24.10.07

...Og ók..

...Van Morrison...ég elska þig út af lífinu og þú kemur mér í gott skap...en hvernig er ekki hægt að vilja verða ástfanginn þegar maður hlustar á svona texta?....ég bara spyr...

You can take all the tea in china
Put it in a big brown bag for me
Sail right around the seven oceans
Drop it straight into the deep blue sea
Shes as sweet as tupelo honey
Shes an angel of the first degree
Shes as sweet as tupelo honey
Just like honey from the bee

You cant stop us on the road to freedom
You cant keep us cause our eyes can see
Men with insight, men in granite
Knights in armor bent on chivalry
Shes as sweet as tupelo honey
Shes an angel of the first degree
Shes as sweet as tupelo honey
Just like honey from the bee

You cant stop us on the road to freedom
You cant stop us cause our eyes can see
Men with insight, men in granite
Knights in armor intent on chivalry
Shes as sweet as tupelo honey
Shes an angel of the first degree
Shes as sweet as tupelo honey
Just like honey from the bee

You know shes alright
You know shes alright with me
Shes alright, shes alright (shes an angel)

You can take all the tea in china
Put it in a big brown bag for me
Sail it right around the seven oceans
Drop it smack dab in the middle of the deep blue sea
Because shes as sweet as tupelo honey
Shes an angel of the first degree
Shes as sweet as tupelo honey
Just like honey from the bee

Shes as sweet as tupelo honey
Shes an angel of the first degree
Shes as sweet as tupelo honey
Just like the honey, baby, from the bee
Shes my baby, you know shes alright.....

Stay black - Salinto!
...Og af hverju...

...er Sean Penn ekki maðurinn minn? Er ég ekki miklu sætari en Robin Wright?



Stay black- Salinto!

21.10.07

...Og ég fór...

...á tónleika með Roisin Murphy í gærkvöldi...

...Murphy þekkja flestir úr hinu frábæra bandi Moloko sem var stofnað árið 1995 en eftir að Murphy hætti með Mark Brydon, hinum helmingi Moloko, hóf hún sólóferil stelpan og var að gefa út sína aðra plötu fyrir stuttu sem heitir því einfalda en skemmtilega nafni Overpowered...

...og hún náði gjörsamlega að heilla mig stelpan...geggjuð söngkonan...minnir soldið á Urði í Gus Gus...og deeead sexy...ég gæti gifst henni...



Stay black - Salinto!

15.10.07

...Og loksins loksins...

...er Sindý númer II komin úr viðgerð...Danir eru náttúrulega ekki þeir fljótustu í heimi og tók það mánuð að laga tölvuna mína þar sem að þeir klúðruðu málinu all svakalega...en allt er gott sem endar vel...

...og Tyra búin að gera America's Next Top Model reyklausa keppni....jahérna...

...og tattúið mitt er fallegast í heimi...



Stay black - Salinto!

21.9.07

...Og nú er mín...

...komin með tattú...það fyrst og væntanlega eina...valdi að hafa það á síðunni rétt fyrir ofan mjöðm og gæti ekki verið ánægðari...sýni mynd þegar ég kemst á tölvu sem ég kann á...getið líka kíkt á www.myspace.com/liljagnarr...

...Lilja fyrir Lilju...

Stay black - Salinto!

12.9.07

...Og nú...

...gafst tölvan mín loksins upp á mér...cindý númer 2 er komin í viðgerð þannig að ég er háð góðmennsku annara til að vinna fyrir Séð og heyrt sem þýðir að ég verð ekki mikið í blogginu næstu daga...

...líka brjálað að gera í skólanum...aldrei búin fyrir 18 eða 19 á kvöldin og þá tekur við stífur lærdómur...

...annars þakka ég fyrir hlýhug í minn garð á afmælisdaginn...þið eruð yndisleg...

...partí hjá mér á laugardaginn...þér er boðið...
Stay black - Salinto!

9.9.07

...Og ég á...

...afmæli í dag...ég nenni ekki neinu...eins og vitur maður orti...

...ég hef greinilega verið góð stelpa í ár þar sem guðirnir brosa við mér í dag...takk fyrir það...

...nýtt ár og nýir möguleikar...25 ára...held að þetta verði besta árið hingað til...
Stay black - Salinto!
...Og þetta er...

...alltof flott...



Stay black - Salinto!

5.9.07

...Og...

...Michael Bublé á sama afmælisdag og ég...ég er ekkert smá ánægð núna!
-L

4.9.07

...Og það er leitin...

...að fallegri konu...



...og hún á afmæli í dag...26 ára þessi elska...

Stay black - Salinto!
...Og þá er maður...

...kominn aftur til Danmark...og það er yndislegt...

...voða dugleg að skokka síðustu tvo daga...varð fyrir svo miklum innblástri þegar ég steig á vigtina í sumar og var þá búin að léttast um tíu kíló síðan ég flutti til danmerkur...veit ekki hvert þau fóru því ég tek ekki eftir neinu...en þetta er fínt...ég kvarta ekki...

...og ég er með sama númerið að sjálfsögðu...+45 20691063...
Stay black - Salinto!

30.8.07

...Og...

Your Adult Film Star Name Is...

Luscious Lolita


Stay black - Salinto!
...Og þá er ég búin...

...með klippikortið mitt á Græna ljósinu...sá átta myndir þar sem tvö klipp voru splæst á Svömpu Gumm The Svono The Bogo...hér kemur listi yfir myndirnar...númer 1 er best og númer 8 er laaaang verst...

8. Zoo
Ég veit ekki hvort ég get drullað nóg yfir þessa mynd. Hún var leiðinleg, alltof löng, illa gerð og afskaplega óáhugaverð...eina góða setningin var þegar einn hestamisnotarinn sagði: "People think I'm a bad person because of my love for the horses"...þegar maður fer á svona myndir býst maður við að verða hneykslaður...ég varð hneykslaðri á snyrtivörukynningu sem ég fór á seinna um kvöldið þar sem förðunaraðferðirnar voru meira brútal en mynd um dýraperra...er það hægt?

7. Cocaine Cowboys
Alltof mikið tal en áhugavert efni og mjög gaman að fylgjast með hvernig Miami varð að þeirri borg sem hún er í dag sem hefði vafalaust ekki gerst nema fyrir tilstylli kókaínkúrekanna sem dældu peninga í alls kyns byggingarframkvæmdir...

6. Deliver Us From Evil
Áhugaverð heimildarmynd um kaþólskan prest sem er barnaperri...ef maður hatar eitthvað eftir þessa mynd er það ekki presturinn heldur kaþólskan kirkjan sem hylmir yfir svona veiku fólki sem misnotar stöðu sína til að fitla við smábörn...algjör viðbjóður...

5. For Your Consideration
Mynd sem mig langar tvímælalaust að sjá aftur...frábærir brandarar inni á milli og ekki skemmir fyrir að eiginmaðurinn minn tilvonandi, Ricky Gervais, er í stóru hlutverki...

4. Sicko
Var ekki eins hrifin af þessari Michael Moore mynd eins og Bowling For Columbine en er hún þó mun betri en Fahrenheit sem mér fannst persónulega léleg og langdregin. Mjög athyglisvert að skyggnast inn í heilbrigðiskerfi Bandaríkjanna en Moore er kannski ekki rétti maðurinn í svona myndagerð þar sem hann augljóslega hatar Bandaríkin...það eru alltaf tvær hliðar á sama teningnum...

3. The Bridge
Get ekki sagt að ég hafi verið uppfull af gleði þegar ég rölti út af þessari en mjög vel gerð engu að síður að mínu mati...flott viðtöl við áhugavert fólk og vafasöm kynning fyrir San Francisco...

2. Death of a President
Mjög vel gerð leikin heimildarmynd sem heldur manni við efnið allan tímann. Svolítið lengi að byrja að vel þess virði og margir góðir punktar sem koma í ljós...

1. Shortbus
Frábær mynd í alla staði! Ég grét...ég hló mig máttlausa og mig langaði að æla á einum tímapunkti...hún skildi svo mikið eftir þessi fallega mynd og alls ekki verið að reyna að hneyksla mann með ógeðslegum kynlífssenum heldur voru þær mjög fallega gerðar...en nota bene...þessi mynd er ekki fyrir hommahatara (Árni...þetta er fyrir þig!)

Stay black - Salinto!

24.8.07

...Og nú er aðeins...

...rétt rúmlega vika þangað til ég yfirgef landið og því ákvað ég að setja saman topp tíu lista yfir sumarævintýrin...frábært sumar í alla staði...og auðvitað byrjar upptalningin á neðsta sætinu...

10 er fyrir tónleika







Hitti strákana í TOTO og var eins og versta grúppía...en þeir elskuðu mig samt...knúsuðu mig og kysstu og kölluð mig sweatheart og darling...tónleikarnir voru ágætir...tóku ekki mörg af mínum uppáhaldslögum en voru helvíti massaðir á sviðinu.
The Rapture kom skemmtilega á óvart...frábærir tónleikar í alla staði og söngvarinn alltof kynþokkafullur...
GUs Gus klikkaði ekki á menningarnótt...
Toby Rand tryllti gaukinn og varð að sjálfsögðu ástfanginn af mér...ég afþakkaði pent...
Kaupþingstónleikarnir voru skemmtilegir og var Helgi Björns nánast í sleik við mig allan tímann...ásamt Nylon stelpunum og Garðari Cortes...kvarta ekki...

9 er fyrir bíó



Bíódagar Græna ljóssins eru reyndar ekki búnir en ég er búin að sjá fimm myndir í boði Senu og þær hafa allar verið frábærar...fór á frumsýningu Astrópíu á miðvikudag og leið eins og stjörnu á rauða dreglinum...myndin var líka fín...mæli með henni...

8 er fyrir fótbolta



Hann er skemmtilegur...það var fátt skemmtilegra en að sjá Fylki vinna Val 3-2 á Laugardalsvellinum...takk fyrir það...er orðin fótboltablaðamaður Séð og Heyrt og líkar það vel enda ófáir kynþokkafullir þar...

7 er fyrir föt



20 kjólar á einu sumri...ekki slæmt það...

6 er fyrir Ísland



Var dugleg að ferðast um landið...fór til Akureyrar með fjölskyldunni...Grundarfjörð með Árna og Árni tók mig líka á góða rúnta á bæði mótorhjóli og bíl á staði sem ég heimsæki ekki oft...Ísland er fallegasta land í heimi...ekki orð um það meira...

5 er fyrir starfsfólk



Starfsfólk Séð og Heyrt er búið að bjarga geðheilsunni á blaðinu...Ragga, Tobba og Atli eru snillingar og hef ég tengst þeim böndum sem eiga aldrei eftir að slitna...við stelpurnar erum duglegar að elda saman og spila buzz og förum auðvitað í sleik...djók..eða eins og Ragga myndi segja...iiiiii...ég elska ykkur fallega fólk...þið eruð best og ég á eftir að sakna ykkar svooo mikið...sjáumst að ári...

4 er fyrir Árni



Eva kynnti mig fyrir frænda sínum..honum Árna...og við urðum yfir okkur ástfangin...en eins og góð Séð og Heyrt fyrirsögn myndi hljóma þá enntist ástin ekki og eins og Eva Dögg myndi segja þá erum við góðir vinir í dag...

3 er fyrir Glódís



Fékk að passa þennan snilling í heilan dag...það er einn af skemmtilegustu dögum sumarsins...það sem stendur upp úr er þó þegar hún sagði við mömmu sína að ég væri rosalega falleg...oooo mér finnst hún líka fallegasta manneskja í öllum heiminum...kemur mér alltaf í gott skap og það er alltaf stutt í grínið hjá henni...á eftir að sakna hennar óendanlega mikið þegar ég fer aftur út og tárast alltaf þegar ég kveð hana...

2 er fyrir Svanfríður og Íris



Þær klikka ekki á kantinum enda fallegastar á Íslandi og þó víðar væri leitað...Svanfríður kom mér hressilega inn í fótboltann og Íris kynnti mig fyrir Guitar Hero...þarf ég að segja meira? Elska ykkur að enda veraldar og til baka!

1 er fyrir Evu Dögg



Hún yfirgaf landið fyrir stuttu og er að brillera í Danmörku...komin inn í háskólann enda algjör snillingur og fallegasta manneskja í heimi...hún kynnti mig fyrir Árna (sjá listann)...leyfði mér að hjálpa sér að mála og setja upp partítjald og hélt kveðjupartí á einu skemmtilegasta kvöldi sumarsins...svo er hún líka besta vinkona mín og frábær! Ég elska þig að eilífu því þú ert best Eva mín!

Stay black - Salinto!

21.8.07

...Og það var ekki leiðinlegt...

...í vinnunni á Kaupþingstónleikunum...með þennan voðalega litla passa sem sást varla...hann Eggert tók þessa mynd...



Stay black - Salinto!

20.8.07

...Og ég skemmti mér...

...konunglega um helgina...þó karlmenn séu enn aumingjar hó hó hó...greinilega enginn sem vildi taka mig á orðinu og afsanna þá kenningu...en það er allt í lagi...i know i'm fabulous...

...byrjaði daginn á græna ljósinu í gær og sá Sicko sem var fín...ég hló og grét...á átta myndir eftir á passanum mínum og í dag stefni ég á Deliver Us From Evil ef ég næ að komast nógu snemma heim...gaman gaman...

...á miðvikudaginn er svo frumsýning Astrópíu...ég innilega vona að ég fái lítinn aulahroll...

...Gus Gus voru geðveikir...ekkert meira um það að segja...

...var full í fjóra daga í röð...komin aftur í danska formið...enda eins gott...maður er að fara út eftir tæplega tvær vikur...éééég hlakka svo til...

...og þetta var eflaust leiðinlegasta bloggfærsla í heimi...mæ ó mæ...
Stay black - Salinto!

17.8.07

...Og þessu manni...

...mun ég giftast þegar ég verð þrítug...ég hlakka svo til...

...börnin okkar yrðu afburða falleg...fyndin...kynþokkafull og kreisí gáfuð...



Stay black - Salinto!
...Og í dag...

...var það Love með The Beatles sem fékk að rúlla í ipodnum meðan ég hjólaði hálfþunn í vinnuna...

...í gær fögnuðum við sigri Fylkis með því að fara út að borða á Vegamótum og spjalla...það er eiginlega orðinn fastur liður á fimmtudögum...

...og þeir sem halda að ég dragi bitra póstinn minn hér fyrir neðan til baka þá gæti það ekki verið lengra frá sannleikanum...enda er hann ekki bitur...bara heilagur sannleikur...
Stay black - Salinto!

16.8.07

...Og karlmenn...

...eru hálfvitar...

...fékk endanlega staðfestingu á því í dag...ég er hætt og meinilla farin...

...einhver sem getur afsannað þetta endilega hafið samband...
Stay black - Salinto!

14.8.07

...Og Séð og Heyrt...

...gerir lífið skemmtilegra...

















Stay black - Salinto!
...Og ég hef sjaldan...

...misst mig jafn mikið á fótboltaleik og í gær...

...hélt svo með Val því ég vildi fá Val-Fylki í úrslitaleikinn en allt kom fyrir ekki...hvað er það að skora mark á 90. mínútu? Ekki sátt við það...en það hefur verið gaman að vera FH-ingur í gær...jafn gaman og það var að vera Fylkis maður á sunnudaginn...

...nú er það allir í appelsínugulu og bikarinn í Árbæinn...

...annars er farið að kvarta undan mér að ég sé léttlynd og ástfangin af alltof mörgum karlmönnum í einu en er það bara ekki allt í lagi? Það er allt í lagi að horfa og láta sig dreyma...
Stay black - Salinto!

13.8.07

...Og það er gaman...

...þegar fólk mismælir sig...

...stelpan í mötuneytinu kallaði álpappír álfpappír áðan og ég pissaði í mig af hlátri...og ég kemst ekki heim að skipta um naríur...hvað gerir maður þá?
Stay black - Salinto!

10.8.07

...Og úfff...

...hvernig er þetta hægt?! Vá hvað hann er fallegur...



Stay black - Salinto!
...Og ég þakka...

...Sniglabandinu fyrir góða skapið í dag...lagið Selfoss er er í einu orði sagt frábært...I luv it og það er gott að hjóla við það...

...Barry Barry Barry White...hey hey hey...ekki Barry Barry White...hver þá? Suðurlandisins Einar Már...Bjarni Harðarson...

Stay black - Salinto!

9.8.07

...Og ég fékk þvílíka...

...Danmerkur heimþrá í gærkveldi...

...bestasti vinur minn...hann Morten Johannes...sló á þráðinn frá Noregi og það var svo yndislegt að heyra í honum...ég táraðist þegar hann sagði "I miss you you know...and I think about you all the time"...að sjálfsögðu sagði ég sömuleiðis því mörgum af mínum bestu stundum í Árósum hef ég einmitt eytt með þessum manni og besta vini hans...

...og eftir þetta samtal fór ég að hugsa af hverju ég gæti ekki bara byrjað með Morten...eeen þar sem við erum alltof góðir vinir og náum ekkert smá vel saman þá myndi það örugglega ekki ganga...ég myndi örugglega drepa hann á endanum hehe...en hann er yndislegur og ég elska hann...

...en hann þurfti líka að minna mig á að eftir eitt ár fer hann frá Árósum og ég sit eftir í heilt ár í viðbót...ég ætla mér marga hluti í framtíðinni og einn sem ég ætla tvímælalaust að standa við er að heimsækja hann eins oft og ég get...I love you man...

Hérna er mynd af okkur 3 amigos...Lengst til vinstri er Daníel og svo er það Morten Johannes yndi...

Stay black - Salinto!