13.6.03

...Og helllúúú....

Jæja...maður situr hér á internetkaffi eins og alltaf því ég er víst með einhverja kynningu í tíma eftir klukkutíma og ég var ekkert búnað gera fyrir það...ekkert stór kynning...er með tveim öðrum stelpum í þessu verkefni um latino dansa...ég valdi náttlega salsa....á bara að vera stutt og laggott þannig að þetta er frekar easy...

Eeeen á miðvikudaginn kíktum við Bettie náttlega út á lífið og náttlega fórum við á Hannigans og síðan var kíkt á Granada 10 diskótekið og það var ótrúlega gaman verð ég að segja þó að tónlistin hafi ekki verið uppá marga fiska...komum heim um 7-leytið og svo var vaknað um 11 og farið út að skokka...alveg að gera sig skal ég segja ykkur...klikkuð stemming!

...Í gær gerðist soldið merkilegt...Lillan gerði soldið merkilegt...jáááá...ég ákvað að taka eitt skref fram á við í þessari tækniþróun í heiminum og hætta að lifa í fortíðinni...let´s face it...engum finnst gaman að nostalgíu fólki...jú...mikið rétt...ég keypti mér DVD spilara...baaaa...gerði það nú mest út af því að mig langaði að horfa á myndir með spænskum texta og spænsku hljóði þegar ég kem heim svo maður gleymi nú ekki alveg öllu alveg strax...en spilarinn kostaði um 6500 íslenskar...held að það sé nú bara vel sloppið...keypti svo 3 myndir (Moulin Rouge, The Beach og The art of war), 2 pör af inniskóm og 2 smint og þetta kostaði allt saman um 11000 kaddl..ég elska að lifa í þessu landi..magnað...eeeen svo kom ég heim og það vantaði náttlega kapal í kassann minn þannig að ég þarf að fara aftur á eftir með henni Bettie á bílnum og fá kapalinn minn svo maður geti nú eytt helginni í dvd gláp...en eftir búðarferðina kíktum við út í tapas með Emily og þegar hún þurfti að fara þá kíktum við uppí Albaicín til Michel og fórum með honum á Plaza de la Trinidad til að hitta herbergisfélaga hans, stelpu frá Frakklandi, stelpu frá Þýskalandi og svo vin þeirra frá Granada...við kíktum á rosa kósí bar og spjölluðum heilmikið...svo fórum við Bettie í Salsero mayor til að kíkja í eitthvað salsa partí...það var ekki mikil stemming þar þannig að við kíktum á BMC til Chiara og Sebástians og það var ekki mikil stemming eins og venjulega en góð tónlist þannig að maður gat aðeins hrist sig...svo komu Michel og gengið þangað en það var ekki mikið partí stand þannig að við Bettie flúðum yfir á okkar annað heimili Hannigans...og auðvitað hitti maður þar fullt af fólki sem maður þekkir...Luis, Marco, Ïslensku stelpurnar (Klásen og Gudrúnu), Mark og yndið hann Francés sem við erum ekki búnar að hitta heillengi en hann bauð okkur í kveðjupartíið sitt sem er í kveld...aldrei að vita nema maður láti sjá sig...við enduðum svo kvöldið á því að fara á Camborio...þar hittu við hollenska strákinn sem ég man ekki hvað heitir og héngum bara með honum...ágætiskveld...snillingur kveldsins er the son who never made it Julio Iglesias jr. sem reddaði okkur frítt inn og fram fyrir röðina inn á Camborio..hann er dúlla litla greyið...vorum komnar relatively snemma heim eða um hálf 6 leytið...

Í dag er svo planið að fara og ná í kapalinn...kíkja í eina voða fína fatabúð...kíkja út að borða á mexíkóskan stað hér í nágrenninu og fara svo í leikhús að sjá flamenco sýningu...get ekki beðið eftir því...en fyrst er það skólinn og kynningin....wish me luck!! Espero que vaya muy muy bien!

En hafið það gott og megi æðri máttur geyma ykkur...
Stay black - Salinto!

12.6.03

...Og smá pínu mont...

Ok...verd bara ad monta mig adeins...fór á skrifstofuna hjá skólanum ádan til ad borga smá og fá einkunnina mína fyrir sídasta kúrs...og ég fékk 8,5!! Úje...thad borgar sig sko ad fara bara til Córdoba med skemmtilegu fólki...koma aftur seint um nótt og vakna svo í prófid og hafa akkúrat ekkert laert! Lifi letin! Lifi Lillan!
Stay black - Salinto!

11.6.03

...Y buenos días!...

Jæja...hér sit ég á internetkaffi eins og venjulega að skrifa þetta spamm sem verður nú soldið þunnt í þetta skiptið en ef ég skrifa ekki þá gætuð þið kannski haldið að ég væri bara týnd...en ég er ekki týnd...ég er hér...hola hola...klikkuð stemming!

Ó well...ekki mikið búið að gerast síðustu daga...síðustu 2 daga er ég búnað vakna um 11-leytið og hef farið út að skokka og síðan heim að gera magaæfingar...rosa stuð...ég er nú meira að gera þetta svo maður sofi ekki til 13.00 eða eitthvað...því það er sko meira en auðvelt í þessum hita...og að skokka í 35 stiga hita...meeeen það tekur það alveg úr manni...það er einhver hitabylgja hérna núna og það er stundum óbærilegt bara að labba um borgina...en maður lætur sig hafa að skokka í hálftíma eins og maður gerði á litla Íslandi...aðeins að koma forminu aftur upp þó það gangi ekkert alltof vel...maður tekur bara harkalega á því þegar maður kemur heim...

Eeeen í gær þá fór ég í smá inter cambio með vini hans Ash...Sylvain frá Frakklandi..hann er búnað búa hér í 2 ár og talar perfect spænsku...þetta átti reyndar að vera intercambio með frönsku og ensku eeen svo töluðum við bara spænsku allan tímann..heheh..en við hittumst kannski aftur og þá reyni ég að böggla einhverju útúr mér á frönsku...get líka æft mig á Michel því hann er að læra frönsku hér...voða stuð...svo fór ég heim til Bettie sem var sofandi litla dúllan og við fórum að undirbúa mat því við buðum Chiara og Michel í pastasalat sem var snilld vægast sagt...en svo þurfti Michel að fara heim til að læra frönsku þannig að við Bettie og Chiara fórum á Puerta Real og hittum Önu Sylviu og Sebástian og fórum til vinar hans uppí Albaicín sem átti ammæli í gær...sátum þar nokkur og spjölluðum (á spænsku auðvitað) og drukkum Alhambra bjór...svo kom eitthvað par með fiðlu og flamencó gítar og spilaði og söng þangað til nágrannarnir fóru að kvarta...þá drifum við okkur heim og vorum komnar heim um 2-leytið góðu stúlkurnar og þá var bara sest niður með góða bók...voða kósí..

...Í dag er svo planið að fara í vídjósalinn eftir tíma og horfa á mynd...ég er að hugsa um að horfa á Amores Perros þó hún sé endalaust löng...svo ætlum við Bettie að rölta í Corte Inglés að athuga með miða á flamencó sýningu og ég ætla líka að athuga með verð á DVD spilara...og kannski kaupa mér geisladiska eða eitthvað sniðugt...bara njóta lífsins og njóta þess að þurfa ekki að gera rassgat í bala hér...

Hafið það gott...kosss og knúþþþþþ
Stay black - Salinto!

10.6.03

...Og flaaa...

Jaeja...thá er madur kominn aftur til Granada eftir góda afsloppunarhelgi í Benalmádena...klikkud stemming thad! (Fyrir thig Láki)

Dagurinn í gaer fór í hangs vid sundlaugina og svo reyndum vid ad éta allt sem vid áttum í ísskápnum...thad gekk ekki alveg og thví skildum vid fullt eftir...minna má thad nú varla vera fyrir hina yndislegu foreldra Bettie.

Verd ég nú ad segja ad vinkonur hennar Bettie voru ekki snidnar ad mér en fínar voru thaer samt..eeeen thad var ágaett ad sjá thaer fara í morgun thó thad sé ljótt ad segja thad...en Bettie fannst thad fínt líka ehehe...soldid mikid ad eyda med theim 24 tímum á dag...alla daga...en gaman ad theim og haegt var ad hlaegja ad theim blessununum...

Ég er ekki frá tví ad madur sé búinn ad taka smá lit barasta...alger paeja...vííí...svo tekur madur adra svona strandarhelgi helgina fyrir flugid til Danmerkur thannig ad madur kemur brúnn og saetur thangad...madur er nú farinn ad hlakka mikid til ad sjá hana Evu bestuvinkonu...thad verdur brjálud snilld!!

En ekkert er komid plan fyrir thessa viku...ég kannski byrja í inter cambio og svo er náttlega thessi eini tími á dag í skólanum hehehe....rosa fjor... núna er ég bara ad bída eftir tíma og eftir tíma fer ég svo á pósthúsid ad senda ammaelisgjof til hennar systur minnar sem átti einmitt ammaeli í gaer...homm homm...klikkud stemming og snilld thad !

Í kvold er thad svo Hannigans thví vid Bettie erum búnar ad búa saman í 5 vikur...úúú...ég er búnad vera hér í 5 vikur...ótrúlegt en satt...og ég var ad fatta ad ég kem ekki heim fyrr en eftir rúmlega 2 mánudi...djofulsins snilld er thad og thví verdur thetta ferdalag adeins lengra en ég bjóst fyrst vid...lýst vel á thad enda skemmti ég mér vel...

Eeeen best ad skella sér úr tolvunni og í raunveruleikann...

Heeey...ég er búnad laera fullt af hollenskum ordum og meira ad segja ljód á hollensku...ég get bara naestum thví haldid uppi samraedum á hollensku sveimérthá...
Stay black - Salinto!