4.2.08

...Og þetta...

...er svo mikil snilld!

<>

Stay black - Salinto!
...Og febrúar...

...er svo sannarlega mánuðurinn...örugglega skemmtilegasti mánuður ársins...leyfi ég mér að næstum því fullyrða...sjáum til samt...

...mánuðurinn byrjaði vel með nýrri klippingu og góðu partíi í úthverfi Árósa þar sem Liljan klæddi sig upp sem Marilyn Monroe og gerði mann og annan vitlausan í naríunum...eða svona...kannski aðeins að ýkja...laug að einum gaur að ég væri 34 ára...hann trúði mér varla en sagði síðan að ég liti hrikalega vel út...svo hætti hann að reyna við mig og snéri sér að smástelpunum...mér fannst það smart...

...svo er það næsti föstudagur sem á hug og hjarta mitt...en þá fljúgum við Katinka vinkona mín til Mílanó á Ítalíu og eyðum þar þremur nóttum á hóteli í hjarta borgarinnar...úff ég held að það verði yndislegt að komast aðeins í burtu...Árósar er yndisleg borg en there's only so much you can do...og Mílanó...meen oh meeen...manni finnst nú ekki leiðinlegt að versla...okkur Katinku langar að kaupa okkur eitt designer item each en þar sem kjóll í Prada kostar væntanlega mörg hundruð þúsund sem ég á ekki þá enda ég því að labba út úr Gucci með lyklakippu...oh well...

...þegar ég kem heim frá Mílanó líður einn dagur og síðan þeytist ég til Köben að sjá elskurnar mínar í The Cure í Forum...get ekki beðið...það verður náttúrulega geðveikt...hef dreymt svo lengi um að sjá þá...og þar sem ég á nú þrjátíu diska með hljómsveitinni ætti ég að geta sungið með...

...dagurinn eftir The Cure er Valentínusardagurinn og þá fer ég í eitthvað svakalegt single and ready to mingle partí sem Katinka vinkona mín er að halda með speed dating og ég veit ekki hvað og hvað...sjáum til hvernig það endar...örugglega vel...ég er allavega mjög single og ready to mingle...

...og daginn eftir partíið er Teitur með tónleika í Árósum...vááá hvað ég hlakka til...er búin að bíða eftir honum svo lengi...

...svo kemur smá pása í veisluhöldum þangað til 27. febrúar þegar ég fer á tónleika með Múm og Hjaltalín í Árósum...úje...verður stuð...

...jæja...þetta er ágætisplan...og maður verður líka að reyna að finna tíma til að fara í skólann...sem ég brilleraði í í dag by the way...virkilega náði að gera allt sem ég átti að gera rétt í leiklistartímanum og lét fólk fara að grenja...er það ekki markmiðið með þessu öllu saman ?! heheh...segi svona...samt smá mont í gangi...

...og ég rakst á ógeðis færeyinginn á sunnudaginn í þynnkunni og fékk ekki sting í magann heldur sönglaði í hausnum "ugly ugly ugly ugly uuuugly" með Batman laginu...enda er hann ekkert smá ljótur drengurinn...sjæze búlla...maður er alltof fallegur fyrir svona fífl...

...ég kveð að sinni í bjartsýnisskapi...
Stay black - Salinto!

29.1.08

....Og ég setti mér...

...smá markmið...skemmtilegt markmið....

...að reyna að horfa á sem flestar myndir sem tilnefndar voru til Óskarsverðlaunanna í hinum ýmsu flokkum áður en sjálf Óskarsverðlaunin fara fram...

...því það er alltaf þannig að maður þekkir ekki helminginn af myndunum sem tilnefndar eru...

...hingað til er ég búin að horfa á No Country For Old Men, Juno, Away From Her, Michael Clayton, Eastern Promises, Ratatouille, Atonement og Charlie Wilson's War...

...verð ég að segja að No Country For Old Men stendur upp úr...algjör snilld sem hélt mér vakandi um miðja nótt...Javier Bardem hefur verið kærastinn minn síðan ég sá Días Contados árið 1994 og hann er fer á kostum...Coen bræður klikka ekki frekar en fyrri daginn...snillingar!

...Juno kom skemmtilega á óvart...frábær mynd sem ég hló yfir og grét úr mér augun...mæli með henni...
Stay black - Salinto!

25.1.08

...Og ég er ástfangin...

...og nýi maðurinn minn er búinn að bjarga mér í veikindunum sem hafa hrjáð mig alla þessa vikuna...ég er orðin samvaxin rúminu mínu og búin að klára 3 seríur af frábærum þætti sem heitir It's Always Sunny In Philadelphia...

...kærastinn minn hefur verið hér hjá mér alla vikuna og látið mig grenja af hlátri því hann er svo frábær...kærastinn minn heitir Charlie Day og er yndislegur...


Stay black - Salinto!

12.1.08

...Og við þennan mann...

...fékk ég að spjalla við á nýársdjamminu...bara monta mig aðeins...snillingur! Nú hef ég allavega hitt eitt af idolunum mínum...næstur er Sean Penn...á lausu...víhí!



Stay black - Salinto!

31.12.07

...Og jæja...

...ég er búin að hugsa vel og lengi hvort ég eigi að demba fréttum dagsins á alheimsvefinn og er bara að spá í að gera það til að skrifa þær frá mér og halda lífi mínu áfram...

...loksins í dag fékk ég loka staðfestingu á því að ástin er ekki fyrir mig...

...mér var dömpað...og ekki nóg með það...í SMS-i...helvítis Færeyingurinn (sem er búinn að vera kærastinn minn síðasta mánuðinn og sá ekki sólina fyrir mér þangað til í dag) hafði ekki manndóm í sér til að hringja frá Færeyjum og segja mér að hann væri byrjaður með einhverri færeyskri stúlku..."Lilja...þetta gengur ekki lengur og ég get ekki logið lengur"...hmmm....en að sjálfsögðu gat hann ekki hringt...það er náttúrulega svo svakalega dýrt að hringja svona á milli landa...ódýrt og einfalt að senda SMS...þá þarf maður ekkert að eiga von á því að þurfa að svara fyrir gjörðir sínar...

...eftir klukkutíma af grenji og volæði er ég búin að hugsa í allt kvöld hvað þetta þýði...og ég held að þetta hljóti bara að þýða að ég eigi að halda mig frá karlmönnum og ástinni...og greinilega ekki treysta fólki þar sem því er búið að finnast voðalega gaman að særa mig síðustu mánuðina...

...en eins og Ormur sagði þá hefur maður gott af því að vera dömpað...hef ekki verið dömpað eiginlega síðan árið 2001...og viti menn...það var líka í SMS-i! Jahérna hér...

...með höfuðverk og grenjverki í augunum kveð ég að sinni og óska ykkur gleðilegs árs...ég ætla að halda áfram að vera tilfinningalaus og köld...óglatt og bíðandi eftir öðru SMS-i sem segir: "Nei ég var bara að tvatla í þér!"
Stay black - Salinto!

17.12.07

...Og jæja...

...þessi önn í skólanum er búin að vera vægast sagt emotional...grátið...hlegið...pirringur...hatur...ást...og allt þar á milli...

...frumsýningunni á Lísu í Undralandi var frestað út af puttanum á mér en kennararnir mínir vildu hvort sem er fresta henni því þeir eru búnir að vera rosalega óánægðir með hópinn...og allt ferlið...ég hef svo sem ekki tekið það sérstaklega til mín því ég hef gefið mína sálu og líf í þessa sýningu og sé ekki eftir neinu...

...en daginn sem ég beið eftir flugi á Kastrup var fundur með bekknum um þetta ferli allt saman og þá tilkynntu kennararnir að þessar tvær prufusýningar sem við sýndum á fimmtudaginn hefðu verið prófið okkar í leiklist fyrir önnina...og þeir tilkynntu einnig að aðeins sex hefðu staðist prófið (við erum þrettán í bekknum)...þessir sex fengu að setja upp aðra leiksýningu á næstu önn en hinir sjö þyrftu að læra aftur það sem við lærðum á fyrstu önn því þeir hefðu ekki getað notað það sem við lærðum á réttan hátt...og það sem við lærðum á fyrstu önn er náttúrulega það leiðinlegasta ever...

...og því er ég ekkert smá hamingjusöm yfir því að ég er í þessum sex manna hópi sem náði prófinu! Og mér finnst þessi texti með Teit lýsa lífinu í leiklistarskóla mjög vel...þvílíkur tilfinningalegur rússíbani finnst varla nokkurs staðar annars staðar...

Who is to say who wins or who loses?
I sing to myself at the end of the day when I know what the blues is,
And all my mistakes have become masterpieces.

I was born in the goodness of grace.
And because of faith, because of courage, because of forgiveness,
All my mistakes have become masterpieces.

And there comes a time,
You must stay in the moment while your heart's still bleedin'.
And there comes a time
When you must walk away though your heart's still beatin'.

Ooooo...
Ooooo...

And there comes a time,
You must stay in the moment while your heart's still bleedin'.
And there comes a time,
When you must walk away though your heart's still beatin'.

Who is to say who wins or who loses?
I sign to myself at the end of the day when I know what the blues is.
And all my mistakes have become masterpieces.
All my mistakes have become masterpieces.

Stay black - Salinto!

15.12.07

...Og ég nenni ekki..

..að skrifa um martröðina sem heimferðin var...heimska íslenska veður lét mig hanga á kastrup í 12 tíma...

...en jæja...ég er hamingjusöm...og hér er fallegur texti með Bright Eyes...lovely...

This is the first day of my life
I swear I was born right in the doorway
I went out in the rain suddenly everything changed
They're spreading blankets on the beach

Yours is the first face that I saw
I think I was blind before I met you
Now I don’t know where I am
I don’t know where I’ve been
But I know where I want to go

And so I thought I’d let you know
That these things take forever
I especially am slow
But I realize that I need you
And I wondered if I could come home

Remember the time you drove all night
Just to meet me in the morning
And I thought it was strange you said everything changed
You felt as if you'd just woke up
And you said “this is the first day of my life
I’m glad I didn’t die before I met you
But now I don’t care I could go anywhere with you
And I’d probably be happy”

So if you want to be with me
With these things there’s no telling
We just have to wait and see
But I’d rather be working for a paycheck
Than waiting to win the lottery
Besides maybe this time is different
I mean I really think you like me

Stay black - Salinto!

12.12.07

...Og jæja...

...síðustu dagar og vikur eru búnar að taka á og ég get ekki beðið eftir að koma heim á föstudaginn...vildi að ég gæti samt tekið sumt fólk með mér en það er víst líka gaman að sakna fólks...

...lenti í því að fá flís í puttann og lenti upp á spítala þar sem ég var skorin upp og fingurinn saumaður aftur saman...jájá...fór í aðgerð á putta...tveimur dögum fyrir frumsýningu...sem varð til þess að frumsýningunni er frestað fram til 11. janúar...á morgun sýnum við reyndar 2 prufusýningar...generalprufu ef hægt er að kalla það því nafni...bara til að fá tilfinninguna fyrir þessu áður en við förum heim...

...en það er náttúrulega ekki sniðugt að vera ekki búin að eiga frídag í meira en mánuð og ekki búin að sofa út síðan ég veit ekki hvenær...lengsti dagurinn minn hefur verið frá 9 um morguninn til þrjú um nóttina og síðan mætt aftur níu næsta morgun en vanalegasti vinnutíminn hér á bæ er frá 9 til miðnættis...kreisí...og þá erum við ekki í neinum rosalegum pásum...kannski samanlagt eins og hálfs tíma pása yfir allan daginn...vúff...

...en ég fékk í skóinn í morgun því ég trúi enn á jólasveininn og var svo góð stelpa í gær...Stekkjastaur gaf mér húkkulaði þó ég væri ekki heima hjá mér sem er frábært...hann getur sem sagt fundið mig hvar sem er...

...Stekkjastaur kom fyrstur,
stinnur eins og tré.
Hann laumaðist í fjárhúsin
og lék á bóndans fé.

Hann vildi sjúga ærnar,
-þá varð þeim ekki um sel,
því greyið hafði staurfætur,
-það gekk nú ekki vel.

Stay black - Salinto!

25.11.07

...Og þetta er svo fallegt lag...

...að ég get hlustað á það aftur og aftur...



...Teitur er náttúrulega búinn að vera kærastinn minn lengi og ég vona að þessi yndislegi Færeyingur komi til Árósa mjög bráðlega...það segir sagan...Ane Brun er líka snillingur og frá Noregi...góð blanda...gaman þegar norrænt samstarf gengur vel..

...annars er ég búin að eyða miklum tíma með Færeyingi upp á síðkastið og ég er við það að pissa í mig stundum hvað málið þeirra er krúttlegt...þeir segja til dæmis ekki önd heldur dúna...kartafla er epli og epli er súrepli...krúttlegt...heheh

...annars kemur textinn af Rubber & Soul hér ef einhverjum langar að lesa fallegt ljóð...

In my mind I`m crawling on your floor
Vomiting and defeated
Total absence of grace
Your reluctant voice
saying; you decide your own fate

But I wear rubberbands round my soul
They keep me from crawling
And these rubberbands round my soul
they keep me from falling

In my repeated dreams
You stare at me with an empty gaze
You turn your back on me
And you search for more intriguing days

Loathing this
Controlling this
Let me get a hold of this

So I wear rubberbands round my soul
They keep me from crawling
And these rubberbands round my soul
they keep me from falling

And then when you are not in my dreams
and not in my mind
but we are at the same place
at the same time
rubber no longer holds
the borders of my soul

Stay black - Salinto!

12.11.07

...Og ég kom til Árósa...

...rúmlega níu í morgun eftir engan svefn...skellti mér þá beint í Kvickly og keypti mér epli, gulrætur og sushi til að svala sárasta hungrinu...hitti kennarann minn þar...sem ég er by the way smá ástfangin af...og við löbbuðum saman í skólann...

...hann spurði mig hvað ég hefði gert um helgina og ég fór að lýsa þessum frábæru Take That tónleiku sem hafði verið draumur minn í tólf ár...og þá sagði hann við mig að draumur minn hefði sem sagt ræst...og ég jánkaði því...og þá fór ég að hugsa að það hefur sveimér þá aldrei gerst í fullorðnislífi mínu...að draumur minn hafi ræst...þetta er orðatak sem maður notar oft en skilur ekki beint hvað það þýðir...en í gær skildi ég það...draumur minn rættist...ef maður getur látið einn draum rætast á ævinni þá er það nokkuð gott...ég hlakka til að láta næsta draum rætast...verða fræg Bollywood stjarna og ferðast á enda veraldar...víhí! Það getur ekkert stoppað mig núna...

...get ekki hætt að brosa og hlusta á Take That...lífið er svo dásamlegt að það er ekki einu sinni fyndið...þó ég sé búin að sofa í samanlagt fjóra tíma og búin að vera í skólanum í 10 tíma...og kjúklingurinn minn er endalaust lengi að steikjast...þá get ég bara ekki annað en brosað framan í heiminn...

...og ég er búin að tryggja mér miða á The Cure í Köben í febrúar...annar draumur rætist...fíla þetta draumastand...


Stay black - Salinto!

11.11.07

...Og ég er ennþá jafn...

...ástfangin af Take That og ég var fyrir tólf árum...tónleikarnir voru geðveikir! Ég hef aldrei farið á svona flotta tónleika á ævinni...þegar maður fer bara á tónleika á Íslandi býst maður við engu en vá...þetta var náttúrulega sjúklegt...ég öskraði textana eins og smástelpa og kunni ennþá gömlu sporin eins og algjör nörd...var sex metra frá sviðinu og hélt ég myndi deyja...úfff...ég verð lengi að jafna mig á þessu....



Stay black - Salinto!

24.10.07

...Og ók..

...Van Morrison...ég elska þig út af lífinu og þú kemur mér í gott skap...en hvernig er ekki hægt að vilja verða ástfanginn þegar maður hlustar á svona texta?....ég bara spyr...

You can take all the tea in china
Put it in a big brown bag for me
Sail right around the seven oceans
Drop it straight into the deep blue sea
Shes as sweet as tupelo honey
Shes an angel of the first degree
Shes as sweet as tupelo honey
Just like honey from the bee

You cant stop us on the road to freedom
You cant keep us cause our eyes can see
Men with insight, men in granite
Knights in armor bent on chivalry
Shes as sweet as tupelo honey
Shes an angel of the first degree
Shes as sweet as tupelo honey
Just like honey from the bee

You cant stop us on the road to freedom
You cant stop us cause our eyes can see
Men with insight, men in granite
Knights in armor intent on chivalry
Shes as sweet as tupelo honey
Shes an angel of the first degree
Shes as sweet as tupelo honey
Just like honey from the bee

You know shes alright
You know shes alright with me
Shes alright, shes alright (shes an angel)

You can take all the tea in china
Put it in a big brown bag for me
Sail it right around the seven oceans
Drop it smack dab in the middle of the deep blue sea
Because shes as sweet as tupelo honey
Shes an angel of the first degree
Shes as sweet as tupelo honey
Just like honey from the bee

Shes as sweet as tupelo honey
Shes an angel of the first degree
Shes as sweet as tupelo honey
Just like the honey, baby, from the bee
Shes my baby, you know shes alright.....

Stay black - Salinto!
...Og af hverju...

...er Sean Penn ekki maðurinn minn? Er ég ekki miklu sætari en Robin Wright?



Stay black- Salinto!

21.10.07

...Og ég fór...

...á tónleika með Roisin Murphy í gærkvöldi...

...Murphy þekkja flestir úr hinu frábæra bandi Moloko sem var stofnað árið 1995 en eftir að Murphy hætti með Mark Brydon, hinum helmingi Moloko, hóf hún sólóferil stelpan og var að gefa út sína aðra plötu fyrir stuttu sem heitir því einfalda en skemmtilega nafni Overpowered...

...og hún náði gjörsamlega að heilla mig stelpan...geggjuð söngkonan...minnir soldið á Urði í Gus Gus...og deeead sexy...ég gæti gifst henni...



Stay black - Salinto!

15.10.07

...Og loksins loksins...

...er Sindý númer II komin úr viðgerð...Danir eru náttúrulega ekki þeir fljótustu í heimi og tók það mánuð að laga tölvuna mína þar sem að þeir klúðruðu málinu all svakalega...en allt er gott sem endar vel...

...og Tyra búin að gera America's Next Top Model reyklausa keppni....jahérna...

...og tattúið mitt er fallegast í heimi...



Stay black - Salinto!

21.9.07

...Og nú er mín...

...komin með tattú...það fyrst og væntanlega eina...valdi að hafa það á síðunni rétt fyrir ofan mjöðm og gæti ekki verið ánægðari...sýni mynd þegar ég kemst á tölvu sem ég kann á...getið líka kíkt á www.myspace.com/liljagnarr...

...Lilja fyrir Lilju...

Stay black - Salinto!

12.9.07

...Og nú...

...gafst tölvan mín loksins upp á mér...cindý númer 2 er komin í viðgerð þannig að ég er háð góðmennsku annara til að vinna fyrir Séð og heyrt sem þýðir að ég verð ekki mikið í blogginu næstu daga...

...líka brjálað að gera í skólanum...aldrei búin fyrir 18 eða 19 á kvöldin og þá tekur við stífur lærdómur...

...annars þakka ég fyrir hlýhug í minn garð á afmælisdaginn...þið eruð yndisleg...

...partí hjá mér á laugardaginn...þér er boðið...
Stay black - Salinto!

9.9.07

...Og ég á...

...afmæli í dag...ég nenni ekki neinu...eins og vitur maður orti...

...ég hef greinilega verið góð stelpa í ár þar sem guðirnir brosa við mér í dag...takk fyrir það...

...nýtt ár og nýir möguleikar...25 ára...held að þetta verði besta árið hingað til...
Stay black - Salinto!
...Og þetta er...

...alltof flott...



Stay black - Salinto!

5.9.07

...Og...

...Michael Bublé á sama afmælisdag og ég...ég er ekkert smá ánægð núna!
-L

4.9.07

...Og það er leitin...

...að fallegri konu...



...og hún á afmæli í dag...26 ára þessi elska...

Stay black - Salinto!
...Og þá er maður...

...kominn aftur til Danmark...og það er yndislegt...

...voða dugleg að skokka síðustu tvo daga...varð fyrir svo miklum innblástri þegar ég steig á vigtina í sumar og var þá búin að léttast um tíu kíló síðan ég flutti til danmerkur...veit ekki hvert þau fóru því ég tek ekki eftir neinu...en þetta er fínt...ég kvarta ekki...

...og ég er með sama númerið að sjálfsögðu...+45 20691063...
Stay black - Salinto!

30.8.07

...Og...

Your Adult Film Star Name Is...

Luscious Lolita


Stay black - Salinto!
...Og þá er ég búin...

...með klippikortið mitt á Græna ljósinu...sá átta myndir þar sem tvö klipp voru splæst á Svömpu Gumm The Svono The Bogo...hér kemur listi yfir myndirnar...númer 1 er best og númer 8 er laaaang verst...

8. Zoo
Ég veit ekki hvort ég get drullað nóg yfir þessa mynd. Hún var leiðinleg, alltof löng, illa gerð og afskaplega óáhugaverð...eina góða setningin var þegar einn hestamisnotarinn sagði: "People think I'm a bad person because of my love for the horses"...þegar maður fer á svona myndir býst maður við að verða hneykslaður...ég varð hneykslaðri á snyrtivörukynningu sem ég fór á seinna um kvöldið þar sem förðunaraðferðirnar voru meira brútal en mynd um dýraperra...er það hægt?

7. Cocaine Cowboys
Alltof mikið tal en áhugavert efni og mjög gaman að fylgjast með hvernig Miami varð að þeirri borg sem hún er í dag sem hefði vafalaust ekki gerst nema fyrir tilstylli kókaínkúrekanna sem dældu peninga í alls kyns byggingarframkvæmdir...

6. Deliver Us From Evil
Áhugaverð heimildarmynd um kaþólskan prest sem er barnaperri...ef maður hatar eitthvað eftir þessa mynd er það ekki presturinn heldur kaþólskan kirkjan sem hylmir yfir svona veiku fólki sem misnotar stöðu sína til að fitla við smábörn...algjör viðbjóður...

5. For Your Consideration
Mynd sem mig langar tvímælalaust að sjá aftur...frábærir brandarar inni á milli og ekki skemmir fyrir að eiginmaðurinn minn tilvonandi, Ricky Gervais, er í stóru hlutverki...

4. Sicko
Var ekki eins hrifin af þessari Michael Moore mynd eins og Bowling For Columbine en er hún þó mun betri en Fahrenheit sem mér fannst persónulega léleg og langdregin. Mjög athyglisvert að skyggnast inn í heilbrigðiskerfi Bandaríkjanna en Moore er kannski ekki rétti maðurinn í svona myndagerð þar sem hann augljóslega hatar Bandaríkin...það eru alltaf tvær hliðar á sama teningnum...

3. The Bridge
Get ekki sagt að ég hafi verið uppfull af gleði þegar ég rölti út af þessari en mjög vel gerð engu að síður að mínu mati...flott viðtöl við áhugavert fólk og vafasöm kynning fyrir San Francisco...

2. Death of a President
Mjög vel gerð leikin heimildarmynd sem heldur manni við efnið allan tímann. Svolítið lengi að byrja að vel þess virði og margir góðir punktar sem koma í ljós...

1. Shortbus
Frábær mynd í alla staði! Ég grét...ég hló mig máttlausa og mig langaði að æla á einum tímapunkti...hún skildi svo mikið eftir þessi fallega mynd og alls ekki verið að reyna að hneyksla mann með ógeðslegum kynlífssenum heldur voru þær mjög fallega gerðar...en nota bene...þessi mynd er ekki fyrir hommahatara (Árni...þetta er fyrir þig!)

Stay black - Salinto!