1.2.04

...Og þá er ég loksins...

...komin með nýtt Comment-kerfi fyrst Shout out var ekki að standa sig...

...gaman að hafa nóg að gera í vinnunni...
Stay black - Salinto!
...Og ég vil þakka Guðjóni fyrir þessa snilld...

...minnir mig samt á hvað ég er óveraldvön...17 lönd...sem eru 7% af heiminum...Asía...here I come...



Gerðu þitt eigið heimskort...

Stay black - Salinto!
...Og mér var barasta boðið í bíó...

...í gær...ójájá...aldrei þessu vant...ekki var þó um deit að ræða heldur var faðir minn svo elskulegur að bjóða litlu Lillunni í bíó...vei vei...hann vildi nú reyndar ekki koma með þannig að ég fór með Earlie sissí og Landnámsmanninum...við brunuðum í Regnbogann og settumst inn á myndina 21 grams...

...úúúffff...það er langt síðan ég hef labbað jafn ánægð út úr bíó eins og í gærkvöldi...meeen ó meeen...mér finnst þetta mynd bara alger snilld...og hún staðfesti það enn og aftur í mínum huga að Sean Penn er óumdeilanlega besti leikari í heimi...ef ég myndi geta leikið svona helmingi verr en hann þá væri ég samt ánægð manneskja...hann er ekki mannlegur maður...óvá...og hann hefur aldrei verið eins getnó og í þessari mynd...mig langaði bara að stökkva á hann og baaaaa...rífa hann úr öllum fötunum og taka smá bláberjaskyrsstemmningu á þetta....en ég lét það vera...tja nema í huganum...

...svo Benecio del Toro...mmmm mmmm mmmm...hann er alger snillingur...hann var reyndar ekkert voðalega getnó en vááá leikurinn maður...djísus...ég varð eiginlega smá depressed þar sem maður getur ekki ímyndað sér að maður geti orðið jafn hæfileikaríkur og þessir menn...sjittt....

...og myndin var frábærlega vel uppbyggð og útfærð og ég get bara ekkert sett út á hana...

...eeen ótrúlegt en satt þá náði ég samt að dotta...ég held ég leiti mér læknishjálpar...
Stay black - Salinto!

30.1.04

...Og það er svona nett twilight zone...

...hérna í vinnunni...

...Herra Torfason byrjaður að ganga með einhverja eitís-frystihúsa-derhúfu og Herra Jökulsson nýklipptur og vel til hafður...

...hvað er að gerast? Hvað sem það er þá fíla ég það...
Stay black - Salinto!
...Og ég held sveimérþá...

...að ég vitni bara í þann góða mann Nick Cave í dag..."It´s a good good day today..."

...þessi dagur er búinn að vera aldeilis glimrandi...byrjaði á því að skutla móðir minni í vinnuna og taka bílinn og smellti mér á hlaupabrettið í Veggsport og ég var unstoppable...hljóp góða 7 kílómetra á ofsahraða og vildi sko aldeilis ekki hætta...hefði getað hlaupið í allan dag en ég var að verða of sein þannig að ég þurfti því miður að hætta...ooooo...

...eeen næst tók við kaffihúsahittingur með leiklistarliðinu...sem var þó stuttur því vinnu mína þurfti ég að mæta í...

...í vinnuna tóku rósir og sameining við mér opnum örmum og núna er maður sko að vinna hjá alvöru stórfyrirtæki...Norðuljós og Frétt...Forðurtós....ójá...

...í hádeginu skaust ég á fund með fulltrúum Samfylkingunnar og þar var skeggrætt um ástand menningarmála í þjóðfélaginu...ójá ójá...lofar mjög góðu...þau tóku niður okkar mál og ætla að rannsaka það aðeins betur...setja það fram í þinginu og pressa á Þorgerði Katrínu að gera eitthvað fyrir okkur vesalingana...

...svo bara er ég með blóm á borðinu mínu og lífið brosir við mér...hvað vantar mann meira en hamingju og ást í hjarta sínu? Ja ekki mikið held ég...

...svo skemmir ekki að manni var boðið í bjór í gær...
Stay black - Salinto!

29.1.04

...Og mér finnst svo magnað...

...þegar fólk er að kveðja mann að þá segir maður alltaf "Ertu farinn?"...við hvaða svari býst maður eiginlega? "Neeei...fyrst þú spurðir þá er ég að hugsa um að vera lengur...."

...mannfólkið er skrýtið...
Stay black - Salinto!
...Og af hverju getur ekki einhver...

...komið heim til mín í kvöld með fullt af blómum og sungið Groovy Kind of Love fyrir mig...oooo...það er svo erfitt að vera einmana piparjónka á dögum sem þessum....
Stay black - Salinto!
...Og karókíæfingin í gærkvöldi...

...var aldeilis mögnuð...mögnuð segi ég!

...byrjaði á því að sökka hræðilega í mínum útgáfum af Locomotion, Can´t get you out of my head og Overprotected...hélt á tímabili að ég ætlaði bara að draga mig úr keppni sveimérþá...þó mér finnist gaman að gera mig að fífli þá var þetta aðeins of mikið af því góða...

...eeeen viti menn...allt í einu stukku raddböndin upp og skinu í gegnum tárin og þá tók ég meistaralega vel lögin Lucy in the sky with diamonds, Boys don´t cry og My Sharona...og nú er bara spurning hvaða lag ég á að taka...ég tók þau svo rosalega vel og æðislega að ég bara veit ekki hvert ég á að fara...hallast samt mest að My Sharona þar sem það er náttlega mesta stuðlag í heimi...en Lucy var líka helvíti flott...og svona minna áberandi stuðlag...ó well...ég er náttlega svo frábær og lifandi dæmi um útgeislun að það skiptir svo sem ekki máli hvað ég tek...

...eeen sama hvað ég vel þá hef ég fæturnar á jörðinni og læt hógværðina stýra mér á sigurbraut...
Stay black - Salinto!

28.1.04

...Og í kvöld er víst stefnt á rokna...

...karókí æfingu og læti...úff...á Shooters í Kópavogi...þá reiðir á að standa sig maður...úff...fréttir herma að það séu glæsileg verðlaun í boði...jafnvel eitthvað tengt utanlandsferð....eeen ég stefni nú ekki hátt þar sem ég hef einstaklega lélega og ómstríða söngrödd sem á það frekar til í að kvelja fólk en gleðja...en samt tek ég þátt...jú...vegna þess að ég nýt þess að gera mig að fífli og nota hvert tækifæri til að minna fólk á hvað ég sé mikill spastískur hálfviti...don´t say I don´t have goals...

...eeen núna stendur valið á milli þess að taka Locomotion eða I can´t get you out of my head...bæði í flutningi hinnar stórglæsilegu Kylie Minouge auðvitað...what to do...what to do...Locomotion er náttlega svona hresst partílag en hitt svona frekar seiðandi...og ég er bara ekkert sérstaklega seiðandi manneskja...eða ég held allavega ekki...meika allavega ekki að fara að seiða vinnufélagana upp úr skónum...sem brýtur reyndar í bága við fyrr sett markmið mitt að gera mig að fífli hvenær sem ég get...

...þannig að ætli maður láti ekki grýta og púa sig niður með I can´t get you out of my head...hver veit nema fólk verði svo hrætt við mig að það þori ekki annað en að láta mig vinna...don´t say I don´t have goals...
Stay black - Salinto!
...Og það er búið að vera svo ótrúlega...

...gaman í vinnunni þessa dagana...fyrir utan visst bréf frá vissum hrokagikki (sem mér fannst einu sinni vera töffari)...eeeen maður lætur það ekki á sig fá...en við bara hættum ekki að hlægja þessa dagana ég og Íris...okkur finnst allt fyndið og finnum sjarmöra í hverju horni...jiddúddamía...nú heldur maður bara varla vatni yfir vinnufélögunum lengur...hrikalegt ástand sem verður að breytast...maður verður að komast yfir svona þráhyggjur...tja...eða komast undir fórnarlömbin...
Stay black- Salinto!
...Og ég og Íris...

...ætlum sko að borða á okkur gat í hádeginu maður...úfff...gellan ætlar að lána mér á hlaðborð á Pizza Hut...

...ekki búast við okkur aftur í vikunni...maður þarf sko langan blund ef svona ofurhádegi...
Stay black - Salinto!

27.1.04

...Og lag vikunnar er tvímælalaust...

...Groovy Kind of Love í flutningi meistara Phil Collins...maður á nú samt ekkert að hlusta á svona tónlist í þessu ástandi...
Stay black - Salinto!

26.1.04

...Og nau nau nau...

...Jón Ásgeir var að labba inn í hús...maaagnað...fæ svona stórjöfra-fiðring í magann...
Stay black - Salinto!
...Og ég skil ekki alveg þörf fólks...

...fyrir að tala við mann í líkamsrækt...þegar maður er allsnakinn og nýkominn úr sturtu...hvað er það?! Finnst fólki virkilegt þægilegt að horfa á viðmælanda sinn sem er alveg stark butt naked?! Tja...mér finnst það ekki...sérstaklega ekki þegar það er ókunnugt fólk og getur bara talað um eitthvað svona petty chit chat...eins og "Þvílíkt veður í dag..." eða "Þessi landbúnaðarráðherra er nú alveg met..."

...ég vil þá vinsamlegast biðja fólk sem er að æfa með mér í Veggsport að hætta að tala við mig í búningsklefanum...ég hef ekki áhuga á því og ég er ekki lesbía! Takk fyrir mig og góða nótt!
Stay black - Salinto!
...Og ég datt svo hrikalega...

...í það um helgina...vá mamma mía...langt síðan maður hefur verið svona fuddlur...en það var ógeðslega gaman hjá okkur þannig að það var í góðu lagi...þambaði White Russian og gin í fanta eins og mér væri borgað fyrir það...

...verður lífið eitthvað betra?
Stay black - Salinto!
...Og loksins loksins loksins...

...náðum við Gunni og Eva að ljúka trílógíunni og fórum að sjá LOTR: The Return of the King í lúxussalnum í Smárabíói...

...aaaa hvað er gott að þetta sé búið...mmm...olli mér sko ekki vonbrigðum þessi mynd...alveg að gera sig...eina sem spillti kannski var að ég var heeeeavy þreytt og byrjaði á því að dotta aðeins...svo tók ég mér tak...skellti ostasósu í augun á mér og sló mig aðeins utan undir og þá vorum við að tala saman...

...og ég held ég sé ástafangin af Viggo Mortensen...mmmm...come to mama!
Stay black - Salinto!

23.1.04

...Og ?g tr?i ekki a? ?g hafi misst af...

...g??asj?nvarps??ttinum Joe Millionaire ? g?r...deeem...hven?r er hann endurs?ndur?!
Stay black - Salinto!
...Og ég er orðin soldið skotin í...

...strák sem er alltaf með mér í strætó...í 112 á morgnana...mmmm...hann er dædur...

...og sorglega er að ég varð heavy fúl í morgun þegar hann mætti ekki bössinn...það er svona þegar maður á ekkert líf...þá þarf lítið til að gleðja mann...og til að hryggja mann...

...og ég ætla ekki einu sinni að reyna að tala um leikinn í gær á friðsamlegum nótum...
Stay black - Salinto!

22.1.04

...Og ég fór á kaffihús í gær...

...með Hebba sem er með mér í leiklist...við nebblega sökkuðum soldið feitt í æfingu í Dramasmiðjunni á þriðjudaginn og því þurftum við að æfa okkur...

...mér fannst sniðugt að velja einhvern hlutlausan stað til að æfa sig á þannig að ég valdi Kaffi Vín...því ég hélt líka að það væru ekkert voðalega margir þar á miðvikudagskvöldi...en viti menn...jujú...það var alveg stappað...

...hmmm...og ég held að fólk hafi haldið að við værum spastísk, treg og nautheimsk...þar sem æfingin fólst í sífelldum endurtekningum...ég til dæmis byrjaði á að segja "Þú ert með brúnt hár" og þá svaraði Hebbi "Ég er með brúnt hár" og þetta endurtókum við aftur og aftur án þess að breyta um hrynjanda eða tón í röddinni...ójá...þvílík gleði...og þetta þarfnast þvílíkrar einbeitingar skal ég segja ykkur...sérstaklega í kringum fullt af ókunnugu fólki sem starir á mann...eeeen eftir nokkur skipti þar sem við sprungum úr hlátri og urðum blá og bleik af skömm þá tókst okkur að halda svona út (með því að skipta um setningar nokkrum sinnum) í heillangan tíma...magnaður andskoti þegar manni tekst það...myndast einhver svona freaky tenging á milli manns og þess aðila sem maður gerir þetta með og manni líður soldið vel á eftir...eiginlega bara mjög stoltur...

...gaman að essu...
Stay black - Salinto!
...Og voðalega finnst mér fjölmiðlabannið...

...sem Idol-krakkarnir eru í skrýtið...if you´re gonna do something...do it well...
Stay black - Salinto!

21.1.04

...Og ég byrjaði í Dramasmiðjunni....

...í gær...sem var svolítið öðruvísi þar sem aðalleiðbeinandinn okkar er bandarískur leikari...sem heitir Darren Foreman...hann er víst svona micro-celeb...hefur leikið í West Wing og einhverju svolleis...

...eeeen ég held að í gær hafi ég misst allt sjálfstraust...mér leið eins og ég kynni akkúrat ekki neitt...og allir væru betri en ég...og ég myndi aldrei verða leikkona...það var nú reyndar ekki Darren að kenna þar sem hann er mjööög skemmtilegur og fyndinn...

...maður bara verður svo hræddur þegar maður lærir eitthvað nýtt...en það er nú búið að renna af mér...nú get ég hugsað til baka til gærkvöldsins og hugsað hvað það verður gaman að læra eitthvað nýtt og ferskt...og verða miklu betri manneskja...og leikari fyrir vikið...

...svoooo þegar ég var búin að jafna mig...þá kem ég í vinnuna í dag og þar bíður mín email frá ECU leiklistarskólanum í Perth, Ástralíu...þar sem mér er tjáð að ég sé of sein fyrir árið 2004 og ég geti bara sótt um skólavist fyrir árið 2005...veeeei...æðislegt...en eitt ár í einhverju sem kemur mér akkúrat ekkert nær draumnum mínum...jibby!
Stay black - Salinto!
...Og það virðist sem...

...allir séu að hætta saman...eða byrja saman...eða eitthvað svolleis...

...mig langar soldið að vera með í þessu actioni...þó mig langi hvorki að byrja saman né hætta saman...reyndar fer eftir því hver það er...

...ef Sean Connery væri á boðstólnum þá myndi ég pottþétt vilja byrja saman...

...en aftur á móti ef Gunnar Smári eða Marilyn Manson stæðu til boða þá held ég að ég myndi kjósa að hætta saman...

...mig langar allavega í eitthvað drama-emotional-action...svona for a change ehehe...
Stay black - Salinto!

20.1.04

...Og í kvöld...

...byrja ég aftur í Dramasmiðjunni í leiklist....úújeeee beibí...

...hlakka soldið til...ætlaði ekki að fara en sló svo til þar sem ég þarf að æfa mig í enskum framburði og solleis...ef ske kynni að maður færi nú eitthvað út...

...eeeen önnur ástæða var líka fyrir skráningu minni...hún var sú að ég meika ekki alveg að hafa ekkert fyrir stafni annað en að vinna, æfa squash og skokka...þá bara verður maður latur og sefur og sefur og sefur...sem er ekkert sniðugt...

...reyndar er nú ekkert sniðugt fyrir djammara eins og mig að vera á svona námskeiði...þar sem tímarnir eru á laugardögum kl. 10-14...úúúú vá...það var stundum frekar erfitt að mæta man ég...eeeen maður lætur sig hafa það...

...ég minnist þessa tíma þegar ég er orðin heimsfræg....mouahahha...og hlæ og bendi á alla sem gerðu grín að mér...hahaha...*bend*
Stay black - Salinto!

19.1.04

...Og þá er karókíkeppni...

...DV og Fréttablaðsins á næsta leiti...nánar tiltekið 6. febrúar næstkomandi...

...oooog ég fór í Smáralind í gær og fann hinn fullkomna kjól í Top Shop til að vera í...því auðvitað tekur maður þátt...maður stendur við sitt og tekur eitthvað eldheitt og seiðandi með henni Kylie...reyndar ekki alveg komið á hreint hvaða lag en líkurnar benda á Locomotion sem var fyrsti hittarinn hennar þegar hún var ennþá bara saklaus lítil Girl Next Door Neighbours leikkona....

...eeeen aftur að kjólnum...ég gæfi hægri hendina fyrir hann...eeeen þar sem ég er að safna þá á ég ekki fyrir honum...þaaannig að ég er búin að setja mér það markmið að kaupa hann um mánaðamótin...eeeen málið er að það er bara einn eftir í minni stærð...buhuhu...eeeen hann er svoooo flottur...

...þvílík krísa...hvar er nú riddarinn á hvíta hestinum til að sækja mig í vinnunna...tölta upp í Smáralind og kaupa kjólinn?! Gefðu þig fram hvar sem þú ert!
Stay black - Salinto!

18.1.04

...Og nú er ég á leiðinni...

...á Línu Langsokk í Borgarleikhúsinu eftir vel heppnaðan squash tíma og góða edrú-helgi...

...oooog Íslendingar eiga sína fyrstu Idol stjörnu...

...oooog ég tók skynsamlega ákvörðun í gær í fyrsta sinn í langan tíma...

...oooog ég veit loksins hvað ég vill gera...

...lífið verður ekki mikið yndislegra...
Stay black - Salinto!