15.8.05

...Og...

...hvað er mamma þín?

...hún er Þróttari!

...hvað er pabbi þinn?

...hann er Þróttari!

...djöfull var gaman á leiknum áðan...ég er sko alger Köttari...þó að FH viðbjóðurinn hafi unnið...
Stay black - Salinto!

14.8.05

...Og vá hvað var...

...skemmtilegt í gær...jesús...og maður var nett fullur og vitlaus...og ég talaði heillengi við Ryan Philipe áður en ég fattaði að þetta væri hann...þegar ég fattaði að þetta væri hann þá varð ég mongó og öskraði með stelpunum...því miður leyfði hann ekki myndatökur en við náðum mynd af okkur og Billy Elliot og Mister Pepper...

...myndirnar síðan í gær eru allnokkrar og verða komnar hingað áður en dagurinn er á enda runninn...

...en ég trúi eiginlega ekki hvað ég er þunn í dag...og við þurfum að taka upp þáttinn fyrir morgundaginn...ómægod...það verður forvitnilegt...
Stay black - Salinto!

13.8.05

...Og í dag var...

...myndatökumaðurinn okkar Írisar Huggie...hann Halli Flipper...alltof þreyttur til að taka upp með okkur þannig að við fórum bara heim til Svömpu Gumm og horfðum á enska boltann...hér eru nokkrar skemmtilegar myndir af því...

...by the way þá get ég tekið 150 myndir á nýju myndavélina þannig að núna mun ég taka myndir af nákvæmlega ÖLLU sem hendir mig...í kvöld verður sko klikkað...
Stay black - Salinto!
...Og eruð þið ekki...

...að grínast með þetta krútt...vá hvað er gaman að vera skyldur svona fallegu barni...
Stay black - Salinto!
...Og ég trúi ekki...

...að ég þurfi að halda upp á afmælið mitt EIN í Árósum 9. september...usss...það hefur aldrei gerst áður...

...því skora ég á alla þá sem muna eftir því að senda mér línu þann 9.9 til að kæta litlu Lilluna sem verður ein á ókunnugum slóðum...þeir alla hörðustu hringja náttúrulega en það er nú annað mál...
Stay black - Salinto!

12.8.05

...Og ég var...

...að kveðja fyrstu manneskjuna áðan..meeeen hvað það var skrýtið...

...það var hún Freyja sem varð þess heiðurs aðnjótandi að vera fyrsta manneskjan sem ég knúsa og óska alls hins besta í framtíðinni...sniðuga var að hún þurfti lika að kveðja þar sem hún er að fara til Akureyrar og ætlar að búa þar í allavega ár...

...en ég meika ekki allar þessar kveðjustundir...og það verður nóg af þeim á næstunni...maður er uppbókaður allar helgar og virk kvöld og eiginlega alveg ótrúlegt að þetta sé að gerast...

...nú er íbúðin komin út í Árósum en íbúðin okkar hérna er vægast sagt white trash...drasl út um allt...ísskápurinn inn í stofu og óuppsett IKEA innrétting á víð og dreif um húsið...eldhúsið er eins og steypuklumpur með gardínum og svefnherbergið fullt af kössum...ooo it´s soooo romantic...

...en þessu fer að ljúka...vildi samt að ég gæti hætt að vinna ekki seinna en í gær en ég þarf víst að vera eina viku enn á blaðinu og síðan viku á stöðinni...sem er svo sem stuð...eins gott að ég fíflist fyrir næstu nokkra mánuðina með Írisi Huggie svo ég fái ekki of mikil fráhvarfseinkenni...thank god for email...

...en er ég hjólaði heima frá Freyju í Vesturbænum þá velti ég því fyrir mér af hverju er ekki eðlilegt að pissa á sig...ég var gjörsamlega að míga á mig alla leiðina og vildi óska þess að ég hefði bara geta látið það gossa...eins og ekkert væri eðlilegra...vonandi er það þannig í Danmörku...ímyndið ykkur hvað við værum miklu hamingjusamari...og þvottaefnisframleiðendur miklu ríkari...
Stay black - Salinto!

11.8.05

...Og ég var að horfa á...

...kynningu fyrir E! True Hollywood Story á E! og ber þátturinn heitið Love Behind Bars...

...þar er meðal annars talað við konuna sem varð ástfangin af Ted Bundy og haft eftir henni þessi gullna setning: "He was everything I ever dreamed of"...

...já einmitt...ég skil samt alveg hvað hún er að meina...ég meina draumaprinsinn minn er líka vægðarlaus raðmorðingi...eeen maður fær ekki alltaf allt sem maður vill í lífinu...
Stay black - Salinto!

10.8.05

...Og frábær setning...

...sem feita konan lét út úr sér í Wife Swap áðan...

..."If you can´t microwave it, it ain´t worth eating."....

...you gotta love those Americanos...
Stay black - Salinto!
...Og getið...

...hver er kannski komin með íbúð í Árósum...úúú...it´s all coming together...
Stay black - Salinto!

9.8.05

...Og vá hvað ég...

...mikla hlutina fyrir mér þessa dagana...

...ég er ógeðslega þreytt á því að þurfa alltaf að skjótast út í hádeginu að redda hlutum fyrir Danmerkur ferðina...mig langar bara að vera í fríi...svo er ég líka þreytt á að þurfa að koma heim og pakka niður í kassa og taka til og undirbúa grenið fyrir Extreme Makeover -- Home Edition...en svona er víst lífið...ég efast ekki um að talsvert margir í heiminum hafi það mun verr en ég...mér bara líður eins og ég ein eigi bátt þessa dagana...en það gerist víst stundum...

...eeeen voðalega verður gaman að hætta vinna...ég er farin að telja dagana...rosalega verður gott að breyta til...eeeen því miður get ég ekki hætt að vinna alveg jafn snemma og ég hélt því síðustu vikuna mína verðum við Íris að vinna í Bananas eins mikið og við getum...

...það er ótrúlegt hvað fátt annað en Danmörk kemst inn í hausinn á mér þessa dagana...Danmörk og djammið næstu helgi sem ég held að verði rosalega skemmtilegt...

...annars var ég að vingast við flottasta köttinn í hverfinu áðan...ekki seinna vænna segi ég nú bara...það er eitthvað ótrúlega fallegt við það þegar köttur nuddar sér framan í andlitið á þér og tekur þig í sátt...það liggur við að hjartað á mér bráðni á meðan ég skyrpi og hnerra kattahárum...
Stay black - Salinto!

8.8.05

...Og váááá...

...hvað það verður erfitt að velja geisladiska til að taka með til Árósa...ég held að það verði mér um megn...

...eeeen í þessum töluðu orðum var ég að panta borð á Vegamótum fyrir mig og nokkra vel valda aðila næsta laugardag og verður það kveðjupartíið mitt...aaaa ég hlakka til...Eva litla er búin að vera svo væn að lána mér íbúðina sína fyrir fordrykkinn þar sem grenið mitt verður eins og eftir sprengjuárás ef allt gengur eftir...

...annars fannst mér mjög skemmtilegt að vakna í gærmorgun og skoða færsluna sem ég hafði skrifað á bloggið blindfull þegar ég kom heim á laugardagsnóttina...mundi ekki einu sinni eftir þessu...ég þarf að gera þetta oftar...vonandi hef ég ekki skrifað neina grunsamlega tölvupósta líka...
Stay black - Salinto!

7.8.05

...Og ég er ekki frá...

...því að það sé skemmtilegt að vera full...vúhú...en ég afsaka öll sms...svolítið aktív á talnaskífuna...

...annars hittum við Íris mjög skemmtilegan aukaleikara sem heitir Jói...ótrúlegt hvað við hittum mikið af fólkið í kvöld sem þekkir Bananas...og svo náttúrulega hann Jeremy sem er alveg eins og íslenskir strákar...skilur ekki þegar maður hefur ekki áhuga...uss...

...en langt síðan ég hef bloggað undir áhrifum áfengis...hlustið endilega á Say hello wave goodbye með David Gray...og líka Soft Cell...samt flottara með David Gray...fallegra...

...og downloadið líka Cut here með The Cure...það er ótrúlega skemmtilegt lag og hefur svo mikla meiningu fyrir mér...eiginlega of mikla meiningu...baaaa...

...svo er það barnaafmæli á morgun...

...og ég enda á link á heimasíðu á skemmtilegasta vinnustað sem ég hef hlustað á ...*hóst* *hóst*
Stay black - Salinto!

5.8.05

...Og ég var víst...

...að búa til svona myndadæmi á msn þar sem við vorum að kaupa okkur myndavél...kíkið á þetta og þá sjáið þið fallegu frænku mína í öllu sínu veldi...
Stay black - Salinto!
...Og ég sver það...

...að A Letter to Elise með The Cure er fallegasta lag í heimi...mæli sérstaklega með því unplugged...
Stay black - Salinto!
...Og í kvöld...

...er stefnan tekin á Heru tónleika með Earlie Pearlie systur minni...

...kvöldið í kvöld verður edrú kvöld þar sem Bananas eru í ströngum upptökum á morgun...byrjum snemma í fyrramálið og gerum ekki hlé fyrr en Gay Pride er flautað á...það er erfitt að vera stjarna...

...annars hlakka ég til kvöldsins þar sem systir mín er einstaklega skemmtileg og alltaf gaman að hitta hana...þó að ég hafi verið búin að plana kvöldið mitt ein heima með fullt af nammi, ís og vídjó...kannski best að Earlie dró mig út þar sem ég og þjónustufulltrúinn urðum sammála um það áðan að ég hefði alveg efni á því að svelta í Danmörku...
Stay black - Salinto!
...Og af hverju...

...er Sean Penn svona ógeðslega flottur???!!!!...

...og það sem meira máli skiptir...af hverju er ég ekki konan hans?!
Stay black - Salinto!

4.8.05

...Og ég var búin að gleyma...

...hvað er gaman að fara inn í dótabúð...

...fór í dótabúð til að finna gjöf handa uppáhaldsfrænku minni, henni Glódísi, sem verður eins árs 28. ágúst, daginn áður en ég fer út...

...það er ekkert smá skemmtilegt að týna sér í öllu frábæra dótinu sem er á markaðinum og hreint út sagt svindl að maður sé ekki krakki lengur...það er miklu skemmtilegra svo ég tali nú ekki um auðveldara...

...eeeeen ég var síðan hressilega minnt á af hverju það er líka ódýrara að vera fullorðin þegar ég sá verðmiðann á gjöfinni sem ég fann handa Glódísi...heilar sex þúsund krónur...hvað er það? Fyrir eitthvað ómerkilegt dót...reyndar mjög merkilegt dót en samt dót...nú heldur leitin áfram að hinni fullkomnu gjöf handa fullkominni stelpu...

...annars keyptum við ektamaðurinn digital myndavél í gær...gaman gaman...var að prófa hana áðan og líst vel á...maður verður nú að minna á sig þegar maður býr margar sjómílur í burtu...

...en þessi mánuður einkennist af skylduútgjöldum og peningum...já peningum...aldrei hefði mér dottið það í hug...fékk náttúrulega fyrstu Bananas greiðsluna og loksins loksins greiðslu frá Eskimo fyrir auglýsingu sem ég lék í fyrir heilum fjórum mánuðum...hressir strákarnir á Eskimo...en ótrúlegt hvað þessir nokkru þúsundkarlar gátu huggað mig í peningaáhyggjum þar sem sama dag og ég fékk peninginn fór ég í Íslandsbanka og gekk frá þriggja milljón króna láninu mínu...ójá...eins gott að ég komi í DV einhvern daginn sem tekjuhæsta kona landsins...hefði allavega ekkert á móti að hafa tuttugu milljónir í mánaðarlaun...
Stay black - Salinto!

3.8.05

...Og hvað er málið...

...með engar ríðingar í Wife Swap?!...rip off...
Stay black - Salinto!
...Og ég heyrði lagið...

...Narcotic með hljómsveitinni Liquido áðan...

...ég er ekki frá því að þetta lag eldist bara nokkuð vel...allavega miðað við öll crap one hit wonderin sem skutu upp kollinum á tíunda áratugnum...
Stay black - Salinto!
...Og ég er mjööög fegin...

...að ég er ekki piparsveinn...jú eða piparjónka...

...ég bý í greni þessa stundina og þar af leiðandi er eldhúsið óstarfrækt...fyrir utan örbylgjuofnin...því samanstendur maturinn af take-away, örbylgjupoppi og núðlusúpu...

...en áðan fór ég í Krónuna eftir ræktina og freistaði þess að kaupa mjööög djúsí örbylgjumat...ég hélt náttúrulega að það væri alveg til þar sem ég elda aldrei neitt í örbylgjunni...en viti menn...það er ekkert djúsí til nema 1944...sem kostar morðfjár...

...djöfull er þetta ömurlegt...örbylgjupopp í matinn enn og aftur...
Stay black - Salinto!

2.8.05

...Og var ég búin að segja...

...ykkur að ég flyt út eftir 27 daga?!?!...

...íííííhaaaaa!
...Og núna óttast ég um líf mitt...

...dreymdi blóð og blæðingu úr hendi og blóð á fötunum mínum um helgina...ákvað að fletta því upp en ég hefði betur sleppt því...

Bleeding To dream of bleeding, denotes death by horrible accidents and malicious reports about you. Fortune will turn against you.

Blood Blood-stained garments, indicate enemies who seek to tear down a successful career that is opening up before you. The dreamer should beware of strange friendships. To see blood flowing from a wound, physical ailments and worry. Bad business caused from disastrous dealings with foreign combines. To see blood on your hands, immediate bad luck, if not careful of your person and your own affairs.

...ég er eiginlega alveg í rusli...án gríns...
Stay black - Salinto!
...Og that´s what I´m talking about...

...þunglyndis- og ástarsorgar tónlist af besta tagi frá The Cure á þriðjudagsmorgni...gerist það betra?

"The Perfect Girl"

You're such a strange girl
I think you come from another world
You're such a strange girl
I really don't understand a word
You're such a strange girl
I'd like to shake you around and around
You're such a strange girl
I'd like
To turn you
All upside down

You're such aStrange girl
The way you look like you do
You're such a strange girl
I want
To be with you

I think I'm falling
I think I'm falling in
I think I'm falling in love with you
With you

Stay Black - Salinto!

1.8.05

...Og ég gleymdi...

...alveg að minnast á svaðalegan tvífara sem ég og Sigga Vala V rákumst á á Ölstofunni í gærkvöldi...hann hefði getað bjargað kvöldinu gjörsamlega...eeeen reyndist svo bara vera tvífari...því er nú verr og miður...good times
Stay b lack - Salinto!
...Og ég get ekki beðið...

...eftir að flytja út til Danmark...get ekki get ekki get ekki get ekki beðið...

...annars kom helgin skemmtilega, skringilega, óhugnalega og fuðurlega á óvart...

...á föstudaginn fórum við Íris Huggie á massadjamm með Svono the Bogo og Siggu Völu V svo einhverjir séu nefndir...ég og Íris hlógum okkur máttlausar af Lolo the Bogo the loco the jocko...the bongo...því miður er ekki hægt að útskýra þennan brandara...you sort of had to be there...

...en Íris stóð sig vel á Óliver og hösslaði hvern útlending á fætur öðrum til að bjóða okkur í glas...hún hefði kannski betur sleppt því þar sem við höldum að einhver hafi látið nauðgunarlyf í drykkina okkar...kvöldið er allavega allt í móðu og eftir stutta dvöl á Ölstofunni man ég akkúrat ekki neitt þangað til Íris vakti mig klukkan tíu um morguninn...ekki þægileg tilfinning en það kennir manni að drekka ekki eins og það sé enginn morgundagur...en ég náði að halda meðvitund þegar ég fékk Bananas pick up línuna á Óliver..."Hey þú ert í Bananas á Sirkus. Áttu kærasta?"...gaman að þessu...

...á laugardaginn svaf ég til hádegis og gerði akkúrat ekki neitt...um kvöldið keyrðum við ektamaðurinn í sumarbústað til Önnu Siggu systur og fengum dýrindismat og töluðum um allt milli himins og jarðar...gott kvöld það...

...gærkvöldið var síðan skrýtið...ég drakk og drakk bjór eftir bjór en fann eiginlega ekkert á mér...ferðaðist um skemmtistaði borgarinnar með ektamanni og hans vinum og hitti eiginlega engan sem ég þekkti þannig að ég var komin heim um þrjú leytið...

...í dag er maður síðan í letinni og namminu og eiginlega hálfmáttlaus eftir átök helgarinnar...var að hugsa með mér að drekka ekkert næstu helgar en fattaði síðan að næstu helgar eru uppbókaðar þar sem everyone want´s a piece of me áður en ég fer út til útlanda...get ekki beðið...var ég nokkuð búin að minnast á það?
Stay black - Salinto!