21.7.05

...Og nú...

...skýst maður til Vopnafjarðar í smá sumarfrí til að heimsækja tengda ömmu og afa...það verður voða stuð...

...en það þýðir samt að þessi helgi verður fyrsta djammlausa helgin síðan einhvern tímann í febrúar...sem er svo sem í lagi...held ég...maður getur þá allavega slakað á eitthvað...

...en ég er farin út á land þar sem ekkert net og lítið símasamband er...wish me luck...
Stay black - Salinto!

20.7.05

...Og þar sem fáir...

...virðast hafa lesið lygaBlaðið í gær þá fylgir hér með klausann sem svetir mannorð okkar Írisar...

Bls.2 í Blaðinu þriðjudaginn 19. júlí

Stolnir bananar?

Nýr flötur málsins kom svo upp á dögunum, en hann snýst um hugmynd að sjónvarpsefni, sem kynnt var fyrir Helga S. Hermannssyni skömmu áður en hann færði sig af Skjánum til 365 miðla. Þær Þórdís Filipsdóttir og Rósa Guðmundsdóttir komu til fundar við Helga með hugmynd sem þær nefndu “Drög að gríni – Uppfyllingarefni fyrir Skjá Einn” og létu þær stöllur dæmi fylgja á myndbandi. Meira f´rettu þær ekki af undirtektum fyrr en þátturinn “Bananas” hóf göngu sína á Sirkus. Hann er að sögn byggður á hugmyndum þeirra, án þess að haft hafi verið samráð við hina upphaflegu höfunda eða Skjá 1. Þar á bæ var gerð leit að kynningarskjalinu og upptökunum, en hvorugt hefur fundist af þeim gögnum, sem Helgi skildi eftir sig. Magnús Ragnarsson, sjónvarpsstjóri Skjás 1, vildi ekki tjá sig um málið á annan hátt en að lögbannið lægi fyrir. “Þá gerir maður ráð fyrir að því sé fylgt eftir, en manni sýnist nú frekar að verið sé að hafa úrskurðinn að háði og spotti.”


Stay black - Salinto!

19.7.05

...Og ég ætla ekki...

...að eyða meira púðri í það sem stendur á síðu 2 í Blaðinu í dag...greinilegt að þar er stunduð einhliða blaðamennska og helber lygastarfsemi...

...ég og Íris stálum ekki neinu and that´s that...punktur...
Stay black - Salinto!
...Og alltaf...

...þegar ég vakna læt ég á Snooze...sem er þýtt sem blundur í símanum mínum...

...en á hverjum einasta morgni finnst mér eins og síminn minn sé að spyrja mig hvort ég vilji gera BRUND virkt...en ekki BLUND...magnað...
Stay black - Sailnto!
...Og eftir...

...fjögurra tíma nætursvefn plús hálftíma dott í bíó þá ákvað ég að skella mér á Snoop á sunnudaginn með Svömpu Gumm og Írisi Huuuuggie...

...mig langaði ekkert sérstaklega á þessa tónleika...hélt að þetta yrði frekar leiðinlegt Gangsta Rapp sem ég hefði ekkert gaman að...en hugsaði líka til Duran tónleikanna þar sem ég var álíka bjartsýn en endaði á því að öskra og syngja manna hæst...þó ég kynni enga texta...

...og auðvitað brást Snoop mér ekki...um leið og ég heyrði lagið P.I.M.P sem hann gerði með 50 Cent féll ég í trans og komst í stuðið...þó ég hafi alltaf hatað þetta lag þá er ég búin að vera að söngla það síðan...við vinkonurnar gátum ekki stillt okkur og tróðum okkur fremst og á tímabili gátum við þefað af Snooparanum í köflöttu gardínunáttfötunum sínum...mmmm...og lyktin var góð enda algjör snillingur þar á ferð...

...þegar lagið Beautiful ómaði hélt ég að allt myndi tryllast og ekki síður þegar Drop It Like It´s Hot byrjaði...algjör snilld...

...það er ótrúlegt hvað Snoop er mikill töffari...hann hefur egó á við fimm hundruð unga sveina og þarf ekki meira en að dilla rassinum til að æsa áhorfendur...svo lét hann áhorfendur náttúrulega kyrja nafn sitt og fékk greinilega ekki nóg af því að fá lof fyrir sitt...yndislegt...

...í gær var ég með Beautiful, Drop It Like It´s Hot og Who Am I? (What´s My Name) á repeat...held að það stefni í það sama í dag...

...Ain´t No Party Like A Snoop Dogg Party But A Snoop Dogg Party Don´t Stop...
Stay black - Salinto!

17.7.05

...Og ég veit ekki...

...hvað ég á að segja...eeeeeen...

...djöfull var Iceland Fashion Week ömurleg...
Stay black - Salinto!

15.7.05

...Og djöfull...

...er helgin þéttskipuð maður....vá...

...á eftir er það Örlagaeggin með ektamanninum til að styrkja Hössa elskuna...því næst á Gaukinn til að sjá Badda spila með Jeff Who? sem hita einmitt upp fyrir Franz Ferdinand...það verður gaman enda þeir bæði sætir og góðir...

...á morgun eru það síðan upptökur hjá Bananas allan daginn...og síðan eitthvað snobbteiti fyrir Iceland Fashion Week og sjálf sýning þar sem ég og Íris Huggie ætlum auðvitað að djamma feitt með Amber úr Bold and the Beautiful enda algjör snillingur þar á ferð...

...á sunnudaginn er rólegt um daginn vona ég og síðan meistari Snoop um kvöldið...

...ég sem ætlaði að hanga og horfa á vídjó...ó well...
Stay black - Salinto!

12.7.05

...Og það var hringt í...

...gemsann minn áðan og spurt eftir Ásthildi Helgadóttur...ég saup kveljur og hélt í augnablik að ég hefði vaknað upp sem besta fótboltakona Íslands...

...en allt kom fyrir ekki...þetta var bara rangt númer...
Stay black - Salinto!
...Og ég er búin að...

...bera þann draum í brjósti mínu í nokkrar vikur að vera ljóshærð...

...er það málið?
Stay black - Salinto!

11.7.05

...Og ég kom fram...

...hálfnakin í sjónvarpinu áðan...það er skrýtin tilfinning...but anything for a laugh...

...annars er ég bara ástfangin...var svo sem ekki að fatta það fyrst núna en það er alltaf gaman þegar maður situr með sjálfum sér...hugsar um lífið...og fær fiðring í magann...og það er ekki bara út af karríkjúklinginum sem ég hámaði í mig með Evu litlu...

...lífið er bara nokkuð fokkíng frábært...og djamm allar helgar...ég vil að sumarið endi aldrei...

...reyndar vil ég að það endi akkúrat núna því það þýðir að ég þurfi ekki að vinna meira og geti farið að flytja til Danmerkur...haft áhyggjur af peningamálunum mínum...og lært eitthvað...ég þrái að læra...læra læra læra...hélt að það væri ekki hægt...eeen hef á tilfinningunni að þegar hrísgrjón verða orðin í matinn fimm sinnum í viku að ég muni þrá að vinna...vinna...vinna...
Stay black - Salinto!

9.7.05

...Og hvar er...

...Ru Paul í dag?
Stay black - Salinto!
...Og gærkvöldið...

...var eitt það skemmtilegasta kvöld ever...

...ég þarf greinilega að fara oftar að djamma með systur minni...
Stay black - Salinto!

7.7.05

...Og þessir dagar...

...einkennast af furðulegri tilfinningu sem ég hef sjaldan fundið fyrir áður...tilfinning sem er ógeðslega óþægileg...

...það er stress...stress yfir peningamálum þegar ég fer út...stress yfir að finna ekki íbúð...stress yfir að sökka...stress stress stress...

...eeeen ég ætla að hrista þetta af mér...
Stay black - Salinto!
...Og ég hélt...

...að ég hefði ekkert vit á víni fyrr en ég blaðaði Fréttablaðinu í dag og sá að rauðvínið sem ég drekk er verðlaunavín...GO Tomassi!!
Stay black - Salinto!

6.7.05

...Og ég er...

...í spinning hjá geðsjúklingi...G-E-Ð-S-J-Ú-K-L-I-N-G-I segi ég...

...fór til hennar á mánudaginn...eftir hálftíma af sjúklegu spinningi þá fann ég ekki fyrir fótunum á mér, náði ekki andanum, var jafn blaut og eftir góða sturtu og svimaði...eftir spinningið tók hún svo lyftingar og magaæfingar í hálftíma...og ég sver það að ég var BÚIN...

...þá hefði maður ætlað að ég myndi læra eitthvað og ekki fara aftur í þessa sjálfspíningu...en eftir rólegan og frekar leiðinlegan spinning tíma í gær þá ákvað ég að skella mér aftur til geðsjúklingsins...samt með sjúúúúklegar harðsperrur í öllum líkamanum...en kennarinn var ennþá geðsjúklingur og ég held að ég sé byrjuð að fíla það nokkuð vel...

...mig langar meira að segja svolítið að vera geðsjúklingur...þá væri ég kannski mjó...
Stay black - Salinto!
...Og loksins loksins...

...eru flottu módelmyndirnar sem Íris tók af mér komnar inn á netið...það eru margir búnir að spyrjast fyrir um þessar myndir enda afar flottar og á Íris Huggie hrós skilið fyrir að láta mig líta út eins og stjarna...kíkið hér til að sjá myndirnar...

...annars skelltum við Íris Huggie okkur á Queens of the Stone Age og Foo Fighters í gær...vorum á A svæði og á einum tímapunkti á tónleikunum náðum við næstum því að snerta Dave Grohl...sem hefði ekki verið verra...

...þessir tónleikar voru í einu orði sagt frábærir...en ekki samt eins og góðir og Duran í síðustu viku ótrúlegt en satt...nú bíður maður bara eftir Snoop sem vonandi stendur undir miklum væntingum mínum...hann ætti eiginlega að fá Glódísi frænku mína upp með sér á svið þar sem hún er farin að geta smellt svona ansi vel í góm...it´s a thought...
Stay black - Salinto!

4.7.05

...Og ég komst að því...

...um helgina að ég og Íris Huggie eigum eiginlega ekki að vera úti á meðal fólks undir áhrifum áfengis...

...ég hefði svo sem átt að vita það fyrir fram...
Stay black - Salinto!
...Og í kvöld...

...má ekki gleyma aðalþættinum sem á að vera orðinn rótgróinn í dagskrá landsmanna...

...auðvitað er ég að tala um Kvöldþáttinn...og Bananas sem fer þar á kostum rétt eftir klukkan 22.00...víhí...
Stay black - Salinto!

3.7.05

...Og auðvitað...

...var maður pissfullur og vitlaus í gær eins og vanalega...

...ég og crazy stúlkurnar Íris Crazyness...Svampan Gumm...Fjóla nef og Eva litla kíktum út á lífið og það var líka svona sveitt og skemmtilegt...

...og ég sá Michael Jackson...

...í dag er planað Star Wars maraþon með Evu...en hlé verður gert á því þar sem við Íris Huggie þurfum að taka upp í dag...gaman gaman...myndatökumaðurinn búinn að vera svo bissí alla vikuna þannig að þetta er eini lausi tíminn...en við látum það ekki á okkur fá...við erum alltaf tilbúnar...
Stay black - Salinto!

1.7.05

...Og...

...Pamela Anderson er 38 ára í dag...til hamingju Pam...
Stay black - Salinto!
...Og ég trúði ekki...

...að það væri satt en Simon Le Bon heitir Simon Le Bon...nánar tiltekið Simon John Charles Lebon...
Stay black - Salinto!
...Og...

...Duran Duran voru yndislegir í gær...

...ég skipti tónleikunum í tvennt...fyrir og eftir View To A Kill...fyrir það var vægast sagt ömurlega leiðinlegt en eftir View To A Kill var geggjuð stemming og meira að segja ég brosti út að eyrum og öskraði með...þó að ég hafi gjörsamlega misst af þessari bylgju sökum aldurs...

...hápunktur tónleikanna var svo sannarlega þegar nýi kærastinn minn, Simon LeBon, tók stage dive út í áhorfendaskarann...reyndar ekki dive heldur klifraði hann meira upp á hópinn...en hann flaut í dágóða stund...

...uppklappið var gjörsamlega klikkað...þá komst kærastinn minn fyrst í stuð...hann tók salsa spor, kung fu spörk og þvílíkar mjaðma- og handahreyfingar sem sjaldan hafa sést áður...allavega ekki þegar karlmaður er annars vegar...

...bestu lögin voru Notorious, View To A Kill, Reflex, Wild Boys og Save a Prayer...ég er reyndar mjög fúl að þeir tóku ekki uppáhaldslagið mitt, Is There Something I Should Know? en það er önnur saga...

...Simon...I LOVE YOU!
Stay black - Salinto!
...Og áðan...

...ætlaði ég í Bónus í Kringlunni en á síðustu stundu skipti ég um skoðun og fór á Laugaveginn í staðinn...

...ég sá aldeilis ekki eftir því...rétt áður en ég gekk inn í Bónus stoppaði eldri maður mig sem reyndist vera Clint Eastwood...honum leist svona voðalega vel á það sem hann sá og bauð mér aðalkvenhlutverkið í nýjustu mynd sinni, Flags Of Our Fathers, og skipti Angelinu Jolie út fyrir mig...því næst kynnti hann mig fyrir Christian Bale á 101 hótel...Christian leist lika ansi vel á það sem hann sá, skildi við konu sína med det samme og ég ætti ekki að þurfa að segja það en við enduðum í ástaratlotum...

...aaa ef lífið væri svona gott...nei...en það var samt gaman að fara Laugaveginn því ég hitti Siggu sætu sem er að vinna með mér en er í barnseignarleyfi þannig að ég er ekki búin að sjá mikið af henni...svo hitti ég líka Halla flippaða kvikmyndatökumann sem var í stuðinu...svo talaði ég við Íris Crazyness sem plataði mig á fyllerí á edrú helginni minni...ótrúlegt...það er gaman á Laugaveginum...
Stay black - Salinto!

29.6.05

...Og þá er það...

...endanlega staðfest að ég flyt út í haust...var að panta mér farmiða...úúú spennandi...
Stay black - Salinto!
...Og annað kvöld...

...eru það Duran Duran tónleikarnir með aldeilis fríðu föruneyti...ektamaðurinn kemur auðvitað með...báðar systurnar...Íris Huggie Banani og vonandi Svampa Gumm...sem gengur dagsdaglega undir nafninu Svampan...

...annars hljóp ég út í vinnu áðan til að ná í hjólið mitt og uppgötvaði að ég er í engu hlaupaformi enda búin að leggja hlaupabrettið á hilluna og einbeiti mér allri að spinning...sem er yndisleg íþrótt...

...síðan hafa allir sem ég hef hitt rómað Bananas innskotið okkar Írisar í Kvöldþættinum...ekki spillti fyrir frábært viðtal í DV í gær...gaman að þessu...vonandi náum við að standa undir væntingum og hafa innskotin alltaf voðalega skemmtileg...ég held að við getum það alveg...því við erum jú frábærar...æðislegar...meiriháttar...svo ekki sé minnst á fallegar...
Stay black - Salinto!