16.8.02

Ræstingarkonan hér er eitthvað geðveik!!!!!!!!! Hún er aftur búnað taka vatnsflöskuna mína!!!!!!!! God damn it all to hell!!!! En ég ætla ekki að pirra mig meira því það er gott lag í útvarpinu....are you in....úvúhúhú....Incubus er snilld!! Snilld segi ég ...
Var að koma úr squash tíma dauðans...og komin aftur í vinnuna....tókum þvílíkt vel á því...alger snilld! Leiðinlegt hvað lítið fólk getur verið leiðinleg...ég er lítil...er ég þá líka leiðinleg? Sumum finnst ég vera fífl...jájá...ég er örugglega fífl...alveg viss um það...ohhh...önnur stelpa í felllunum heldur afmælið sitt á sama tíma og ég! Urrr...þá fara væntanlega allir fellakrakkarnir í hennar...því ég er nú ekkert rosalega skemmtileg...hehehe...
Stay black
Jahá...þetta sumar er aldeilis búið að vera fljótt að líða og er oficially búið því núna voru allir að ná í stundaskrár í FB í dag...úff úff úff..skrítið að vera ekki að fara í skólann....en samt gaman...æji veit ekki...góða helgi
Stay black
Ágæt afþreying ef manni virkilega leeeeiiiðist....
Hey... reif bara í bullandi gangi útí hinum stóra heimi...af hverju kemur það ekki hingað? Bömmer mar...
Váááá....var útí í Kringlu í matnum mínum að redda afmælisgjöf handa Evu og kaupa mér ís og á leiðinni sá ég svo asnalegan gaur á ennþá meira asnalegu hjóli...ef hjól skyldi kalla...hann lá svona á asnalega hjólinu og hjólaði...sem er örugglega hel vont fyrir hálsinn því hann þurfti að halda hausnum uppi til að sjá eitthvað hvert hann var að fara! Heimskulegra tæki hef ég bara hreinlega aldrei séð á ævinni! Ojæja...ég fattaði góða afmælisgjöf handa Evu en auðvitað blogga ég það ekki...ef ske kynni að hún myndi lesa þetta...sem hún gerir by the way aldrei...en þemað er allavega minningar...minningar um mig, gamla tíma, um það sem hún þarf að gera og bara minningar yfir höfuð...og auðvitað það góðar...hef aldrei verið fan að gefa einhverjar þotuliðsgjafir sem eru súper cool heldur finnst mér skemmtilegra að gefa eitthvað sem sýnir að mér þykir vænt um manneskjuna og hef haft eitthvað fyrir öllu saman...hafði þvílíkt fyrir þessari gjöf...reyndar geri það alltaf ef Eva á í hlut...núna þarf ég bara að redda restinni á morgunn og þá er ég sett...nokkuð sátt miðað við þann litla tíma sem ég hafði í þessari viku...
Stay black
Fór útí göngutúr með hundinn minn í morgunn og ég bara verð að segja að mér finnst hann fallegasta vera í öllum heiminum...hann er svo fallegur og fullkominn eitthvað...varð bara að koma því á framfæri hve mikið ég elska þetta litla kvikindi....hehehe...ekki það að hann geti lesið þetta...but hey...it´s the thought that counts...verð líka bara að skrifa svona uppfyllingarefni til að blogga eitthvað...á ekkert líf þessa vikuna...bara vinna vinna vinna...en það lagast allt í næstu viku....þið verðið bara að þola tilganglausa þvaðrið þangað til...
Stay black
Ok ok...mamma og pabbi fóru eitthvað austur í gær og allt í lagi með það...gista bara eina nótt þannig að þau koma heim á eftir...en ég ætlaði að fara að tannbursta mig í gær þegar ég kom ofurþreytt heim úr vinnunni....og þá var ekkert tannkrem eftir!!! Þau tóku allt tannkremið! Are they trying to kill me?!?! Ef það er eitthvað sem ég hata þá er það þegar ég get ekki tannburstað mig...ojjj barasta...það er viðbjóður og manni líður eins og mesta viðbjóð í heimi!
Stay black
Já....ég var bara þakka pabba fyrir þennan hlýhug og vantraust...ég myndi setja fastan link á þig líka ef það tíðkaðist á síðunni minni svo ég gæti nú fylgst almennilega með þér líka góði....

Which Trainspotting Character Are You?

15.8.02

Þoli ekki mómentið þegar mar fattar hvað mar er ótrúlega langt frá staðnum sem manni langar að vera á....
Jæja...þá er það komið á hreint...afmælið mitt verður 7.sept á Gauknum gamla og góða...íha íha andale andale! Núna get ég ekki beðið sko!!! Núna verður mar að fara að gera boðskort því ég ætla að plögga afmælið mitt í afmælinu hjá henni Evu heheheh....sniðug stelpa...sleppi ekki tækifæri til að plögga dauðans sko...
Stay black and shake yer boot-EY
Mmmm nammi namm yndislegur morgunn...fór út að skokka og svo skellti ég mér í sturtu og fann svo linkinn á Radio x á netinu...var beint fyrir framan mig allan tímann...I´m a dumb ass...I know...reyni svo sem ekkert að fela það...ef ég væri að gera það myndi ég þá varla blogga þetta hehehee....og svo eru þeir að spila held ég eina góða lag sem Bavid Dowie hefur gert...Ground control to Major Tom....commencing countdown engines on....la la la...am I sitting in a tin can....snilldarlag...ótrúlegt hvernig þessi maður gat ekki gert fleiri svona lög...kannski átti hann bara einn góðan dag tónlistarlegaséð á allri ævinni...trúi því nú varla...en fólk virðist samt fíla hann í tætlur...kannski er ég bara eitthvað skrítin...held það sé málið...en mesta snilldin er samt að horfa á mynd sem heitir The Labyrinth....svona ævintýramynd þar sem hann leikur vonda kallinn...alger snilld!...hann hefði átt að halda sig við leiklistina...eða nei kannski ekki...hann er líka lélegur leikari...en honum er örugglega slétt sama því hann á nóg af peningum!...kannski er ég bara að dissa hann því í undirmeðvitundinni er ég öfundsjúk útí hann....jááá...gæti verið....
Stay black!

14.8.02

Pæliðíþí...ég er að vinna með bloggdrottningu Íslands og þó víða væri leitað...heehe...þetta átti að vera jafn ömurlegt og Billy Idol dæmið...held að það hafi tekist þokkalega sko...
Tjékkið á þessu strákar....
Jæja...fyrst pabbi er farinn að birta texta þá gat ég ekki haldið aftur af mér lengur...en textinn minn er eftir David Gray og lagið heitir This year´s love...geðveikt flott lag en soldið mellon collie...en ég er einmitt ekki í besta skapinu í dag...þreytt og eitthvað pirruð og langar í boytoy...hehehe...segi svona...Perla veit allt um það...heheh...en allavega...ekki góður dagur og vika yfir höfuð...en það lagast nú allt í fríinu í næstu viku! That´s right...ég fæ frí og örugglega í 3 heila daga!! Gaman gaman...but here´s David Gray...enjoy...

This years love had better last
Heaven knows it's high time
And I've been waiting on my own too long
But when you hold me like you do
It feels so right
I start to forget
How my heart gets torn
When that hurt gets thrown
Feeling like you can't go on

Turning circles when time again
It cuts like a knife oh yeah
If you love me got to know for sure
Cos it takes something more this time
Than sweet sweet lies
Before I open up my arms and fall
Losing all control
Every dream inside my soul
And when you kiss me
On that midnight street
Sweep me off my feet
Singing ain't this life so sweet

This years love had better last
This years love had better last

So whose to worry
If our hearts get torn
When that hurt gets thrown
Don't you know this life goes on
And won't you kiss me
On that midnight street
Sweep me off my feet
Singing ain't this life so sweet

This years love had better last
This years love had better last
This years love had better last
This years love had better last

Jæja...ég held að Katrín hafi tapað pizzaátsgella titlinum áðan í hádeginu...Kristín Hrund væri nýji meistarinn ef hún hefði ekki gefist upp á síðasta sprettinum...þar af leiðir að titillinn er ennþá laus og fyrst hann er það þá sjálfskipa ég mig sjálfa í hásæti pizzaátsins....bara rétt á meðan enginn bætir 8-sneiða-átið hennar Katrínar...
Marilyn Manson er snillingur...

I´m not in love..
but I´m gonna fuck you
till somebody better
comes along...
Urr urr urr...verið að breyta heimasíðunni hjá Radio x þannig að ég hef ekkert getað hlustað á Sigurjóninn minn í morgunn...*snökt*
Mmmmm....það var svo sætur strákur að keyra fyrir aftan mig á leiðinni í squash í gær...nammi nammi namm...ég var að hugsa um að baksýnisspegilsdaðra en svo fattaði ég að þetta er raunveruleikinn og ekki bíómynd eða lífsreynslusaga í Vikunni...þannig að ég hætti við...en hann var drop dead gorgeus...nammi namm....
En mega vikan er líka nammi namm...pizzurnar voru demn góðar sko...og settið var aldeilis ánægt...gott að geta glatt einhvern hérna á þessum ísklumpi...gaman gaman ihihihihi....sorrí...smá svefngalsi í manni...svaf samt yfir mig í morgunn...hafði slökkt á klukkunni en ég man akkúrat ekkert eftir því...það var svo sem ágætt að hvíla sig aðeins...búnað vinna eins og hundur þessa síðustu viku...rosa stuð...og djammað er þess á milli...getur ekki verið hollt...but hey...who cares?! I´m young...ihihihi....wrar wrar wrar...ég held ég segi stopp núna...
Stay black

13.8.02

Yuck yuck yuck og ullabjakk!
Ég ætla að vera svooooo góð við gamla settið í kvöld og bjóða þeim uppá pizzu því nú er megavika hjá Domino´s og ég veit að þau panta aldrei pizzu...og mig langar svo í því mar er svo þreyttur og vinnur mikið og svona...á alveg skilið smá svona nammi namm...ætla að panta einhverja svona kjúllapizzu...því ég eeeelska kjúlla...besta sem ég fæ...og einhverja svona pizzu með eiginlega öllu á...nammi nammi namm...get ekki beðið þangað til eftir squash sko...mmmm...*vatnímunn*
Stay black biatchez
Ég er nokkuð fúl að Nurse Óli er ekki að standa sig í blogginu...hann lofaði okkur Fancy greinagóða lýsingu á ÖLLU á Mallorca og það er hann ekkert að gera sko...nema hann sé ekkert búnað hözzla...trúi því nú tæplega...Karel er nú þarna mar...úff úff úff...allavega...þetta gengur ekki...ég vil fá einhvern djúsí skít til að tala um sko...ekkert tal um sól og bjór og djamm...fussumsvei!
Þoli ekki svona leiðinlegt fólk sem hringir í útvarpið og hefur akkúrat ekkert skemmtilegt að segja...urr urr urr...alltof mikið til af svoleiðis fólki!
Alltaf hressandi að vakna við það að dúndra fætinum í geisladiskastand sem hengur fyrir ofan rúm nokkurt og dúndra tja...svona u.þ.b. 100 geisladiskum niður...mmm...já...sérstaklega þegar mar er búnað vinna allan daginn á undan og er myglaður dauðans og meikar varla að neinn tali við mann...hvað þá að lenda í geisladiskahryðjuverki klukkan hálf sjö....nammi namm..hressti mig nú bara við og fór út að skokka....er farin að taka hringinn á 10 mínútum...þvílíkt stolt...mar þarf bara að fara að lengja þetta eitthvað...eða ekki...ahhh whatever...ég ætla bara að halda áfram núna að vinna og reyna að pirra einhverja miðurskemmtilega bloggara....u know who u r...
Stay black in da hood!
Voðalega tekur fólk saklaust grín nærri sér....

Ertu svertingi Lilja? Ef ekki, hvers vegna skrifar þú þá alltaf "Stay black"?

Hehehe...nibb ég er ekki svertingi...mér finnst ég bara lúkka geðveikt cool þegar ég segi þetta...u see...I´m not a cool person...kannski eru sumir bara bitrir útaf teljaranum...who knows....
Stay black biatches and keep it real...shake your booty and show it!

12.8.02

Jæja komin aftur í vinnunna...ákvað að vinna upp nokkra Costa tíma fyrst ég á hvort sem er ekkert líf eftir vinnu þessa dagana...langar samt þvílíkt mikið í einn bjór á Hverfis núna á eftir en ég efa það að ég eigi nógu mikla róna vini til að koma með mér í það...ó well...en góðu fréttirnar eru að systa lánaði mér gamla símann sinn þannig að ég er ekki símalaus...jibby jibby jeyj...ótrúlegt hvað mar er háður þessu kvikindi...urr urr urr..efnishyggjan alveg að drepa mann...
Stay black
Já...fm hnakkar eru núna orðnir fm hanakambshnakkar...what´s the deal with that...en hvað segir hvort maður sé hnakki eða ekki...ég heyri alltaf lagið „hann fer í ljós tvisvar í viku...." er ég hugsa um hnakka og núna síðast þegar ég gerði svoleiðis þá hugsaði ég...hmm...ok...ég fer ekki í ljós tvisvar í viku en mig langar til þess...ég fer á hverjum degi í líkamsrækt, s.s. reglulega...ég fer reyndar á Hverfis um helgar en ekki Hollywood...en ég er ekki með mynd af bílnum í vasanum...er ég þá hnakki? Er hugtakið hnakki kannski bara tengt fm? Ég hlusta ekki á fm þannig að ég er þá s.s. ekki hnakki? Eða hvað finnst ykkur?....
Stay black
Buhu...síminn minn er farinn í viðgerð...*snökt*...

You are Gonzo!
You're a bit loopy, and many people have trouble figuring out exactly what you're supposed to be. You take pride in your eccentricity and originality.

Úff...gleymdi tveim hápunktum helgarinnar....þegar ég gelti á gaurinn sem gelti alltaf á mig í FB og þegar ég var að reyna að reyna við gaur sem ég hélt að væri spænskur með því að tala spænsku...en svo seinna um kvöldið sá ég hann syngja með við lagið Sódóma...hömm hömm...segjum ekki meira um það...þetta var mönun frá Fancy ...allt honum að kenna...
Var þetta einhvern tímann EKKI á hreinu?

11.8.02

Heimur versnandi fer....
....10 ára stelpa með playboy bunny hálsmen
....2 gaurar að drekka bjór úti á götu...KL. 12.30 Á SUNNUDEGI!!
....Pör í matching lopapeysum
....Stelpur að versla í djammfötunum
....Stelpa í buxum sem stendur bootylicious á rassinum...með mjöööög Ó-bootylicious rass
....Karlmenn einir á vappi í Kringlunni en ekki ekki liggjandi í rúminu mínum þegar ég kem heim á daginn

Já...mikið rétt...þegar ég var búin í annarri vinnunni minni þá fór ég í hina og var allan daginn útí á götumarkaði sem var mjög fínt...rosalega relaxed og gott bara...en man...þar hefur maður alltof mikinn tíma til að hugsa....alltof alltof alltof mikinn...og alltof mikið af sætum strákum...grr....sá Garðar Cortes yngri og hann kemur í öðru sæti sem fallegasti maður landsins...næst á eftir Jóni Gnarr ...grrr...*slef*....en mér finnst frábært hvernig tískan á Íslandi er...fólk þorir alveg að vera eins og það vill og mér finnst það geggjað...tískan er það breið og töff að allir geta verið í tísku...ekki að það skipti máli en það er bara betra heldur er þá ekki litið eins mikið niður á sumt fólk og annars væri gert...sá einmitt gaur í skotapilsi...hann hefur lesið hugsanir mínar því ég held að mér finnist fátt meira sexy en maður í skotapilsi...og auðvitað í engu innan undir....úff...svo sá ég gellu sem var í FB og get ég hér með lýst því yfir að hún er leiðinlegasta manneskja sem ég hef nokkurn tímann séð...og hún var með kærastanum sínum...sem var hunk dauðans nammi namm...en svo ég fylgi hugsjónum mínum eftir í þetta sinn þá segi ég nú aðeins að það er ekki útlitið sem skiptir máli...heldur innri maður og eiginleikar....mar verður bara að gefa fólki sjéns og þegar maður kynnist kannski óaðlaðandi manneskju sem er með stærsta hjarta í heimi þá verður hún allt í einu fallegasta manneskjan í öllum heiminum...æjj já...það heitir að verða ástfanginn..alveg rétt...hehehe....en ég sá einmitt strák í Kringlunni sem ég var einu sinni svo hrifin af að ég var að deyja og hann er bara orðinn eitthvað blob...án gríns þá getur hann varla labbað því hann er svo húga monga stór sko...úff úff úff....og með kærustunni sinni sem er þvengmjó...ótrúlegt...and at the risk of sounding bitter þá er þessi strákur eitt mesta fífl, viðrini og ógeð sem ég hef kynnst og hann veit hver hann er...bumbulíus...ullabjakk...hehhe...allavega...þetta voru nú bara smá hugleiðingar og lýsing á því hvað það er gaman að vera í návígi við svona breiðan hóp af fólki...lífið er yndislegt sjáðu...það er rétt að byrja hér...lífið er yndislegt með þér...
Stay black
The master...Nick Cave ladies and gentilemen...

And I wish that I was made of stone
So that I would not have to see
A beauty impossible to define
A beauty impossible to believe

Snilld...teljarinn er núna 12-12...töööff
Váááá...er að hlusta á Nick Cave núna og allt í einu finnst mér lífið mitt ömurlegt og langar helst að leggjast í sjálfsvorkunn dauðans með Ísaki vini mínum en það kemur ekki til málanna! Að vera hræsnari is not an option...úff...þoli ekki sjálfsvorkunn....sérstaklega þegar mar hefur það nú svona gott eins og maður hefur það...allir sem mér þykir vænt um eru á lífi...er með fína vinnu og þarf svo sem ekki yfir neinu að kvarta...væri ágætt að hafa einhvern heitan, djúsí líkama til að kúra hjá á næturnar en ég nota bara litla sæta Hnoðra í það fyrst ekkert annað stendur til boða..hehehe...og ég get nú bara sjálfri mér um kennt...en allavega...akkúrat núna ætla ég bara að lifa lífinu til hins ýtrasta, láta það koma mér á óvart og reyna að nýta eins mörg tækifæri og ég get....og náttlega get back to work....
Stay black
Já helgin segiði....hún var nett skemmtileg....á föstudaginn fórum við Fancy á Hverfis í kaffihúsastemminguna með öllara og innan skamms komu Toggi, Steini, Gummi Jóh og Valur og settust hjá okkur...þar var lítið talað um annað en tölvur, vinnu og blogg en við reyndum að slaka á í nördaskapnum þegar fólki á næstu borðum var farið að glápa á okkur...seinna um kvöldið komu svo líka Biggi PC...með survival kittið sitt...og Sveppi en ég og Fancy enduðum samt 2 ein á dansgólfinu og hristum okkur þar til rúmlega 4...kvöldið endaði svo í partýi hjá Óla í Fannarfellinu og var ég skriðin heim um 6 leytið...sofnaði samt ekki fyrr en hálf sjö og vaknaði svo klukkan níu og fór í vinnuna...handónýt...svo eftir vinnu á laugardag fór ég heim og bara svaf yfir sjónvarpinu allt kvöldið og beilaði á afmæli hjá Írisi exbestuvinkonu...en um eitt leytið fékk ég sms frá Fancy og hann atti mig til að taka mig til og skella mér á Hverfis...en hann var þar með Gumma Jóh, Togga og einhverju fólki....og aftur enduðum við 2 ein á dansgólfinu...ég er farin að halda að það sé vond lykt af okkur...well...allavega mér...við fórum svo út og hittum Perlu, Beggu, Rósu og Óla á þeim ömurlega og sorglega stað Nelly´s og ég beilaði svo á þeim því ég vildi ekki vera alveg handónýt í dag og fór í háttinn eitthvað rúmlega 4....
Hápunktur helgarinnar: Þegar Toggi reyndi að heilla barstelpuna á Hverfis en það kom eitthvað hálf asnalega út
Vonbrigði helgarinnar: Allt sorglega og miður skemmtilega fólkið sem var á Hverfis á föstudagskvöldið...creepystörugaurar og maricones...
En allt í allt fínasta helgi...hefði viljað sleppa því að vinna en a woman´s got to do what a woman´s got to do...
Stay black
Úff hvað Pearl Jam er þokkalega að bjarga þessum annars ömurlega sunnudagsmorgni...takk Eddie Vedder...you rock my world...
Úff helgin var mjög góð en ég segi frá því þegar ég nenni og hef tíma....er í vinnunni núna sko og fer svo í Kringluna að vinna um eitt leytið...þvílíkt stuð á sunnudegi...gaman gaman
Stay black