21.2.03

Og loksins borgar sig að vinna í búð...

...ha ha ha...einhver gaur kom í gær í vinnuna og lét okkur fá einhverjar 3 eða 4 kippur af Víking silfurlituðum til að kynna í búðinni!! Og glös með..ha ha ha...og auðvitað tók verslunarstjórinn (your´s truly) nokkra heim með sér þannig að það er frítt fyllerí í kveld...ironically í boði ÁTVR...langar einmitt að vera soldið vel hífuð því það er langt síðan það hefur gerst...held bara ekki síðan á einhverju skýrr-djammi..en þar verður maður nú alltaf ískyggilega fuddlur og endar á að gera eitthvað voðalega "sniðugt"...hvað er þetta uppí þér?...kannski er það útaf því að það er alltaf frítt vín...who knows....

...mmm...ég elska gaura sem worka out...ekki samt svona gaura sem eiga heima í Veggsport og pömpa eitthvað brjálað og taka svo og svo mikið í bekk heldur bara hinn venjulega jóa sem fer útí göngutúr og solleis...og ekki spillir fyrir ef hann drekkur mikið vatn...ég held ég svo voðalega skotin í svona venjulegum gaurum...hef alveg komist að því sko...svona krúttlegum litlum gaurum sem eins og ég segi fara útí göngutúr reglulega..kannski með einhvern hund á eftir sér og svona...sweet...en mesta turn off held ég að sé að mæta gaur á göngustíg með hund og hann er að reykja!! Það er alveg OFF...tala nú ekki um ef hann er með kaffibolla í hendi....

...en jæja..ég verslaði inn í matarboðið mitt í gær og mér til mikillar óánægju komst ég að því að það er hætt að selja fanta lemon!! Ég sem ætlaði að gera tinto de verano handa stelpunum sem er einmitt fanta lemon í rauðvín...ég veit ég veit...það á ekki að blanda rauðvín bla bla bla...en fyrst Spánverjar gera það þá hlýtur það að vera í lagi...því þeir eru bestir í heimi! En Lillan bara bjargaði sér og keypti sítrónu svala, egils kristals og eina sítrónu og ætlar að reyna að malla eitthvað úr því í kveld...leiðinlegt er að hún Freyja góðvinkona mín kemst kannski ekki....buhuhu...pabbi stráksins hennar getur ekki verið með hann og eitthvað solleis...frekar leiðinlegt...en öll von er nú ekki úti enn og ég bíð eftir símtali frá henni...

...og enn og aftur...gleðilegan flöskudag!...ha ha ha..hver er etta sem liggur við hliðina á mér?!
Stay black

20.2.03

Og þetta gerir andlaus manneskja sér til skemmtunar...

Ef þú hefur svarað í einlægni, tilheyrir þú þeim sem eru að einhverju leyti dísir og að einhverju leyti nornir. En er þá hægt að treysta því að þú hafir verið hreinskilin í svörum þínum? Ef svo reynist vera ertu skemmtileg stelpa, en örlítið utan við þig. Allur heimurinn snýst í kringum þig en þú tekur yfirleitt ekkert eftir því. Þess vegna tekurðu ekki eftir því þegar aðrir sýna þér áhuga. Jafnvel þú lumar á galdrahæfileikum. Þegar þú notar galdrahæfileika þína getur þú komið öðrum til að halda að þú sért dís.

Þetta er hægt að nálgast hér
Stay black
Og guð hvað maður getur verið andlaus...

..meeen...held að andleysi fylgi heilsuátakinu mínu sveimérþá...mar er ekkert skemmtilegur þegar maður lifir á skyri og ávöxtum...þannig í dag ætla ég að fá mér kjöt í hádeginu! Úúúú very butch indeed...ætla fá mér lambakjöt...mmm...sem er best í heimi fyrir utan kjúlla auðvitað...ha ha ha...ef ég mætti ráða væri kjúlli á hverjum degi...og það liggur einmitt svo vel við að í hádeginu á morgun er pasta með kjúlla...íha...ekkert betra en að koma úr fótbolta allur marinn og blár og fá sér kjúlla...þó það fylgi pasta með...alveg sama...ummmmm....slef...fæ vatn í munninn...en ég verð víst að láta mér mína daglegu abt mjólk næga í bili og telja svo mínúturnar í hádegismatinn...
Stay black

19.2.03

Og þú þarna...

...sem ert að flippa í gestabókinni minni í tíma og ótíma...þetta er orðið þreytt svítí....
Stay black
Og ef þið hafið ekki tekið eftir því...

...þið sem ég er með á msn-contact listanum mínum þá er ég að leita mér að hræódýrri ferðatölvu þannig að ef einhver veit um nothæfa ferðatölvu með ágætisbatteríi og svona basic hlutum í lagi þá endilega látið mig vita...sendið mér mail...hringið í mig...bara eitthvað...og með hræódýra...þá meina ég sko hræódýra...liggur við gefins...

...en já...síðustu dagar hafa verið voðalega viðburðarlitlir...heilsuátakið enn í fullum gangi...3 dagar komnir og bara 2 dagar í óhollustuna og viðbjóðinn...get ekki beðið eftir að liggja uppí rúmi á laugardag og háma í mig nammi og ís...mouhahahahah! That´s the life sko...er að halda matarboð á föstudaginn fyrir saumaklúbbinn sem ég er í og ég hlakka geðveikt til...ætla að elda einhvern spænskan mat og hafa svo smá tinto de verano con hielo með því...planið er að hella stúlkurnar fullar því þá eru þær skemmtilegastar...þá get ég líka misnotað þær þegar þær falla í dauðadá...ahahaha...my master plan...

...eeeen allavega...var að koma úr Veggsport og við tekur annað skemmtilegt kvöld fyrir framan imbann með vatn í annari og appelsínu í hinni...
Stay black
Og meeeee...

...jæja...fór í mítt hálfsárlega permanent í gær...ég labbaði inná stofuna með mjög ákveðnar hugmyndir...en því miður var ekki hægt að framkvæma þær þannig að ég lét hár mitt í hendur hárgreiðslumeistarans og labbaði út bara sérdælis prýðilega ánægð...eins gott þar sem þetta kostar morðfjár...ha ha ha..en núna er Lillan orðin soldið me me með ullinni og öllu...ég vona bara að fólk stoppi ekki á götunni og jarmi á mig...það kemur þá í ljós á næstu dögum...en fyndið hvað heimurinn er lítill...ég fer tiltölulega sjaldan á hárgreiðslustofu því ég er að safna hári, lita það ekki og permanent endist í næstum hálft ár...þannig að ég hef ekki oft spjallað við gelluna sem gerir hárið á mér svona flott eins og það er í dag...en kemur þá í ljós að við þekkjum sama fólkið og hún var einu sinni að æfa squash og hvaðeina...þvílíkt fyndið og við höfðum nóg að tala um...svo var systir hennar að koma frá Malaga en þar var hún í 2 mánuði í spænsku skóla...þannig að þær voru rosa ánægðar að ég væri að fara til Granada og bla bla bla...svo gaman þegar maður finnur einhvern sem gerir hárið á manni flott og er skemmtilegur...over and out...meeeee
Stay black

18.2.03

Og hvað væri dagurinn án vinnustaðargrínsins...

Já...einn af toppmönnum ISO er kominn með nýtt cover up sko...hver man ekki eftir Dönu International...kynskiptinginum frá Ísrael sem söng sig inn í hjörtu Evrópubúa í Evróvisjón 1998? Já....þá er það bara Herra International mættur á svæðið...tilbúinn að forrita fyrir ungar hjálparlausar stúlkur....Viva la diva...viva Victoria...Cleopatra...VIVA!



Stay black
Og aaaaaaaa....

...hvað mér leið vel í gær...meeeen...hélt að ég myndi eipa yfir sörvævör því ég mætti ekki borða neitt en truth be told þá leið mér úber vel því ég vissi að ég var búnað standa mig vel...eldaði mér bara pasta og solleis í kvöldmat því mamma var með einhverjar brasaðar fiskibollur sem hún reyndi að telja mér trú um að væru hollar en ég lét ekki blekkjast...baaa...en sörvævör brást mér ekki..mér finnst meiri húmor í þessum heldur en í fyrri seríum og fyndið hvað þetta eru miklar steríótýpur...keddlingarnar geta ekkert en kaddlarnir eru með rosa skýli og læti og eru geðveikt sjálfumglaðir en svo vinna keddlurnar the immunity challenge og læti...schnillld...mmm...sætasti strákurinn minn er ennþá inni...la la la...samt fyndið að gaurarnir séu þarna í eitthvað sörvævör dæmi í amazon þar sem fullt af ógeði er og dæmi sem getur drepið þig en þeir eru samt bara eitthvað að pæla í gellunum...ha ha ha...alger schniiilllddd....þannig að Sörvævör er ennþá í fyrsta sæti en Bachelor fylgir þar fast á eftir...

...ha ha ha...og snillingur dagsins er gaurinn sem var að hlaupa við hliðina á mér á hlaupabrettinu í morgun og kunni ekkert á það þannig að hann tók uppá að tala við það og lemja í það og ýta á alla takkana...nema Start...
Stay black

17.2.03

Og jadadadada...

...Sörvævör amazon er að byrja eftir aðeins eina og hálfa klukkustund...íha! Lengi hef ég beðið eftir þessari stundu en Bachelor hefur nú reyndar léttað biðina...spurning hvort að sörvævör lúti í lægra haldi fyrir því ágætissjónvarpsefni...hver veit...ó já..ég er þræll veruleikasjónvarpsins og skammast mín ekkert fyrir...í örvæntingu minni hef ég reynt að Bachelor-væða samstarfsfólk mitt en án árangurs...í dag greip ég svo til örþrifaráða og sendi póst í hópnum mínum sem auglýsti sörvævör og ég gaf þeim meira að segja upp liðin þannig að þau gætu byrjað að halda með einhverjum...ég er persónulega farin að halda með þessum...vonandi bara dugir þessi póstur til að kveikja áhuga þeirra á einum besta þætti í alþjóðasjónvarpssögu...næst á eftir áramótaskaupunum ´87-´89 og Föstum liðum eins og venjulega...

...en hvað er málið með gaura sem æfa í hlýrabolum en eru ekki með neina upphandleggsvöðva?! Það er bara haddló...sérstaklega ef bolurinn er þröngur og þeir eru með smá brjóst...uuuuu...hrollur...svona álíka haddló og kaddlar sem eru í...æjjj...neeeei...vil ekki skjóta meira á ISO mennina...en við skulum bara að segja að útsala hefur líklegast verið á ljótubarnapeysum...en bara núna eru ermarnar farnar að detta af...
Stay black
Og fla la la la la....

...jáááá...ég held að allir hafi verið að keppast um hver gæti stoppað heilsuátakið mitt fyrst...byrjaði í hádeginu þegar ég tötli niðrí matsal með skyr, banana og grænt epli og var þá ekki einhver rosa jömmí smjördeigsgrænmetisbaka í matinn...en nei..ég borðaði mitt skyr með eimdarsvip og lét þetta ekki á mig fá...næst tekur gella sem er að vinna með mér uppá því að poppa...ég mæti auðvitað í popppartíið en fæ mér sko ekki eitt einasta popp...2-0 fyrir mér (en þannig fór einmitt squashið áðan..fyrir mér of course)...svo það sem fyllti mælinn var að gæðastjórinn bauð í rosa gúmmulaði húggulaðiköku því hann á afmæli í dag..klöppum fyrir honum...ég auðvitað kastaði kveðju á hann en snerti ekki kökuna...þannig að dagurinn endaði 3-0 fyrir mér og nokkrum grömmu léttari...hipp hipp húrreiii!!

...en annars hefur mér aldrei liðið eins og jafnmikilli konu og í dag...braut nebblega nögl um helgina og var allan daginn að syrgja hana...ha ha ha...ég að syrgja brotna nögl...that´s a sigh you don´t see every day...fyrir nokkrum mánuðum hefði ég hrópað húrra yfir því að hafa neglur...en ekki til að dást að þeim...heldur til að naga þær ...ha ha ha...but not anymore...ég er þokkalega að taka lífið í gegn núna og naglabönd og húð eru mjög ánægð...
Stay black
Og núna er ég orðin spennt...

...var að ganga frá flugförum til Spánar...slepp með 17000 kaddl...nokkuð gott myndi ég segja :)...vá ég er orðin svo spennt núna...baaa...I´m actually going...4. maí klukkan 15.00 er ég farin héðan...íha!!!
Stay black
Og núna...

...nægir ekki aðeins að stilla á Ísland í bítið heldur verður að hækka í hæsta svo það fari örugglega ekki framhjá manni og svo maður geti alveg örugglega ekki blokkað það út með valinkunnum lögum eins og Tangó og Eurovísa...ég er búin að byggja upp andlegt hatur gegn þessum þætti og það finnst mér mjööög leiðinlegt því hann ku vera helvíti góður...magna-ð...

...en já..fyrsti dagur í heilsuátaki hafinn...var að hugsa um það fyrir helgi hvað það er useless að ég æfi tvisvar á dag og borða það sem ég vil þannig að ég held mig alltaf á núllinu...en núna ætla ég að hætta að borða gúmmulaði og einbeita mér að skyri og ávöxtum...þannig að Tobbi í mötuneytinu græðir ekkert á mér...þó hann eldi alveg frááábææææran mat...soldið leiðinlegt að þurfa að standa í svona heilsuátaki aftur en samt hlakka ég soldið til...manni líður alltaf svo vel að borða svona hollt og gott ;)

...og mamma er farin að kvarta yfir því hvað er mikill þvottur af mér...og ég svona kindly útskýrði fyrir henni að ég æfi tvisvar á dag og svo er ég líka í venjulegum fötum þess á milli...og hún actually stakk uppá því að ég myndi nota sama bolinn eða sokkana tvisvar!! Er það bara ég eða er það viðbjóðslegt?! Ég sagði nú bara pent nei takk...
Stay black

16.2.03

Og júró var það heillin...

...ég elska júróvisjón...þetta er svo skemmtilega haddló og yndislegt...aaaa...undankeppnin í gær..ég og Óli gerðum okkur dagamun og pöntuðum pizzu og horfðum fyrst á spaugstofuna og síðan á júró bjúró...tja...ég horfi aldrei á spaugstofuna og í gær mundi ég af hverju...talandi um að vera næstum því eins útbrunnir og Rúni Júl for crying out loud...ég hló varla einu sinni...þvoði frekar á mér hárið en að misbjóða augum mínum og eyrum svona og það segir nú meira en mörg orð...hef greinilega ekki húmor í þetta...en Óli hefur það...og það er hans mál ha ha ha...en já...undankeppnin...það var nú meira formsatriði...allir vissu að Birgitte (lesist með frönskum hreim) myndi taka þetta ...samt gaman að horfa...mér fannst reyndar Heiða í Unun laaaangflottust...eða með flottasta lagið...hún greyið er frekar óaðlaðandi..en lagið var heavy töff...áfram Heiða...en Gísli Mart og Logi Berg fóru nú alveg með þetta...þeir voru svona frekar laime greyin...fínt lag-er þetta sigurlag brandarinn var ekki aðgera sig...jú gerði sig kannski fyrstu 2 skiptin og svo var þetta bara haddló og pirrandi og mig langaði mest að bruna í háskólabíó og skjóta þá þegar 5. lagið var búið...en já...litli indjáninn vann og það er svo sem ágætt...hún kemst örugglega langt á útlitinu og lagið er svo sem þetta típíska júróvisjón lag...gæti komist á pall...en leiðinlegast við þetta allt finnst mér að ég verð ekki á landinu á sjálfan júróvisjón daginn 24. maí sem er einmitt líka ammælisdagurinn hans Óla...ég verð víst bara að fara á einhvern Íslendingabar í nágrenninu og horfa með fyllibyttunum..kannski mar skelli sér bara til Costa á Pink Elephant...hver veit...
Stay black
Og...

...hvað í ósköpunum á ég að lesa úr þessu ?!
Stay black
Og stundum þarf maður spark í rassinn...

...meeeen...ég komst að því síðasta fimmtudag hvað ég er óstjórnlega heppinn einstaklingur...heppin að því leiti að ég hef enn trú á lífið og mér er frjálst að gera nokkurn veginn það sem ég vil...ég er frjáls eins og fuglinn er...frjáls og ég skemmti mér...djííí...held að frelsi sé mjög vanmetið..eitt af þessum hlutum sem maður saknar ekki fyrr en það er farið...flogið út um gluggann...en já...þetta spark í andlega rassinn kom á þeim sveitta og ómerka stað NASA...nei ég var ekki þar á fyddleríi (geri þau mistök ALDREI aftur)...en já..ég var á leikriti..eða einleik sem heitir Sellófon með keddlingaklúbbnum í vinnunni....hef aldrei gert neitt með þeim áður...kannski útaf því að það er aldrei vín í boði..en ég ákvað að sýna loksins lit og skella mér með þeim á gamaneinleik...og já...eins og ég segi þá fylltist ég þvílíkri ánægju en samt dapurleika yfir að sjá hvernig fer fyrir manni á endanum..þegar maður er búinn að finna sér kaddl og eignast börn þá bara er allt í einhverju basli..ég neita að trúa að það þurfi að vera svona hjá öllum...ég neita að kaupa að líf mitt stoppi og verði að martröð þegar ég eignast barn...auðvitað eru börn æðisleg og veit mann svo óendanlega mikla ánægju og ást en ég meina common!! Myndin sem teiknuð var að mömmunni í leikritinu var hræðileg og allt það sem mig langar ekki að vera...jiddúddamía...nei takk...en leikritið var fyndið sko á köflum...hefði örugglega fílað það betur ef ég hefði geta fundið mig í karakternum...en augljóslega gerði ég það ekki þar sem ég er síngul, á heima hjá mömmu og pabba og eini karlmaðurinn sem ég elska meira en allt er hundurinn minn...eeeen...þetta gerði mér gott og sýndi mér eingöngu það að ég verð að lifa lífinu meðan ég get...því greinlega stoppar það um þrítugt....
Stay black
Og netleysi dauðans...

..er búið að hrjá mig síðustu daga...leiðinlegt að nota orðið hrjá en þetta hrjáir mig...jú...ég heiti Lilja og ég er netfíkill....þræll bloggsins og tilgangslausra upplýsinga...baaaa....eeeen ég ætla að reyna að klára blogg síðustu viku...en ég hlífi engum...believe me...eigum við ekki bara að byrja á byrjuninni....

...Valentínusardagurinn var á föstudaginn...sem mér finnst persónulega vera sá heimskasti dagur og tja jaðrar við hræsnaralegur í "íslenskri ekki-menningu"...en jæja...hann kemur samt og fer...og enginn myndi vita hvenær hann er ef væru ekki dældir svona nokkuð margir þúsundkaddlar í að auglýsa hann...svo merkilegur er hann...en mér finnst þetta sorglegur dagur...mér finnst sorglegt að fólk þurfi að taka dag úr öðrum menningarheimi (sem er nú ekki bæsinn) og tileinka sér hann til þess eins að hafa einhverja afsökun til að gefa ástvini sínum eitthvað fagglegt...sem er fáránlegt...að þurfa afsökun til að elska einhvern! Frekar er skemmtilegra að fá einhverjar svona ég er skotin í þér gjafir eða bara útafþí gjafir heldur en blóm sem gæti alveg eins verið prentað á "ha ha gotcha...keyptir blóm litla gerpið þitt á degi sem blómaframleiðendur eru að græða feitt á en enginn veit einu sinni hvað hann stendur fyrir...ha ha ha...sökkkahhh!!"...frekar kýs ég að gefa mínum ástvinum sem ekki er hægt að verðleggja og ekki eitthvað sem fæst á næsta select fyrir 990 kaddl...með áburði...
Stay black
Og þetta er bara fyrir Sonju....

People just ain't no good
I think that's welll understood
You can see it everywhere you look
People just ain't no good

We were married under cherry trees
Under blossom we made pour vows
All the blossoms come sailing down
Through the streets and through the playgrounds

The sun would stream on the sheets
Awoken by the morning bird
We'd buy the Sunday newspapers
And never read a single word

People they ain't no good
People they ain't no good
People they ain't no good

Seasons came, Seasons went
The winter stripped the blossoms bare
A different tree now lines the streets
Shaking its fists in the air
The winter slammed us like a fist
The windows rattling in the gales
To which she drew the curtains
Made out of her wedding veils

People they ain't no good
People they ain't no good
People they ain't no good at all

To our love send a dozen white lilies
To our love send a coffin of wood
To our love let aal the pink-eyed pigeons coo
That people they just ain't no good
To our love send back all the letters
To our love a valentine of blood
To our love let all the jilted lovers cry
That people they just ain't no good

It ain't that in their hearts they're bad
They can comfort you, some even try
They nurse you when you're ill of health
They bury you when you go and die
It ain't that in their hearts they're bad
They'd stick by you if they could
But that's just bullshit
People just ain't no good

People they ain't no good
People they ain't no good
People they ain't no good
People they ain't no good at all

Stay black

14.2.03

Og æjjj...

...gleymdi næstum því...GLEÐILEGAN FLÖSKUDAG!!!
Stay black...and drunk
And where do I begin...

....baaa...gærdagurinn býður uppá svo mikil blogg að ég veit ekki hvar ég á að byrja...ég er að hugsa um að byrja á það sem mér fannst mikilvægasta og koma hinu inn seinna í dag ef tími og Guð leyfir...

...well...fór á Sellofon í gær með keddlingaklúbbnum í vinnunni...kem að því seinna eins og ég segi ef Guð og tími leyfir...en já...eftir sýninguna var ég búnað díla við mömmu um að sækja hana klukkan hálf eitt því ég ætlaði að fá rauðu eldinguna lánaða..nennti ómögulega að vera á druslunni minni...en já...mamma var í saumaklúbb og þegar ég kem að sækja hana þá skokka ég inn á höttunum eftir spádóm og fíneríi...þegar ég kem inn eru þær rétt að klára kanann sinn og svo byrjar spádómurinn...fyndið að horfa á svona miðaldra konur spjalla saman...eitt fannst mér fyndnast og það var: "ég skil ekki af hverju kaddlar eru að yngja svona upp...mér finnst það alveg hræðilegt!", "Já...hann Jói greyið er alveg úrvinda...Ellí er miklu yngri en hann og þau eiga 2 lítil börn"...en þá kemur mamma sterk inn með mestu snilldinda..."Jú...hann fær nú eitthvað í staðinn líka...eitthvað svona skemmtilegt" og kemur svona perraglott...á MÖMMU MÍNA!! Fyndið að svona konur séu að tala um kynlíf og solleis...ha ha ha...maður vill nú ekki beint hugsa um hálf sextugar og sextugar keddlingar sem kynverur...but whatever works for you...ennníhú...þá fékk ég spádóm laaaangseinust því ég kom seinust og það var bara sérdælis prýðilegur spádómur...bara nokkuð sátt við hann...en það má náttlega ekki segja frá því þá rætist ekkert...ekki að ég lifi neitt eftir því sem er spáð fyrir mér...en ef og þegar það gerist þá man ég það...en annars var bara þvílík upplifun að sitja svona í saumaklúbb hjá mömmu gömlu og var það það gaman að við vorum ekki komnar heim fyrr en rúmlega tvö...og eftir góðan fjögurra tíma svefn skellti ég mér í Veggsport og nú sit ég hér på jobban...gaman gaman...fyndið samt í gær þegar gellurnar voru að spjalla saman þá kom ég alltaf inn með einhver comment....og ég er búin að fatta það að húmorinn minn er soldið svona ekki fyrir alla...greinilegt að fólk yfir 35 og fólk með banana í rassinum fattar ekki húmorinn minn...og konur á sextugsaldri eru ekki mikið fyrir kaldhæðni eins og hún móðir mín er búin að benda mér á þannig að það sem ég hélt að yrði rosa fyndin comment lét mig bara líta út eins og asna...eins og vanalega...
Stay black

13.2.03

Og hér er ég...

...góðan daginn daginn daginn...annar dýrðardagur drottins kominn eins og lítill fugl sem hvíslar mjúklega í eyra mér....aaaaa...hvað lífið er yndislegt...leikhús í kveld...föndur í gær...og bloggerar farnir að þekkja mig í Veggsport...fyndið hvernig ég held að enginn lesi það sem ég skrifi og því skrifa ég bara það sem ég vil...en sumt fólk sem ég þekki ekki neitt og er að æfa á sama stað les bloggið og maður verður kannski að fara að passa sig hvað maður skrifar...eða..neeee...fuck that shit...

...en já...föndraði mikið í gær því það er svo gaman...var að gera auglýsingar fyrir Monsoon og ammæliskort fyrir Sonju sem er kærastan hans Senior Paulsen...ég og Óli ætlum að kíkja til hennar í ammæli á laugardaginn...rosa stuð...ætlum að hætta okkur í partý til sjálfs félagsliðans...úúúú....en eftir föndrið reyndi ég að klára að horfa á Eddie Murphy Raw sem ég byrjaði á í fyrradag...ég er bara haldin þeim sjúkdómi að þegar ég sé vídjóspólu þá fer ég að sofa þannig að auðvitað náði ég ekki að klára Eddie Murphy...rétt náði...Edddddieeeee...what have you done for me latelyyyyy...sem mér finnst laaaaang fyndnast....a ha ha ha ha...þessi spóla er svo mikil snilld...verð eiginlega bara að klára að horfa á hana um helgina...en ég meina...ég á hana þannig að ég get þess vegna tekið allt árið í að horfa á hana...mouhahahahah...en núna langar mig heavy mikið að fara að sjá Townsendann...meeeen...Sigurjón og co voru að spila eitthvað með honum í gær og deeeem that´s some funny shit...baaa...

...en já...fimmtudagur í dag og flöskudagur á morgunn...súrumjólk í hádeginu og cheerios á kvöldin...
Stay black

12.2.03

Og enn og aftur ISO...

...já...mar verður víst að hafa smá update fyrir þá fáu og meðaumkunarverðu sem lesa þetta og safna glósum....og já Óli..ég veit...voðalega leiðinlegt að lesa um þetta...eat a dick why don´t you...ha ha ha...enníweis...búnað vera róleg ISO vika en það er allt samt á suðupunkti hjá okkur Siggu því þegar er svona lítið að gera þá förum við æ meira að spá í innri manni hjá sumum toppmönnum...tókum einn sérstaklega fyrir í dag og komumst að því að hann er örugglega svona heartbreaker og því er ekki víst að hann haldi toppsætinu...þó hann sé hipp og cool...og tja...já...ekki mikið meira að segja um það...lítið að gerast og ISO í smá lægð...mar virðist bara ekki vera á réttum stað á réttum tíma þegar aðalkaddlarnir eru að geisla af persónutöfrum og gleði því lítið hefur farið fyrir því þessa síðustu daga...þá er helst að föstudagarnir skili árangri...allir kammó og hressir...en það eru náttlega flöskudagar og þá fara sjúskuðu fyddleríiskaddlarnir á stjá ekki satt...en það virðist stíga þeim til höfuðs að vera einn af toppmönnunum...sem er mikil synd....eeeen eitt hefur þá verið athyglisvert að sumir virðast eiga ótrúlegt safn af ljótubarna peysum úr 8.bekk..var einhver magnafsláttur í fermingarfræðslunni í nokkur ár eða? Af tvennu illu er þó skárra að ganga um í flottum bol í 400 ár (sveitt ullabjakk) heldur en að láta sjá sig einn dag í svona ljótubarna peysu...og hananú!
Stay black
Og hérna er...

...fallegasta lag í heimi hjá mér at the mo og uppáhaldslagið mitt af Nocturama með da mazter...Nick Cave...og auðvitað the Bad Seeds...right out of your hand ladies and germs...enjoy..

Please forgive me
If I appear unkind
But any fool can tell you
It’s all in your mind

Down in the meadow
The old lion stirs
Puts his hand ‘cross his mouth
He has no use for words

Poor little girl
With your handful of snow
Poor little girl
Had no way to know

And you’ve got me eating
You’ve got me eating
You’ve got me eating
Right out of your hand

I mean you no harm
When I tell you you’re blind
Give a sucker an even break
He’ll lose it all, every time

The airborne starlings circle
Over the frozen fields
The hollyhocks hang harmlessly
And the old lion yields

And you’ve got me eating
You’ve got me eating
You’ve got me eating
Right out of your hand

Stay black
Og ó mæ god...

...jæja...mother of crap eru orð dagsins...en samt ekki...æjji nenni eiginlega ekki að fara útí það....þá verð ég bara pirr pirr og buhu...og það viljum við ekki hér í dag...eeeen...gaman að því að ég er búnað eignast heila 3 nýja msn vini...sem er obboslega gaman því ég elska msn og msn elskar mig...það sagði það allavega í gærkveldi...ííí...ég gerði líka rosa uppgötvun í dag...sem sýnir eiginlega að ég hef way too much spare time...var sko að hlusta á Follow the leader með KoRn og var að hlusta á All in the family þar sem Jon D og Fred Durst eru eitthvað að kítast eins og maður segir á góðri íslensku og ég fattaði aldrei hvað Jon D segir í endann...en það er...and I´ll lick you little dick mother fucker...alger snilld! Hugljúfur og fallegur texti þar á ferð....

...en guð minn góður...sem færir mig nær topici þessa bloggs...það er svooooo misheppnaður gaur alltaf að lyfta í Veggsport...ó guð ó guð..ég fer alltaf upp eftir squash 3 í viku og lyfti smá og hann er alltaf þar og hann er í svona hommaþröngum bol og hömmaþröngum stuttbuxum og labbar um eins og hann eigi pleisið! Meeeeen...og hann horfir svona á mann og maður veit að hann er annaðhvort að afklæða mann með augunum eða hugsa...ooo hún girnist mig...eða bæði...ullabjakk!!! Mig langar stundum að reka squash spaðanum mínum uppí rassinn á honum...en ég er hrædd um að hann myndi fíla það...
Stay black
Og oooooohhhh hvað það er leiðinlegt...

...að sofa yfir sig eins og ég gerði í morgun...ég svaf yfir mig samkvæmt Lillu tímanum...mætti samt ekkert of seint í vinnuna eða neitt þannig...bara ruglaði Lillu tímanum....sem virkar þannig að ég vakna klukkan hálf sjö og fer í Veggsport og hleyp 4 og hálfan kei eða í 26 mínútur...fer svo í sturtu og kem úr henni svona 25 mínútur yfir sjö og er mætt í vinnuna klukkan 20 mínútur í 8...sem er mjööög þægilegur tími fyrir mig því ég vinn best á morgnana...eeeen í morgunn ákvað Lilla að leika sér aðeins og sofa yfir sig...veeeeiiiii...vaknaði klukkan 7 og rústaði öllum Lillu tímanum og var ekki mætt í vinnuna fyrr en 8...meeen ó meeeen...en jæja...þetta gerist víst...held það sé út af því að ég er ekkert búnað fara úber snemma að sofa í þessari viku...en það mest pirrandi við að koma svona seint í Veggsport er að ég var ekki ein í sturtu...var einhver skinny tall blond með mér í sturtu...ekki með mér með mér kynferðislega heldur bara á sama tíma og ég í sturtu...sem að bömma mig bara smá út...minnti mig á hvað ég er langt frá því að vera skinny tall blond...en jæja...ekkert hægt að gera við því úr þessu...nema einhver vilji lána mér fyrir aðgerðunum...

...fór útaðborða í gær sem var alveg rosalega gaman...ég, Fancy, Katrín, Óli, Svanhvít, Senior Paulsen og Sonja kíktum á Si Senor sem var svona sérdælis prýðilegt...vorum þar til lokunar...reyndar var bara lokað þegar við fórum því við vorum eina fólkið þarna ha ha ha...sem var frekar nice samt...en hérna...manni var bara boðið í ammæli og allt á laugardaginn hjá Sonju...og auðvitað mætum við Óli galvösk í það að vanda...en spurning um áfengsineyslu er ennþá ósvarað...
Stay black

11.2.03

Og íha og andale...

Meeen ó meeen...góður dagur í dag...fékk safnkortið mitt í gær en er ekkert búnað geta notað það...sem er bömmer :(...en bílinn minn hlýtur að verða bensínlaus einhvern daginn í nánustu framtíð þannig að þá get ég byrjað að safna punktum...íha íha andale...

...eeeen...ég hitti stelpu í dag sem útskrifaðist með mér af nýmálabraut síðasta vor og hún er nýkomin frá Malaga þar sem hún var í 3 mánuði í tungumálaskóla...lucky girl...og núna hlakka ég geðveikt til að fara! Baaaa...no puedo esperar un momento más...mig langar að fara núna...í dag...í dag...strax í dag...eeeen ég verð víst að bíða aðeins á þessu landi leiðinda og myglu...en það verður allt þess virði...eftir aðeins 2 og hálfan mánuð...íííí...
Stay black