18.6.03

...Og úff...

Já það er erfitt líf hér á Spáni...ekkert nema taumlausar veislur og fullt af góðum mat...veit ekki hve lengi ég gæti þolað þetta ef ég væri ekki að fara bráðum sveimérþá...

Síðustu dagar eru búnir að vera soldið of mikið af því góða samt en jæja...here it goes...mom and dad...be proud...

Á mánudagskveldið skellti ég mér í killer svarta kjólinn minn og við Bettie og Dan kíktum yfir í partíið til Marco og Trish...þar var allt stappað af skemmtilegu fólki...sérstaklega breskum strákum þó sem ég fílaði í tætlur því þeir virðast geta metið kaldhæðnina mína eins og enginn annar...gaman að því...þó voru líka nokkrir Spánverjar þarna og auðvitað reyndi maður að tala við þá til að æfa sig soldið...svo eftir mikið partístand kom löggan og lokaði partínu fyrir okkur...almennilegt af þeim...þá var stefnan tekin á Hannigans og þar var náttlega líf og fjör eins og vanalega og White Russian var tekinn á stemminguna...þakkir kveldsins fær barþjónninn On Bon Jovi fyrir að bjarga mér í þeim málum þó að enginn væri rjóminn til...síðan var stefnan tekin á Granada 10...sumir áttu erfitt með gang þannig að ég vippaði einum Bretanum upp á bakið og var eins og lítill íslensku bíll í smá tíma...og nota bene að Bretinn er nokkrum árum eldri en ég og frekar sterkbyggður þannig að þetta var enginn barnaleiku...langt því frá...eeeen fíflin á Granada 10 vildu ekki hleypa okkur inn snobbhanarnir...held það hafi verið út af því að við vorum 2 stelpur með 20 strákum en þeir vilja hafa það akkúrat hinsegin...þá skelltum við okkur á ömurlegasta diskótek í heimi sem er Vogue...fyndið því við vorum þar á sunnudag og gátum ekki talað um annað nema hvað það væri ömurlegt eeeen svo var stefnan tekin þangað aftur...snillingarnir við...en það var fínt á Vogue því við vorum í svo skemmtilegum hópi og það er nú fyrir öllu...eftir Vogue var sko langt frá því að við vildum hætta partístandinu þannig að við kíktum eiginlega öll bara aftur heim til Trish og Marco og spiluðum drykkjuleiki og horfðum á Pulp Fiction...held ég hafi farið að sofa um 9-leytið en ég vaknaði svo um hádegisbilið og það var ekki þægileg tilfinning sem fór um mann þá ehehe...en maður staulaðist á lappir og kláraði að horfa á Pulp Fiction og sleppti skólanum þann daginn....

Í gær fórum við Chiara, Ana, Michel og Bettie svo í smá Road Trip uppí Las Alpujarras þar sem við heimsóttum nokkra litla bæi eins og Lanjaron og Capeteila (er ekki viss hvort þetta sé rétt nafn...eitthvað í þessa áttina)...það var nú hálf dauður bíll þar sem við Bettie vorum nettónýtar og Michel bílveikur ehehe...en það var gaman samt...svo um kveldið fórum við út að borða með brasilískri stelpu og Sebástian...eftir það vildu stelpurnar fara heim þannig að ég fór með Sebástian og vinum hans, gaur frá Ísrael, gaur frá BNA og stelpu frá Þýskalandi að ná í hljóðfæri og við sátum á einu torgi og spiluðum og sungum...eða gaurinn frá Ísrael spilaði og söng lög frá Suður Ameríku því hann eyddi einhverjum 2 árum þar...síðan kom fólk einmitt frá Suður Ameríku og söng með og þar sem ég var eina manneskjan frá landi sem enginn þekkti þá þurfti ég að syngja fyrir þau á íslensku...og ég náttlega leisti það meistaralega vel af hendi og söng fyrir þau gamla Vegbúann eftir KK...svo rúmlega 3 slitum við tónleikunum og maður skellti sér heim í bælið...

En núna í dag og næstu tvo daga er enginn skóli hjá mér því það er feria hér í Granada sem heitir Corpus Christi og það er voða djamm í kveld...ég og Bettie ætlum auðvitað að kíkja því hún er náttlega líka í fríi...þannig að það er lööööng helgi núna...gaman gaman...en núna fer þessu víst að ljúka hér í Granada sem mér finnst ógeðslega sorglegt...en svona er etta víst! All good things must come to an end...

En hafið það gott fólk og haldið áfram að brosa ;)
Stay black - Salinto!

16.6.03

...Og jæja já...hér er ég lent aftur á internetkaffi...gaman gaman..

Helgin var alveg sérdælis prýðileg...takmarkinu var náð...að gera akkúrat ekki neitt...

Á föstudaginn fórum við á flamencó sýningu við Bettie og það var nú meiri fjandans snilldin!! Staðfesti bara allt sem ég vil læra sveimérþá...nú veit ég að ég vil ekki sitja í áhorfendaskaranum heldur vil ég vera uppi á fokkín sviðinu (afsakið orðbragðið)...en já...við gerðum svo ekkert eftir sýninguna því Bettie þurfti að vakna eldsnemma á laugardaginn og keyra til Malaga...

Á laugardaginn vaknaði ég um 11-leytið og skellti mér í smá búðarleiðangur því mér langaði í ný föt...ég kíkti í Zöru ekki með gott hugarfar því svo virðist sem ég sé of bústin fyrir þá búð en viti menn..mátaði líka svona sætan kjól og hann passaði...og ég keypti hann...og hann kostaði bara 2000 kaddl...alger snilld! Síðan rölti ég mér yfir í Corte Inglés og keypti mér 3 DVD myndir (The mexican, Dirty Dancing og Zoolander) bara út af því að ég ætlaði sko að liggja allan daginn og horfa á DVD...og það gerði ég ...og það var aldeilis ljúft...nema hitinn hérna er alveg killer núna...á kvöldin um miðnætti er 30 stiga hiti...mér finnst þetta ekki fyndið...alltaf sveittur og sætur hér...nammi namm...já...ég bara lá uppí sófa og gerði ekki neitt og planið um kvöldið var að fara í partí til íslensku stelpnanna eeeen í staðinn fór ég út að borða með Önu og Chiaru á mexíkóskum stað og hitti svo Michel og Connie "kærustuna" hans eftir það og við settumst á lítið jazz café...og það sem virtist stefna í mjöööög rólegt kvöld endaði með ósköpum...kíktum á chupeteríu sem er staður með skotum...100 mismunandi tegundar og við tókum einhver 8 eða 9..ég og Michel skelltum okkkur uppá borð og dönsuðum og hvaðeina og fengum náttlega frítt skot fyrir það...svo kíktum við yfir á Hannigans og þar hitti ég David Hasselhoff og hann var í góðum fílíng...síðan röltum við yfir á diskótek sem heitir Sugar Pop en þar sagði Connie stopp og fór heim en auðvitað héldum við Michel áfram...og tókum tequila og bjór á þetta...og eftir mikinn dans slokknaði á greyið Michel og ég tók við móðurhlutverkinu..fór með hann út og hélt hárinu á honum meðan hann ældi og spúði og grét greyið...og ég bara nett á því fann ekki fyrir neinu eftir ósköpin...enda víkingur!! Ég sendi svo Michel heim í leigubíl og var komin hemi um 7-leytið...algert snilldarkvöld...annað af 2 bestu kvöldunum!

Á sunnudaginn vaknaði ég svo í sjúklega hitanum og mér hefur sjaldan liðið svona ógeðslega illa...ullabjakk! Rétt náði að staulast útá Burger King (5 mínútur) og aftur heim og þar hreiðraði ég um mig í sófanum með jalapeno poppers og DVD...þannig leið sá dagur...svo um 22-leytið hitti ég Önu, Chiaru, Michel og Sebástian og við fengum okkur tapas...og ís...voða gott...gerðum mikið grín af matseðlinum á tapas barnum því hann var það stór að hann var sko með efnisyfirlit...alger snilld...quick index!...greyið Michel var ekki alveg að meika lífið...krúttið mitt...eeen svo kom Bettine í bæinn um miðnætti og við kíktum auðvitað á Hannigans og í fyrsta skipti í langan tíma þekkti maður hálfan staðinn...Súmó glímukappinn, Zara (Jeff), Luis, Jon Bon Ovi, Bandana guy og gaurinn sem talar dönsku voru þarna allir...og svo komu Pieter og vinir hans og við settumst hjá þeim og gerðum mikið grín því þeir eru algerir snillingar! Alveg sniðnir að mínum húmor þessi strákar...brillíant! Klikkuð stemming! Svo þegar Hannigans lokaði fórum við á diskótek sem heitir Vouge og vorum þar þangað til klukkan var að ganga 6...þá fórum við öll heim að ná í dínu sem Pieter henti fram af svölunum og náðum svo að vekja allt hverfið með klassískum tilvitnunum úr Zoolander...Hansel..he´s soo hot right now! Snillingar upp til hópa!

Og talandi um snillinga þá er einmitt planið í kveld að fara í partí með þessum snillingum og mörgum mörgum öðrum...þá verður maður nú í nýja fína kjólnum sínum sveimérþá...

En núna er það bara heim og borða eitthvað og svo bara DVD held ég...maður verður að æfa Zoolander lúkkin fyrir kveldin..Tigre, Ferrari , Blue Steal, Magnum.....

Stay black - Salinto!