23.9.04

...Og það er svolítið skrýtið...

...að vera búin í sumarfríi...sérstaklega þar sem sumarfríið var heill mánuður...ég er frekar lengi í gang og finnst ég ekki eins dugleg og fyrir fríið...en það vonandi lagast með tímanum...ég hef gaman að vinnunni minni þannig að það er í góðum fílíng...

...annars var sumarfríið mitt mjög gott...ég gerði ekki mikið en ég náði að gera alla þessa litlu hluti sem maður hefur ekki tíma til að gera þegar maður vinnur allan daginn og kemur heim dauðþreyttur og segist ætla að gera það um helgina...sem fer svo í sukk og svínerí og almenna leti...

...Í sumarfríinu mínu...

...gaf ég blóð...
...sótti um í leiklistarskólum...
...reif ég eldhúsinnréttingu og málaði ásamt ektamanninum...
...labbaði Laugaveginn og reyndi að kíkja í allar búðir sem ég hef ekki kíkt á...
...fór ég í ljós þegar ég var búin í ræktinni...
...byrjaði ég á dansnámskeiði...
...varð ég veik og horfði á Bíórásina allan daginn...
...tók ég til...
...átti ég ammæli...
...fór ég í sumarbústað...

...ég gerði örugglega margt fleira sem ég man ekki eftir þar sem ég er meira en dofin þessa dagana...lífið var orðið of ljúft í fríinu...vakna klukkan tíu...taka strætó í ræktina...dúlla sér þar...taka strætó heim...borða...fara í göngutúr og horfa svo á sjónvarpið...

...ég er meira að segja orðin sjónvarpsfíkill...ójá...ég kann dagskrána utanað...áður en ég fór í frí var ég með sjónvarpsdagskrána í Fréttablaðinu og samt gat ég varla munað hvenær fréttirnar byrja...nú er ég með allt á hreinu...gott eða slæmt?...æjjj veit það svo sem ekki...frekar slæmt en dagskráin verður skemmtilegri...

...veit ekki af hverju ég er að þessu bloggi...get ekki hugsað skýrt akkúrat núna...ég kveð að sinni...
Stay black-Salinto!

21.9.04

...Og...

...geðsjúklingur Íslands er búinn að bjarga fyrir mér deginum....

...Byrjaði allt með því að ungur ljósmyndari tók myndir af Ástþóri Magnússyni í bíl sínum og litli sækóinn klikkaðist og kallaði á lögguna og hvaðeina...því næst heimsótti hann herra Illuga Jökulsson, ritstjóra DV, og tók papparass-myndir af honum þangað til hann bað hann afsökunar...í dag kom svo lesendabréf Ástþórs í Fréttablaðinu og vakti óskipta athygli allra 100.000 lesenda....eeeen það er ekki nóg fyrir Ástþór...ooo neeee...hefndin er sæt og Ástþór er líklegast sykurfíkill...

...fyrir um það bil tíu mínútum mætir Ástþór hingað uppí vinnu...galvaskur...í körfubíl með rosa myndavél með aðdráttarlinsu og byrjar að taka myndir af öllum hér í vinnunni utan frá...já einmitt...Fréttablaðsmeginn...tók meira að segja myndir af fólkinu í bókhaldinu og auglýsingum...ekki dugaði að tjónka við Ástþóri og segja honum að DV væri hinu meginn því honum var alveg sama...hefndin er sæt...þegar hann var búinn að mynda allt starfsfólk Fréttablaðsins hátt og lágt færði hann sig yfir á DV og þar er hann nú...herra Reynir Traustason kominn út og Stöð 2 með þetta allt í beinni...

...hefndin er sæt...
Stay black - Salinto!