20.9.03

...Ooooog ég talaði nú barasta...

...spænsku í gær...ojájá...fyrsta sinn í næstum 3 mánuði þar sem maður talaði enga spænsku af viti í Madrid...meira svona "Una cerveza por favor" og "Espero que tu vengas a mis casa chico!" (ha ha ha...ég þýði þetta sko ekki...lúðar sem tala ekki spænsku!)...

...eeen já...þessi spænskutími er nú eiginlega Annie Siggie systur að þakka þar sem hún þekkir spænska stelpu hér á landi sem heitir María og kom mér í samband við hana...og ég sem sagt hringdi á miðvikudaginn og við mæltum okkur mót í gær og það var bara aldeilis fínt...hún talar líka svo flotta spænsku að maður skilur allt saman...og svo var náttlega bara krúttlegt þegar hún var að tala spænsku við litlu strákana sína...ha ha ha...en ég var hjá henni í alveg einn og hálfan tíma og það var soldið erfitt fyrst að koma sér í gang eeeen svo komst maður af stað og þá var erfitt að stoppa því spænskan er svo flott mál...

...eeen hún María er algert yndi...lánaði mér spænskar teiknimyndir og svona og ég ætla definately að hitta hana aftur...og kannski fær Fannar að fljóta með...aldrei að vita...
Stay black - Salinto!
...Oooog þetta blessaða...

...idol var víst í gær...ég var búnað bíða eftir því síðan ég kom heim...enda ekki furða þar sem þetta er þvílíkt auglýst og það hefur örugglega ekki farið fram hjá neinu mannsbarni hvað var að gerast á Stöð 2 kl. 20.30 í gær...

...og ég verð að segja að ég varð fyrir smávægilegum vonbrigðum...þátturinn var fínn eeeen ég bjóst við meiru...Simmi og Jói voru alveg ágætir nema þeir voru svo ógeðslega óeðlilegir og greinilega að lesa allt upp af blaði...sem er ekki töff....smá spontaneous inní etta strákar!

...svooo langaði mig nú að sjá fleiri áheyrnapróf og solleis...eeeen í staðinn fékk maður einhver laime viðtöl við dómnefndina...sem allir by the way þekkja...alltof langur tími tekinn í það og greinilega verið að teygja lopann eins og hægt er...og blóðmjólka íslenska sjónvarpsáheyrundar...ussss...

...to sum up : var ég fyrir vonbrigðum? Já
fannst mér þetta biðinnar virði? Nei
mun ég horfa áfram og þannig leyfa kolkrabbanum að taka mig í þurrt rassgatið? Ójá...því mér fannst nógu gaman að sjá spænska gaurinn syngja í gær fyrir allt seasonið...
Stay black - Salinto!
...Og ég gleymdi að segja frá því...

...að ég fór í fyrsta söngtímann minn um daginn...ojá já...nánar tiltekið síðasta fimmtudag og það var mjöööög fróðlegt...og já já...djöfull var nú erfitt að byrja...gellan byrjaði með því að kenna mér að anda rétt og það var svo sem ekkert mál...eeen svo kom að sönginum...og þetta var nú ekki flókið...bara syngja tónana á einum sérhljóða í góðum fílíng en svona fyrstu 5 mínúturnar þá kom ég ekki upp einu hljóði...sem var frekar skammarlegt...en ég komst yfir skammarþröskuldinn og náði að æla uppúr mér tónum og reyndi í leiðinni að lesa viðbrögð gellunnar...og þótt hún hafi sagt að þetta væri mjög fínt hjá mér þá held ég að ég hafi séð votta fyrir hræðslu og hugsunum eins og: "why do I bother" á sveimi eeeen ég lét það ekki trufla mig og hélt áfram að pynda hana...þangað til hún bað mig vinsamlegast um að hætta að syngja og lét mig burra varirnar í staðinn...sem var fínt...o já já...

...svo komst ég að því að ástæðan fyrir því að ég er líka í nótnalestri er út af því að við verðum látin syngja við skólaslitin...NEEEEeeeeiiiiiiiIIIII....
Stay black - Salinto!
...Og ég þoli ekki...

...þegar ég sé svona gullmyndarlega stráka með svona nothing-stelpum...af hverju er ég ekki þessi nothing-stelpa?! Svör sendist á biturleiki@biturleiki.is
Stay black - Salinto!

19.9.03

...Og á meðan ég man...

...þá kláraði ég að skanna inn allar myndir sem ég er búnað framkalla...kíkið á þetta hér...
Stay black - Salinto!
...Og áðan kíkti ég uppí...

...gömlu vinnurnar mínar...that´s right...vinnur í fleirtölu...maður er svo svaðalega duglegur...eeeen ég þurfti einmitt að fá vottorð um að ég hefði verið að vinna þarna svo ég fái kannski einhverjar atvinnuleysisbætur...byrjaði á Skýrr og færði mig svo yfir í Monsoon sem var svo sem fínt...fína var að fara í heimsókn á þessa tvo vinnustaði minnti mig bara á hvað mér fannst vinnan mín ógeðslega leiðinleg og hvað ég er fegin að ég þarf ekki lengur að vakna á morgnana og langa til að drepa mig...hó hó hó...en ég sakna samt fólksins sem ég var að vinna með...þá meira í Monsoon (no offence Skýrr fólk) en allar vinkonur mínar þar eru samt hættar sooo it´s all for the best...

...eeen ég er búnað fara svo oft niðrí Skýrr síðan ég kom heim að ég held að fólk fari að halda að ég sé eitthvað upsessed...held að ég geri heimsóknina í dag síðustu heimsóknina...takk fyrir mig...
Stay black - Salinto!

18.9.03

...Og ég fór niðrá atvinnumiðlun áðan að...

...skrá mig atvinnulausa...o jájá...ágætt að fá eitthvað borgað svona fyrst maður er ekki að gera rassgat...eeen vá mér leið bara eins og hyski...reyndar hitti ég Orminn minn haddna og hann er ekkert hyski en mér leið samt eins og hyski...litla virðingin sem ég hafði fór bara...sérstaklega þegar ég fór í röðina og kom auga á Þór Jósefs...gay as ever...sagan segir að hann hafi blikkað Orm í röðinni....ætli þar sé eitthvað nýtt romance á ferðinni...
Stay black - Salinto!
...Og núna er öll familían að pressa á mig...

...að fara á einhvern fjölskyldudag Skýrr sem verður haldinn á Þingvöllum á sunnudaginn...mikið er ég búnað hugsa um það og verð ég að segja að ég held ég mæti ekki...finnst það eitthvað hálf meðaumkunarvert þar sem ég er nú einu sinni hætt að vinna þarna...reyndar verður grillað og ef ég er heppin fæ ég kannski nammi og blöðru...hvað á maður að gera við svona tilboði...hvað finnst ykkur?
Stay black - Salinto!

17.9.03

...Og rétt í þessu var maður...

...að taka gott skannsession og kláraði Finnlandsmyndirnar...ojejeje...núna er bara London, Holland og Madrid eftir en fyrst verð ég samt að framkalla þær...úúújjjeeee...þetta er allt á leiðinni...en tjékkið á því sem komið er hér...
Stay black - Salinto!
...Og ég er búnað vera mega-dugleg...

...þessa síðustu daga maður...vúússsj...svona miðað við að maður þarf ekkert að gera þar sem maður er atvinnulaus...ég er í ræktinni tvisvar á dag...svo á mánudaginn skellti ég mér í fyrsta nótnalesturstímann í söngskólanum...sem var svo sem ágætt nema það að ég var alveg út á þekju...aldrei lesið nótur á ævi minni...en það var mjög gaman og þessi klukkutími leið ekkert smá hratt...tókum þarna do re mí fa so la tí do og allt það og sungum svo nokkur lög...voða stuð...

...eftir söngtímann skellti ég mér svo á breska bíódaga með henni Evu beib og það var aldeilis magnaður andskoti...við fórum að sjá 'The Magdalene sister' og deeeem það var ógeðsleg mynd...mjög góð en virkilega disturbing...og ennþá meira sjokkerandi þegar ég vissi..í enda myndarinnar...að hún væri sönn...ussss...mæli með henni ef þið viljið hafa eitthvað um að tala í kaffitímanum í vinnunni þegar það kemur alltaf þessi vandræðalega þögn þegar enginn veit hvað hann á að segja...

...svo er maður búnað vera í heimsóknum eftir heimsóknir...fór til Jóhönnu Uptown girl í Selásinn á sunnudagskvöldið og það var rosa fínt...hitti Lilju Jóns líka en hún er nýbúnað eignast barn þannig að ég fékk að sjá litlu prinsessuna sem er náttlega nett dúlla...svo fékk ég líka ammælisgjöf alveg upp úr þurru sem var ekki verra...en versta við kvöldið var nú samt að Jóhanna hafði alltof mikið fyrir mér og fitaði mig örugglega um góð 3 kíló...ojæja...verður að hafa það...

...svo í gærkvöldi skellti ég mér til Lovísu Fellaskólavinkonu sem er einmitt flutt í Árbæinn...reyndar flutti hún í mars en ég fylgist svoooo illa með...það var rosa fínt að hitta hana og litla krúttubarnið hennar sem er by far fallegasta barn sem ég hef nokkurn tímann séð...no offence til allra hinna barnanna...en vááá manni langar bara að éta þetta barn...en ég lét það nú vera þar sem ég vil nú halda vinskapnum við Lovísu blessunina...

...eeeen já...reyndar er engin heimsókn á döfinni í kvöld en kannski reyni ég að plata einhvern góðan vin til að lána mér dvd mynd til að horfa á...aldrei að vita...svo er það bara fyrsti söngtíminn á morgun og svo á föstudaginn fer ég í smá spænsku talæfingu...allt að gerast hjá atvinnuleysingjanum...
Stay black - Salinto!
...Og djöfull fannst mér ömurlegt...

...bæjarlíf um helgina...djísus...byrjaði á Pravda í kveðjupartíi hjá einhverjum strák sem ég þekki ekki neitt...fór bara til að hitta Hjördísi því ég ætlaði aðeins að hanga með henni þar sem við erum nú báðar edrú og sætar...reyndar vorum við alveg 3 edrú...en jæja...hvað um það...Pravda er nú meiri sorastaðurinn og ekkert fyrir mig...bara nákvæmlega eins og gamli Astro bara með flottari innréttingar og ljótari barþjóna sem eru með mullet...usss....þannig að við fórum á hálfgert pöbbarölt og röltum á Hverfisbarinn, Vegamót, Kaffibarinn og enduðum á Sólon...og það var sko ekki vottur af stemmingu á neinum af þessum stöðum...jiddúddamía...á Hverfisbarnum var bara eitthvað sveitt-tjokko-að hommast er gaman-lið og 17 ára stelpur...á Vegamótum var einhver sveitt-ég er gamall kall og vill fá mér hóru í kvöld því konan er ekki heima-stemming...and don´t even get me started on the Kaffibar...það er nú meira pakkið sem er þar...fussumsvei...meira svona sveitt-ég borða ekkert, ég bara reyki og drekk kaffi-stemming...og svo er það Sólon...sem er svona svipuð stemming og á Hverfisbarnum...reyndar kom mér það ekkert á óvart þar sem ég hef aldrei fílað Sólon...

...eeen það er greinilega allt orðið frekar þreytt hér í Reykjavíkinni...ég var meira að segja í góðum félagsskap og samt skemmti ég mér ekki...var bara fegin að hafa ekki eytt áfengi í þetta kvöld og hana nú! Ég held ég fari aftur til Madridar að drekka 50 evrucenta hvítvín...
Stay black - Salinto!
...Og af hverju ætli sé...

...brjóstsykurslykt af menguninni í strætó...
Stay black - Salinto!

16.9.03

...Og hver segir svo að atvinnuleysingjar...

...séu aumingjar...usss...það er nú bara einhver urban myth...ég fussa nú bara á svolleis er ég segi frá gærdeginum okkar Siggu Völu...við báðar atvinnuleysingjar klifum sko bara Esjuna...og það fyrir hádegi...geri aðrir betur... o jájá...og losnuðum við allar skrámur og allt...usss...djöfulsins tussuformi er maður í maður...við næstum því hlupum upp á topp...þurftum bara að hægja á okkur fyrir Hnoðra...hann var eitthvað voða seinna greyið...

...eeeen annars er maður bara að chilla í strætó þessa dagana...fer tvisvar í Veggsport á dag eins og áður fyrr og svo er maður bara svona að krúsa um bæinn í 40 milljón króna volvo...ekki slæmt það...ég hélt nebblega alltaf að maður hitti bara svona fólk sem maður vill ekki hitta í strætó en það er sko aldeilis ekki rétt...bara í dag hitti ég bæði Gunnellu og Ester úr FB og það er sko alltaf gaman að hitta þær...þannig að ég fíla strætó...og strætó fílar mig...
Stay black - Salinto!
...Og svartsýnin fékk fljótt...

...að fjúka...já...út um gluggan...bless bless...koss og knús...og mig sem langaði svo að vera vælandi þunglyndissjúklingur með átröskun (7-9-13) eeen allt kom fyrir ekki...hin glaðværa Lilla vann hina svartsýnu Lillu í mjöööög jöfnun bardaga...damn u happy Lilla...may you burn in hell!
Stay black - Salinto!

14.9.03

...Og ég held ég drepi mig bara núna...

...þar sem ég var að missa vinnuna áður en ég byrjaði í henni...klapp klapp fyrir mér...og góða er að áður en ég vissi það þá keypti ég strætókort fyrir 10.500 krónur svo ég kæmist nú í vinnuna...veeeeiii...lífið bara batnar og batnar...ekki búast við bloggi...
Stay black - Salinto!

12.9.03

...Og ég gerði þau mistök...

...að fara alveg í spreng uppí Hagkaup í Skeifunni í gær og þurfti auðvitað að smella mér strax á klósstið þegar ég kom inn...sem er svo sem ekki frá sögu færandi...snyrtilegt klósett og allt gott um það að segja...en það sem sló mig eins og blaut harðfisktuska var að það er spegill beint fyrir framan klósstið sem er stærri og breiðari en ég og því getur maður horft á sjálfan sig fara á klósstið...hve sick er það?!
Stay black - Salinto!
...Og nú má fólk sko aldeilis fara að fagna...

...því Lillan er komin með vinnu...jááá...mikið rétt...best að varpa því fram á alheimsnetið...það var hringt í mig frá Landspítalanum Háskólasjúkrahúsí áðan og ég á að mæta á mánudaginn bright and early...kom mér reyndar smá á óvart þar sem var verið að segja upp 400 manns...en það er svona þegar maður mætir með sinn þokka og skopskyn...þá getur bara enginn staðist mann...enn og aftur segi ég að það er erfitt að vera ég...

...eeeen það verður nú ekkert smá erfitt að fara að vakna svona snemma aftur...mér er búið að finnast það nógu erfitt síðustu 4 daga að vakna kl. 9.30 og fara með Siggu Völu í Veggsport sveimérþá...eeen gaman verður að fara að þéna einhverja peninga aftur og gera eitthvað uppbyggilegt eins og að bjarga mannslífum...ég meina hver veit hvað spítalinn setur í hendur stúlku sem geislar svona af lífsgleði og sjarma...
Stay black - Salinto!
...Og ég fékk svo sérdælis...

...skrýtin póst um daginn frá honum Óla Bassa að ég varð bara að blogga hann...já nei...ekki Nurse Óla...heldur Óla Bassa....

...Hér er mikilvæg aðvörun til þeirra sem neyta brauðs og þeirra sem
umgangast þurfa brauðneytendur:
1. Meira en 98 prósent dæmdra glæpamanna neyta brauðs.
2. Helmingur barna sem alast upp á heimili þar sem mikil brauðneysla
fer fram, lenda fyrir neðan meðaltal í samræmdum prófum.
3. Fyrr á öldum var brauð bakað á heimilum. Þá var meðalaldur innan við
50 ár, margar konur létust vegna barnsburðar og sjúkdómar eins og
taugaveiki, holdsveiki og flensa lögðust þungt á þjóðina.
4. Yfir 90% alvarlegra glæpa eru framdir innan sólarhrings frá
brauðáti.
5. Brauð er bakað úr brauðdeigi. Það er margsannað að það er auðveld að
kæfa mús í 400 gr. af deigi. Flestir Íslendingar borða mun meira brauð
í hverjum mánuði.
6. Nokkrir frumstæðir þjóðflokkar í S-Ameríku og Borneo sem neyta ekki
brauðs þjást ekki heldur af krabbameini, Alzheimer, Parkinsonsveiki né
geðveiki.
7. Fyrir marga er bauð bara afsökun í annað hættulegt fæði s.s. smjör,
sultu, salöt og jafnvel kjötálegg.
8. Það er sannað að brauð tekur í sig vatn. Þar sem mannslíkaminn er
minnst 90% vatn leiðir brauðneysla til þess að brauð verður svo ráðandi í
líkamanum að fólk hreinlega stendur á brauðfótum.
9. Nýfædd börn geta kafnað af því að borða brauð.
10. Brauð er bakað við 200°C. Maðurinn lifir innan við eina mínútu við
slíkt hitastig.
11. Flestar brauðætur eiga erfitt með að gera greinamun á hörðum
tölulegum staðreyndum og ómerkilegu tölfræðilegu bulli.
Heyrst hefur að Heilbrigðisnefnd Reykjavík undir forystu Hrannars
Arnarsonar vilji bjarga Reykvíkingum og því lagt til eftirfarandi:
1. Bannað verður að selja börnum brauð.
2. Auglýsingaherferð þar sem slagorðið verður: "Stattu ekki á
brauðfótum."
3. Eftirlitsgjald, kr. 200 sem leggst á hvert brauð selt í Reykjavík.
4. Algjört auglýsingabann á allt brauð.

Stay black - Salinto!

11.9.03

...Og rétt í þessu...

...var ég að bjóða mínum elskulegu foreldrum til kvöldverðar...ótrúlegt að þau hafi hætt sér í hann...og ótrúlegt að mamma hafi actually beðið mig um að elda því ég hef aldrei verið fræg fyrir að elda annað en pakkanúðlur og örbylgjupopp...að baka hefur alltaf verið my thing...eeeen núna held ég að fólk geti farið að velja hvort það vilji kökur eða kvöldverð í ammælisgjöf því þetta heppnaðist svona líka vel hjá mér sveimérþá...reyndar finnur mamma ekkert bragð þannig að við gefum okkur það að henni hafi líkað þetta...en pabbi...vá vá vá...hann borðaði alveg fyrir þrjá sko...skóflaði þessu í sig og kláraði gómsæta hakkréttinn sem ég bjó til og hvítlauksbrauðið...sveimérþá...ég kem sífellt á óvart...

...annars gerðist ég svo lærdómsfús áðan að ég horfði á spænska mynd með dönskum texta...og ég er ekki frá því að maður hafi bara lært heilmikið í báðum tungumálum...ég skyldi allavega allt...oooo það er svo erfitt að vera svona frábær...
Stay black - Salinto!
...Og núna er orðið svona eilítið...

...leiðinlegt að vera atvinnulaus og er það stefnan að verða komin í vinnu á mánudaginn...gott takmark finnst mér...maður er víst búnað vera að sækja eitthvað um en fær ekkert svar...ætli maður endi ekki á því að steikja hamborgara á Staldrinu...ekki beint það sem ég ætlaði mér að gera í lífinu en kannski ágætis tilbreyting að lykta alltaf eins og 2 daga gömul franska með tómatsósu og kryddi...

...sérstaklega er þó leiðinlegt að hafa ekkert að gera þegar er svona vont veður...reyndar hef ég náttlega fullt að gera því ég er orðin svo dugleg að finna uppá einhverjum sniðugum verkefnum...er til dæmis búnað taka til á skrifborðinu mínu og koma öllum geisladiskum og vídjóspólum á góðan stað...svo tók ég aðeins til í skápnum mínum en ég er ekki nærri því hálfnuð því ég er safnari dauðans...usss...hlutirnir sem að ég tými ekki að henda...

...svooo er maður orðinn Veggsport crazy náttlega...tvisvar á dag kemur skapinu í lag eins og einhver sagði einhvern tímann...oooog búnað fara núna tvo síðustu daga í hádegismat einhvers staðar útí bæ þannig að maður er orðinn nettur snillingur í að drepa tímann...en fínt væri nú að fara að fá smá festu og stöðuleika (er það ekki nákvæmlega það sama?!)...mér finnst það nú samt eitthvað merki um að maður sé kominn á grafarbakkann en það verður þá víst bara að hafa það...

...jááá...með hádegismatinn...þá fór ég í hádeginu í gær og hitti gamlan vinnufélaga með Siggu Völu...við mæltum okkur mót við hana Kristínu...eða reyndar mælti Sigga Vala sér mót við hana og mér var boðið með...lucky me sko....við skelltum okkur á Vegamót...mmm...ég hef sko aldrei borðað þar áður og deeeeeem það var gott...í fyrsta lagi var allt á matseðlinum ógeðslega girnilegt...meira að segja fiskurinn sko...en ég fékk mér alveg jömmí pasta og ætla pottþétt að fara þangað aftur að borða...þ.e.a.s. ef maður fer að þéna einhverja peninga á næstunni...eeen allavega þá var ég náttlega ekkert búnað hitta hana Stínu Fínu síðan maður hætti í Skýrr þannig að það var fínt að catcha smá upp með henni...

...eeeen í dag var stefnan tekin á Grænan Kost með mínum iðilfögru systrum og þar var maturinn sko ekki verri...og systur mínar svona þrælheppnar að ég er bara ennþá með keddlingabílinn hennar múttu því hún er svo veik þannig að ég gat sótt og skilað þeim aftur í sína vinnu á mettíma...oooo...hver vill ekki eiga systur/vin/kærustu eins og mig...
Stay black - Salinto!

10.9.03

...Og við Sigga Vala...

...erum búnar að vera svo ógeðslega duglegar síðustu 2 daga...úfff...það er leitin að öðru eins...búnar að vakna eldsnemma og mæta í Veggsport á hlaupabrettið...já...fegurðin kemur ekki að sjálfu sér...maður verður víst að vinna fyrir henni...eeeeen ég gaf Siggu Völu vinakort í Veggsport þannig að hún getur komið með mér alla þessa viku á morgnana...úújeeee...

...eeen maður er kannski aðeins búnað taka of vel á því þar sem við Keikó förum svo alltaf líka í squash þegar blaðamaðurinn er búní vinnunni (verð nú bara að monta mig af henni systur minni...besti blaðamaður á landinu...og þó víðar væri leitað!!) og svo er ég búnað asnast til að lyfta tvisvar í þessari viku...oooog harðsperrurnar létu sko ekki bíða eftir sér...meeen ó meeeen...manni líður bara eins og gamalmenni þegar maður fer á fætur...vont en það venst...

...eeeen Elín Ösp snillingur með meiru hringdi í mig í gær en hún var einmitt að koma heim frá Frakklandi fyrir mánuði síðan en þar var hún aupair í hálft ár...og djöfull var nú gaman að heyra í henni...spjallaði alveg heillengi við hana og gaman að tala við einhvern sem er svona nýkominn heim og miðla reynslu og skemmtilegheitum...gaman að því...maður verður svo að vera duglegri að vera í bandi við hana því hún er svo skemmtileg ;) (eins gott að hún sé að lesa hó hó hó)

...eeeen annað er það að frétta sem ég er ekki nógu ánægð með að hún Freyja stórvinkona mín (nei hún er ekki feit) er flutt í Kópavoginn...ég bara skil ekki hvað blessuð stúlkan er að pæla...að flytja úr 101 í óskiljanlegasta hverfi á stór Reykjavíkursvæðinu...maður þarf hreinlega að hugsa sig tvisvar um hvort maður vilji peppa upp á þennan vinskap eitthvað meira...eeen maður verður víst bara að taka vinum sínum eins og þeir eru þó þeir geri mistök...mér reyndar fannst Kópavogurinn heillandi fyrir nokkrum árum en eftir að ég reyndi að rata þar í einhvern skapaðan hlut þá skipti ég snarlega um skoðun...ég skil eiginlega ekki hver skipulagði þetta en mér langar svo sannarlega að hitta hann og henda í hann skyrdollu því þetta er eitt það mest fokked upp gatnakerfi sem ég hef nokkurn tímann lent í...eeeen ég verð víst að láta mig hafa það á morgun og fara í götukortin í símaskránni og reyna að krafsa mig heim til hennar og vona að ég týnist ekki einhvers staðar í tungunum, lindunum eða hvömmunum...
Stay black - Salinto!

9.9.03

...Og ég bara gleymdi að minnast á það...

...að núna er ég búnað skanna inn fleiri myndir frá Evrópu ferðinni og þær er hægt að finna ef þið getið klikkað akkúrat hér ...ég sé samt ekkert fram á endann á þessu myndaskanni þannig að þið verðið bara að vera þolinmóð elskurnar mínar...
Stay black - Salinto!
...Og ég gerði vísvitandi þau mistök áðan...

..að ekki bara ráfa inná endursýningu á Djúpu lauginni heldur líka horfa á endursýninguna á Djúpu lauginni...ástæðan var nú að vinkona hennar Evu var að spyrja í þessu um daginn og Eva var nánast stanslaust í mynd þannig að sem vinkona hennar og frábæra manneskjan sem ég er þá var ég eiginlega neydd til að horfa á blessuðu endursýninguna og get ég nú ekki sagt að ég hafi haft gaman af...

...hvað er málið með þessa nýju þáttarstjórnendur?! Er Skjár 1 alveg að tapa sér eða hvað?! Getur bara hvaða fífl sem er rölt inn af götunni og stjórnað sjónvarpsþætti nú til dags?! Ég fussa nú bara og sveija á svona fíflaskap...fuss og svei...þau voru alveg ekki að gera sig...nema dökkhærða stelpan sem tók öll viðtölin við "fræga fólkið"...hún var fín...en hvað er með strákinn? Er hann eitthvað þroskaheftur eða hvað? Mætti nú barasta halda að hann væri nýútskrifaður úr Öskjuhlíðaskóla...mér finnst þetta þvílík synd þar sem mér fannst Hálfdán og Kolla standa sig geðveikt vel...og þátturinn var barasta orðinn nokkuð skemmtilegur...álíka skemmtilegur og þegar fyrst var byrjað með hann og gellurnar klúðruðu öllu sem hægt var að klúðra...en Kolla og Hálfdán klúðruðu engu og voru bara skemmtileg...en þetta pakk sem er núna...ójisús...held þau myndu sæma sér betur einhvers staðar uppá fjalli að bíta gras...
Stay black - Salinto!
...Og á þessum dýrðardegi...

...á sjálf Lillan ammæli...veeeeeiiii...búnað fá fullt fullt af ammæliskveðjum í dag...en ekki frá sjálfum foreldrum mínum....ussss...ojæjaæ...eins gott að þau gefi mér bíl eða hús eða eitthvað í kvöld...

...eeeen ég var ekki búnað minnast á það hvað mamma mín er mikill snillingur...það er nebblega andskotans geitungafaraldur í gangi hér og við börðumst hatrammri baráttu við þessi kvikindi um helgina með hárlakksbrúsa í báðum höndum...og náðum að drepa ófáa skal ég segja ykkur...

...eeeen svo í gær kem ég út á svalir og þar er mamma að sleikja sólina...eða það held ég...eeen nei...þessi góðhjartaða og friðsæla kona situr þá í mestu makindum og búnað planta hálfri mixflösku á gasgrillið og er að horfa á eftir geitungunum er þeir stinga sér hver á fætur öðrum oní mixflöskuna og deyja þar sykursælum dauða...þetta kallar maður móður sína...oooo ég er svo stolt...
Stay black - Salinto!

8.9.03

...Og núna er Lillan komin aftur...

...í sama farið...úúfff það tók ekki lengri tíma en þetta á klakanum...og þá auðvitað er ég að meina það far sem lætur mig gefa út voðalegar yfirlýsingar um edrúhelgar og hvaðeina og svo náttlega næsta sem maður gerir er að detta í það...

...ooo já...ég fór á fyddlerí á laugardaginn...og ég sé ekkert eftir því...tja...nema við tökum inní málið þegar ég vaknaði á sunnudaginn og hugsaði "ég ætla aldrei að detta í það aftur" og meinti það virkilega í þetta skiptið....æjjjj...stútaði hálfum lítra af Tía María og kippu af bjór...ekki falleg sjón það...

...eeen það var rosa stuð á laugardaginn...byrjaði í partíi hjá Svanhvíti kærustunni hans Nurse Óla...eða Mr. Runaway eins og hann er betur þekktur...hún var einmitt að halda uppá ammælið sitt blessunin...við anti-sósjal fólkið plöntuðum okkur hjá nachos skálinni og byrjuðum 2gja tíma gátu session...ójá...það var hverri gátunni á fætur annarri slátrað...og okkur fannst það heavy gaman..ótrúlegt en satt....

...svo ákvað snillingurinn ég að taka leigubíl úr Garðabæ í partí í Grafarvogi...ójá...ég er svo vel gefin.."Hey ég á alveg 2000 kaddl...best að eyða honum öllum í leigubíl!!"...en ég sá samt ekkert eftir því því það partí var snilld...það var partí hjá Vigni vini hennar Erlu systur minnar og voru þarna samankomnir burtfarnir FB-ingar...árgangur ´76 nánar tiltekið og var maður litla lambið á svæðinu...hitti þar mæta menn eins og Helga sem útskrifaðist með mér og spjallaði heillengi við hann...svo voru náttlega allar vinkonur systur minnar þarna og eitthvað lið úr FB sem stríddi mér alltaf þegar ég var lítil stelpa og það kom í heimsókn til systu að drekka bjór...gaman að því...lifandi músssííkk á staðnum og læti og ég held að Bóas (fyrrverandi) ræðuliðsþjálfari FB hafi staðið fyrir henni...sel það ekki dýrara en ég keypti það...

...svo fórum við nokkur saman niðrá Hverfis en þar var röð dauðans og allt í einu stóð Lillan ein eftir niðrí bæ...með engan pening en Berglind snillingur reddaði því...hitti hana á Dubliners og hún skutlaði mér heim þetta yndi...ég skulda henni einn....

...eeen þynnkan hélt ég að ætlaði að drepa mig í gær þegar ég þurfti að vakna fyrir allar aldir að skreyta kökur í ammælisboðið mitt...en boðið heppnaðist vel og fullt af góðu fólki kom...og svo náttlega eru kökurnar mínar alger snilld...þó ég segi sjálf frá...eeeeen ekki er sterkur leikur að þeyta krem í þynnku...

...eeeen í dag er það tónfræðitími klukkan fimm og svo fyrsti skvasstíminn í hálft ár...úúújeeeeee beibí beibí...
Stay black - Salinto!