15.11.02

Jæja...þá er Liljan farin í sumarbústað með familíunni...ég kem aftur eftir helgi þannig að ekki örvænta...I´ll be back...engum tölvupósti verður svarað fyrr en í fyrsta lagi á sunnudagskveldi og ef þið viljið ná í mig þá vitið þið símann...og þið sem vitið hann ekki...well...then you´re not my business ;)
Stay black og eigið frábærustu helgi í heimi ;)
Fyndið hvað það þarf lítið til að gleðja fólk þegar það vinnur í svona þurri vinnu...það kom t.d. bréf frá gaur hérna sem er algert krútt...og allir hlógu því það var voðalega sniðugt og það er enn verið að tala um það....alveg heilum 6 tímum seinna...mér finnst þetta sætt og mér finnst alltaf gaman að fólki sem er nægjusamt og sem þarf lítið til að láta sér líða vel...kannski útaf því að ég er soldið þannig ....það þarf nú ekki mikið til að gleðja mig...reyndar gladdi þessi tölvupóstur mig ekkert sérstaklega því ég þekki ekki manninn og fattaði ekki djókið en tja...ég hlæ þá bara með og segi engum frá..
Stay black
Jæja...þá er helgi komin aftur...jeyj...um helgina fer ég útúr bænum með Yrsufells-genginu og það er liður 2 í áætluninni „Minnka drykkjuna og spara pening"...sem var fyrst „Hætta að drekka og spara pening" en ég efast um að ég treysti mér í það alveg strax...samt...þetta verður þá önnur edrú-helgin mín...ég er nú bara nokkuð stolt...spoken like a true bum....en allavega...mikið er ég með planað að gera um helgina...priority 1 er að föndra jólakort en ég reyni alltaf að gera það um jólin því mér finnst það persónulegra ;)...priority 2 er að hekla smá í teppi sem ég byrjaði á fyrir miljón og einu ári eða þegar ég var á handmenntabraut...þegar ég skipti um braut þá svona datt öll handavinna í gleymsku...og priority 3 er að lesa eitthvað af þeim mörgu bókum sem ég fékk í jólagjöf í fyrra!! For crying out loud...ef þið viljið gefa mér jólagjafir í ár þá ekki gefa mér bækur...priority 1 um þessi jól er að klára bækurnar síðan í fyrra...don´t get me wrong...mér finnst ógeðslega gaman að fá bækur...ég er bara komin soldið eftirá ;)
Stay black

14.11.02

Fyndið að nokkrum dögum eftir aðdáandaumræðuna við Gumma Jóh þá eignast ég minn eigin leynilega aðdáanda....íhíhí...boostar soldið egóið það er rétt hjá þér Gummi...

jæja svona til að komast í einkamála stílinn þá ætla ég bara að ætla
þessu út úr mér , mig langar að kynnast þér og það væri bara gaman að
fá að draga þig út á rúntinn eða eitthvað svona til að tjatta við þig
,,,ok ég veit að þú ert pínu þrjósk þannig að þú átt eftir að hugsa no
fucking way en ég held að þú gætir haft gaman af mér , ég er allavega
að hafa gaman af þér ....hugsaðu út í það og sendu mér svar .

Úfff..gleymdi að minnast á það að ég fór á makkann í hádeginu í gær með sumum sem finnst hann góður....og ég skil ekki hvernig fólki getur fundist þetta gott...það er ekkert fokkíng bragð af þessu!!! Svo var mér allri lokið þegar ég vildi vanillusjeik og það eina sem var til var súkkulaði...ullabjakk...hér eftir passa ég það sem ég segi þegar ég bið fólk um að koma í mat með þér...það eitt er víst...
Stay black
Jæja...ég kíkti á í Skóm drekans í gær með Jóhönnu...kíkti eiginlega bara á þessa mynd því hún er búnað fá svoooo mikla umfjöllun...því mér finnst ekkert rosalega gaman í bíó...en tja...þessi mynd...hvað get ég sagt...ég get eiginlega ekki sagt neitt...það eru góðir punktar en mér finnst of margir vondir punktar og í heildina þá finnst mér þetta ekki mjög góð heimildarmynd....þetta átti að vera heimildarmynd um þessa punktur is keppni en er eiginlega bara um þessa Hrönn og hvað hún er mikil sell out...og hræsnari...þetta fjallar ekkert um keppnina...maður fær ekkkert að sjá neitt mikið frá æfingum og svona (kannski útaf því að Hrönn mætti svo lítið) og því er ekkert þarna að sjá...ekkert djúsí shit sem mar var að vona eftir...men oh men...og mér finnst þessi Sveinsbörn ættu aðeins að fara að endurskoða sín starfsáform ef þau ætla að halda áfram í þessum bransa...þ.e.a.s. að gera heimildarmyndir...því hún ætlaði að fara að taka þátt í þessari keppni til að gera mynd um hana...svo mætir hún ekki á æfingar! Og hún gerir ekkert sem hún á að gera heldur bara reykir og drekkur og lætur eins og fífl...þótt hún viti vel að það er sumt sem þú mátt ekki gera meðan þú átt að vera að æfa fyrir keppnina...þetta eru lélegustu vinnubrögð ever og ef þau græða á þessari mynd þá er mér allri lokið...nógu slæmt er að þau hafi fengið Edduna...en sko...samt soldið fyndið að fylgjast með hvernig hún breytist í myndinni...fyrst er henni alveg sama um allt svona kjaftæði og þolir ekki fólkið sem er með þessa keppni og keppenduna en svo í endann vill hún ekkert frekar en að vera ein af þeim....fussumsvei...vantaði allt action í þessa mynd...og hún var alltof alltof mikið drama á vissum tímapunktum...en tja...hápunktur myndarinnar var án efa þegar hún fór í viðtal við Tvíhöfða...þeir björguðu þessari mynd því þeir eru snilld....en...áhugavert að fara á þessa mynd en þetta er tvímælalaust vídjómynd...
Stay black

13.11.02

Íííí...ég vann í getspekiklukkutímanum hjá Sigurjóni og hann samdi lag fyrir mig og allt...weeee...I´m sooo proud...snilld snilld snilld *hneigj* *hneigj*
Stay black

Who are you most likely to fuck

brought to you by Quizilla

Úfff....soooo true...alltaf verið veik fyrir svona bad boy hljómsveitarstrákum....meeeen ohhh meeeen
Stay black
Jæja....ég auglýsi hér með eftir græjum því mínar eru eitthvað að eipa á öllum diskunum mínum....þannig að ef þið eigið græjur sem þið viljið losna við eða selja endilega hafið samband við mig...gestabókin er hérna við hliðina á og svo er ég líka mjög mikið á msn....please keep me in mind...þar sem tónlist er eitt af því mikilvægasta í lífi mínu þá er mjög erfitt fyrir mig að eiga svona tussugræjur...have a heart ;)
En það gerðist soldið fyndið um helgina síðustu...djókurinn byrjar eiginlega þar seinustu helgi þar sem ég var í bandaríkjaskónum mínum og sýndi könunum það á Hverfis og þeim fannst það cool og ég var voða mikið að tala við einn þeirra sem var kominn með hendina skuggalega langt niðrá rassinn á mér...fussum svei...og þar sem ég fílaði það ekki þá stakk ég af...en svo vorum við Nurse Óli að rölta í bænum eftir djammið á laugardag og þá var ég aftur í sömu skóm...var ekkert búnað monta mig samt af þeim þó ég hefði mætt svona þúsund könum...eeeen...svo sjáum við 2 labba á móti okkur og ég stóðst ekki mátið og stoppaði þá og sýndi þeim skóna...hey...þá var þetta mister touch my ass af Hverfisbarnum síðan síðustu helgi og vinur hans sem var eitthvað skotinn í mér...djöfulsins snilld...what are the odds...þeir héldu náttlega að hjúkkan væri kærastinn minn en við leiðréttum þann misskilning...og þeir alveg YOU ROCK! og læti þannig að þeim finnst ég eitthvað svaka cool og vildu hitti mig á "The Bistro" (Hverfis) aftur næstu helgi...tja...þar sem ég fer útúr bænum næstu helgi þá er það ekki hægt...æj æj *kaldhæðn*...hef engan áhuga á að vera eitthvað fling hjá einhverjum giftum kana...na a...get þá alveg eins bara skundað mér upp á Völl takk fyrir! Og hana nú! Ég er ekki alveg svona desperate alveg strax...en þegar þið sjáið mig væflast um höfnina...flakkandi á milli skipa um hábjartan dag..þá getið þið farið að hafa áhyggjur...
Stay black

12.11.02

Úff...ég er að fíla alla nýju diskana mína í ræmur...hef samt ekki komist yfir alla en svona næstum því...sumir eru líka nýir gamlir ef svo má segja því systa hefur leyft mér að hlusta á þá...en hérna er það sem ég er búnað hlusta á...

Riot Act - Pearl Jam .... alger snilli eins og við er að búast hjá snillingum...rólegur og góður og soldið sætur even....fimm stjörnur sko

Moulin Rouge - Úr myndinni .... fá orð eru til að lýsa þessari hreinu snilld...mmm....Ewan McGregor lætur mig skjálfa á beinunum og fyrir það fær þessi diskur fjóra og hálfa stjörnu

A new day at midnight - David Gray .... very good Daniel san....fjórar og hálf stjarna

Tenacious D - Tenacious D .... fyndnir litlir kallar...góð skemmtun og Tribute er náttlega snilldarlag... fjórar stjörnur

Murder Ballads - Nick Cave and the Bad Seeds .... hrein snilld...fullt hús...fimm stjörnur

No more shall we part - Nick Cave and the Bad Seeds ... mmm...snilld...fimm stars....

Og þá er plötugagnrýni Lilju búin...framhald þegar rest af diskum er búin í hlustun ;)
Stay black
Á ég að fá mér svona hár...bara dökkt það er að segja...
Loksins loksins loksins komu þessar blessuðu Friends spólur í hús eftir mikið erfiði....þessir tollstjórar eru aldeilis erfiðir men oh men...en þetta eru réttu spólurnar so I´m happy...talandi um happy...Popppunktur á laugardag...hve mikil snilld var hann?!?! Ham rokka feitast..hélt reyndar fyrst að þeir ætluðu að leyfa Ný Dönsk að taka sig í kakóið en síðan létu þeir ljós sitt skína og rústuðu þessu glæsilega...Sigurjón er alger hreinasti snillingur finnst mér...taktarnir í honum eru alveg milljón...hvernig honum er alveg sama um allt og alla og hann er náttlega bestur sko...ehehe..og fyndið með Óttar Proppé...eins og hann hafi staðnað í þroska um þrettán ára aldurinn..greyið maðurinn...eða ætti maður að kalla hann dverginn...dadara....og Ný Dönsk eru hver öðrum ljótari...nema kannski Jón Ólafs...sem er eini sem getur eitthvað og er soldið krútt...samt hefur mér alltaf fundist spékoppar eitthvað krípí en hann ber þá vel....
Og talandi um spékoppa...ég er ónýt á daginn ef ég fer ekki í sturtu á morgnana (fjandi góð tenging þetta íha!) og nú er svo statt í Yrsufellinu að mér er það ómögulegt að fara í sturtu því peran er sprungin og ef ég vill fara í sturtu þá þarf ég að hafa opið...og þar sem ég er frekar prívat persóna þá bara no way Jose!!! Aldrei í lífinu hef ég opið í sturtu meðan einhver er heima...ullabjakk...þannig að ég læt duga að þvo á mér hárið og fara bara í eina sturtu á dag....veggsportsturtuna....
Stay black

11.11.02

Jaháhá...aðdáendur streyma inn á msn-listann minn og vilja ekki láta nafns síns getið sem er svo sem gott og blessað...hef ég samt á tilfinningunni að einhver sé að fokka í mér...en það kemur í ljós og verður að bíða betri tíma...náttúrulega hrós ef svo er ekki en jæja...
Stay black

Which Batman Villian are You?

brought to you by Quizilla
Tja...Gnarrenbúrg var á dagskrá á föstudag og þar sem ég dýrka Jón Gnarr þá auðvitað horfði ég á þennan þátt...og þó að það sé bitursætt að viðurkenna það þá bjóst ég við miklu miklu meira...buhuhu...samt er snilld að Barði sé með honum...Barði er snillingur dauðans...hann er svo fyndinn að það hálfa væri nóg!!! Þannig að mér fannst hann svona frekar halda þættinum uppi þó að þetta sé þátturinn hans Nonna...vona bara að þetta hafi verið smá byrjandaörðuleikar og næsti þáttur verði betri...annars skipti ég nafninu mínu í Lilja Barða frekar en Lilja Gnarr...og hananú!!!
Stay black
Jæja...helgin var fín en ég kem að því seinna...en meeen ohh meeen...skrifaði milljón og einn disk hjá orminum á laugardag og á ennþá eftir að skrifa fullt en málið er að helvítis tussugræjurnar mínar spila þá ekki!! Spiluðu alveg Sigur Rós og Jimmy Eats World en ekki Pearl Jam, David Gray, Nick Cave, The birthday party, Britney, Shakiru, Moulin Rouge, Bush, The Cure, XXX Rottweiler, KoRn, No Doubt og Tenacious D!!! A buhuhuhuhuhu
Stay black

8.11.02

Úff...well...it´s friday night and I ain´t got nobody...er nýbúin að borða eina eldheita dominos pizzu...EIN...því ormurinn sveik mig...þóttist vera veikur og eitthvað shit...yeah riiiight...like I believe that...uss uss...enn og aftur sannast það að það er vond lykt af mér..mig langar eitthvað útá lífið svo ég geti nú leyft fleirum að finna þennan ilm en o jæja...það verður víst ekkert djamm í kveld...eins gott kannski því það er eitthvað land og synir drull á Hverfisbarnum...what is the world coming to?!?! En jæja...ormurinn sleppur ekki við lyktina á morgunn...mouahahahha....
Stay black
Tja...enn önnur helgi á klakanum að líta dagsins ljós...og er stefnt á edrú-helgi með öllu...í kveld ætla ég væntanlega að kíkja til Ogms í smá diskaskrif og pizzu sem verður cool cause I luuuv cd´s ....svo á laugardagskveldið eftir vinnu er staffadjamm og þar ætla ég að vera miskunnarsami samverjinn og vera á bíl öllum til mikillar hamingju...sjáum til hvernig rætist úr því kveldi...gæti vel verið að mar stingi af til Fancy ef hann er eitthvað á tjúttinu...svo er hjúkkan líka að fara útá lífíð þannig að þetta er allt í bígerð...en eitt er fyrir víst...ég verð edrú og er stolt af því! Lifi byltingin!
Stay black
Vinnustaðaumræður eru alltaf klassískar og sérstaklega er gaman þegar umræðuefnið er hjónapirringur og börn þegar maður er eina single manneskja á svæðinu...gaman gaman...held ég skelli bara Cave-aranum í og haldi áfram að láta dagdraumana ráða ríkjum í von um að þeir rætist einn daginn...
Stay black
Jæja...mundi eftir Cave-aranum í dag...tók með mér Let love in og Boatman´s call...hann er snillingur þessi maður...er einmitt að fara að skrifa einhverja diska í kveld þannig að ég vona að ég nái einhverjum Cave diskum....en tónleikarnir verða á Broadway sem mér finnst eitthvað hálf mis...samt björtu hliðarnar eru að það eru meiri líkur að mar fái miða og svona...það er nú gott...en ég hefði fílað eitthvað aðeins minna og cool...en sá staður er ekki til á Íslandi..held að við þurfum að fara að gera eitthvað í þessum tónlistarhússmálum...ef tónleikahald á að geta haldið áfram hér af einhverri alvöru
Stay black
Merkilegt hvað er hægt að gera slæmar auglýsingar...til dæmis auglýsingarnar frá Sýn...með gaurana sem eru að reyna að fá sýn og eru þess vegna að gera eitthvað fyrir konurnar sínar....sett upp eins og þeir hringja í svona Rescue 911 númer hjá Sýn...frekar pathetic og málar konur eins og einhverjar andskotans grybbur sem geta ekki leyft köllunum sínum að skemmta sér...djísss...þetta eru leiðinlegar og hallærislegar auglýsingar og ef mig myndi langa í sýn þá myndu þessar auglýsingar sko fá mig af því...
Stay black

7.11.02

Grrrr...gleymdi Nick Cave heima :(
Ég var að komast að því að ef að ég byggi í Bandaríkjunum og væri orðin alkóhólisti núna (sem ég er ekki...í allöru!) þá gæti ég örugglega kært Hverfisbarinn fyrir að koma mér á bragðið og unnið fullt fullt af milljónum...hummm...there´s a thought...fyndið hvaða hugsanir fæðast er maður er að keyra í vinnuna...sérstaklega þegar útvarpið er bilað...verð nú að fara að gera eitthvað í því...annars er ágætis útlit yfir helgina...vinnuhelgin mín og svona...ætla að skella mér útá lífið á laugardag and guess what?! Ég ætla að vera á bíl...og þannig á bíl að ég ætla ekki að drekka neitt! Ekki einu sinni einn lítinn bjór...viltu pæla...ahhh...það verður sweet...á samt eftir að break the news to the Soonrize gals og get ég ímyndað mér að þær verði ekki ánægðar...but I have to stay strong...for the kids...eehhhh...whatever...held að ég þjáist líka að Friends-overdoesi...which reminds me að ég fékk ekki spólurnar mínar í gær...what is up with that! Sko...tollskrifstofan er opin til 16.30 en tollafgreiðslan bara til 15.30....hvað er það?! En ég fæ þetta samt sent heim í kveld og ætla mínir yndisfögru foreldrar að taka á móti þessu því ég er að fara að vinna...og talandi um vinnu...er það ekki það sem ég á að vera að gera núna?...c ya
Stay black

6.11.02

Ég var að uppgötva alveg yndislega blöndu í hádeginu...skil ekki hvernig mér datt þetta í hug áður...blanda saman kiwi og banana...mmm...bara gott...spurning um að kaupa solleis á eftir og reyna að blanda einhvern kokteil þegar mar kemur úr squashi...óáfengan auðvitað...en þessi blanda vakti nú ekki mikla lukku hjá samstarfsfélögum mínum niðrí matsal...þeim fannst þetta eitthvað hálf ósmekklegt...sannar bara enn og aftur að ég er ljósárum á undan minni samtíð
Stay black
Váááá...ég gæti bloggað í allan dag stanslaust öll fallegustu orð í íslenskri tungu en ég gæti samt ekki lýst gleði minni á þessari stundu....því....NICK CAVE KEMUR TIL ÍSLANDS 8. DESEMBER!!!! Þetta er eins og draumur að rætast því ég og systa höfum oft verið að tala um hvað það væri frábært ef við myndum fara á tónleika með honum og svona...váááá...eina sem gæti toppað þetta er kannski að Pearl Jam, Cure eða Stevie Wonder kæmu hingað....Nick Cave er bara snillingur...úff úff úff..ég er enn að ná þessu...ég trúi þessu varla...hve mikil snilld verður þetta...hann kemur líklegast einn með píanóið og nice...ég VERÐ að fá miða! VERÐ VERÐ VERÐ! Gærkveldið í gær var sem sagt fullkomið...var á leiðinni útað borða þegar ég heyrði þessa frétt um Nick Cave....það var rosa gaman útað borða með Beggu og Rósu og þar fékk ég afmælisgjöf...seint kemur sumt en kemur þó (by the way þá átti ég afmæli 9.september)...ég fékk Nirvana safnplötuna og nýjan bol og þar sem ég elska geisladiska og föt þá var ég alsæl...síðan kíktum við í pool og tókum einn leik uppá gamla tíma sem var snilld...þannig að ég vaknaði eldhress fyrr en venjulega og fór útað skokka og raulaði pixies allan tímann og meðan ég var í sturtu...sem sagt...I´m on the top of the world right now og ef einhver eyðileggur þennan dag fyrir mig þá æli ég á hann og öskra....er samt að fara að ná í Friends spólurnar mínar í tollinn þannig að ég get alveg ímyndað mér að einhver þar reyni að eyðileggja daginn...en ég reyni að láta það ekki á mig fá....
Stay black