27.12.04

...Og dagurinn í dag...

...var skrýtinn dagur...af hverju er ekki bara allt lokað? Af hverju er bara annar í jólum en ekki þriðji, fjórði og jafnvel fimmti?

...það var lítið sem ekkert að gera í vinnunni...þurfti mikið til að finna mér verkefni sem var ágætt en leiðinlegt til lengdar...áramótin að skella á og lífið snýst um lítið annað...eins og jólin heltóku allt um miðjan nóvember...ótrúlegt alveg hreint...

...annars las ég Börnin í Húmdölum eftir Jökul Valsson um jólin...veit ekki hvað ég á að segja...ekki er hún slæm en ekki er hún góð...þetta er hryllingur og þegar um hrylling er að ræða þurfa höfundar að hafa ennþá sterkara plott á bak við söguna...og alla bókina var ég að vona og bíða eftir þessu stórfenglega plotti sem Jökull ætlaði að sjokkera með...en allt kom fyrir ekki...hún bara endaði...eins og svo margar íslenskar bækur...bara enda...og mér finnst það ekki nógu gott...en hann á eflaust framtíðina fyrir sér...græðir á því að vera ungskáld...rétt liðlega tvítugur drengurinn...en hann mætti leggja aðeins meira í næstu bók...

...þetta er orðið GOTT...
Stay black - Salinto!

26.12.04

...Og jólin...

...eru búin að vera yndislegt...gjörsamlega yndisleg...ef bara að fríið myndi vara aðeins lengur þá væri þetta fullkomið...vinna á morgun...æi nei...af hverju...

...en ég fékk fullt af flottum gjöfum...og miklu fleiri gjafir en ég gaf frá mér...sem er skrýtið...en það fylgir því greinilega að tengjast inn í aðra fjölskyldu en manns eigin og eiga frábæra ættingja og vera byrjuð að búa...hmmm...þá fær maður líka bara dót til heimilisins sem mér finnst mjög gaman að fá því það er svo gaman að hafa fínt inni hjá sér...svo er maður náttúrulega að safna í stell...ójú...þið lásuð rétt...stell...i´m ninety two years old angus...mamma náði að plata mig í það á þynnkudegi í Kringlunni í fyrra...hræðilegt alveg hreint...

...eeeen ég fékk killer stígvél frá ektamanninum ásamt fleiru...en stígvélin rokka mest...vá hvað þau eru flott...hann kann að velja þetta...reyndar þurfti hann ekki annað en að borga þar sem ég mátaði og tók frá fyrir hann...þessi elska...

...í gær var það jólaboð og í dag eru aftur jólaboð...annað klukkan hálf tvö og hitt klukkan sjö....svo er jólaglögg og popppunktsspilið hjá vini ektamannsins...gaman gaman...maður mætir sem sagt þunnur í vinnuna á morgun..
Stay black - Salinto!

23.12.04

...Og svona í tilefni þess....

...að jólin koma eftir nokkra klukkutíma...nei ég get ekki beðið...þá vil ég birta hér texta af laginu sem kemur mér alltaf í brjálað jólaskap...því ég elska það...

...eeen akkúrat núna er ég samt Waiting for a Star to Fall á heilanum með Boy meets Girl...mæli með því magnaði lagi og ekki skemmtir fallega eitís myndbandið fyrir...bæði boy og girl eru afskaplega myndarleg og gerðarlegar manneskjur...jahérna hér...it feels like waiting...makes me love...moooooore....drama maður...vússj...

...en hér kemur smjörpungurinn Helgi Björs

Gimsteina og perlur
gullsveig um enni
sendi ég henni,
ástinni minni

Öll heimsins undur,
ef ég þá nenni
færi ég henni,
ástinni minni


Lífsvatnið dýra úr
lindinni góðu
færi ég henni
ef ég nenni

Hesturinn gullskór
hóflega fetar
heimsendi að rata,
ef ég nenni

Ég veit ég átti hér,
óskasteina
þá gef ég henni,
ef hún vill fá mig


Ég gæti allan heiminn,
ástinni minni
óðara gefið,
ef hún vill sjá mig

Kóngsríki öll ég
kaupi í snatri
kosti lítið,
ef ég nenni

Fegurstu rósir úr
runnum þess liðna
rétti ég henni,
ef ég nenni

Aldrei framar neitt
illt í heimi

óttast þarf, engillinn minn því
ég er hér og vaki…

Skínandi hallir úr
skýjunum mér svífa
ekkert mig stöðvar,
ef hún vill mig

Í dýrðlegri sælu
dagarnir líða
umvafðir töfrum,
ef hún vill mig

Einhverja gjöf ég
öðlast um jólin
ekki mjög dýra,
sendi ég henni

Ef ekkert skárra
ástand í vösum
á ég þá kort að
senda henni

Ef hún vill mig, ef hún vill mig.

Ef ég get slegið einhvern þá fær

ástin mín gjöf frá mér


Stay black - Salinto!

22.12.04

...Og jahérna hér...

...bara eiginlega 1 dagur til jóla...það er orðið svo áliðið...Þetta er orðið gott...GOTT! Vá sorrí...smá áramótaskaupsfílíngur í gangi...kreeeisí!

...en mig hlakkar voðalega mikið til...fengum jólagjafir í vinnunni í dag...og svo var bókahappdrætti...ég fékk fínar fjórar bækur...segja ekki hvaða ef ske kynni að ég myndi gefa einhverjar í jólagjöf eheheh...

...svo býst ég við að hætta á hádegi á morgun...Þorláksmessu...ég og ektamaðurinn erum eiginlega búin að plana (og þegar ég segi plana þá meina ég mig því ég er voða mikið fyrir að plana hitt og þetta) morgundaginn...fá okkur lunch á einhverju kaffihúsi...rölta um bæinn og njóta lífsins í jólafílíngnum á laugaveginum...helvíti gott að geta bara labbað niðrí bæ...fílaða vel...

...og já...svo bara netið komið heim...víha!

Stay black - Salinto!

21.12.04

...Og jeyyyyj...

...loksins loksins er komið þráðlaust net á Flókann mar...jibbý jey...hæ hó og allur pakkinn...núna get ég bloggað kvölds og morgna því ég er frekar andlaus í blogg eftir hin feykimiklu skrif í vinnunni...

...annars hef ég verið frekar stressuð yfir jólunum síðastliðna daga en í dag hvarf sá kvíði...ég er búin að kaupa allar gjafir, pakka þeim inn, skrifa á jólakort og svo erum við í vinnunni líka búin að vera svo massadugleg að það er lítið sem ekkert eftir að skrifa....gaman gaman...

...en ég fór í skírnarveislu til Óla hjúkku á sunnudaginn og meeeen hvað þessi drengur er sætur...sko litli strákurinn...en Óli svo sem líka...ekki samt eins sætur og Svanhvít hehehe...en drengurinn heitir Friðrik Rafn...það passar rosa vel við hann...gæti ekki hafa fengið flottara nafn...til hamingju strákur og til hamingju ég með netið!
Stay black - Salinto!

7.12.04

...Og ég skal bara segja ykkur það...

...að núna á ég heimsins besta kokk fyrir ektamann...strákurinn er búinn að elda tvo sunnudaga í röð og svei mér þá ef mini-fullnæging hefur ekki skapast við útkomuna...fékk einhverja voðalega fancy kokkabók í gjöf og heimilið mun aldrei verða samt aftur...

...á sunnudaginn náði hann að toppa sig blessaður með kjúkling í sósu með frábæru sinneps- og karríbragði...er að hugsa um að vippa þeirri uppskrift yfir á fisk í kvöld þar sem skammarlegt er hve lítinn fisk ég ét...

...ég held það sér vegna þess að þegar ég var lítil þurfti maður alltaf að klára matinn sinn...hvað sem tautaði og raulaði...ef ég kláraði hann ekki eða vildi hann ekki var hann settur inní ísskáp og ég fékk ekkert annað að borða...en fiskurinn hreyfði sig ekki inní ísskáp þangað til ég gafst upp af hungri og svolgraði honum í mig...ooooojjj...ég fæ hroll við tilhugsunina...

...líka alltaf þegar var starfskynning í frystihúsum bæjarins þá fékk ég velju og ógleði á hæsta stigi aðeins við lyktina af fiski...hvað þá fiskilíkin dreifð út um fiskikörin...ojj bara...

...fiskur mun því alltaf eiga stóran hlut af mér...þó það sé ekki jákvætt...þá hefur honum þó tekist að lauma sér í innkaupakörfuna mína og á minn disk..reyndar mjög sjaldan þar sem ég keypti átta flök í maí á þessu ári og í dag eru þrjú þeirra ennþá inní frysti...
Stay black - Salinto!

6.12.04

...Og...

...ég hef sjaldan verið eins hauslaus og núna um helgina...kræst...ég og Íris þurftum auðvitað að lyfta okkur upp eins og okkar er von og vísa...kíktum á Classic Rock Bar (ekki spyrja) í kveðjupartí hjá Reyni Trausta...þar var hljómsveitin Sólon að spila og til að gera stutta sögu enn styttri þá gerðum við Íris garðinn frægan með þeirri ágætu hljómsveit...og drukkum auðvitað bjór út á DV...hvað annað?

...síðan var haldið á Ölstofuna og eftir þá leigubílaferð man ég lítið meira...nema þegar ektamaðurinn var að reyna að drusla bæði mér og Devito´s pizzu heim sem gekk vægast sagt ekki eins og skyldi...

...eeen svo allt í einu er ný vinnuvika byrjuð og ég búin að eyða helginni í fyllerí og svefn...sem er leitt því næstu helgi þarf ég að vinna...gaman gaman...

...eeen ætli Kristján Jóhannsson sé farinn af landinu...langaði voðalega mikið að hitta karlinn...skulda honum ennþá tvær milljónir síðan hann söng fyrir dauðvona frænku mína eitt sumarið...
Stay black - Salinto!

2.12.04

...Og...

...ég held ég sé að verða blind...get svo svarið það...með einhvern helvítis verk í augunum alltaf hreint..fussumsvei...

...ég held að það sé vegna dansleysis...hef ekki gefið mér tíma í að fríka út og dansa síðan danstímarnir hættu...en 10. janúar byrjar fjörið aftur...jibbýjei!
Stay black - Salinto!

28.11.04

...Og...

...núna er ég að taka upp vídjó uppí vinnu með MC Óla H...Miss Lizzy Erna og Crazy in the brainhouse Írisi...and we´re having fun...reyndar bíðum við eftir hleðslutæki...sem er verra...

...annars var helgin bara ágæt...hard work...var að hjálpa systu á fullu því það var skírn og tilheyrandi veisla í dag í Yrsufellinu...og lita dúllan heitir Glódís Björt...passar henni vel því hún er svo sæt og fín og falleg þegar hún brosir...og þegar hún er úrill...og bara alltaf ;)

...á laugardaginn var manískur smákökubakstur fyrir boðið en afskaplega var ég ánægð þegar mín beið yndislegur kvöldmatur a la ektamaðurinn...og segið svo að karlmenn séu ekki hugulsamir...I´m the luckiest girl in the world...

...í kvöld er það síðan James Bond eins og venjulega...og ég sofna örugglega þar sem ég vaknaði klukkan sjö í morgun...allt í nafni skírnarinnar...
Stay black - Salinto!

26.11.04

...Og ég er...

...enn í vinnunni...en það er fínt...byrjaði daginn á skemmtilegu viðtali...voða stuð...

...en í kvöld er idolið...veiiii...idolið er svo góð ástæða fyrir því að nenna ekki að elda en ég ætla að taka nettan Albert á þetta og fá mér fajitas...jafnvel tortillas eða enchilada...og munurinn á þessu þrennu er? Ég hef ekki grænan grun...en þetta er gott...

...held samt ekki með neinum í Idolinu sem stendur...nema náttúrulega sætu, sætu stelpunni sem vann í síðasta þætt...úff hvernig er hægt að vera svona sætur...ég er reyndar það heppin að ég veit það en ég vorkenni öllum öðrum þarna úti sem hafa ekki hugmynd...og klóra sér bara í hausnum yfir þessari fegurð...svona svona...þetta er bara meðfætt..
Stay black - Salinto!

25.11.04

...Og ég datt inn í...

...Opruh Winfrey þátt í gær...god knows why...held ég hafi aldrei horft á heilan þátt nema fyrir tilstilli eigingjarnra einstaklinga í Veggsport sem heimta að hafa á Stöð 2 í morgnana...mér finnst nefnilega Oprah ein sjálfselskasta manneskja í heimi...þátturinn er eingöngu um hana...usss...

...eeen í gær var frábær þáttur...liðið úr Bridget Jones...Renée Zellweger, Hugh Grant og Colin Firth...úfff...Renée er náttúrulega alltaf eins og hún sé nýbúin að stinga uppí sig súrustu sítrónu í heimi...greyið stúlkan...afskaplega ólöguleg...Hugh Grant verður aftur á móti sætari með hverri mínútunni...váááá...og hann er fyndinn...kaldhæðinn og með milljón trilljón krónu bros...en ég er ekki að kveikja á Colin...hann er reyndar með afskaplega falleg og djúp augu en ég sé ekki þetta sex appeal...ég vil greinilega slæmu strákana...

...on second thoughts...góðu strákarnir láta manni líða vel...þeir hvetja mann ekki til að fara í sjúklega vangefna megrunarkúra né brjóta mann niður vegna útlits...og góðu strákarnir "like us just the way we are"...
Stay black - Salinto!

23.11.04

...Og...

...mmmmm....mér var boðið í dýrindis máltíð í gær hjá Nurse og Whitey...nammi namm...bar litla prinsinn augum sem maður gerir sko aldeilis ekki of oft...voða krúttulegur og líkur foreldrum sínum (samt meira Hvítunni ehheeh)...

...annars er ég búin að sökkva mér djúpt ofan í skemmtiatriði fyrir jólahlaðborð Fréttar með mismunandi aðilum...sem er reyndar mjög skemmtilegt...Íris er með mér í öðru liðinu og þýðir það einungis eitt: Þetta verður eitthvað rosalegt...og flott...og náttúrulega krreeeisí....in the brainhouse sko...ekki in the pain...

...en jólin eru aldeilis komin...brjálaðar jólasíður sem við í deildinni erum að skrifa...ég hef reyndar guðblessunarlega sloppið við mikið af því...ætti ekkert að hafa hátt um það því þá er skellt á mig fullt af jólaverkefnum...mér væri reyndar sama um það þar sem ég elska jólinn...varð mikið debat í koddahjalinu í gær um hvenær ætti að kaupa jólatré...auðvitað vill ég gera það sem fyrst en það er ekki skreytt fyrr en á Þorláksmessu...ég stakk uppá þar næstu helgi...ektamaðurinn hins vegar er á því að gera hluti í stressinu...ekki tímanlega...og kaupa jólatré á Þorláksmessu...er það? Neeei...ég held ekki...þá verða bara öll góðu trén uppseld...og það er ekkert gaman...

...en ég er byrjuð í nammibindindi...ég borðaði ekkert nammi frá mánudeginum 15. nóvember og þangað til í gær...hipp hipp húrra...svona verður þetta framvegis...nammidagur á mánudögum...sem er sniðugt því þá borðar maður minna nammi en um helgar...og besides...ef ég hef nammidag á laugardegi þá teygir hann anga sína í báðar áttir...föstudagskvöld og allan sunnudaginn...ójá...þetta er allt úthugsað...
Stay black - Salinto!

22.11.04

...Og...

...helgin var dásamleg...ég fór ekkert á fyddlerí eða neitt...maður verður eiginlega að prófa þetta oftar...sofa út og vakna endurnærður...ekki með hausverk eða bömmer eða milljón missed call á símanum frá fuddlum vinum sínum...

...annars var ég að vinna allan sunnudaginn sem var svo sem ágætt...segi það ekki...hefði getað verið verra...slapp allavega við að tala við allar sætu löggurnar á landinu...sem er plús...ú beibí...

...en í dag er ég ekki búin að borða nammi í viku og því er nammidagur...og svo heppilega vildi til að Brynhildur fékk sent fullt af Mackintoshi...veeeii...dagurinn er búinn að vera góður en ég saknaði nammisins ekkert svakalega...mér líður mun betur í munninum til dæmis...maður verður alltaf svo morkinn í munninum af of miklu nammi...

...eeen í kvöld er það lasagna og hvítlauksbrauð hjá Óla hjúkku og spúsu hans...mmmm...verður örugglega eitthvað magnað...sleppi dansi og horfi á Survivor með þeim...þetta er sannarlega dagur syndanna...
Stay black - Salinto!

19.11.04

...Og í dag...

...birtist fyrsti pistillinn eftir mig í Fréttablaðinu...ég neita því ekki að ég fékk sting í magann þegar ég skrifaði hann og þorði varla að skila honum inn...hve margir lesendur segirðu? Jááá...hundrað þúsund...ekkert mál...en mér fannst gaman að skrifa pistilinn...vonandi fannst einhverjum gaman að lesa hann...vonandi fæ ég að gera svona aftur...

...en í dag fór ég líka í jarðarför en móðir besta vinar míns var lögð til hinstu hvílu...sorglegt en satt...ég (frú grenja) stóð mig mjög vel þangað til ég sá vin minn...þá algjörlega missti ég mig...hef aldrei kynnst öðru eins...ég vildi bara hoppa yfir alla og stökkva á hann og knúsa hann...en gat það ekki...en þetta var falleg jarðarför og greinilegt að margir elskuðu þessa yndislegu konu þar sem mætingin var þvílík...blessuð sé minning hennar
Stay black - Salinto!

16.11.04

...Og ég skil ekki alveg...

...Survivor um þessar mundir...hann er bara ekkert voðalega skemmtilegur...það er enginn sem ber af í hressleiki og almennri gleði og enginn sem ég held með...en samt horfi ég...mánudagskvöld eftir mánudagskvöld...í staðinn fyrir að gera eitthvað pródúktívt þegar ég kem heim úr dansi...

...en já...dansinn...jiddúddamía...hélt ég væri svona ágæt í rútínum en í gær lærði ég dans sem ég bara næ ekki að tengja saman...kræst...eeen það er bara challeng...sem er fínt...það heldur manni við efnið og þjálfar hugann...það er ekkert gaman að gera bara það sem maður getur...maður verður að ýta sér lengra og lengra...íha...

...eeeen helgin var mjög erfið...og ég er eiginlega ekki búin að jafna mig...fékk sting í allan líkamann í morgun þegar ég var að hlaupa sem segir mér að lifrin sé að kvarta...því þvílíkan bjór hef ég sjaldan innbyrt og akkúrat núna um helgina...
Stay black - Salinto!

14.11.04

...Og...

...ég fór í búð á föstudaginn...kaupa í matinn og svona...þið vitið...maður er orðin svo mikil haus frau (nei ég lærði aldrei þýsku því miður)...allavega...þar hitti ég stúlku sem ég hef ekki hitt lengi og fer greinilega vel með sig...alltaf gaman að sjá fólk fara vel með sig...annars kvartaði hún undan bloggleysi hjá mér...og ég samþykkti að það gæti verið meinið sem þjakar mig þessa dagana...I´ve lost the will to blog....aaaa....en ekki hafði ég hugmynd um að þessi unga stúlka læsi bloggið mitt á annað borð og fékk ég því nagandi samviskubakteríu sem er farin að éta sig í gegnum hægra heilahvelið mitt...og því fannst mér ég skulda samfélaginu það að blogga...og blogga mikið...gjörið þið svo vel...

...ég og Íris skelltum okkur á útgáfutónleika Nylon í síðustu viku...í Smáralind...voða stuð...ég trúi ekki ennþá af hverju ég sannfærði Írisi um að fara á þessa tónleika...við vorum þunnar...er það ekki nógu góð ástæða fyrir að fara ekki...en við fengum frímiða...maður má nú aldrei sleppa svoleiðis...eeeen þetta var ekki eins hræðilegt og ég hafði vonað...reyndar áttu dansarnir frekar heima í Tónabæ '94 en á Nylon tónleikum 2004 og stelpurnar hans Einars Bárða tóku þetta ekki á nógu mikilli innlifun...þetta var gert í hálfkáki...þær settu engan kraft í dansana og stundum ekki heldur í röddina sem var miður...svo kom uppáhaldsparturinn minn...þar sem þær völdu sér allar eitt lag sem hafði einhverja sérstaka merkingu fyrir þær og sungu fyrir áhorfendur...en meðal aldurinn var by the way sjö ár..."alvöru" tónlistarmenn velja lög eftir aðra því þau hafa mjög djúpstæða merkingu...hafa komið þeim í gegnum erfitt tímabil eða veiti þeim innblástur eða eitthvað því um líkt...en Nylon stúlkurnar fóru ótroðnar slóðir eins og í öllu öðru og fluttu hvert lagið af fætur öðru sem hafði komið þeim langt í söngvakeppni...væntanlega í grunnskóla...hvað er það?! Jæja...Steinunn litla bjargaði þessu alveg með Dancing in the Street sem var einfaldlega uppáhaldslagið hennar...annars stóð Klara sig best í söngnum og allar stúlkurnar stóðu sig jafn illa á danssviðinu...og ekki hjálpaði tíu ára stelpan fyrir aftan mig sem öskraði píkuskrækjum uppí eyrað á mér og náði algjörlega að eyðileggja Einhvers staðar einhvern tímann aftur...takk fyrir mig...

...en í dag er ég þunn...óvissuferð í vinnunni í gær og þvílíkt stuð og swing...brutumst hér inní Skaftahlíð til að halda partíinu gangandi og skildum við húsið með öryggiskerfið vælandi..ábyrgðin uppmáluð...tókum karókí session á Ölveri og var því hvíslað í eyra mitt að ég væri stjarna kvöldsins...mikið var!
Stay black - Salinto!

1.11.04

...Og bloggedí blogg...

...já...það er ekki mikið af því þessa dagana...þvert á móti...samt ekkert kreisí að gera...just lost the will to blogg...

...enníhús...fór í heimsókn til Óla pabba í gær...oooo þau eru svo krúttlega skötuhjúin með litla prinsinn...Borgar Eirík...hehehe...já...þau lugu að mér að strákurinn ætti að heita það...og þið getið ímyndað ykkur svipinn á mér...vááá...að skýra barnið sitt Borgar Eirík...tvö forljót nöfn sem passa ekki saman...æj æj æj...eeen fljótlega sá ég glitta í bros á litla Ólanum og komst að því við ramman leik að turtildúfurnar höfðu verið að spila á mig...og ég féll beint inní lygavef þeirra og gat ekki losað mig...og jú...I´ve plaged both they´re houses eins og meistari Shakespear hefði gert...

...fékk Nylon diskinn í vinnuna fyrir helgi...og sem betra er...fékk Jón Sigurðsson diskinn líka...veeei...því miður gleymdi ég Nylon disknum heima annars hefði ég komið með textabrot en þau eru vægast sagt hryllileg...mús...krús...lús-stemmingin...og Jón Sigurðsson...vúússj...mér finnst nú einhver sjarmi yfir þessum gaur en vááá hvað hann er væminn!!!! Fíla einhverjar konur svona eða verður hann að einhverri karlrembu þegar heim er komið? Ég bara spyr...ég þurfti actually að slökkva á geislaspilaranum eftir þrjú lög því ég var næstum því búin að æla yfir lyklaborðið mitt...og næsta manni...svo langt hefði ælan náð...In conclusion: Af tvennu illu er Nylon betra...mig hryllir við þeirri tilhugsun að Nylon sé einhvern tímann betra...

...sá Bingó með Villa í gær og uppgötvaði að sætasta systir bestustu vinkonu minnar (ok...sem sagt Iðunn, systir hennar Siggu Völu V) vann flottasta bílinn í síðustu viku...algjör skvísa og bíð ég spennt eftir boði í bíltúr...annars set ég upp fýlukaddl sem er ekki fallegur...

...annars fannst mér Bingó með því skásta í íslenskri dagskrárgerð sem verið hefur á Skjá Einum í laaangan tíma...kannski ekki mikið að keppa við...Landsins snjallasti...Fólk...og Brúðkaupsþátturinn Já...samt...Villi stendur sig með ágætum...fyrir utan hæper aktív stælana...kviss bamm búmm...eeen held ég spili með næst...kannski vinn ég bíl eins og Iðunn...hver veit...

...og talandi um bíla...ég hélt þið mynduð aldrei spyrja...ég og ektamaðurinn fjárfestum í bíl um daginn...grænum Daewoo Lanos '99...já...ég er ekki aðeins húsfrú heldur meðeigandi af bíl...og...og...og...byrjuð að búa for real...já...búnað flytja lögheimili og allan pakkann...this is the real deal...og mikið var segi ég nú bara!¨
Stay black - Salinto!

28.10.04

...Og mér finnst skrýtið...

...að þegar á að kjósa þann mann sem allir telja valdamesta mann heims, og er eflaust valdamesti maður heims, þá mega bara Bandaríkjamenn kjósa...

...er það ekki svoldið twisted?
Stay black - Salinto!

21.10.04

...Og...

...það hefur verið heldur lítið bloggstand á mér þessa dagana...maður þorir nú varla að tjá skoðanir sínar á frjálsum miðlir þegar Vítisenglar og glæplýður ryðst óvænt inná vinnustaðinn manns og tekur mann og annan hálstaki...það er samt eitthvað soldið skemmtilegt við að vinna á umdeildum stað...we mean something...

...enníhús...eitthvað aukablað í næstu viku og ég með tonn af verkefnum sem mér einhvern veginn tókst að skila eiginlega öllu í dag...held að eitthvað æðra máttarvald hvíli yfir mér því ég fór meira að segja út í mat...og skrifa á milljón þess á milli...þess vegna er það sem ég nenni ekki að blogga því ég er eiginlega komin með ofnæmi fyrir tölvuskjánum og lyklaborðinu í enda dagsins...fusss...

...annars bloggaði ég í gær...og sagði ykkur frá afmælisbarni dagsins...í gær...gyðjan hún Sigga Vala V varð X-gömul og við óskum henni til hamingju með það...í gær...

...Iceland Airwaves er víst byrjað...og ég með armband...en algjörlega orkulaus...er að fara að stússast með Írisi í kvöld en reyni samt að komast aðeins út eftir það...reyni kannski að ná Botnleðju eða eitthvað...annars ætlum við Brynhildur ofurskutla með drottningarhárið að nýta okkur boðsmiða á frumsýningu Screensaver með Íslenska dansflokkinum...ó hvað maður er menningarsinnaður...reyni að kíkja á Airwaves eftir það líka en mér til mikillar mæðu missi ég þá af uppáhaldinu mínu, Dáðadrengjum, þar sem þeir byrja að spila klukkan 21.15...poooo...lífið er ekki sanngjarnt...en í sárabætur eyddi ég um hálftíma áðan að hlusta á Bara smá af vefsíðunni þeirra...aftur og aftur og aftur...

...svo ætla ég að reyna að baka um helgina...

...annars er ég aðalskutlan á svæðinu í dag þó ég segi sjálf frá...allavega aðalskutlan í mínum heimi...ó well...ég er kannski engin skutla...whatever...ég er í boots-inum mínum sem ég keypti útí London sem eru killer-flott...svo með loðkraga um hálsinn...einnig frá London...og í fínu, nýju pilsi...jú...frá London...aaaa...ektamaðurinn fékk sko að þjást í stóru búðunum í stóru borginni á stóru eyjunni...mouhahahah...

...klukkan er 18.45 og ég er að hugsa um að stimpla mig út og kíkja á Eldsmiðjuna með Írisi...sem er mánaðarlegur viðburður...og yfirleitt um mánaðarmót...eeen það gleymdist eitthvað í þetta sinn...meeen hvað ég er svöng...
Stay black - Salinto!

20.10.04

...Og...

...ég er orðin ástfangin af þessum stelpum...deeem þær eru góðar...þær minna mig svoldið á Spice Girls í den...bara betri...ó how I love cheap music...

...annars fann ég diskinn minn sem brotnaði með Lost Patrol í London beibí...yeah! Oooo...hann er yndislegur...svo keypti ég mér líka nýjan geislaspilara því sá gamla var bara barn síns tíma greyið...may god have mercy on his soul...

...annars vona ég að allir sem einn taki höndum saman og óski Siggu Völu V grísku gyðju til hamingju með afmælið...ég mun ekki upplýsa aldur hennar hér í beinni því það gæti verið svolítið viðkvæmt...eeen samt ekki...hún er svo dirty...til hamingju skvís og vonandi áttu góðan dag snillingur!

...síðan á ektamaðurinn afmæli á mánudaginn...maður er algjörlega blankur...og svo koma jólin...æ æ æ...
Stay black - Salinto!

14.10.04

...Og eftir...

...um það bil tvo og hálfan tíma flýg ég til London...yeah baby...kem síðan aftur á laugardagskvöld...

...þetta er svo sem ekki skemmtiferð þar sem ég er að fara á vegum blaðsins á ráðstefnu hjá Iceland Express...æ mig auman...þetta er svo erfitt líf...reyndar er alveg heavy dagskrá allan fyrri partinn á morgun og ég þarf líklegast að skrifa eitthvað um þetta...eeeen svo skemmtilega vill til að ektamaður minn er fulltrúi DV á ráðstefnunni og er þetta algjör tilviljun...magnað hvernig lífið getur verið...ó svo fallegt...

...ég efast um að ykkur langi að sjá dagskrá eeeeen mér er alveg sama...here you go...

Fimmtudagur 14. okt.

Haldið til Keflavíkur kl. 13.00 frá skrifstofu Iceland Express að Suðurlandsbraut 24, með brottför kl. 15 (flug AEU151).
Lent á Stansted um kl. 18.45 og haldið yfir á hið nýja og glæsilega Radisson SAS hótel á Stanstedflugvelli, en þar verður gist um nóttina.
Kvöldverður og kynning á því hvað hótelið hefur að bjóða, ekki síst með tilliti til þarfa viðskiptalífsins.

Föstudagur 15. okt.

Kl. 9-12.30
Erindi fulltrúa lágfargjaldafélaganna, fulltrúa BAA Stansted, blaðamanns Flight International og fulltrúa Cambridgehéraðs.
Kl. 12.30-13.30
Hádegisverður.
Kl. 13.45
Haldið inn til London með Stansted Express lestinni, komið kl. 14.30 á Liverpool Street stöðina, sem er í hjarta fjármálahverfisins City. Frjáls tími.

Jammsa jammsa jammsa...ég og ektamaður framlengdum auðvitað...what´s a girl to do?!

...annars fór ég að sjá litla prinsinn hans Óla á þriðjudaginn...ó mææææ gooood en fallegt barn...hann er yndislega fallegur og með mikið dökkt hár eins og pabbi sinn...og mamma þegar hún fæddist...mér finnst hann líkari mömmunni enda ekki leiðum að líkjast en hann er heppinn að fæðast inní svona góða fjölskyldu...eins gott að hann heiti Liljan samt!
Stay black - Salinto!

11.10.04

...Og hann...

...Óli bestasti vinur eignaðist lítinn prins á laugardaginn...rétt fyrir klukkan 18.00...jiddúddamía...vinur manns bara orðinn pabbi...

...ætla kíkja á hann í hádeginu á morgun og held það verði flippað og skrýtið...og kreisí og allur pakkinn...vááá...fólk í kringum mann er barasta að verða fullorðið...ég held að ég verði kannski að drífa í því líka...
Stay black - Salinto!

8.10.04

...Og jahérna...

...hér...ég byrjaði mánuðinn á því að gefa út þá yfirlýsingu að ég ætlaði að spara...það á maður aldrei að gera...

...ég fór í Kringluna í gær og beint í Centrum því það er uppáhaldsbúðin mín...and as it so happens...mjög dýr...auðvitað stóðst ég ekki mátið...tók þrjá kjóla með mér inní búningsklefann og mátaði...en ég náði bara að máta einn því hann var svo flottur og The Dress að ég varð að kaupa hann...alveg opinn í bakið og fleyginn niður á mitti...maður er nú búinn að vera duglegur í ræktinni þannig að maður nær að fela mestan hluta af göllum sínum með beinu baki og hertum maga...oooo...það er líka svo gaman að vera fínn í svona boði...besides...ég get réttlætt þessi kaup fyrir mér því þetta fyllerí verður nánast ókeypis...

...enníhús...keypti líka smá í afmælisgjöf handa ektamanninum en stóri dagurinn hans rennur upp 25. október næstkomandi...jibbý!!

...en núna er það vinna...síðan út að borða í hádeginu og því næst Jónsi, Jón Ásgeir og Björgólfur á Nasa...
Stay black - Salinto!

5.10.04

...Og...

...ég var að sörfa á netinu í gær...gera hápunkt í Fréttablaðið fyrir America´s Nex Top Model og viti menn...serían er búin útí löndum...og núna veit ég hver vinnur :(

...þetta er svo ömurlegt að mig langaði að grenja...hástöfum...oní glas og drekka það síðan...eins og í Cry Baby...snilld...enníhús...ég ætla ekki að upplýsa sigurvegarann þar sem ég vil að fólk njóti einhvers góðs af þessum þáttum...og gamans...ég vildi að þeir væru á hverjum degi þeir eru svo skemmtilegir...

...annars hitti ég Írisi í Smáralind eftir vinnu í gær...mátaði 12.000 króna kjól og núna langar mig í hann...buhu...það væri nú gaman að vera fancy á Norðurljósa-djamminu um helgina...eeen ó well...ætli maður láti ekki gömlu larfana duga...
Stay black - Salinto!

2.10.04

...Og það var hittingur...

...í gærkveldi á Ölstofunni...þar hittumst við Frétt-ingar og ræddum málin fram og til baka...á mjög málefnalegan og akademískan hátt með góðar veigar við hönd og falleg andlit í augsýn...

...Fréttablaðið réði ríkjum en DV lét ekki sjá sig því miður...allavega mjög lítið...sem er frekar leiðinlegt...engin slagsmál eða neitt...fusss....

...Ég og Írisi gátum ekki setið lengi þegar vínið fór að svífa um heilasellurnar og skelltum okkur því á Sólon og tókum Ruslönu eins og okkur einum er lagið...ótrúlegur dans sem lætur mann svitna...ó já ó já...síðan flæktumst við um helstu staði borgarinnar...Celtic Cross...Prikið...Vegamót...and so no...eeeen skynsemi fékk að ráða ferðinni þar sem Íris litla er að vinna í dag frá 9 um morguninn til 17...greyið skinnið...

...annars er megadjamm næstu helgi...Norðurljósa-djamm...í tilefni af því læt ég fljóta með myndir síðan í fyrra...án vafa eitt af skemmtilegustu kvöldum lífsins...
Stay black - Salinto!