16.7.04

...Og jæja já...
 
...er aðeins í smá nostalgíu fílíng í dag...þó ég hafi sagt Bada Bing (sem by the way er hóruhúsið í Sopranos) að það væri ekkert sniðugt að syrgja fortíðina...en þar sem ég er ekki nærri því eins svartsýn og þunglynd og hann þá finnst mér það í lagi...
 
...er að skoða myndir frá Granada þar sem ég fékk ljósmyndabók uppí hendurnar í gær frá Granada...einhver íslensk stelpa sem var að taka myndir þar...ooo jæja...þetta var yndislegur tími og stundum vildi ég að ég væri komin þangað aftur...sérstaklega um daginn þar sem Bettine átti ammæli og ég hringdi í hana...ótrúlega gaman að heyra í stelpunni...
 
...en lífið mitt er náttúrulega frábært akkúrat núna þannig að það er í góðu lagi...er að fara í brúðkaup á morgun hjá frænku minni...fátt jafn sætt...nema kannski fæðing systurdóttur minnar sem mun eiga sér stað þann 14. ágúst næstkomandi...og auðvitað er frænka með fína gjöf í bígerð sem hún er að leggja lokahönd á...en ég auðvitað afneita systur minni ef ég verð ekki guðmóðir eða barnið heitir ekki Lilja...eða bæði...fusss....
Stay black - Salinto!

12.7.04

...Og ég er orðin alveg ómöguleg...

...slúðurkeddling síðan ég byrjaði hér á Fréttablaði...ég og Íris slúðrum og slúðrum og ég er búin að komast að því að það gerir engum gott...nú langar mig bara að slúðra fram í rauðan dauðann...baaa...

...veit til dæmis slúður sem mig langar að setja hér inná en vill ekki...ég ætla að hætta þessu...ég er farin í afvötnun...bæ á meðan...
Stay black - Salinto!
...Og ég fór aftur...

...á Hárið á föstudagskvöldið...

...fékk reyndar að vera hinu meginn við sviðið og læðast baksviðs að fylgjast með action-inu...og djöfull var það gaman...samt leiðinlegt í leiðinni þar sem mig langaði bara að vera með þeim uppá sviði...að leika...ooo...is this what I´m meant to do...I think so...

...ennníhús...þó ég hafi bara heyrt í sýningunni þá varð ég ennþá meira skotin í sýningunni og leikurunum...þau eru ótrúlega krúttleg og sæt...og bara best...

...eeen helgin var annars nokkuð góð...fékk blóm, ostaköku og sæt skilaboð...hvað getur maður beðið um meira en að vera ástfanginn upp fyrir haus og í helgarfríi...held það sé lítið sem ekkert...
Stay black - Salinto!