...þetta eru svo góðir þættir maður...þetta kalla ég menningu...

Stay black - Salinto!
...Og...

...núna getið þig keypt vörur sérhannaðar af Liljunni sem minna ykkur ævilangt á Liljuna, uppáhalds bloggarann og blaðamanninn ykkar...já já já...

...kíkið á þessa vefsíðu og athugið hvort þið finnið ekki eitthvað við hæfi í búðinni minni...hún er mjög fjölbreytt og skemmtileg...check it!

Stay black - Salinto!
...Og það er kominn...

...nýr liður hérna við hliðina á...könnun er það nýjasta...fílaði ekki þetta tag board og það eiginlega virkaði ekki...þannig að könnun er það...mjög svo inspired af E! Entertainment Network...hehe...me and Íris are hooked ;)

Stay black - Salinto!

4.2.05

...Og...

...vinnu Idol karókí keppnin er í kvöld...víhí...Íris á leiðinni í crazynessið og bjórinn mun verða opnaður innan nokkurra sekúnda...fílaða...
Stay black - Salinto!

1.2.05

...Og ég er með...

...virkilega slæmt tilfelli af fyrsta lagið sem ég heyrði í morgun festist í heilanum á mér...

...það mun vera það ágæta lag Tiny Dancer eftir Elton John en í flutningi einhvers sem ég veit ekki hver er..."Hold me close young Tony Danza" eins og vitur maður söng...
Stay black - Salinto!
...Og ég komst að því...

...um helgina að klósett á skemmtistöðum þjóna mismunandi tilgangi eftir því hvar er drepið niður á ölstofur bæjarins...

...á Hverfisbarnum til dæmis er gott dæmi um klósett sem þjónar þeim tilgangi að færa fólk saman...svo enginn fari einn heim...nema einhver bíði í rúminu náttúrulega...

...á Hverfisbarnum getur maður alltaf farið á klósettið þegar maður týnir einhverjum því það eru mjög miklar líkur á því að þú finnir einhvern vinsamlegan á klósettinu eða á leiðinni þangað...og staðreyndin er að mikill minnihluti þeirra sem leggur leið sína á klósettið (þá sérstaklega stelpur) þurfa í raun og veru að pissa....eða gera eitthvað stærra...

...ég fór á Alþjóðahúsið á laugardagskvöldið...edrú...og gat fylgst mjög gaumgæfilega með fólki...þó mér finnist ekki mikið til staðarins koma þá tók ég eftir því að klósettið þar er eingöngu notað til að létta af sér...þess vegna er engin röð...ég þurfti ekkert að bíða...og þegar ég kom út var enginn að bíða eftir mér...þetta líkar mér...

...veit ekki af hverju ég var að tjá mig um þetta...ekki sérstaklega góð saga...en ég læt hana flakka því nýja bloggið mitt er svo flott og stelpulegt...
Stay black - Salinto!

31.1.05

...Og fólk var ekki að fíla...

...nýja útlitið þannig að ég breytti aftur...is this better?

Stay black - Salinto!

30.1.05

...Og ég var að breyta...

...bloggútlitinu...hvernig líst fólki á? Allar ábendingar vel þegnar...

Stay black - Salinto!

28.1.05

...Og mér finnst...

...Þorsteinn Guðmundsson algjör snilld..."Vá ég er alveg dottin út. Ég var farin að hugsa um skútu."...hve mikil snilld er þessi náungi!?

...annars er það idolið sem á hug minn allan í augnablikinu...ektamaðurinn sofandi en þegar hann vaknar er það þrítugsafmæli...veit ég á ekki að fara því ég er ekki alveg búin að jafna mig en ég fer samt...
Stay black - Salinto!
...Og ég er ekki frá því...

...að litla hjartað sé að springa úr þjóðarást...

...er að horfa á Ísland-Rússland og svei mér þá...Ísland byrjaði fimm mörkum undir og náðu ekki skora eitt einasta mark...nú eru þeir komnir yfir strákarnir...10-9...magnaður andskoti...og á móti sjálfu stórveldinu Rússlandi...

...mér er sama þótt þeir tapi...þeir eru hetjur...

...og jú ennþá veik...annars gæti ég varla verið að horfa á þennan leik...það er ömurlegt að vera veikur...helvítis hiti í manni...tók smá dansfílíng áðan þegar ég vaknaði því ég meika ekki bara að liggja og gera ekki neitt...eftir um það bil fimmtán mínútur af dansi plús magaæfingar og armbeygjur þá var ég orðin jafn sveitt og eftir fimm kílómetra hlaup...ótrúlegt...og ömurlegt í senn...

...en það er mikil boðshelgi framundan...þrítugsafmæli í kvöld hjá vini ektamannsins...útskriftarveisla annað kvöld ásamt kveðjupartíi...held ég verði edrú og kvöld og keyrandi svo ég geti skotist heim þegar hausverkurinn og síþreytan fer að segja til sín...annars óska ég ykkur góðrar helgar...og held ég að ég endurveki partímynd helgarinnar sem ég lét alltaf hér inn á föstudögum í den...og í tilefni idol keppninnar um næstu helgi þá birti ég mynd síðan á síðustu idol keppni þar sem ástarörvar amors fönguðu bæði mig og ektamanninn...tíminn líður aldeilis hratt...hér er partímyndin...

Stay black - Salinto!

27.1.05

...Og það veitir mér...

...einhverja undarlega ánægju að eiga fullt, fullt af gamanþáttum á dvd eða vídjó...veit ekki af hverju...en það gerir það...

...ég á alla friends-þættina á vídjó....alla family guy á dvd með ektamanninum...tvær fyrstu seríurnar af simpsons á dvd með ektamanninum og síðan fékk ektamanninum the office safnið á dvd í jólagjöf sem ég er einmitt að horfa á núna í veikindum mínum...það er svo gaman að dást að þessu safni...yndislegt...núna þurfum við bara að fara að safna cheers...

...en veikindin eru að hverfa...sem betur fer...komin með fráhvarfseinkenni frá þessari frábæru vinnu sem ég er í...ótrúlegt en satt...djöfull er maður nú heppinn....

...en Íris crazyness hringdi í mig áðan og nú er bara rétt rúmlega vika í idolið og við ekkert byrjaðar að æfa skemmtiatriðin okkar...uss uss uss....ég er reyndar búin að sauma búninginn minn en Írisar er eftir...en við neglum þetta...því við erum stjörnur og við erum bestar....
Stay black - Salinto!

26.1.05

...Og klukkan...

...er að verða hálf fjögur...ég er veik heima og búin að sofa í allan dag...frábært ekki satt...ömurlegt...

...og í þessi skipti sem ég hef rankað við mér og staulast inn í eldhús og aftur fram í sófa þá er akkúrat ekkert í sjónvarpinu...Stöð 2 vinnur ekki fyrir veika fólkið...bastards...
Stay black - Salinto!

24.1.05

...Og dansinn heldur áfram...

...þriðja vikan af dansnámskeiðinu er að byrja og ég fíla það vel...ekki spillir svo fyrir að Pétur nokkur Blöndal alþingismaður er að hrista sig með okkur stelpunum...ég kalla hann góðan...

...en það er eitthvað svo ótrúlega fyndið og jafn ótrúlega sorglegt að horfa á þennan mann í þessum tíma...fyrsta lagi kann hann ekki að hreyfa sig sem er svo sem allt í lagi...efast um að ég sé mikið skárri í mjaðmahnykkjum en hann...en svo bara er hann eitthvað hálf ógó lógó...held hann sé með gráa fiðringinn á háu stigi...mætti í stuttum þröngum hjólabuxum í tímann í dag...hvað er það?! Hef síðan heyrt að hann eigi dansgólfið á NASA um helgar þannig að kannski er hann að æfa sig...maður getur ekki alltaf verið með sömu sporin á djamminu...en að sjá þennan mann fara í splitt og gera hip hop moves er ekki málið...hann er eins og gamall órangúti sem er að elta sinn fyrsta GSM síma...órangútinn er þá Blöndalinn og GSM síminn flotti danskennarinn...sad little man...

...annars er það karókí keppni 4. febrúar sem ég og Íris pæja erum að skipuleggja, við syngjum líka í henni og verðum með skemmtiatriði...ætli fólk fari nokkuð að fá leið á okkur? Naaaa...en þetta verður massastuð...á Ölver...en í fyrra var keppnin 5. feb á Shooters í Kópavogi...þar sem leiðir mín og ektamannsins lágu saman...vá...it´s been a year already...úff...time flies when you´re having fun and are in love...en ég og Íris erum búnar að redda killer stjörnudómurum og það stefnir allt í frábært partí...á morgun fer ég að sauma búninga fyrir atriðið okkar þannig að þetta er allt að smella saman...
Stay black - Salinto!
...Og blogg...

...er ekki beint orð dagsins...eða vikunnar svo talað sé um það...ekki búin að vera dugleg...

...en ég vil óska augnadansaranum og sjarmörnum Gumma Jóh með fjórða sætið í vali á kynþokkafyllsta manni ársins 2004 á Rás 2...hann á þetta fyllilega skilið strákurinn...sendið honum skeyti...

...annars eru orð dagsins og vikunnar allrar Eva Cassidy...þvílíkur snillingur...hér fær að fjúka Say Goodbye...yndislegt lag í alla staði...

It’s funny how the distance can make you feel close
And the things you lost are the things you want most
The weather’s fine here – perfect shade of blue
I guess that’s why I’ve been thinking of you

Chorus
So I call you up just to tell you why
Why I left you and say goodbye
Ooh must be the mood I’m in
I’m thinking of you again
I call you up just to tell you why
Why I left you and say goodbye
I know you’re different now and I guess I changed too
And I thought what was once so right was so wrong for you
Yesterday I was talking and I heard your name
The weather’s fine here with a slight chance of rain

Chorus

Time makes you sorry for the things that you’ve done
Sometimes you walk away and sometimes you run
And the weather’s fine here; I can feel a slight chill
Somethings change babe and some never will

Chorus
I call you up just to tell you why
To say I love you and to say goodbye

Stay black - Salinto!

18.1.05

...Og það eru nýir diskar...

...góðir hálsar...ójájá...

...Give Up með The Postal Service er búinn að hanga í bílagræjunum í heillangan tíma og það er ekki amalegt...frábær raftónlist þar á ferð sem ég fæ ekki leið á...hugljúf lög hjá þessu bandaríska tríó sem blow me away...lovely...

...Keypti mér Wonderful World með Evu Cassidy fyrir inneignarnótu sem ég átti í Skífunni...algjör unaður er að hlusta á þessa manneskju...váá...þessi rödd og þessi unaðslegu lög leyfa manni að slappa af í daglegu amstri og njóta lífsins...Eva er yndisleg...

...Ég keypti líka annan disk fyrir inneignarnótuna...sem er ekki búin nota bene...ég fjárfesti í Violent Femmes Remastered eitthvað með einmitt Violent Femmes...á venjulega diskinn en þessi er með einhverju aukadrasli...smáskífum og svoleiðis skemmtilegheitum sem er alltaf gaman að hlusta á...

...Svo vann ég disk á Rás 2...viti menn...ótrúlegt en satt...vann Tenderfoot diskinn sem ég á alveg eftir að hlusta á en mér hefur litist vel á það sem ég hef heyrt í útvarpinu...góð og melló tónlist...

...ég er svona frekar á þessum hugljúfu nótum þessa dagana...fílaþa...
Stay black - Salinto!